Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens „k/aU/UH S/C&FA GÓÐA 5Ö<*U£e _ A£> VEJ-TA EiTFHl/AQ EFN/ EEAi/HAÐUR. þETKJc/fZ ,,'SHJÓKB?satÁ 1 tZAFL/ cMc/r *** Ljóska Smáfólk YE5,5IR.. ISTHI5 WHERE VOU'RE 5ELLIN6 ATHLETE'S AUT06RAPH5? 1V LIKE A BA5EBALL UIITH JOE SHLAB0TNIK5 AUT06RAPH..WH0 15 H6? HE'S m HERO! ! 1(f) Já, er það hérna sem fást eiginhandaráritanir iþróttamanna? IS HE HERE7WELL, JUST ASK HIM TO 5I6N A BALL, AND l'LL PM FOR IT.. ZC Mig langar að fá horn- bolta með áritun Jóa Snögga... Hver hann er? Hann er hetjan mín. Er hann hérna? Jæja, viltu þá biðja hann að árita boltann; ég borga. I USED TO HAVE A LASSIE 006 PI5H, BUT 5HE NEVER 5I6NED IT.. Ég átti einu sinni Lassí- disk, en hún áritaði hann aldrei. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Stúdentamessa Frá Guðrúnu Karlsdóttur: SUNNUDAGINN 26. janúar klukk- an 14 munu guðfræðinemar standa fyrir messu í Árbæjarkirkju. Fyrir tveimur árum tóku nemar við Há- skóla íslands upp þann góða sið að halda stúdentamessu einu sinn til tvisvar á vetri. Messur þessar eru ekki frábrugðnar öðrum nema að því leyti að stúdentar hafa veg og vanda af skipulagi helgihaldsins og framkvæma alla þá messuliði sem óvígð manneskja má standa að. Að þessu sinni hafa guðfræðinemar fengið til liðs við sig sr. Þór Hauks- son prest í Árbæjarkirkju. Guðfræði- nemar prédika, lesa ritningarlestra, sjá um forsöng og kór guðfræðinema heldur uppi almennum safnaðar- söng. Það má segja að þessar mess- ur séu góð æfíng fyrir guðfræðinema til þess að vinna úr því efni sem þeir eru að nema. Þrátt fyrir að guðfræðideildin hafi þróast frá prestaskólanum gamla er það ekki gefið að allir sem þar stunda nám stefni út í prest- skap. Nú er í boði, innan deildarinn- ar, að leggja stund á þriggja ára nám til BA-prófs, djáknanám og kandídatsnám og stúdentum er leggja stund á aðrar greinar er einn- ig gert kleift að lesa guðfræði sem aukagrein sem metin er sem hluti af aðalnámsgrein. Kandídatsnámið er starfsnám og þrátt fyrir að stærsti hluti þess sé „akademískt“ nám er hluti námsins af „praktískum" toga. Ég lít þó svo á að starfsnámið sé af allt of skornum skammti og því verða stúdentar sjálfir að hafa frum- kvæði að því að bjóða fram krafta sína í kirkjum landsins. Ekki ber þó að líta á stúdentamessur sem æf- ingamessur á nokkurn hátt, því sam- kvæmt kenningum evangelísk-lút- herskar kirkju eru allar kristnar manneskjur prestar en sumar eru sérstaklega kallaðar og vígðar til þjónustu við Guð og menn. Markmið- ið með stúdentamessu er fyrst og fremst hið sama og með öðrum messum; að lofa Guð og boða fagn- aðarerindið. Guðfræðinemar sjá einnig um allmikið helgihald í kapellu Háskól- ans. Á hveijum fimmtudegi klukkan tíu er messa í kapellunni, á sama tíma aðra virka daga eru bæna- stundir og á lýðveldisdaginn, fyrsta desember, ár hvert standa guðfræði- nemar fyrir messu sem útvarpað er. Þetta helgihald er ekki hugsað ein- göngu fyrir guðfræðinema heldur fyrir alla nemendur og kennara við Háskóla íslands. Ég vil hvetja alla, sem sjá sér fært, að koma til messu á sunnudaginn, sérstaklega sóknar- börn