Morgunblaðið - 11.01.1997, Side 14

Morgunblaðið - 11.01.1997, Side 14
14 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Tæknival hf. endurnýjar upplýsingakerfi RARIK Eitt stærsta og full- komnasta tölvukerfið Morgunblaðið/Golli KRISTJÁN Jónsson, rafmagnsveitustjóri, og Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Tæknivals, skoða samninginn. * Gjaldeyrisforði Seðlabanka Islands óx um tíu milljarða milli áranna 1996 og 1997 Gjaldeyrisstaðan batnaði um 5,1 milljarð í desember RAFMAGNSVEITUR ríkisins (RARIK) og Tæknival hf. hafa undirritað samning um að Tækni- val annist endurnýjun á viðskipta- og upplýsingakerfi fyrir orkusölu RARIK. Þessi samningur er með stærri sölusamningum sem Tæknival hefur gert. Nýja kerfið verður jafnframt eitt stærsta og fullkomnasta viðskipta- og upplýs- ingakerfi hér á landi, að því er fram kemur í frétt frá samnings- aðilum. Þar kemur jafnframt fram að núverandi kerfi hjá RARIK er norskt að uppruna og hefur þjónað fyrirtækinu í 15 ár en kröfur um sveigjanleika og nútímalegt hug- búnaðarumhverfi hafa kallað á endurnýjun. Fyrir valinu varð Kompakt-kerfi sem framleitt er af sænska fyrirtækinu EllipsData sem Tæknival hefur umboð fyrir á íslandi. Hér er um viðamikið verkefni að ræða sem felur í sér sölu á hugbúnaði, þýðingu og aðlögun, uppsetningu og viðhald. Verulegur hluti af fjárfestingu RARIK í nýja kerfinu rennur til innlendra aðila og skapar störf hér á landi. Nýir möguleikar Kompakt er öflugt upplýsinga- kerfi með fjölda nýjunga. Það býður upp á sveigjanlegar gjald- skrár og gefur kost á sérsamning- um um orkukaup. Þá getur not- andinn meðal annars fengið að- gang að upplýsingum í gegnum síma. Sjálfvirk svörun gefur upp- lýsingar um reikninga og skulda- stöðu, en auk þess getur neytand- inn slegið inn mælastöðu, með áslætti á lyklaborð símans, og þar með óskað eftir uppgjörsreikn- ingi. Auk þessa verða byggðar upp vinnslur á heimasíðu RARIK á alnetinu þar sem neytandinn get- ur fengið margs konar upplýs- ingar bæði um starfsemi RARIK, svo og um orkuviðskipti. Gefinn verður kostur á ýmsum útreikn- ingi, til dæmis samanburði á gjaldskrárútreikningi. Með inns- lætti á mælastöðu getur neytand- inn einnig skoðað væntanlegan reikning. Aukið vægi hugbúnaðar í starfi Tæknivals EllipsData er dótturfyrirtæki Sydkraft AB sem er einn helsti framleiðandi og dreifingaraðili á raforku í Suður-Svíþjóð. Hjá EllipsData starfa um 180 manns og er ársveltan um 2 milljarðar íslenskra króna. í Kompakt-deild- inni starfa um 50 manns og hafa um 30 kerfi verið sett upp víðs vegar um Svíþjóð, auk kerfa í Skotlandi og Tékklandi. Samningur Tæknivals við RARIK er talinn getað opnað leið fyrir hugbúnaðardeiid Tæknivals til að spreyta sig á erlendum mark- aði. Þetta verkefni eykur um leið vægi hugbúnaðargerðar í starf- semi fyrirtækisins. Nú starfa 37 manns hjá hugbúnaðardeild Tæknivals. Kompakt er skrifað í Progress en það er alhliða þróunarumhverfí hugbúnaðar fyrir grafísk notenda- skil í Windows. Hugbúnaðardeild Tæknivals stendur vel að vígi í þessu umhverfi og má þar nefna að Hafdís, upplýsingakerfí fyrir sjávarútveginn sem vakið hefur mikla athygli, er skrifað í Progr- ess. Starfsmenn hugbúnaðardeild- ar, sem vinna að aðlögun Kompakt- kerfísins fyrir RARIK, munu hafa náið samstarf við starfsmenn EllipsData. Öflug greiningar- og hönnunarforrit verða notuð til að tryggja greið samskipti fyrirtækj- anna. Heildarverðmæti samningsins um 40 milljónir króna Reiknað er með því að fullbúið kerfi fyrir RARIK með grafískum notendaskilum og ýmsum hjálpar- tækjum fyrir úrvinnslu gagna og gerð skýrslna verði komið í gagn- ið um næstu áramót, segir enn- fremur í frétt Tæknivals og RA- RIK. