Morgunblaðið - 16.01.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.01.1997, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ Nýtt íþróttahús vígt 1 Mývatnssveit Gjörbreytir íþróttaaðstöðu í sveitinni Mývatnssveit - Nýtt og glæsi- legt íþróttahús í Mývatnssveit var vígt síðastliðinn laugardag, 11. janúar. Leifur Hallgrímsson odd- viti Skútustaðahrepps bauð gesti velkomna en síðan tók nýráðinn sveitarstjóri, Sigbjörn Gunnars- son við stjórn samkomunnar og kynnti jafnóðum dagskrárliði. Ááætlaður kostnaður hússins er á milli 60 og 70 milljónir. Sóknarpresturinn, séra Örn Friðriksson, fór með blessunarorð og bæn. Sigurður Rúnar Ragnars- son fyrrverandi sveitarstjóri rakti byggingasögu hússins sem stað- sett er við sundlaugarhúsið í Reykjahlíð og samtengt þeirri byggingu. Verktaki var Sniðill hf. í Mývatnssveit. Kvaðst Sigurður hafa átt mjög gott samstarf við alla þá aðila sem unnið höfðu við þetta íþróttahús og lofaði verk þeirra, sem staðist hafði allar áætlanir. Smíði hússins hófst í maímán- uði síðastliðnum og lauk 20 des- ember. íþróttasalurinn er 19x28 metrar og vænta menn þess að þetta íþróttahús muni gjörbreyta aliri íþróttaaðstöðu í sveitinni. Hópur nemenda grunnskólans með fánabera gengu fylktu liði inn í sal hússins og sýndu létta leiki, dansa og íslenska glímu sem við- staddir kunnu vel að meta. Sigbjörn Gunnarsson afhenti Guðmundi Baldurssyni forstöðu- manni sundlaugar og nýja íþrótta- hússins lykla að húsinu. Kostnaður 60-70 milljónir Ræðu fluttu Sigfríður Stein- grímsdóttir, Guðmundur Bjarna- son landbúnaðar- og umhverfis- ráðherra og Ormar Þór arkitekt sem í lok ræðu sinnar gaf húsinu einn körfubolta. Síðast var al- mennur söngur undir stjóm Jóns Árna Sigfússonar en síðast var sungið Blessuð sértu sveitin mín. Öllum var frjálst að skoða húsið, sem er að hluta á tveimur hæðum, en í kjallara er búið að ganga frá tækjasal. Tækin eru væntanleg á næstunni. Öllum viðstöddum var boðið upp á rausnarlegar veitingar í grunnskólanum sem konur í Kvenfélagi Mývatnssveitar sáu um. Fjölmenni sótti þessa vígslu- hátíð. Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson UNNIÐ við að taka niður gamla línu við Laugarbakka, sem ekki er notuð lengur. Hvammstanga - Rafmagn- sveita ríkisins hefur á liðnum misserum stórbætt veitukerfi sitt í Vestur-Húnavatnssýslu. Nú í vikunni var tekin ný að- veitustöð í notkun á Laugar- bakka. Ný raflína hefur verið lögð frá stóru spennuvirki við Síká í Hrútafirði yfir í Vestur- árdal um Brekkuíæk. Lokið var við lagningu hennar á liðnu ári að Laugarbakka. Línustefnan er valin með tilliti til sem minnstrar ísingarhættu og vindálags. Úr hinni nýju aðveitustöð, sem stendur rétt ofan Laugar- bakka, greinast línur til Hvammstanga og Vatnsness, RARIK treystir veitukerfið Hrútafjarðar og yfir í Víðidal um Múlalínu. Flutningsgetat eykst verulega á veitukerfinu og á að geta mætt aukinni raf- orkunotkun í héraðinu. Stýri- búnaður í veitustöðinni er fjar- stýrður og skapa þessar fram- kvæmdir mun betra rekstrarör- yggi m.a. leiða af sér skemmra rof á orku og á smærri svæðum, ef til bilana kemur. Þessar framkvæmdir voru unnar af vinnuflokkum RARIK á Norðurlandi vestra en bygg- ingu húss fyrir aðveitustöðina byggðu tveir smiðir á Hvamms- tanga. Sverrir Hjaltason, raf- veitustjóri á Hvammstanga, segir þessar framkvæmdir hafa gengið vonum framar enda ágætisveður á liðnum vikum. Nú eru starfsmenn RARIK á Hvammstanga að taka niður gamlar og óþarfar háspennulín- ur sem liggja nánast í kringum Laugarbakka og þykir það mik- ið þarfamál. