Morgunblaðið - 11.01.1997, Síða 1
96 SÍÐUR B/C
8. TBL. 85. ÁRG.
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nordlys/Ole Ásheim
SNJÓKOMA og skafrenningur hafa fært hús í Norður-Noregi í kaf. Þessi mynd var tekin í Tromso þar sem húseigendur hafa fengið
aðstoð hjálparsveitarmanna við að moka sig út úr húsum sínum. Spáð er áframhaldandi snjókomu á svæðinu.
Snjóflóð valda mann-
Ijóni í Norður-Noregi
Osló, Tromso. Morgunblaðið.
MESTA fannfergi sem verið hefur í fimmtán ár
í Norður-Noregi hefur valdið miklum samgönguerf-
iðleikum og snjóflóðahættu á svæðinu. Síðdegis í
gær féll um 100 m breitt snjóflóð um íjörutíu km
austan við Tromso, sem hreif með sér tvö íbúðar-
hús og einn bíl, en það var aðeins eitt af mörgum
flóðum sem féllu í gærdag. Eldri hjón, sem bjuggu
í einu húsanna, fundust látin er björgunarmenn
komust á vettvang. Eins manns er saknað, og
tveir liggja alvarlega slasaðir á sjúkrahúsi.
Á Vannoya norður af Tromse hafa um sjötíu
manns orðið að yfirgefa heimili sín sökum hættu
á snjóflóðum. Fjölmörg lítil flóð hafa fallið í
Eldri hjón fórust í
fannferginu - mesta
snjókoma í fimmtán ár
Troms-fylki og Austur-Finnmörku. í gærkvöldi
hafði ekki enn verið lýst yfir neyðarástandi á
svæðinu, en að sögn heimildarmanna Morgun-
blaðsins voru björgunarsveitir hersins, Sivilfor-
svaret, í viðbragðsstöðu, þar sem hætta á frekari
snjóflóðum var talin mikil.
í Norðlandi, Troms og Finnmörku hafa flestir
vegir verið lokaðir frá því á fimmtudag og miklar
tafir hafa orðið í flugi. Fjölmargir komust ekki
til vinnu og skóla í gær og nú þegar er ljóst að
skólahald fellur niður víða, þar sem vegagerðin
segist þurfa helgina til að opna vegi á svæðinu.
Veðrið, sem skall á aðfaranótt fimmtudags,
hafði gengið lítillega niður í gær. Áfram var spáð
snjókomu en þó minni en verið hefur. Fyrra met
er frá 1981 en þá náði snjóhæðin 1,92 metrum.
Óvíst er hvort fannfergið nær því nú, en í gær-
kvöldi var það orðið 1,70 m að þykkt.
■ Byrjað að rýma/16
Jeltsín
frá vinnu
í 3 vikur
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
sem lagður hefur verið inn á sjúkra-
hús með lungnabólgu, sýndi engin
batamerki í gær og sögðu læknar
að hann mundi ekki snúa aftur til
starfa í Kreml næstu þijár vikurnar.
Að sögn lækna átti Jeltsín auð-
veldara með andardrátt í gær. Ser-
gei Míronov, yfirlæknir læknamið-
stöðvarinnar í Kreml sagði hins
vegar að forsetinn væri daufur í
dálkinn út af því að þurfa að leggj-
ast inn á sjúkrahús á ný þar sem
aðeins tvær vikur væru liðnar frá
því að hann sneri aftur til vinnu
eftir sex mánaða f|'arveru vegna
hjartaaðgerðar.
Áhrif á
efnahagsspár
Veikindi Jeltsíns hafa orðið ýms-
um íjölmiðlum tilefni til bölspáa um
stjórnmálaástandið í Rússlandi og
voru uppi vangaveltur um að nauð-
synlegar umbætur í efnahagsmál-
um mundu teíjast.
Míronov sagði í gær að Jeltsín
mundi liggja þijá daga til viðbótar
á sjúkrahúsi og síðan vera heima
hjá sér í þijár vikur á meðan hann
væri að ná sér. Jeltsín væri hins
vegar ekki áfjáður í að hlýða lækn-
um sínum. Hann bætti því við að
hefja hefði átt meðferð á Jeltsín
vegna veikinda hans nokkrum dög-
um fyrr, en hann hefði ekki tekið
það í mál.