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins nemur heildarverðmæti samningsins um 40 milljónum króna. GJ ALDEYRISFORÐI Seðlabanka íslands var rúmum tíu milljörðum króna meiri um þessi áramót en um áramótin 1995/96 og í desember- mánuði einum óx gjaldeyrisforðinn um 5,1 milljarð króna, samkvæmt bráðabirgðatölum Seðlabanka ís- lands. Þá lækkuðu erlendar skuldir bankans um 2,6 milljarða króna í desember og því styrktist gjaldeyris- staðan um 7,7 milljarða króna í mánuðinum. Gjaldeyrisforðinn hefur aukist enn meira ef litið er til nettó- stöðu hans, þ.e. gjaldeyrisforða að frádregnum erlendum skammtíma- skuldum, því nú um áramótin var hann rúmlega tvöfalt hærri en um áramótin þar á undan, rúmir 30 millj- arðar nú en var 14 milljarðar þá. Gjaldeyrisforðinn um síðustu ára- mót nam 30,9 milljörðum króna, en um áramótin 1995/96 var gjaldeyr- isforðinn 20,8 milljarðar króna. Er- lendar skuldir til skamms tíma voru nú 122 milljónir króna, en um ára- mótin 1995/96 voru þær 6,7 milljarð- ar króna. Birgir ísleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri, sagði að það sem væri athyglisverðast við þessar tölur væri hvað gjaldeyrisforðinn hefði aukist mikið í desember. Stór hluti af skýringunni væri lánahreyfingar og fé væri nú þegar farið að streyma út aftur. Til marks um það væri að á gjaldeyrismarkaðnum hefðu 1,5 milljarðar króna farið út á fyrstu tíu dögum ársins. Gjaldeyrisstaðan batnað Birgir ísleifur sagði að gjaldeyris- staðan hefði batnað mjög mikið á árinu. Hún hefði hins vegar verið mjög slök í upphafi ársins, sérstak- lega með tilliti til nettóstöðu hennar, en taka hefði þurft skammtímalán erlendis til að halda henni uppi. í kjöl- farið hefði skapast umræða um gjald- eyrisútstreymið og orsakir þess, en nú hefði dæmið alveg snúist við. Ástæðan væri, auk lánahreyfinganna, mjög öflugur útflutningur á síðastliðnu ári. Gjaldeyrisstaðan nú væri með því besta sem við þekktum og það væri mjög gott að hún væri góð vegna þessa óvissuástands sem væri fram- undan vegna lausra kjarasamninga. Japönsk verðbréf hrapa Hong Kong. Reuter. NIKKEI hlutabréfavísitalan í Tókýó lækkaði um rúmlega 4% í gær og hefur ekki verið lægri í 17 mánuði. Fall Nikkei vísitölunnar kemur í kjölfar mikils söluæðis vegna uggs um ástandið í efnahagsmálum Jap- ana og virðist ekkert lát vera á æð- inu að sögn sérfræðinga. Nikkei lækkaði um 770.22 punkta eða 4,26% og mældist við iokun 17,303.65 punktar, það lægsta sem mælzt hefur síðan í ágúst 1995. Þetta hrun er það mesta sem orðið hefur á einum degi sfðan Nikkei lækk- aði um 1,054.72 punkta — eða 5,6% — 23. janúar 1995, þegar japanskir i verði ijárfestar óttuðust áhrif jarðskjálftans í Kobe á japanskt efnahagslíf. Nikkei hefur lækkað um 10,6% í fyrstu viku nýbyijaðs árs. Auk efna- hagsástandsins hafa fjárfestar áhyggjur af ástandinu í bankakerfinu og hækkun á söluskatti. „Ekkert lát virðist á lækkununum í bráð,“ sagði sérfræðingur Yamaichi veerðbréfa- fyrirtækisins. Áhrifa frá hruni Nikkei gætti ann- ars staðar í Asíu. í Hong Kong lækk- aði Hang Seng vísitalan um 0,05% og í kauphöllinni í Bangkok varð 0,32% hækkun eftir hækkanir í fjóra daga. Þreifingar um sölu á helmingshlut Eignarhaldsfélags Brunabótafélagsins í VÍS Rætt um að lífeyris- sjóðir kaupi bréfin VIÐRAÐAR hafa verið hugmyndir um sölu á hlut Eignarhaldsfélags Brunabótafélags íslands í Vátrygg- ingafélagi íslands, en hann er alls 50%. Málið hefur eitthvað verið rætt meðal forsvarsmanna lífeyris- sjóða, en ljóst er að um svo stóran eignarhlut er að ræða að enginn einn lífeyrissjóður ræður við að kaupa hann. Samkvæmt uppiýsing- um Morgunblaðsins er rætt um að verðmæti á hlutabréfum Eignar- haldsfélagsins í Vátryggingarfélag- inu geti verið í kringum tveir millj- arðar króna. