Morgunblaðið - 16.01.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 16.01.1997, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ ísland sem hreint land ÍBÚAR íslands státa sig oft af hrein- leika landsins, auði sem sífellt verður sjaldgæfari í heimi hér og vandfundnari. Upp- bygging er hafin um y land allt, bæði í ferða- iðnaði og lífrænni ræktun, sem byggist á þeim þjóðarauði sem við enn eigum, en hvernig förum við með þennan auð? Sem íbúi við Hvalfjörð horfi ég uppá verksmiðjuna við Grundartanga spúa reyk og eiturefnum yfir þennan fallega fjörð, sem fullur er af náttúrufeg- urð og dýralífi og heyri í útvarpinu fostjóra Járnblendisins segja lands- mönnum að þetta sé bara meinlaus gufa sem engan skaða geri. Við höfum fengið það staðfest hjá Holl- V ustuvemd að mengunarbúnaður sé búinn að vera bilaður í tvö ár og á borgarafundi, sem nýlega var hald- in í Kjósinni, komu fram upplýs- ingar sem leiddu það í ljós að verk- smiðjan hleypir út fleiri hundruðum tonna af eiturefnum á ári, en við- miöið er ákveðinn staðall sem er leyfilegur og það virðist vera að þeir sem eru í forsvari fýrir stóriðju telji sjálfum sér trú um að það sé ekki mengun, í það minnsta reyna þeir að telja almenningi trú um i það. Sama dag og forstjóri járn- blendisins kom með gufufréttirnar var viðtal við iðnaðarráðherra og fram kom í málflutningi hansað Hvalijörðurinn væri þegar orðinn mengað svæði. Síðan kemur blaða- grein eftir ráðherra þar sem hann segir að engin mengun verði af verksmiðjunni sem koma skal. Get- um við treyst einhveiju sem þessir háu herrar segja? Nei því nú vitum við betur. Fram kom á borgarafund- inum að gert er ráð fyrir lóðum undir sjö stóriðjuver inn fjörðinn og á þetta að verða stóriðjusvæði framtíðarinnar. Nú stendur til að önnur verksmiðja komi og á hveiju er von, meiri mengun, fábreyttara dýralífi og við erum að eyðileggja landið til framtíðar. Erum við ekki að selja okkur og land okkar? Því liggjum við flöt fyrir erlendum aðil- um sem vilja nýta sér auðlindir okkar fyrir sem minnst verð, en verðið verðum við kæru íslendingar að greiða sjálfir með því að horfa á spúandi strompa og reyk sem Berþóra Andrésdóttir liggur yfir okkar fal- lega landi og eyðilegg- ur lífríkið. Þegar aðstoðarfor- stjóri Columbia-álvers- ins kom hér í fyrra var honum boðið að velja sér svæði undir verk- smiðjuna, hann var keyrður um Helguvík, Straumsvík, Hvítanes í Kjós og á Grundar- tanga og þar leist hon- um best á sig. Hvað um okkur, ibúa fjarðar- ins, við erum ekki einu sinni spurðir hvort okk- ur lítist á eina verk- smiðjuna í viðbót eða hvort hún skaði eitthvað okkar hagsmuni. Þvílík mismunun, erum Fram kom á borgara- fundinum, segir Berg- þóra Andrésdóttir, að gert er ráð fyrir lóðum undir sjö stóriðjuver inn fjörðinn og á þetta að verða stóriðjusvæði framtíðarinnar. við eitthvað minna virði, almenning- ur, heldur er erlendir fjárfestar, erum við ekki skattgreiðendur og þegnar þessa lands sem ber að taka tillit til? Það virðist ekki vera því allar ákvarðanir eru teknar ofan frá og fólk virðist vera réttindalaust og komið fram við það af fullkom- inni lítilsvirðingu. Það er ekki hægt að bjóða erlend- um ferðamönnum upp á að koma sér til ánægju upp í sveit til að gista í bændaþjónustu eða útivistarfólki að njóta náttúrunnar með þetta fýr- ir augunum og hvað þá að stunda búskap og fyrir okkur sem búum við þennan ósóma er illskiljanlegt að óskað sé eftir frekari verksmiðj- um. Þurfum við ekki, kæru landar, að fara að láta okkur varða umhverf- ismál og standa saman um þau mál sem okkur varða og láta ekki allt yfir okkur ganga, í það minsta erum við íbúar hér í Kjósinni alveg harðá- kveðnir í því að láta ekki valta yfir okkur og bjóða okkur hvað sem er. Höfundur er húsmóðir og bóndi. Rikisabyrgð afnumín