Morgunblaðið - 11.01.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 13
V estur-Húnavatnssýsla
íþróttamaður
ársins valinn
Hvammstanga - Ungmennasam-
band Vestur-Húnvetninga boðaði
íþróttafólk og stjórn sambands-
ins saman á gamlársdag. Þar var
kynnt úrslit úr kosningu um
íþróttamann ársins 1996 í hérað-
inu. Valin var Fríða Dögg Hauks-
dóttir sem er 16 ára.
Fríða Dögg er mjög áhuga-
samur íþróttamaður og keppir
einkum í hlaupi í millivegalengd-
um. Einnig voru átta aðrir
íþróttaiðkendur verðlaunair fyr-
ir góða ástundun og árangur i
íþróttum á liðnu ári.
Formaður Ungmennasam-
bandsisn er Baldur Haraldsson.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
FRÍÐA Dögg með farandbik-
ar USVH sem íþróttamaður
ársins í USVH.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
GAMLI Víkurbærinn hefur verið brenndur. Þar með er horfið
síðasta býlið við Stykkishólm.
Húsið 1 Vík við
Stykkishólm brennt
Stykkishólmi - Jörðin í Vík við
Stykkishólm hefur verið sameinuð
Stykkishólmsbæ að nýju. Um dag-
inn voru íbúðarhúsið og útihúsin
brennd. Þar með er horfið síðasta
býlið við Stykkishólm.
Það var um 1923 að Jón Kr. Jóns-
son og kona hans, Steinunn Indriða-
dóttir, fengu land frá Stykkishólms-
hreppi og reistu býlið Vík sem þá
var fjarri byggð bæjarins. Þau
byggðu íbúðarhús og voru vart búin
að því er Jón lést. Vorið 1926 keypti
Ágúst Pálsson jörðina ásamt konu
sinni, Magðalenu Níelsdóttur. Þau
höfðu búið í Akureyjum í sambýli
við aðra og var þar orðið ansi þröngt
um þau. Þau fluttu í Vík og bjuggu
þar í 29 ár upp á dag. Árið 1942
byggðu þau við gamla húsið og fékk
það á sig þá mynd sem það hafði
síðan. Endurbæturnar gerði Kristján
Guðmundsson frá Jónsnesi. Ætlað
var að hafa húsið stærra og búið
var að steypa stærri sökkul en þeg-
ar til átti að taka fékkst ekki nægi-
legt sement og timbur.
Ágúst og Magðalena ólu þarna
upp 8 börn sín. Árið 1955 keyptu
Ellert Jóhannesson og Guðrún
Ólafsdóttir og Finnbogi Olafsson og
Jóhanna Ellertsdóttir jörðina og
bjuggu þar en þau seldu síðan Ragn-
ari Þóroddssyni og Svanhvíti Páls-
dóttur árið 1967. Frá árinu 1971
bjuggu í Vík Þorgrímur Bjarnason
og ráðskona hans, Ingibjörg Stef-
ánsdóttir. Þorgrímur lést árið 1994
og Ingibjörg flutti úr húsinu í októ-
ber sl.
Stykkishólmsbær hefur nú eign-
ast jörðina að nýju. Þar er framtíðar-
byggingarsvæði bæjarins. Golf-
áhugamenn hafa sýnt landinu áhuga
og fá þeir hluta af landinu þar sem
golfvöllur þeirra nær að landi Víkur
og löngun er hjá þeim að stækka
völl sinn.
Dúfurnar enn hjá
meindýraeyðinum
BRÉFDÚFURNAR tvær, sem hand-
samaðar voru á Selfossi, voru enn
hjá meindýraeyði staðarins síðdegis
í gær. Eigandi dúfnanna, Þórar-
inn Helgason á Akranesi, neitaði að
greiða eitt þúsund krónur fyrir hvora
dúfu. Meindýraeyðirinn, Jóhannes
Þór Ólafsson, handsamaði dúfurnar
að beiðni húseiganda, þar sem þær
og fleiri dúfur höfðu dritað út hús
hans. Þórarinn taldi farsælustu
lausn málsins að börn á Selfossi
fengju að eiga dúfurnar.
