Morgunblaðið - 11.01.1997, Síða 60
ttcgnnHjifetfr
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Tómas Helgason
VlÐA eru stakir jakar í nánd við ísjaðarinn.
Hafís að landi við Kögur
HAFÍS er nú við land við
Kögur. í ísflugi Landhelgis-
gæslunnar í gær sást fimra
kílómetra breið ísspöng frá
ísjaðrinum að landi. Siglinga-
leiðin fyrir Kögur er því talin
varasöm, sérstaklega í slæmu
skyggni. Að sögn Þórs Jak-
obssonar, iyá Hafísdeild
Veðurstofunnar, er búist við
hagstæðum austlægum áttum
næstu daga. Meginísjaðarinn
mun því frekar færast fjær
landi. Sá ís sem kominn er að
landi mun halda áfram í
straumum austur með landinu
inn í Húnaflóa og verður vara-
samur næstu daga.
Fimm yfirmenn af
Stöð 2 til Stöðvar 3
STÖÐ 3 hefur ráðið til sín fimm
yfirmenn frá íslenska útvarpsfé-
laginu, Stöð 2 og Bylgjunni. Með-
al þeirra er Magnús E. Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri markaðs-
sviðs íslenska útvarpsfélagsins,
sem nú hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri íslenskrar marg-
miðlunar hf. og sjónvarpsstjóri
Stöðvar 3.
Með Magnúsi fara af Stöð 2 og
Bylgjunni Jón Axel Ólafsson dag-
skrárstjóri Bylgjunnar, Thor
Ólafsson, auglýsingastjóri Ís-
lenska útvarpsfélagsins, Hannes
Jóhannsson tæknistjóri og Magnús
Viðar Sigurðsson, framleiðslu-
stjóri íslenska útvarpsfélagsins.
Þeir sögðu upp fyrra starfi sínu í
gærmorgun og hættu samstundis.
Geta ekki gengið út
Fimmmenningarnir hafa allir
hafið störf á Stöð 3, að sögn Ein-
ars Kristins Jónssonar, stjórnar-
formanns íslenskrar margmiðlun-
ar hf. Sigurður G. Guðjónsson,
varaformaður stjórnar Islenska
útvarpsfélagsins, segir hins vegar
að mennirnir séu bundnir af
þriggja mánaða uppsagnarfresti
og geti ekki gengið út á miðjun
vinnudegi enda ekki verið samið
um að þeir gætu lokið störfum
fyrr. Segir hann að félagið muni
skoða stöðu sína í ljósi ákvæða
samkeppnislaga.
Einar Kristinn Jónsson,
stjórnarformaður íslenskrar
margmiðlunar hf., segir að leitað
hafi verið að framkvæmdastjóra
fyrir félagið frá því það tók við
rekstri Stöðvar 3 í nóvember. Frést
hafi af því að Magnús kynni að
vilja skipta um starf og viðræður
við hann leitt til þessarar niður-
stöðu. Fjórir starfsfélagar Magn-
úsar ákváðu síðan að taka tilboði
hans um störf hjá Stöð 3. Einar
Kristinn segir að ráðningin hefði
aðeins tekið nokkra daga.
„Ég hef verið þarna í fimm ár
og hafði hugsað mér til hreyfings,
var til í að takast á við ný verk-
efni. Mér barst tilboð um að taka
að mér þetta verkefni hjá Stöð 3
og ákvað að slá til,“ segir Magnús
E. Kristjánsson um breytinguna.
■ Styrkir liðsheildina/6
Hlutur Brunabót-
ar í VÍS til sölu?
VIÐRAÐAR hafa verið hugmyndir
um sölu á helmingshlut Eignar-
haldsfélags Brunabótafélags ís-
lands í Vátryggingafélagi Islands.
Málið hefur eitthvað verið rætt
meðal forsvarsmanna lífeyrissjóða.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er rætt um að verðmæti á
hlutabréfum Eignarhaldsfélagsins í
Vátryggingafélaginu geti verið í
kringum tveir milljarðar króna.
Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna, staðfesti
í samtali við Morgunblaðið að málið
hefði verið rætt, en vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um það þar sem
það væri á algjöru byijunarstigi.
Engar viðræður hafa þó farið
fram að undanförnu við forstjóra
eða stjórn Eignarhaldsfélagsins, að
sögn Hilmars Pálssonar, forstjóra
félagsins og stjórnarformanns VÍS.
