Morgunblaðið - 16.01.1997, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
FRÁ æfingu á poppleiknum Óla.
Leikfélag MH sýn-
ir Poppleikinn Ola
Fjórar stöð-
urlausar í
íslenskum
menningar-
stofnunum
STAÐA forstjóra Norræna hússins
í Reykjavík hefur verið auglýst laus
til umsóknar frá og með 1. janúar
1998. Torben Rasmussen sem
gegnt hefur starfinu undanfarin
þijú ár mun ekki sækjast eftir starf-
inu áfram. „Ég var ráðinn hingað
til fjögurra ára en það er hinn venju-
bundni ráðningartími og nú er hann
að líða. Það er engin önnur ástæða
fyrir því að ég er að hætta. Mér
hefur liðið mjög vel hérna á íslandi
og starfið er frábært og veitir manni
mikið frelsi til að gera það sem
maður hefur helst áhuga á.“
Staða forstöðumanns Listasafns
ASÍ hefur einnig verið auglýst en
það er laust nú þegar. Eins og kom-
ið hefur fram hér í Morgunblaðinu
munu stöður forstöðumanna Lista-
safns íslands og Listasafns Reykja-
víkur einnig losna á þessu ári en
Bera Nordal og Gunnar Kvaran sem
gegna nú þessum störfum munu
halda til annarra starfa í Svíþjóð
og Noregi í haust.
JBorgunþIaþi&
LEIKFÉLAG Menntaskólans við
Hamrahlíð frumsýnir Poppleikinn
Óla 2. næstkomandi laugardag 18.
janúar kl. 20.30. í Tjarnarbíói.
Poppleikurinn Óli var upphaflega
saminn og frumfluttur árið 1970
af Litla Leikfélaginu og tónlistin
sem samin var af Óðmönnum var
valin plata ársins 1970.
Nú hafa meðlimir Leikfélags MH
tekið gamla Poppleikinn til endur-
skoðunar og með hjálp leikara, leik-
stjóra og sérstakrar ritnefndar hef-
ur hópurinn unnið í spunavinnu
senur upp úr gamla leiknum, skap-
að nýjar og haldið gömlum eftir og
þar með mótað poppleikinn Óla 2.
í kynningu segir: „Þar er tekist
á við efni eins og viðtekin gildi í
samfélaginu, eiturlyfjavandann,
neytendasamfélagsáreiti, auglýs-
ingafargan o.s. frv. Leikfélag MH
hefur ennfremur stofnað hljómsveit
í „Óðmannastíl" sem sér um tónlist-
arflutning í verkinu og mun hún
flytja bæði lög úr gamla Poppleikn-
um og frumsamin lög undir stjórn
Jóns Olafssonar.
Leikstjóri er Kolbrún Halldórs-
dóttir.
ORÐABÆKURNAR
íslensk
íslensk
þýsk
orðnbók
íslensk
ífölsk
orðabók
íslensk
íslensk
orðnbók
orðabók
Ensk
fslensk
orðabók
■fSí-ENSK
5*-EHSk
íslensk
ensk
orðöbók
°ÖAJSK
Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skólann,
ó skrifstofuna og í ferðalagið
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
<$> /C
o/'i'
^StíOý
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Fjölbreytt tón-
list og ljóða-
perlur á táknmáli
LISTAKLÚBBUR
Leikhúskjallarans hef-
ur hafið starfsemi sína
eftir jólafrí. Að sögn
Þórunnar Sigurðardótt-
ur, framkvæmdastjóra
klúbbsins, verður lögð
áhersla á tónlist í dag-
skrá klúbbsins fram á
vor, engilsaxnesk tón-
list, gyðingatónlist, sí-
gaunatónlist og bar-
okktónlist verða áber-
andi. „Einnig verða
verk kvenna áberandi.
Kvenréttindafélag Is-
lands verður 90 ára 27.
janúar og verður glæsi-
leg dagskrá í tilefni af
því. Einnig verða á dagskránni leik-
verk eftir konur, svo sem Nínu Björk
Árnadóttur og Sigríður Ella Magn-
úsdóttir heldur einsöngstónleika.
Dagskrá þar sem ljóð verða bæði
lesin upp og flutt með táknmáli er
einsdæmi en verið er að vinna í því
að þýða mestu ljóðaperlurnar okkar
á táknmál. Einnig má nefna að í lok
febrúar verður dagskrá helguð al-
þjóðadegi flóttamanna á vegum
Amnesty International."
Tónlist
Eins og áður sagði verður margt
í boði á sviði tónlistar í Listaklúbbn-
um fram á vor. A Capella sönghóp-
urinn ríður á vaðið 20. janúar en
hann skipa Emil og Anna Sigga. Á
efnisskránni eru engilsaxnesk lög,
þjóðlög, lög frá Viktoríutímanum og
lög frá þessari öld.
Tveir ungir tónlistarmenn frá Hol-
landi koma við í Listaklúbbnum á
leið til Bandaríkjanna 10. febrúar en
þeir heita Jeroen den Herder, selló-
leikari, og Folke Nauta, píanóleikari.
Herder hefur leikið einleik með ýms-
um hljómsveitum, meðal annars Sin-
fóníuhljómsveitinni í St. Pétursborg
en hann er nú prófessor við Tónlistar-
skólann í Utrecht, aðeins 25 ára að
aldri. Hann hefur hlotið ýmis verð-
laun með og án félaga síns, Nauta,
sem hlaut fyrstu verðlaun sín tólf ára
gamall. Nauta er 23 ára og hefur
tvívegis verið valinn efnilegasti tón-
listarmaður Hollands.