Árbæjarsóknar, nemendur og kennara við Háskóla íslands. Sjáumst á sunnudaginn! GUÐRÚN KARLSDÓTTIR, fomaður Félags guðfræðinema. Hvað er náttúra? Frá Magnúsi Davíð Norðdahl: JÖRÐIN og allt sem á henni er, öll dýr, allt líf og samspilið milli alls á jörðinni er náttúran. Við erum hluti af náttúrunni og það sem við búum til. Margir segja að háhýsi, skip, bílar, hús og aðrir hlutir sem við búum til séu ónáttúru- legir og tilheyri ekki náttúrunni. Það er vitlaust. Við tiiheyrum náttúrunni og þess vegna er það sem við búum til náttúrulegt. Fyrst okkur finnst að það sem hin dýrin búa til, til dæmis býflugnabú eða híði sem björn gerir til að sofa í yfir vetur- inn, sé náttúran eigum við líka að líta á það sem við búum til sem náttúru. Margir segja að við eigum ekki að planta tijám heldur láta „náttúruna", eins og sumir segja, gera það, en trén sem við plöntum eru jafn náttúruleg og þau sem koma án þess að við plöntum þeim, því að við tilheyrum jú náttúrunni og þess vegna er allt sem við gerum líka hluti af náttúrunni. Það er sagt að ef kjarninn í þjóðfélagin sé sterk- ur gangi vel í landinu. Til að kjarn- inn sé sterkur þurfa allir að finna að þeir tilheyri þjóðfélaginu. Það má ekki vera neinn aðskilnaður í þjóðfélaginu. Ef einhveijir byija að aðskilja sig byija þeir að reyna að mynda annan kjarna sem þýðir að kjarninn eða þjóðfélagið fer í upp- lausn. Þetta gerðist i sjálfri náttúr- unni. Við byijuðum að aðskilja okk- ur sem þýddi að kjarninn fór í upp- lausn. Og hvað hafði það í för með sér? Mengunarvandamál. Við verð- um að hætta þessum aðskilnaði til að náttúran fari ekki í frekari upp- lausn, og fara frekar að líta á okkur sem heild til að kjarninn verði sterk- ur svo það byiji að ganga aftur vel í náttúrunni. Verðum að bera virðingu fyrir náttúrunni Við verðum að muna að bera virð- ingu fyrir umhverfi okkar. Það er allt of mikið af hlutum sem menga, sem við gætum alveg lifað án þess að gera. Ef maður vill gera eitthvað gott fyrir náttúruna verður maður að byija á sjálfum sér og segja hvað get ég gert fyrir náttúruna, og gera svo það sem maður getur. Hér eru nokkur dæmi um hvað við getum byijað að gera fyrir um- hverfið: 1. í staðinn fyrir að nota einnota plastpoka þegar við verslum, að nota þá frekar góðan sterkan poka sem endist lengi eða sterkan kassa. 2. Svo gæti maður sett reglur um að þegar maður verslar mundi mað- ur alitaf koma með sömu mjólk- urfernurnar og fá fyllt á, og koma alltaf með sama ostaboxið, og sama gildir með hinar matvörurnar, alltaf fjölnota umbúðir í staðinn fyrir ein- nota umbúðir. 3. Svo að kaupa skrúfblýant í staðinn fyrir venjulegan blýant, þá þarf maður ekki alltaf að kaupa nýjan og eyða meira af auðlindum jarðarinnar. 4. Svo að fara með þá hluti í endurvinnslu sem hægt er. Það eru milljón aðrir hlutir sem við getum gert án þess að það komi niður á okkur. Svo ég skora á alla, að gera það sem þeir geta fyrir það sem skiptir mestu máli, sjálfa náttúruna. MAGNÚS DAVÍÐ NORÐDAHL, 14 ára, Álfaheiði 7, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt I upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.