Steingrímur A. Arason ÞEGAR samkomu- lag var gert um ný líf- eyrissjóðslög fyrir starfsmenn ríkisins voru menn ekki að smíða kerfi frá grunni, né kerfi sem ætlast er til að standi óbreytt um aldur og ævi. Þvert á móti var verið að leysa af hólmi löngu úrelt regluverk, kerfi sem sumir hafa líkt við tímasprengju. Með samkomulaginu var verið að koma málum í ákveðinn farveg þannig að breytingar væru mögulegar á næstu árum án uppstokkunar eða bráðabirgðalausna. Fyrir lagabreytinguna var ríkis- ábyrgð á öllum lífeyrisskuldbind- ingum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Um það var ekki deilt, en skiptar skoðanir um inntak ábyrgð- arinnar, t.d. um svigrúm stjóm- valda til að breyta gildandi rétt- indaákvæðum gagnvart þeim sem áttu aðild að sjóðnum. Þó að inntak ábyrgðarinnar væri þannig ekki óumdeilt mátu starfsmenn ríkisins ábyrgðina mikils. Hana hefði því aldrei verið hægt að afnema ein- hliða án átaka eða án þess að eitt- hvað annað kæmi í staðinn. Sú leið sem farin var fól í sér samkomulag um nýtt kerfi án rík- isábyrgðar. I staðinn kemur al- menn launagreiðendaábyrgð. A þessu tvennu er reginmunur, sem margir hafa ekki áttað sig á, að því er virðist. Ábyrgð takmörkuð við iðgjald Nýja kerfið gerir ríkisábyrgð óþarfa þar sem iðgjöld til sjóðsins verða á grundvelli tryggingafræði- legrar úttektar árlega endurskoðuð og ákveðin þannig að þau standi undir þeim skuldbindingum sem stofnað er til. Hvorki sjóðfélagar né launagreiðendur bera ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins með öðru en iðgjöldum sínum. Kæmi til þess að nýja kerfinu yrði lokað einhverntíma í framtíð- inni og frekari iðgjaldagreiðslum hætt bæru launagreiðendur enga ábyrgð á skuldbindingum kerfis- ins. Ef eignir sjóðsins dygðu ekki fyrir skuldbindingum eftir slíka lokun yrði að laga réttindi sjóðfé- laga að eignunum. Á sama hátt gætu launagreiðendur eftir slíka I * ,dfa*"a4ur íþróttaskór m ' nar - surv u dW, sv^90 * ',e,s «v m/binO.-- */ r: sníóbrett1 m í úrvaV* . Sní°’ uhf 90° ,ngusKor.« .90 Körtubó ,\tasKór’< NÝTT KORTATÍMABIL! Póstsendum samdægurs. I I lokun ekki gert tilkall til eigna deildarinnar þó svo að þær reynd- ust, vegna breyttra forsendna, meiri en nauðsynlegt væri til þess að standa undir skuldbindingum. Rétt er að vekja sérstaka athygli á því að við mat á iðgjalda- þörf til sjóðsins er mið- að við að sjóðfélagar eigi aðild að sjóðnum til starfsloka. Það þýð- ir að árleg iðgjalda- þörf vegna tiltekins starfsmanns er metin óbreytt alla starfs- ævina. Ef aðeins væri miðað við eitt ár í senn væri iðgjaldaþörf Nýtt lífeyriskerfí ríkis- starfsmanna tryggir eins og kostur er, segir Steingrímur A. Ara- son í þessari síðustu grein sinni af fjórum, stöðugt jafnvægi milli eigna og skuldbindinga. vegna tiltekins starfsmanns hins vegar lítil í upphafi og mikil í lok starfsævinnar. Ástæðan er sú að réttindaávinnslan er óháð aldri, en eftir því sem iðgjald er greitt til sjóðsins fyrr á starfsævi hvers og eins þeim mun meiri vaxtatekjur fást af innborguðu iðgjaldi. Framangreind útreikningsað- ferð hefur mikla þýðingu fyrir starfsmenn og launagreiðendur. Hún tryggir nokkurs konar „vara- sjóð“ hjá lífeyrissjóðnum, ef til lok- unar hans kæmi, þar sem iðgjald vegna hvers og eins starfsmanns er jafnaðariðgjald. „Varasjóður- inn“ væri hins vegar ekki til stað- ar, ef árleg iðgjaldaþörf væri met- in á grundvelli aðildar að sjóðnum eitt ár fram í tímann. Breytingar á iðgjaldi og launum samtvinnaðar Ábyrgð ríkisins sem launagreið- anda í nýja kerfinu er allt önnur en áður og í raun sambærileg þeirri ábyrgð sem er til staðar hjá al- mennu sjóðunum. Launagreiðend- ur opinberra starfsmanna gangast hins vegar undir breytilegt iðgjald á meðan hjá almennu lífeyrissjóð- unum er gert ráð fyrir aðlögun réttinda