Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Tveir menn yfirheyrðir vegna
morðsins á Ennis Cosby
Reynt að kúga 40
milljónir dollara
af Bill Cosby
LÖGREGLAN í Los Angeles yfir-
heyrði á mánudag tvo menn, sem
gætu hafa verið vitni að því þegar
Ennis William Cosby, sonur banda-
ríska leikarans Bills Cosbys, var
skotinn til bana við hraðbraut á
fimmtudag.
Eduardo Funes, talsmaður lög-
reglunnar í Los Angeles, sagði að
„tveir einstaklingar" hefðu verið
yfirheyrðir í nokkrar klukkustundir,
en lagði áherslu á að þeir hefðu
ekki verið handteknir.
Lögreglan í New York greindi
frá því á mánudag að kona frá Los
Angeles og vitorðsmaður hennar
hefðu verið handtekin fyrir tilraun
til að kúga 40 milljónir dollara (um
2,6 milljarða króna) af Bill Cosby.
Kvaðst hún annars mundu segja
bandarískum slúðurblöðum að hún
væri laundóttir leikarans.
Fréttastofur sjónvarpsstöðvanna
ABC og CBS sögðu í gær að tals-
maður Cosbys hefði neitað því að
konan, sem heitir Autumn Jackson
og er 22 ára, væri dóttir hans.
Ekkert er talið benda til þess að
fjárkúgunartilraunin tengist morð-
inu á syni Cosbys, sagði í yfirlýs-
ingu frá saksóknara í New York-
ríki.
Ginnt í hendur FBI
Jackson hefur krafíst peninga af
Cosby í nokkrar vikur. 16. janúar,
daginn sem Ennis Cosby var skot-
inn, sendi hún símbréf og kvað sig
„vanta peningana núna“. Hún var
boðuð á skrifstofu lögfræðinga
Cosbys á Manhattan á laugardag
ásamt vitorðsmanni sínum, Jose
Medina, og henni lofað 24 milljón-
um dollara. Þegar þau komu á skrif-
stofuna beið þeirra hins vegar
bandaríska Alríkislögreglan (FBI)
og voru þau handtekin.
Bill Cosby, sem er kvæntur og
fimm bama faðir, kvaðst ekki vera
faðir konunnar og gæti sannað það
með fæðingarvottorði. Cosby-fjöl-
skyldan hefur lagt fram ótilgreinda
upphæð til að borga skólagjöld
Jackson, en í kærunni á hendur
Jackson og Medina kemur fram að
Cosby hafi hjálpað „mörgum ung-
mennum, sem þurftu aðstoð til að
greiða skólagjöld". Ekki er vitað
ENNIS Cosby ásamt systur sinni, Eriku, t.v. og foreldrar þeirra, bandariski ieikarinn Bill Cosby og Camille.
hvert samband Cosbys við Jackson
er, ef nokkuð, en vitað er að um
skeið gaf hún upp heimilisfang í
sama húsi og lögfræðingar Cosbys
eru með skrifstofur.
Jarðsunginn í kyrrþey
Ennis Cosby var jarðsunginn í
kyrrþey á stórri landareign Cosby-
fjölskyldunnar í Shelburne í
Massachusetts-ríki á sunnudag.
Fjölskyldunni hafa borist slík
ógrynni af blómum að Bill Cosby
hefur látið senda þau á sjúkrahús.
Þar á meðal voru 600 rósir, sem
þurfti sex menn til að bera, frá
körfuknattleiksmanninum Shaqu-
ille O’Neal. Fjölskyldan hefur farið
fram á að í stað þess að senda blóm
gefi þeir, sem vilja, fé til sjóðs, sem
hefur verið stofnaður í nafni Ennis
Cosbys.
Lögreglan í Los Angeles hefur
vart haft við að taka á móti vís-
bendingum frá almenningi eftir að
tvær teikningar, önnur af mannin-
um, sem grunaður er um að hafa
myrt Cosby, hin af manni, sem
gæti hafa verið vitni, voru birtar
opinberlega.
Lýsingin á morðingjanum kom
frá Stephanie Crane kvikmynda-
handritshöfundi, sem hafði boðið
Cosby í mat að kvöldi miðvikudags
fyrir viku. Crane kvaðst hafa
kynnst Cosby í samkvæmi helgina
þar á undan og boðið honum heim
til sín í mat.
Að því er fram kom i dagblaðinu
The New York Daily News sagði
hún lögreglu að Cosby hefði viljað
fá nautasteik í matinn, en hún
hefði ekki átt hana til. Hefði Cosby
því ákveðið að elda sér sjálfur
nautasteik áður en hann héldi heim
til Crane í San Fernando-dal.
