Morgunblaðið - 11.01.1997, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 11.01.1997, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 MINNIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ t Eiginmaður minn og faðir okkar, ERLENDUR JÓNSSON fyrrv. bifreiðarstjóri, Kleppsvegi 136, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 9. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Þorgerður Gísladóttir, Elísabet Jóna Erlendsdóttir, Vilborg Erlendsdóttir. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför MAGNÚSAR EINARSSONAR, Hólkoti, Sandgerði. Aðstandendur. t Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vináttu við andfát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, LÚÐVÍKS TH. ÞORGEIRSSONAR kaupmanns, Hæðargarði 35. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Eir. Guðriður Halidórsdóttir. Halldór Geir Lúðviksson, Birgir Lúðviksson, Helga Brynjólfsdóttir, Þorgeir Lúðvíksson, Valdis Gróa Geirarðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, ÖNNU GRÍMSDÓTTUR, Hjarðarhlið 5, Egilsstöðum. Dætur, tengdasynir og fjölskyldur. t Innilegar þakkir til allra, er auðsýnt hafa samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, EINARS GÍSLASONAR, Kjarnholtum, Biskubstungum. Ingibjörg Einarsdóttir, Ketill Kristjánsson, Gisli Einarsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Ingimar Einarsson, Anna Kristinsdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Þorsteinn Hjartarson, Elínborg Einarsdóttir, Snorri Ólafsson, Þóra Einarsdóttir, Jón Gisli Jónsson, Magnús Einarsson, Guðný Höskuldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til ykkar, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SVEINS VIGFÚSSONAR, Skíðabraut 13, Dalvik. Ennfremur eru sérstakar þakkir til starfsfólks á FSA, heimahjúkrunar á Dalvík og heimahlynningar á Akureyri fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Þórdfs Rögnvaldsdóttir, Ingvi Eiríksson, Sigrún Þorsteinsdóttir, Vignir Sveinsson, Valdl's Gunnlaugsdóttir, Sofffa Sveinsdóttir, Stefán Jakobsson, Ragna Sveinsdóttir, Heiðar Ólason, barnabörn og barnabarnabörn. INGVELDUR JÓHANNSDÓTTIR + Ingveldur Jó- hannsdóttir, Litlu-Þfifu, Mikla- holtshreppi, var fædd að Eiðhúsum í Miklaholtshreppi 11. júlí 1909. Hún lést á heimili systur sinnar í Reykjavík 27. desember síð- astliðinn. Foreldrar Ingveldar voru Krisljana Björns- dóttir, ljósmóðir og húsfreyja, f. 28.6. 1870, d. 13.7. 1944, og Jóhann Sigurð- ur Lárusson, bóndi, f. 22.7. 1885, d. 27.7.1961, og áttu þau fjögur börn og er Ingveldur næstyngst þeirra. Hin eru tví- burabræðurnir fæddir 24.4. 1906, Bjöm látinn 13.5. 1980, verksfjóri um lang- an tíma hjá Vega- gerð ríkisins. Eft- irlifandi eiginkona hans er Ingigerður A. Kristjánsdóttir frá Skerðingsstöð- um í Reykhóla- sveit. Kristján lát- inn 29.9. 1990. Eft- irlifandi eiginkona hans er Jóna S. Jónasdóttir frá Kolmúla við Reyð- arfjörð. Ásta Lára afgreiðslukona í Reykjavík, fædd 3.11. 1914. Ingveldur var ógift og bara- laus. Útför Ingveldar fer fram frá Fáskrúðarbakkakirlqu í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Kæra frænka, mig langar til að kveðja þig og það heimili sem lifir í minningu æskuáranna, nú á þess- um tímamótum þegar þú svo skyndilega hvarfst mér úr augsýn, en aðeins einum sólarhring áður hittist fjölskyldan og átti ánægju- lega stund á jóladag. Ingveldur ólst fyrstu árin upp á Eiðhúsum, en einnig síðar á Laxár- bakka. Skólaganga var ekki löng, svo sem algengt var á þeim tíma. Þegar hún var 18 ára réðst hún í vist til Reykjavíkur og síðar til Borgarness. Þijú sumur var hún matráðskona í vegavinnu, þá lærði hún og fatasaum, en árið 1936 tók hún við heimilisforráðum þegar móðir hennar veiktist. Bjó hún með foreldrum sínum og síðar föð- ur sínum á Litlu-Þúfu á meðan hans naut við. Jörðin var svokölluð Kristfjárjörð, en skömmu eftir frá- fall afa keypti hún jörðina og hef- ur