Morgunblaðið - 11.01.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 11..JANÚAR 1997 23
Útsölur snemma í ár
30-50% afslátt-
ur algengastur
„ÞAÐ er eins og Þorláksmessa
sé núna á hvetjum degi,“ sagði
afgreiðslustúlka í einni verslun
þegar farið var á útsölur í vik-
unni. Flestar búðir í Kringlunni
byijuðu með útsölu síðastliðinn
fimmtudag og við Laugaveg voru
margar búðir komnar með útsölu-
skilti í glugga. Á nokkrum stöð-
um var troðfullt útúr dyrum og
ekki óalgeng sjón að konurnar
væru inni í verslunum að skoða
en eiginmennirnir eða kærastarn-
ir tvístigu í anddyrinu og biðu
þess að kallað yrði á þá til að fá
álit.
Jólainnkaupin sem margir hafa
tekið út á greiðslukort og þurfa
að borga í janúar og febrúar virð-
ast ekki standa í vegi fyrir að
fólk nýti sér útsölurnar.
„Það er búið að vera mjög mik-
ið að gera en ég hef aldrei byijað
eins snemma með útsölu og í ár,“
segir Guðjón Hilmarsson kaup-
maður í Spörtu. „Viðskiptavinirnir
eru strax eftir áramót farnir að
spyija hvenær útsala hefjist og
því ekki eftir neinu að bíða.“ Guð-
jón segist taka eftir því að verslun-
areigendur séu hættir að bjóða
50-70% afslátt í byijun útsölu.
„Afslátturinn hjá verslunum er
ekki eins mikill í upphafi og tíðk-
aðist fyrir nokkrum árum. Nú
lækka vörurnar frekar þegar líður
á útsöluna."
Hljóðið í kaupmönnum var gott
bæði við Laugaveg og nágrenni
og í Kringlunni, flestum ber sam-
an um að mikið hafi verið að gera
fyrir jólin og svo virðist sem ekk-
ert lát sé á kaupum landans nú
eftir áramótin.
Morgunblaðið/Ásdts
LEIFUR Örn Gunnarsson og Ýr Frisbæk áttu hlé í skólanum
og brugðu sér í bæinn. Þau voru aðallega að skoða en Leifur
sagðist kaupa þónokkuð á útsölum og þá aðallega fatnað.
SIGURJÓN Þórsson
eigandi Herranna í
Kringlunni hafði í nógu
að snúast enda útsalan
nýbyrjuð þegar litið var
þar inn. Siguijón segir
mikið keypt af buxum,
skyrtum og jakkafötum
en afslátturinn er
30-40%. Hann segir
karlmennina stundum
vera eina á ferð en ef
frúrnar eru með í för
ráða þær kaupunum!
FER ekki röðin að koma að mér!
VINKONURNAR Sigríður Elsa Oddsdóttir og Guðrún Gunnars-
dóttir voru á útsölurölti niður Laugaveg með börnin sín, Frið-
í’ik Þór Ólafsson og Bryi\ju Guðmundsdóttur. Þær höfðu komið
við á útsölu í Englabörnum og keypt sitthvað á börnin. Sigríður
Elsa sem er með fjögur börn segist árlega bíða eftir útsölunni
í Englabörnum því sér líki fötin þar og afslátturinn sé yfirleitt
ekki lægri en um 40%. Þær höfðu kíkt í aðrar búðir og voru
búnar að kaupa nokkuð á sig og aðra i fjölskyldunni.
SILJA Rún Gunnlaugsdóttir
afgreiðslustúlka í Flaueli
sagði að mikið hefði verið að
gera og öll föt væru með 50%
afslætti. Peysan sem hún er
hér að sýna kostar 2.000
krónur á útsölunni og pilsið
1.900 krónur.
SPÁDÓMAR BIBLÍUNNAR
Enn eitt námskeiðið um hrífandi spádóma Biblíunnar, þar
sem Daníelsbók er sérstaklega tekin til meðferðar, hefst á
Hótel íslandi 13. janúar kl. 20 og verður einu sinni í viku, á
mánudögum, alls 10 skipti.
Leiðbeinandi verður dr. Steinþór Þórðarson og er aðgangur
ókeypis.
Þátttakendur hafi með sér eintak af Biblíu.
Innritun í síma 588 7800 á daginn og 554 6850 á kvöldin.
Sjálfsafgreiðslu-
afsláttur
Nýttu þér 2 kr. sjálfsafgreiðsluafslátt af hverjum lítra
af eldsneyti á eftirtöldum þjónustustöðvum Olís.
• Sæbraut við Kleppsveg
• Mjódd í Breiðholti
• Gullinbrú í Grafarvogi
• Klöpp við Skúlagötu
• Háaieitisbraut
MAGDALENA Kjartansdóttir
þjá versluninni Barnastig seg-
ir algengan afslátt vera
30-70%. Fötin sem hún held-
ur hér á henta á níu ára
dreng. Buxurnar voru á 3.990
krónur en kosta nú 2.790
krónur. Langerma pólóbolur
var á 2.230 krónur en er nú
á 1.560 krónur og ullarpeysan
var á 4.340 krónur en kostar
á útsölunni 2.600 krónur.
í VERSLUNINNI 4 YOU í
Kringlunni standa yfir til-
boðsdagar og í næstu viku
hefst síðan útsalan af fullum
krafti. Ragnar Egilson held-
ur hér á buxum sem nú kosta
1.900 krónur, jakkakfötin
eru á 9.900 krónur, frakkinn
á 4.900 og skyrtan á 1.600
krónur.
ÚTSALAN er í fullum gangi
hjá Vero Moda og mikið um
að vera. Sigrún Garðarsdótt-
ir brá sér í fatnað sem er á
útsölunni að þessu sinni. Eins
og sést á verðlækkuninni á
piisinu má viða gera reyfara-
kaup. Það var áður á 3.590
krónur en kostar nú 359
krónur. Peysan sem Sigrún
er í kostar á útsölunni 1.290
krónur.
• Ananaustum
• Hamraborg, Kópavogi
• Langitangi, Mosfellsbæ
• Reykjanesbraut, Garðabæ
• Vesturgötu, Hafnarfirði
• Suðurgötu, Akranesi
• Básinn, Keflavík
olis
léttir þér lífið