Komið er í ljós að Cosby fór í
líkamsræktarstöð í West Los Angel-
es milli klukkan átta og tíu á mið-
vikudagskvöld ásamt vini sínum og
fór síðan í hús í eigu fjölskyldu sinn-
ar til að borða.
Skyndilega bankað á glugga
Crane kvað Cosby hafa hringt í
sig og sagt að sprungið hefði dekk
á bíl sínum, grænum Mercedes
Benz SL-600. Hún kvaðst hafa far-
ið til hans og hefði það verið um
tíu mínútna akstur frá heimili sínu.
Hún hefði talað við Cosby og farið
því næst inn í bifreið sína vegna
þess að kalt hefði verið í veðri.
Skömmu síðar birtist hvítur karl-
maður skyndilega og bankaði á hlið-
arrúðuna ökumannsmegin á Jagú-
ar-bifreið hennar. Crane sagði að
sér hefði orðið svo hverft við að hún
hefði ekið brott með hraði. Skömmu
síðar hefði hún snúið aftur og þá
hefði Cosby legið í vegarkantinum
með skotsár á höfði.
Crane sá bifreið ekið hratt á
brott, en gat ekki lýst henni.
Grunsamleg bifreið
Ennis Cosby var myrtur þegar
klukkan var gengin 15 mínútur í tvö
aðfaranótt fímmtudags. Um hálftíma
áður vakti akstur bifreiðar nokkurrar
grunsemdir varðmanns i eftirlitsbif-
reið og skrifaði hann niður númer
hennar. Að því er heimildir herma
gaf vörðurinn lögreglu lýsingu á
manninum í bílnum og er hún frá-
brugðin lýsingu Crane af manninum,
sem grunaður er um morðið. Hefur
sú kenning verið sett fram að tveir
menn hafí verið að verki og annar
þeirra hafí ekki verið í bifreiðinni
þegar vörðinn bar að. Sá maður hafí
hins vegar bankað á gluggann hjá
Stephanie Crane.
Crane er 47 ára og skráð sem
handritshöfundur, en ekki er vitað
til þess að gerðar hafí verið kvik-
myndir eftir handritum hennar. Fjöl-
skylda Crane hefur verið viðloðandi
skemmtanaiðnaðinn. Faðir hennar,
Harry Crane, átti þátt í að búa til
sjónvarpsþáttinn vinsæla „The Hon-
eymooners" með Jackie Gleason og
Art Camey í aðalhlutverkum. Móðir
hennar, Julia, er fyrrverandi fegurð-
ardrottning. Systir Crane, Barbara,
er móðir leikaranna Melissu Gilbert
og Jonathans Gilberts, sem léku í
þáttaröðinni um „Húsið á sléttunni"
og Söru Gilbert, sem leikið hefur
Darlene í þættinum „Roseanne".
Crane giftist tvisvar sama mann-
inum, Alex Hirsh, 83 ára auðkýf-
ingi. í fyrra skiptið, árið 1989, ent-
ist hjónabandið í viku, en síðara
hjónabandið stóð í tvö ár, frá 1991
til 1993. Hirsh talaði híýlega um
Crane í samtali við The New York
Daily News, en virtist aðeins muna
eftir fyrra hjónabandinu.
Slúðurblöð heita launum
Tvö slúðurblöð hafa að áeggjan
Bills Cosbys heitið verðlaunum fyr-
ir upplýsingar, sem leitt geti til
handtöku morðingjans. Blaðið The
Globe heitir 200 þúsund dollara
(rúmlega 13 milljóna króna) launum
og The National Enquirer 100 þús-
und dollurum (rúmlega sex milljón-
um króna).
Heimildir: The Washington Post, New York
Daily News og Reuter.
Viðvör-
unarskot
í Lima
Lima. Reuter.
SKÆRULIÐAR sem halda 73 gísl-
um í bústað sendiherra Japans,
skutu viðvörunarskotum frá hús-
inu í gærmorgun, vegna aukinna
umsvifa lögreglu umhverfis það,
að sögn þeirra síðarnefndu. Engrar
hreyfíngar varð vart eftir að skot-
unum var hleyt af en lögreglumenn
komu sér óðar fyrir í viðbragðs-
stöðu.
Að sögn vitna færði lögreglan
sig nær sendiherrabústaðnum í
gær, lögreglumenn kíktu inn um
hlið á lóðinni og nokkrir þeirra
köstuðu steinum inn í innkeyrsl-
una. Ekki er vitað hvers vegna
þeir gerðu það. Skæruliðarnir
skutu viðvörunarskotum úr AKM-
rifflum, að talið er. Umsátrið hefur
nú staðið í 73 daga og virðist eng-
in lausn í sjónmáli, þrátt fyrir að
skæruliðarnir hafi ítrekað að þeir
myndu ekki vinna gíslunum mein.