Hann segir að óformlegar viðræður
hafí átt sér stað í sumar um sölu
á bréfunum í VÍS, en engin niður-
staða fengist.
■ Rætt við/14
ÍS seldi 166.300 tonn
ÍSLENZKAR sjávarafurðir seldu á
síðasta ári 166.300 tonn af físki
og fiskafurðum, að verðmæti rúm-
lega 20 milljarðar króna. Það er
meira en hundrað þúsund tonna
aukning frá árinu 1995.
Aukningin á sölu afurða frá ís-
landi er 71% og sala afurða frá er-
lendum fýrirtækjum hefur tífaldazt.
Alls voru seld 98.600 tonn af inn-
lendum afurðum, en 67.700 af er-
lendum. íslenskar sjávarafurðir eru
þar með orðnar stærsti seljandi sjáv-
arafurða á íslandi.
■ Velta ÍS/15
James F. Hensel segir Columbia hafa átt 1 viðræðum við íslensk skipafélög
IS AL o g Columbia ræða
samstarf á ýmsum sviðum
FULLTRÚAR Columbia Ventures
og Isal hafa hist til að ræða hugs-
anlegt samstarf verði af byggingu
álvers Columbia. James F. Hensel,
aðstoðarframkvæmdastjóri Col-
umbia segir líklegt að samstarf
verði milli fyrirtækjanna á mörgum
sviðum.
Á sínum tíma var Straumsvík
meðal fímm staða sem íslensk
stjómvöld buðu upp á sem hugsan-
legan byggingarstað álvers. Að
sögn Hensels var sá staður síðar
útilokaður vegna andmæia ÍSAL.
Hann segir þó að þetta hafi ekki
neikvæð áhrif á hugsanlegt sam-
starf þeirra. Hins vegar segir hann
að höfn og löndunaraðstaða
Alusuisse hefði getað nýst báðum
verksmiðjunum og að því leyti hefði
Straumsvík verið góð staðsetning.
Hensel segir að fjórar ástæður
hafí einkum ráðið vali Columbia á
Grundartanga sem byggingarstað.
I fyrsta lagi er höfn við Grundar-
tanga. I öðru lagi er þar sléttlendi
og gott byggingarsvæði. í þriðja
lagi er staðsetningin heppileg til
að tengjast orkuneti Landsvirkjun-
ar. Að lokum nefnir Hensel að
stjórnvöld hafí valið Grundartanga
sem iðnaðarsvæði.
Hafnleysi ókostur við Keilisnes
Helsti ókostur Keilisness var sá
að þar er engin höfn og Hensel
segir að mjög kostnaðarsamt sé
að byggja höfn sérstaklega fyrir
álver af þeirri stærðargráðu sem
Columbia hyggst reisa. Fyrir
stærra álver hefði það verið góður
kostur.
Columbia hefur rætt við Eim-
skip, Samskip, Nesskip og ýmsa
flutningsmiðlara um flutninga fyrir
verksmiðjuna. Hann segir þó að
ekki verði hægt að ganga frá þeim
samningum fyrr en vitað sé hvaðan
hráefni verksmiðjunnar komi, en
fulltrúar Columbia eiga þessa dag-
ana í viðræðum við ýmsa aðila til
að kanna mismunandi kosti.
Morgunblaðið/RAX
Þangsláttur
íjanúar
Miðhúsum. Morgunblaðið.
ÞANGSLÁTTUMENN eru enn
að störfum á Breiðafirði. I gær
var einn prammi við slátt hjá
Reykhólum og eru 170 tonn
komin á land í mánuðinum, að
sögn Stefáns Magnússonar
vaktsljóra í Þörungaverk-
smiðjunni.
Þangöflun ervenjulega hætt
seint á haustin. í haust voru
þrír prammar notaðir við slátt-
inn en hlé varð á þangöflun-
inni um tíma vegna frosta.
Aftur var byijað að slá en
núna með einum pramma sem
Jóhannes Haraldsson á Reyk-
hólum stýrir. Að sögn fróðra
manna hefur það ekki gerst
áður að þangs hafi verið aflað
á þessum tíma árs enda var
síðasta ár metár í þangöflun
hjá Þörungaverksmiðjunni.