að eignum og tekjum. Á þessu er auðvitað mikill munur, en þó ekki eins mikill og af er látið. Hjá almennu lífeyrissjóðunum er það grundvallaratriði að bæði ið- gjaldagreiðslur og lífeyrisréttindi séu hluti umsaminna kjara og við- -II 2 5010 6152 0008 Verslunar- nienn! sjálfvirk skráning RAFHÖNNUN VBH Ármúla 17 - Slmi 588 3600 Fax 588 3611 - vbh@centmm.is fangsefni kjarasamninga hveiju sinni. Þannig er 10% iðgjald til þeirra lágmarksiðgjald og ekkert sem útilokar að samið sé um hærra iðgjald til að auka lífeyrisréttindi eða til að varðveita og koma í veg fyrir skerðingu á umsömdum rétt- indum. Þó að breytingar á lífeyrisið- gjöldum geti borið að með ólíkum hætti er Ijóst að hækkun eða lækk- un þeirra mun ætíð hafa áhrif á svigrúm til launabreytinga. Að öðru óbreyttu verður t.d. svigrúm til launahækkunar óhjákvæmilega minna en ella ef iðgjaldagreiðslur launagreiðenda hækka. Hvenær samið er um hækkunina og hvort hún er byggð á sérstöku eða al- mennu samkomulagi hefur engin áhrif á þá staðreynd. Við afnám ríkisábyrgðarinnar var hún ekki metin til fjár, né gerðar sérstakar ráðstafanir til að bæta starfsmönnum afnám henn- ar. í stað kerfis þar sem ríkis- ábyrgð gegndi lykilhlutverki var komið á kerfi sem grundvallaðist á sjóðsöfnun og árlegri úttekt á nauðsynlegu iðgjaldi. Báðir aðilar voru meðvitaðir um að breyttar forsendur gætu kallað á hækkun eða lækkun iðgjaldsins er hefði áhrif á það sem til skiptanna væri í kjarasamningum. Góð ávöxtun sameiginlegt hagsmunamál Hvernig sem á málið er litið er rétt út reiknað iðgjald sameiginlegt hagsmunamál bæði sjóðfélaga og launagreiðenda. Jafnframt má full- yrða að báðir aðilar munu kapp- kosta að ávaxta fé sjóðsins eftir bestu getu og tryggja með þeim hætti eins lágt iðgjald og kostur er. Þegar kostnaður við lífeyris- réttindi er orðinn sýnilegur og staðið er undir lífeyrisréttindum með samtímagreiðslu er komið á beint samband milli iðgjalda og launa. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr hafa breytingar á iðgjaldi óhjákvæmilega áhrif á svigrúm til launabreytinga. Víðtæk samstaða var um mikil- vægi þess að tryggja góða og ör- ugga ávöxtun á því fé sem Lífeyris- sjóður starfsmanna ríkisins mun fá til varðveislu. Vegna umfangs starfseminnar væru ótvíræð rekstr- armarkmið mikilvæg og góð ávöxt- un sameiginlegt kappsmál bæði sjóðfélaga og launagreiðenda. í meðförum Alþingis var þetta undir- strikað og skýrt kveðið á um það í lögum sjóðsins að stjórn hans skuli móta íjárfestingarstefnu og ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hveijum tíma með tilliti til ávöxtun- ar og áhættu. Þessi markmiðssetn- ing er sambærileg þeirri sem að- standendur almennu lífeyrissjóð- anna hafa náð samkomulagi um. Með hliðsjón af því ástandi sem ríkt hefur verður það engu að síður að teljast markverður áfangi að rík- ið sem launagreiðandi og stéttarfé- lög opinberra starfsmanna skuli ná hliðstæðu samkomulagi. Nýtt lagaákvæði Um ríkisábyrgðina í gamla kerf- inu segir svo í lögum: „Ríkissjóður ábyrgist greiðslu lífeyris samkvæmt lögum þessum, og greiðist hann með 1/12 árslífeyrisins fyrirfram á hveijum mánuði." I lögum um nýja kerfíð segir hins vegar orðrétt: „Sjóðfélagar og launagreiðendur þeirra bera eigi ábyrgð á skuldbind- ingum deildarinnar nema með ið- gjöldum sínum.“ Á þessu tvennu er grundvallarmunur. Einnig skiptir miklu máli að ekki er lengur gerður greinarmunur á ábyrgð ríkisins og ábyrgð annarra launagreiðenda. Mikilvægi þessa sést ef til vill best á því að eftir flutning grunnskólans til sveitarfélaga og breytingu Pósts og síma í hlutafélag bera aðrir launagreiðendur en ríkið ábyrgð á tæplega helmingi allra iðgjalda- greiðslna til sjóðsins. Höfundur er aðstoðarmaður fjármáiaráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.