búið þar alla tíð síðan. Lengst af með Línu, Abelínu Kristjáns- dóttur, sem kom fyrst til Litlu- Þúfu sem kaupakona árið 1943, en eftir að Lína fluttist á Dvalar- heimili aldraðra í Borgarnesi bjó Inga ein. Ekki gat hún hugsað sér að flytja úr sveitinni sinni. Ingveldur var sterkur einstakl- ingur, föst fyrir, hún var góð þeim sem til hennar leituðu og jafnframt blíð og góð við okkur börnin sem dvöldumst í sveitavist að Litlu- Þúfu á sumrin. Þau eru reyndar ófá börnin sem þar hafa dvalið til lengri eða skemmri tíma. Þótt húsakynnin væru ekki stór var ætíð nægt rúm fyrir einn í viðbót. Inga var mikill dýravinur og mátti ekkert aumt sjá. Það lýsir afstöðu og viðhorfum hennar gagnvart dýrunum vel sú fullyrðing hennar að mennirnir skilja dýrin ekki eins vel og dýrin skilja mennina. í minningu minni er með Ingu horfinn andblær eldri lifnaðar- hátta og athafna, þess tíma er mór var tekinn upp og þurrkaður, þess tíma sem heyjað var handa folaldinu, þess tíma sem starfað var og leikið sér, þess tíma sem aldrei kemur aftur. Ingveldur fylgdist vel með og tók afstöðu til málefna líðandi stundar þannig að enginn velktist f vafa um afstöðu hennar. Fyrir nokkrum árum tóku þær systur ákvörðun um að gefa steinda glugga í Fáskrúðarbakka- kirkju til minningar um foreldra sína og bræður. Lýsir þessi höfð- inglega gjöf vel hug þeirra til kirkju sinnar og_ þeirra sem þeim þótti vænt um. Ég bið þess, kæra frænka, að algóður Guð megi fylgja þér á vegferð þinni. Kristján Björnsson. Látin er í góðri elli, eins og sagt er, heiðurskonan Ingveldur Jó- hannsdóttir í Litlu-Þúfu f Mikla- holtshreppi, sem raunar heitir nú Eyja- og Miklaholtshreppur og þar með fallinn frá elsti íbúi þess sveit- arfélags. Þótt æviárin væru orðin mörg, kom það okkur vinum henn- ar og kunningjum nokkuð svo á óvart hvað brotthvarf hennar af þessum heimi varð „á snöggu augabragði" enda svo sem lítinn heilsufarslegan bilbug á henni að fínna til síðustu stundar, utan hvað heyrn var nokkuð skert. Um ævi- lok hennar má því segja, eins og Klettafjallaskáldið kvað um greni- tréð - Bognar aldrei - brestur í - bylnum stóra seinast. Var þó um engan langvinnan byl að ræða; aðeins lagst til svefns að kvöldi, en eigi vaknað til þessa lífs að morgni. Ingveldur heitin fæddist að Eið- húsum í Miklaholtshreppi og átti þar sín bernskuspor til tólf ára aldurs, að foreldrar hennar fluttu að Laxárbakka þar sem þau bjuggu næstu 14 árin. Að Litlu- Þúfu fluttist svo fjölskyldan árið 1939, eftir 2-3 ára dvöl í einskon- ar húsmennsku að Stakkhamri. Voru þá þijú barna þeirra hjóna flutt úr foreldrahúsum, og aðeins Ingveldur fylgdi þeim að Litlu- Þúfu, og átti þar sitt skjól og hæli uns yfir lauk. Þannig yfirgaf hún aldrei sinn fæðingarhrepp. Af systkinum hennar lifir nú aðeins Asta Lára. Rúmsins vegna leyfi ég mér ekki að segja gerla frá foreldrum Ingveldar, en þau voru Jóhann Lárusson og Krist- jana Björnsdóttir, vinsæl hjón og vel metin af öllum sem til þekktu. Kristjana var lengi ljósmóðir í sveitinni, og farsæl í því starfi, og Jóhann var glaðlyndur og félags- iyndur maður, og skjótur til við- kynningar. Lítil sem engin kynni hafði ég af þeim hjónum, og kom þar til aldursmunur okkar, en styð mig að nokkru leyti við skrif Gunn- ars heitins á Hjarðarfelli um þau. Við sjálft lá að aldursmunur ætl- aði einnig að verða óyfirstíganleg hindrun þess að með okkur Ing- veldi tækjust kynni, og var það ekki fyrr en ég var farinn að snú- ast í svokölluðum forðagæsluferð- um um hreppinn að úr þeim málum greiddist. Þá voru látnir foreldrar hennar, en með henni stóð að bú- skap Abelína (Lina) Kristjánsdótt- ir, sem fluttist vinnukona að Litlu- Þúfu um eða upp úr 1940 og dvaldi þar óslitið í meira en hálfa öld og var heimilinu heldur betri en eng- inn. Ber henni virðing og þökk fyrir störfin í Litlu-Þúfu. Nú dvelst hún á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi, en þangað varð