Morgunblaðið - 16.01.1997, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ
26 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997
Það tók yftr 200 vlkur að hanna nýja Peugeot 406, enda markar hann tímamót,
Einstaklr aksturseiginleikar, fjöðrun, öryggi, þægindi og útlit
- allt þetta sameinast af enn melrl krafti en áður í nýjum Peugeot 406.
Þægindi í akstri
Einstakir aksturseiginleikar hafa alltaf veriö aöalsmerki
Peugeot. Sérstakur fjöörunarbúnaöur gerir Peugeot 406
rásfastari og þægilegri T akstri en þú átt aö venjast í öörum
bílum. Bíllinn„svínliggur“á götunum.
Þægindin skapa öryggið
Viö hönnun á Peugeot 406 var gífurleg áhersla
lögö á öryggi og yfir 100 árekstursprófanir voru
geröar á bílnum. En þaö eru fyrst og fremst
aksturseiginleikarnir sem skapa öryggiö því
þú átt auöveldara meö aö stjórna bílnum þegar
mest á reynir.
Þægindi við hendina
Innrétting Peugeot 406 er vönduö lúxusinnrétting þar sem
stjórntækjum er vel fyrir komiö, sem gerir bílinn ekki
eingöngu þægilegri í akstri heldur eykur enn á öryggiö.
Taktu líka eftir hvað Peugeot 406 er hljóðlátur þegar þú reynsluekur honum
Verðið kemur
þægilega á óvart!
Nýbýlavegi 2 • Sími 554 2600
þekktur fyrir þœgindi
Tímamótabíll á einstöku verði
LISTIR
„og að vatn-
ið sýni
hjarta sitt“
HALLDÓR Ásgeirsson opnar sýn-
ingu í Ingólfsstræti 8, fimmtudag-
inn 16. janúar. Lituðu vatni undir
gleri er varpað á vegg með halo-
genljósum. Yfirskrift sýningarinn-
ar „og að vatnið sýni hjarta. sitt“
er tekin úr ljóðlínu eftir mexíkóska;
ljóðskáldið Octavio Paz.
Í sýningarskrá segir Halldór
m.a.: „í ljósaskiptunum hef ég
lengi starað á skammdegisblikin -j
ljósglufur himna, farvegi skýja er
stöðugt að bregða litum - augna-
blikið er svo dýrmætt en hverfult
um leið. Birtan varir stutt og þeg-
ar fer að rökkva og smám saman
að dimma og dimma og kemur
fjólublátt mjúkt myrkur í staðinn
með aðra birtu að handan.“
Undanfarin ár hefur Halldór
ummyndað hraun með logsuðu og
þróað þannig tengsl við glerið. Það
hefur leitt hann inn á nýjar og
óvæntar brautir og gerir enn.
Sýningin er opin frá kl. 14-18
fimmtudaga til sunnudaga og
stendur til 16. febrúar.
-----» ♦ ♦
Barnakór
Reykjavíkur
MARGRÉT Jóhanna Pálmadóttir
hefur í samvinnu við Nýja söng-
skólann og Kvennakór Reykjavíkur
ráðist í það verkefni að standa
fyrir stofnun barna- og stúlkna-
kórs Reykjavíkur. Kórinn er fram-
hald af syngjandi forskóla þar sem
börnin stíga fyrstu söngskrefin í
fylgd með íjölskyldumeðlimum.
Kórastarfinu verður skipt niður
í fjórar deildir eftir aldri og getu.
Auk þess að syngja fá börnin
menntun í undirstöðuatriðum tón-
fræði og raddbeitingar. Alls munu
þrír kennarar starfa við kórana og
eru öll börn á aldrinum 5-10 ára
velkomin.
♦ ♦ ♦---
Upplestrar í
Gerðarsafni
UPPLESTRUM á vegum Ritlistar-
hóps Kópavogs verður haldið áfram
í kaffistofu Gerðarsafns milli kl. 17
og 18 í dag fimmtudag 16. janúar.
Fyrstu gestir nýs árs verða ljóð-
skáldin Anna S. Björnsdóttir, Guð-
rún Guðlaugsdóttir og Pjetur Haf-
stein Lárusson. Skáldin eru öll kunn
af skáldskap sínum og öðrum störf-
um og lesa þau úr birtum og óbirt-
um_ verkum sínum.
Á þriðjudaginn 21. janúar fagnar
Ritlistarhópur Kópavogs áttræðis-
afmæli skáldsins Jóns úr Vör í kaffi-
stofu Gerðarsafns. Flutt verður
stutt dagskrá þar sem lesið verður
úr verkum skáldsins. Jón úr Vör
hefur um áratugaskeið verið búsett-
ur í Kópavogi.
.Tölvukjör
Tolvu,-
verslun
heimilanna
Stöð 1. 2 og 3 á skjáinn?
Win/TV sjónvarpskort með textavarpi á tilboðsverði: kr. 16.900
Fullkomið PCI sjónvarpskort með hraðtextavarpi á kynningarverði: kr. 19.900
tnfp
Lexmark 4076 lita-bleksprautuprentari, 600 dpi: kr. 14.500 Verð áður: kr. 26.900
Opið mán - fös: 12:00-18:30, lau: 10:00-16:00
Faxafeni 5
108 Reykjavík
Sími 533 2323
Fax 533 2329
tolvukjor@itn.is
Opið virka daga 12:00-18:30
fimmtudaga 12:00-22:00
og laugardaga 10:00-16:00