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Líf- eyrissjóðs verslunarmanna, stað- festi í samtali við Morgunblaðið að átt hefðu sér stað samtöl um málið, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um það þar sem það væri á algjöru byijunarstigi. Engar viðræður hafa þó farið fram að undanförnu við forstjóra eða stjórn Eignarhaldsfélagsins, að sögn Hilmars Pálssonar, forstjóra félagsins og stjórnarformanns VÍS. Hann segir að óformlegar viðræður hafi átt sér stað í sumar um sölu á bréfunum í VÍS, en engin niður- staða fengist. Vátryggingarfélag íslands er lokað hlutafélag og er hvorki skráð á Verðbréfaþingi né á Opna til- boðsmarkaðnum. Félagið varð til þegar Brunabótafélag fslands og Samvinnutryggingar sameinuðust árið 1989. Iðgjöld voru um 4,7 milljarðar króna árið 1995 og er félagið á meðal þrjátíu stærstu fyrirtækja landsins. Hagnaður hef- ur verið af félaginu öll árin frá stofnun þess nema eitt. Stærstu eigendur eru Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Islands með 44,2% eignarhlut, Eignarhaldsfé- lag Samvinnutrygginga með 23,2%, Olíufélagið hf. með 13,4%, Líftryggingafélag Islands hf. með 11,6%, Samvinnulífeyrissjóðurinn með 4,6% og Samvinnusjóður ís- lands með 2,9% eignarhlut. Bruna- bót á helming í Líftryggingafélag- inu, og ræður þannig yfir 50% hlutafjár í VÍS. Sveitarfélögin með forræði yfir Brunabótafélaginu Hilmar Pálsson segir engar form- legar eða óformlegar viðræður í gangi um þessar mundir um breyt- ingar á eignarhaldi Brunabótafé- lagsins í VÍS, hvorki við sig né stjórn félagsins. Hann staðfestir að ákveðnar óformlegar umræður hafi átt sér stað seint á síðastliðnu sumri um breytingu á eignarhaldi en án niðurstöðu. Umræður kunni að vera meðal einhverra annarra aðila um kaup á eignarhlut BÍ í VÍS og væntanlega gefi þeir aðilar sig þá fram. Hilmar bendir á að miklar breyt- ingar hafi orðið hjá Brunabótafé- laginu gegnum árin sem verður 80 ára á þessu ári. Félagið hafi staðið að stofnun VÍS með Samvinnu- tryggingum árið 1989 og síðan hafi ný lög verið sett um bruna- tryggingar húsa og breytingu Brunabótafélagsins í Eignarhalds- félag á árinu 1994. „Eignar- haldsfélagið B.í. er með 50% eignaraðild að VÍS, en hin hluta- bréfin skiptast á milli Samvinnu- trygginga, Olíufélagsins, Sam- vinnulífeyrissjóðsins og Samvinnu- sjóðsins. Þessir meðeigendur okkar eiga forkaupsrétt að hlutafé Eign- arhaldsfélagsins BÍ. Forræðið yfir Eignarhaldsféiaginu hafa sveitar- félög utan höfuðborgarsvæðsins, samkvæmb lögunum. Þau skipa fulltrúaráð sem kýs stjórn félags- ins. Þetta eru 29 bæjarfélög og 21 héraðsnefnd." Hilmar bendir ennfremur á að forstjóri VÍS hafi komið frá hlut- hafahópí Samvinnutrygginga, en Eignarhaldsfélagið fari með stjórn- arformennsku. „Umræður um breytingar á fyrirkomulagi eignar- halds VÍS hafa verið í gangi allar götur frá árinu 1991 er við sam- þykktum skiptingu á eignarhaldi Samvinnutrygginga sem tóku þá með sér þijá skylda aðila inn í sína 50% eignaraðild. Það hafa farið fram umræður um breytingar á okkar eignarhaldi til samræmis. Einnig hefur verið rætt um að opna fyrir eignarhald á VÍS á frjálsum markaði eða jafnvel sölu á hlut Brunabótafélagsins í VÍS. Fleiri en einn aðili hefur komið með slíka fyrirspurn. Ákveðnar óformlegar viðræður áttu sér stað, en án niður- stöðu. Okkur í Brunabótafélaginu ber að sjálfsögðu skylda til, og þá mér sem forstjóra, að skoða hagsmuni B.Í. með hliðsjón af umhverfi við- skiptalífsins og eignarhaldi í VIS. En mér ber einnig skylda til þess sem stjómarformanni VÍS að standa vörð um hagsmuni VÍS. Það tel ég vera hagsmuni Brunabótafé- lagsins.“ 60-70 þúsund eigendur Samkvæmt lögum um Eignar- haldsfélag Brunabótafélagsins er það sameign þeirra sem höfðu brunatryggingu hjá Brunabótafé- laginu þegar lögin tóku gildi og fluttust til Vátryggingafélagsins. Jafnframt eru eigendur að félaginu þeir sem vátryggðu hjá félaginu 31- desember 1988 og færðir voru til Vátryggingafélagsins. Þá er í þriðja lagi eigandi félagsins sérstakur sameignarsjóður sem yfirtekur rétt- indi sameigenda við fráfall þeirra. Hilmar segir að heildarfjöldi eig- enda Brunabótafélagsins sé á bilinu 60-70 þúsund, en þar af sé hlutur sameignarsjóðsins 10%, hlutur ein- staklinga 53% og hlutur fyrirtækja 37%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.