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal í GRENND við Fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupstað hafa verið byggðar íbúðir fyrir aldraða og á myndinni, sem tekin var fyrir rúmum fjórum árum, sést hvar unnið er að framkvæmdum við sex nýjar íbúðir. Víkurblað- ið hluti af Degi-Tím- anum UNDIRRITAÐUR hefur verið samstarfssamningur milli Dags-Tímans á Akureyri og Víkurblaðsins á Húsavík um að framvegis komi Víkurblað- ið út sem hluti af Degi-Tíman- um á hvetjum fimmtudegi. Ritstjóri Víkurblaðsins, Jó- hannes Siguijónsson, mun jafnframt starfa sem blaða- maður Dags-Tímans á Húsa- vík. Samstarfið mun hefjast frá og með 23. janúar en þá kem- ur Víkurblaðið í fyrsta skipti út með Degi-Tímanum. Fjóröungssjúkraliúsið í Neskaupstað 40 ára FJÓRÐUNGSSJÚRKAHÚSIÐ í Neskaupstað tók til starfa 18. janúar 1957 og hefur því starfað í 40 ár. Fyrsta árið semsjúkraþús- ið starfaði vöru lagðir inn 262 sjúklingar en þeim fjölgaði fljótt og hafa oftast verið á milli 7 og 8 hundruð. Á fyrstu árum sjúkra- hússins var mikið um erlenda sjó- menn en erlendir togarar voru þá á veiðum við landið og slys al- geng. Slysum á sjó hefur fækkað en ennþá er hluti þeirra sem inn eru lagðir sjómenn. Fyrstu árin störfuðu við sjúkra- húsið 2 læknar, skurðlæknir og svæfingarlæknir, og gerðar voru allar algengar aðgerðir. Sjúkra- rúmin voru 24 í gamla sjúkrahús- inu en það reyndist fljótt of lítið. Ekki var óaigengt að 2 til 3 sjúkl- inga yrði að vista á ganginum. Árið 1967 var nýtt sjúkrahús byggt við hlið hins gamla og hús- in síðan tengd saman. Árið 1976 var fyrsti hluti nýja hússins tekinn í notkun en það var tengiálman á milli húsanna. Heilsugæslustöð var vígð árið 1980 og í maí 1982 var endurhæfingarstöð vígð. Seinna það sama ár voru tekin í notkun 22 rúm á nýju sjúkradeild- inni. 25 þúsund sjúkiingar á 40 árum Á þessum 40 árum hafa verið lagðir inn 24.828 sjúklingar og fæðst hafa 2.203 börn á sjúkra- húsinu. Fjórðungssjúkrahúsið hef- ur í gegnum árin notið mikillar velvildar og því hafa borist marg- ar góðar gjafir frá einstakiingum og félagasamtökum á Austur- landi. Sú þjónusta sem er i boði á fjórðungssjúkrahúsinu í dag er sem fyrr bráðaþjónusta á sviði handlækninga og lyflækninga. Endurhæfingarstöð er rekin við húsið með góðum tækjakosti og sundlaug. Sérfræðingar í kven- sjúkdómum og fæðingahjálp koma annan hvern mánuð, sérfræðingar í þvagfæraskurðlækningum koma 2-3 sinnum á ári, háls-, nef og eyrnalæknir kemur tvisvar á ári, barnalæknir kemur tvisvar á ári og svona mætti lengi telja. Síðastliðin tvö ár hefur verið boðið upp á endurhæfingarnám- skeið í samvinnu við Reykjaiúnd ætluð hjarta- og lungnasjúkling- um, 6-8 sjúklingar í senn, og hafa 7 slík námskeið verið haldin. Komið hefur til tals að koma á fót við sjúkrahúsið lítilli lokaðri deild fyrir sjúklinga með alzheim- er og skylda sjúkdóma en ekkert slíkt rými er til á Austurlandi. Fjórðungssjúkrahúsið hefur séð um starfsnám sjúkraliða í sam- vinnu við Verkmenntaskóla Aust- urlands og nú einnig tekið að sér að taka við hjúkrunarnemum frá Háskólanum á Akureyri. Morgunblaðið/Guðmundur Þór HÓLMFRÍÐUR Vala Svavars- dóttir, unnusta Daníels Jak- obssonar, tók við verðlaunum hans en sjálfur er hann við æfingar og keppni erlendis. Daníel Ólafsson íþróttamaður Olafsfjarðar DANÍEL Jakobsson skíðamaður var kjörinn íþróttamaður Ólafsfjarðar fyrir árið 1996 en kjörið var til- kynnt við hátíðlega athöfn nýlega. Alls voru fimm menn tilnefndir, en þeir voru Anton Konráðsson, til- nefndur af Skotfélagi Ólafsfjarðar, Ásgrímur Pálmason, tilnefndur af íþróttadeild hestamannafélagsins Gnýfara, Daníel Jakobsson, til- nefndur af aðalstjórn Leifturs og skíðadeild Leifturs, Gunnar Odds- son tilnefndur af knattspyrnudeild Leifturs og Sigmar Ólfjörð Kára- son, tilnefndur af körfuboltaráði Leifturs. Daníel Jakobsson er landsliðs- maður í skíðagöngu. Helsti árangur Daníels, sem er Iangfremsti skíða- göngumaður landsins, á síðasta ári var sá að hann varð fjórfaldur Is- landsmeistari, var í silfursveit Ás- ana á sænska meistaramótinu auk mjög góðs árangurs í öðrum grein- um á því móti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.