Veikindi forsetans virtust ekki
hafa áhrif á rússneska fjármála-
markaði. Verðbréfaviðskipti voru
mikil og gengi hlutabréfa í helstu
fyrirtækjum hækkaði mikið. Þess
voru dæmi að hlutabréf einstakra
fyrirtækja hækkuðu um 10 af hund-
raði.
Leiðtogafundi Samveldis sjálf-
stæðra ríkja, sem áætlaður var 17.
janúar nk. hefur verið frestað vegna
veikinda Jeltsíns.
Stj órnarandstæðingar í Búlgaríu rísa gegn þingmeirihluta sósíalista
Viljanýjar
kosninsrar
ii. Reuter.
Reuter
Dimmur dagur
í kauphöllinni
MIKIÐ verðfall hefur verið í
kauphöliinni í Tókýó í Japan síð-
ustu daga og féll gengi hlutabréfa
í 225 helstu fyrirtækjunum um
4,26% í gær. Hefur það þá fallið
um 10,6% frá áramótum. Það er
því ekki að undra þótt hann sé
ekki mjög upplitsdjarfur þessi
starfsmaður kauphallarinnar.
■ Japönsk verðbréf/14
ALLT að fimmtíu þúsund manns
söfnuðust í gær að þinghúsi Búlgar-
íu í Sofíu til að sýna kröfum
stjórnarandstöðuþingmanna stuðn-
ing sinn og kreijast nýrra þingkosn-
inga. Mikil óánægja í garð stjórn-
valda er nú ríkjandi í Búlgaríu, en
að ríkisstjórninni standa sósíalistar,
arftakar kommúnista.
Það sem hrinti mótmælaaðgerð-
unum af stað var sú ákvörðun þing-
meirihluta sósíalista að hafna því
að utandagskrárumræða um svo-
kallaða „bjargaryfirlýsingu“ yrði
tekin á dagskrá, en með henni hef-
ur stjórnarandstaðan farið fram að
boðað verði til nýrra kosninga.
í kjölfar þess fylktu stuðnings-
menn stjórnarandstöðunnar liði til
þinghússins og kröfðust nýrra kosn-
inga. Allt að 50.000 manns eru
talin hafa safnazt saman við bygg-
ingu þingsins í miðborg Sofíu.
Brenndi múgurinn rauða fána og
gaf reiði sinni í garð stjórnarinnar
lausan tauminn. Allar rúður á jarð-
hæð hússins voru brotnar og átti
óeirðalögreglan fullt í fangi með
að halda aftur af fólkinu.
Nokkrum tugum stjórnarand-
stæðinga tókst að ráðast til inn-
göngu í þinghúsið, en lögreglan
hrakti þá til baka með því að beita
táragasi, kylfum og þrýstivatni. Að
minnsta kosti fimmtán manns, sem
örmagnazt höfðu vegna táragass
og troðnings, voru lagðir inn á
sjúkrahús.
Reuter
BÚLGARSKUR stjórnarand-
stæðingur lætur höfuðáverka
ekki aftra sér frá því að hrópa
niður stjórn sósíalista fyrir
utan þinghúsið í Sofíu.
Forseti Búlgaríu, Zhelyu Zhelev,
sem búizt var við að myndi fela
sósíalistum að mynda nýja ríkis-
stjórn í dag, laugardag, sagði í sjón-
varpsviðtali í gærkvöldi að hann
myndi ekki gera það. Hann sagðist
myndu kalla öryggisráð ríkisins
saman þess í stað til að ráðfæra
sig um hvernig bregðast skuli við.
Hinn 21. desember sl. hafði Zhan
Videnov forsætisráðherra sagt af
sér vegna alvarlegrar gagnrýni á
hagstjórnarstefnu hans.
Ekki neyðarástand
„Ég vona að enn sé nægileg
skynsemi fyrir hendi til að ekki
verði lýst yfir neyðarástandi," sagði
varaformaður Bandalags lýðræðis-
afla og fyrrverandi forsætisráð-
herra, Filip Dimitrov.
Þingmenn sósíalista þorðu ekki
að yfirgefa þinghúsið fyrr en eftir
miðnætti í nótt og þá í fylgd her-
manna. Fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar sögðust sig hvergi myndu
hræra fyrr en „bjargaryfirlýsingin"
yrði samþykkt.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
Jordan Sokolov, sagði í útvarpsvið-
tali: „Við munum halda okkur í
þinghúsinu til þess að þrýsta á um
að boðað verði til nýrra kosninga.
Það er eina lausnin í stöðunni."