Rússíbanar nefnist hljómsveit sem
kemur fram í Listaklúbbnum 3.
mars ásamt Invari E.
Sigurðssyni, leikara.
Flutt verður tónlist með
austurevrópskum Klez-
mer- og sígaunaáhrif-
um og sambaívafi.
Einsöngstónleikar
Sigríðar Ellu verða 10.
mars og nefnast þeir
Ljóð úr hjörtum
kvenna.
Fjölþjóðlegi barokk-
hópurinn Icarus frá
Hollandi treður upp 24.
mars og flytur barokk-
tónlist frá Italíu, Þýska-
landi og Englandi.
Bazaar nefnist svo
dagskrá 28. apríl þar
sem danski tónlistarmaðurinn Peter
Bastian, fagott- og klarinettuleikari,
leikur. Með honum spila Anders
Koppel á hammondorgel og Flemm-
ing Quist á slagverk.
Leiklist og bókmenntir
Að vanda verða bókmenntum og
leiklist gerð skil í dagskrá Lista-
klúbbsins á þessu vormisseri. Auk
þeirra dagskrárliða sem þegar hafa
verið nefndir í þessum flokki má
geta þess að 17. febrúar flytur ungt
leikhúsfólk dagskrá helgaða leikrit-
um eftir konur sem lítið eða ekki
hafa verið leikin hér á landi. Flutt
verður meðal annars í íslenskri þýð-
ingu úr víðfrægu verki Pam Gems,
Queen Christina og Cloud Nine eftir
Caryl Churchill.
Einnig skal getið dagskrár sem
nefnist Ef ég væri ríkur og er sýnd
7. apríl í tilefni af því að Fiðlarinn
á þakinu verður frumsýndur í Þjóð-
leikhúsinu í vor. Sýnd verða brot úr
leiknum og rætt um hann. Kolbrún
Halldórsdóttir leikstjóri verksins
hefur umsjón með dagskránni.
Að endingu má benda á danska
dagskrá um listamannahjónin Carl
Nielsen tónskáld og myndhöggvar-
ann Anne Marie 14. apríl. Dagskrá-
in fjallar um stormasama sambúð
þeirra hjóna í orðum og tónum,
byggð á bréfum þeirra og dagbók-
arbrotum. Flytjendur eru leikkonan
Fritze Hedemann, Claus Lembak,
sem er óperusöngvari við Konung-
lega ieikhúsið í Kaupmannahöfn, og
píanóleikarinn Mogens Dalsgaard.
Þórunn
Sigurðardóttir
Islendingar í frönsk
um spurningaþætti
Á stöð 3, sem er ríkissjónvarps-
stöð í Frakklandi, hefur um árabil
verið mjög vinsæll þáttur sem nefn-
ist Spurningar fyrir meistara. Horfa
á hann um 5 milljónir manna. Einu
sinni á ári er þátturinn helgaður
franskri tungu og skyldum greinum.
Þetta er keppni fyrir frönsku-
mælandi útlendinga. Þá er í hvert
sinn boðið þátttakendum frá 10 þjóð-
um. Og í ár eru íslendingar í þessum
tíu manna hópi. Eru íjórir frá hveiju
landi og þátttakendur 40 talsins.
Þeir eru boðnir til Parísar, allt greitt
og verðlaun í boði.
Keppnin stendur yfir nokkra daga
í aprílmánuði. Er hún í þremur liðum.
Fyrst keppt í því sem tengist tungu-
málinu, frönskunni. Þá velja kepp-
endur sér viðfangsefni og í þriðju
atrennu eru stigvaxandi spurningar
sem leiða hver af annarri og fram-
vindu þáttarins. En I hverri atrennu
kemst ákveðinn fjöldi áfram. Þátttak-
endur þurfa því að vera vel að sér í
frönsku máli og hafa góða almenna
þekkingu. Og þeir þurfa að hafa náð
18 ára aldri. Skilyrði í landskvótanum
er að þeir séu alíslenskir.
Þeir sem hugsa til þáttöku geta
sótt um beint eða gegnum Alliance
Francaise í Reykjavík, sem hefur
aðsetur í Austurstræti 3 í Reykjavík,
pósthólf 921 og sími 552 3870.
Liggja umsóknareyðublöð þar
frammi og Madame Colette Fayard,
forstöðumaður Alliance, getur veitt
allar upplýsingar og aðstoð. Verða
gögnin send til France 3 í París og
í febrúarmánuði munu tveir starfs-
menn þáttarins koma til Islands,
ræða við umsækjendur, leggja fyrir
þá samræmdar spurningar og velja
þá sem boðið verður til þátttöku.
Löndin sem taka þátt í sam-
keppninni í ár eru Þýskaland, Burk-
ina Fasko í Vestur-Afríku, Kamer-
ún, Comores, Egyptaland, Guadalo-
upe (fyrir Frakka, ísland, Ítalía,
Laos, Vanuatu eyjar í nánd við
Ástralíu. Þátturinn „Questions pour
un Champion" varð til hjá sjónvarp-
inu FRANCE 3 í nóvember 1988
og næstu 8 ár hefur hann verið einn
vinsælasti þátturinn í sjónvarpi.
Stjórnandi er Julian Lepers.