hún að leita er heilsu og krafta þraut, eftir erfiðan vinnudag. Það er aftur á móti af Ingveldi að segja, að hún sat um kyrrt á sinni jörð, og lét einsemd engin áhrif á sig hafa a.m.k. svo merkjanlegt væri. Lét hinsvegar af búskap að mestu. Búskapur var raunar aldrei stór í sniðum í Litlu- Þúfu, enda ekki þess að vænta að fullorðin hjón og veikliðuð gætu fylgt öðrum og yngri eftir á stór- felldum jarða- og húsabótatímum, en hins var gætt eftir megni að halda í horfi því sem fyrir var, og aukið var við ræktun að nokkru marki. Búfé átti þar góðu atlæti og aðbúð að fagna alla tíð, enda þótt fornleg væru húsakynni þess. Það kann að virðast mótsagna- kennt að þótt Ingveldur yndi dável einsemdinni síðustu árin, var hún ávallt félagslynd kona, og oftar en ekki mætt þar sem einhvern mannfagnað var að hafa. Tvær voru þær stofnanir sem umfram aðra nutu af henni góðs og er þar fyrst að nefna Kvenfélagið Liljuna. Ekki veit ég hvort hún var einn af stofnendum þess félags, þá 19 ára að aldri, en um 35 ára skeið var hún gjaldkeri þess, og mun hvergi hafa brostið á með ná- kvæmni í því reikningshaldi, en nokkurra aðsjálni gætt og mættu lánastofnanir ýmsar taka „nótis“ þar af. Til annarra starfa fyrir kvenfé- lagið sparaði hún sig heldur hvergi, og veit ég að kvenfélags- konunum er þökk í huga, nú er hún kveður. Er þá að nefna kirkj- una, og verð ég nú að fara miklu hraðara yfir en ég vildi og æski- legt væri. Svo bar við á aðalsafn- aðarfundi Fáskrúðarbakkasóknar 29. september 1985, að Ingveldur heitin tilkynnti að hún gæfi 20 þús. kr. til minningar um foreldra sína og Björn bróður sinn, sem þá var játinn. Að gjöfinni stóðu einn- ig Ásta systir hennar, bróðirinn Kristján og ekkja Björns heitins. Gjöfinni fylgdi að henni skyldi varið til kaupa á steindum glugg- um í kirkjuna á Fáskrúðarbakka. Ekki var laust við að nokkurn hroll setti að sóknarnefnd við þessi tilmæli, og hélt hún að sér höndum lengi vel, grunandi það að hér væri um æði miklu meiri fjármuni að tefla, en svo að 20 þús. kr. drægju þar neitt að ráði. Líða nú 7-8 ár að fátt gerist, en þá verður það að Ingveldur reiðir fram fjár- muni, sem í skemmstu máli sagt, nægði til þess að koma steingleri í alla hliðarglugga kirkjunnar, 14 að tölu, og varð þó afgangur. Þá var Asta systir hennar kom- in að málinu, og hlut átti Lína þarna í. Metnaður Ingveldar var mikill í þessu máli þegar til kast- anna kom og þegar minnst var á hina og þessa sjóði sem hugsan- legt væri að kría peninga úr, mátti hún ekki heyra slíkt nefnt - enda átti ég hugmyndina - sagði hún. Sem og rétt var. En skylt er að geta þess, að sakir vináttu við gefendur, sóknarnefnd, kirkju og kristindóm yfirleitt, létu Benedikt Gunnarsson listmálari og hjónin í Listgleri, þau Kristín Guðmunds- dóttir og Ingvi Högnason, verk sín á verði sem var lægra en eðlilegt gat talist og þökk sé þeim. Stór- felldar endurbætur voru síðan gerðar á Fáskrúðarbakkakirkju áður en steinglersgluggunum var komið fyrir, og daginn þann sem hún var enduropnuð og fram fór helgun glugganna, mátti telja hana með fegurri kirkjum. Þann dag var Ingveldur stolt, og mátti vera það. Máske var þetta stærsti dagur- inn í lífi hennar, og foreldrum sín- um höfðu þær systur gert verðug- an minnisvarða. Þótt Ingveldur léti af búskap, hélt ég áfram að koma við hjá henni í forðagæsluferðum mínum haust og vor. Tók hún mér ætíð fagnandi og brást aldrei með kaffi og pönnukökur og líflegar sam- ræður um hvaðeina sem á baugi var í þjóðfélaginu, enda fylgdist hún ótrúlega vel með og hafði skoðanir á flestum málum. Varð henni stundum heitt í hamsi þegar talinu vék að ýmsum gerðum landsfeðranna á innlendum og er- lendum vettvangi sem henni þóttu orka tvímælis, og ekki laust við að hönd skylfi, þegar kaffi var rennt í bolla. Þekkt var hún fyrir snögg og kaldhömruð tilsvör. Fyrir u.þ.b. þúsund árum fóru

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.