Jóhannes Þór var inntur eftir því
hvort börn hefðu lýst áhuga á dúfun-
um og sagði hann að hann réði engu
um hvert þær færu. „Húseigandinn,
sem hefur greitt fyrir handsömun
þeirra og þrif á húsinu, á þær með
réttu og ég veit ekkert hvað verður.“
LAMPIÐ_____________________________________
íþróttasögusýning 1 Iþróttamiðstöðinni á Akranesi
Glögg mynd af íþróttunum
Akranesi - íþróttabandalag
Akraness opnaði fyrir jól sögu-
sýningu í íþróttamiðstöðinni á
Jaðarsbökkum í tilefni af 50 ára
afmæli sínu og þar má sjá gott
yfirlit yfir íþróttastarf á Akranesi
í máli og myndum.
Sýningin er sett upp í sam-
starfi við Byggðasafnið í Görðum
og Héraðsskjalasafnið á Akranesi
og gefur glögga mynd af því
mikla íþróttastarfi sem fram hef-
ur farið á Akranesi á undanförn-
um árum og áratugum. Mikill
fjöldi ljósmynda er á sýningunni
og bikarar og minjagripir sem
minna á glæsilega íþróttasögu.
Einnig er stöðugt í gangi mynd-
bandasýning sem sýnir brot úr
sögufrægum íþróttaviðburðum
Akurnesinga. Góð aðsókn hefur
verið að sýningunni og verður hún
opin til 12. janúar nk.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
FRÁ íþróttasögusýningunni á Akranesi.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
BRAUTSKRÁÐIR nemendur á haustönn frá Fjölbrautaskóla Vesturland á Akranesi. Með þeim á
myndinni eru Hörður Helgason, skólameistari, og Birna Gunnlaugsdóttir, aðstoðarskólameistari.
Fjölbrautaskóli Vesturiands
Færri nemendur braut-
skráðir að þessu sinni
Akranesi - Alls voru brautskráð-
ir 26 nemendur frá Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á haustönn,
þar af 19 stúdentar. Er þetta
óvenju Iítill hópur og skýrist það
öðru fremur af því hve margir
útskrifuðust sl. vor.
Auk stúdentanna sem braut-
skráðust voru þrír iðnnemar, þrír
með verslunarpróf og einn
sjúkraliði. Viðurkenningu fyrir
bestan árangur á stúdentsprófi
hlaut Svanhvít Jóna Bjarnadóttir.
Hún hlaut einnig viðurkenningar
fyrir ágætan árangur í tungumál-
um. Þrír aðrir nemendur fengu
viðurkenningar fyrir ágætan
árangur í tungumálum og ís-
lensku. Danska-, franska-,
norska- og þýska sendiráðið á
íslandi gáfu bækur sem viður-
kenningu fyrir ágætan árangur í
tungumálum og bókaútgáfan Mál
og menning gaf bók fyrir ágætan
árangur í íslensku. Guðmundur
Smári Valsson hlaut viðurkenn-
ingar fyrir ágætan námsárangur
í iðnnámi og Hjörtur Dagur Jóns-
son fékk viðurkenningu fyrir
ágætan árangur í verklegum
málmiðnaðargreinum.
Nú á haustönninni stunduðu
610 nemendur í Fjölbrautaskóla
Vesturlands, 40 nemendur voru
í framhaldsdeild í Stykkishólmi
og 30 nemendur í framhaidsdeild
i Snæfellsbæ. Þá sá skólinn um
skólahald í Reykholti í Borgar-
firði þar sem nemendum var
boðið upp á ársnám. Hörður
Helgason starfar nú sem skóla-
meistari í leyfi Þóris Ólafssonar
og aðstoðarskólameistari er
Birna Gunnlaugsdóttir.
Innbrot á
Egilsstöðum
BROTIST var inn hjá Brokki, tölvu-
þjónustu á Egilsstöðum, aðfaranótt
föstudags og stolið þaðan forritum.
Að sögn lögreglunnar á Egilsstöð-
um komst þjófurinn inn um glugga
sem hann spennti upp. Óvíst er um
heildartjón en máiið er í rannsókn.
BÓKHALDSHUGBÚNAOUR
fyr/r WINDOWS
Á annað þúsund
notendur
g] KERFISÞRÚUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055