Dýrahald
á bak við
lás og slá
Róm. Reuter.
FANGAR á Ítalíu hafa fengið
leyfi yfírvalda til að hafa
gæludýr hjá sér í fangelsi.
Dæmi um dýr sem halda má
á bak við lás og slá eru kett-
ir, fískar og fuglar í búri, en
með þessu á að reyna að draga
úr leiða og einmanaleika af-
brotamanna, að því er tals-
menn dómsmálaráðuneytisins
ítalska segja.
Það var Athos de Luca,
þingmaður Græningja, sem
lagði fram þessa tillögu svo
að gera mætti fangelsin
mannlegri, og hún hefur nú
verið samþykkt í dómsmála-
ráðuneytinu. Henni hefur ver-
ið tekið fagnandi, talsmaður
Ítalíudeildar náttúruverndar-
samtakanna World Wildlife
Fund sagði fanga hafa mikla
þörf fyrir að tengjast náttúr-
unni og dýrahald í fangelsum
myndi flýta félagslegum bata
þeirra.
I
I
>
>
i
>
\
I
I
I
Ný aðildarríki ekki
tekin inn fyrr en 2002
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins telur að ný aðildarríki
verði ekki tekin inn í sambandið
fyrr en árið 2002. Þetta kemur fram
í minnisblaði um stækkun ESB, sem
gert var opinbert í gær. Skoðun
framkvæmdastjórnarinnar er í
ósamræmi við fyrirheit t.d. franskra
og þýzkra forystumanna, sem hafa
gefíð í skyn að einhver ríki ættu
möguleika á aðild árið 2000.
I minnisblaði framkvæmda-
stjórnarinnar, sem er sett fram í
formi spuminga og svara um
stækkun sambandsins, segir að
framkvæmdastjómin muni skila
skýrslum um aðildammsóknir ein-
stakra ríkja, ásamt tillögum um
hvernig með þær skuli farið, strax
að lokinni ríkjaráðstefnu ESB.
Framkvæmdastjórnin vinnur nú úr
svörum Austur- og Mið-Evrópu-
ríkja, sem sótt hafa um aðild, við
spurningalistum sem sendir voru
EVRÓPA^
út á síðasta ári. Svörin em samtals
um 30.000 síður, auk þykkra bunka
af viðaukum. Embættismenn fram-
kvæmdastjórnarinnar hafa því ær-
inn starfa af að fara yfír svörin. _
Ekki öll á sama tíma
Framkvæmdastjórnin segir
sennilegt að mislangan tíma taki
að ljúka aðildarviðræðum við ein-
stök ríki. Viðræður muni í öllum
tilvikum taka nokkur ár. „Að teknu
tilliti til mögulegrar lengdar samn-
ingaviðræðnanna og þess tíma, sem
þarf til að fullgilda aðild, er ekki
raunsætt að ný aðildarríki bætist í
hópinn fyrr en árið 2002,“ segir í
minnisblaðinu. „Þar sem lengd við-
ræðna við sérhvert ríki ákvarðast
af því hversu flókin mál eru til úr-
lausnar, virðist ólíklegt að öll ríkin,
sem ráðherraráðið ákveður að hefja
viðræður við, verði í aðstöðu til að
ganga í ESB á sama tíma.“
Framkvæmdastjórnin leggur
áherzlu á að virðing fyrir lýðræði
og mannréttindum skipti miklu
máli fyrir möguleika ríkja á að öðl-
ast aðild að ESB. „Það er rétt að
rifja upp að lýðræði, virðing fyrir
mannréttindum og vernd minni-
hlutahópa eru undirstöður stofn-
sáttmála Evrópusambandsins. Ef
ríki, sem sækir um aðild, uppfyllir
ekki slík skilyrði, ætti ekki að gera
ráð fyrir inngöngu þess í samband-
ið og ekki ætti einu sinni að hefja
viðræður við það,“ segir í plaggi
framkvæmdastjórnarinnar.
Hans van den Broek um stækkun ESB
Hafnar tengingu
við stækkun NATO
Brussel. Reuter.
HANS van den Broek, sem hefur
yfirumsjón með viðræðum Evrópu-
sambandsins við væntanleg að-
ildarríki í Austur-Evrópu, sagði á
ráðstefnu í Brussel á þriðjudag að
ríki, sem ekki yrðu með í næstu
stækkun Atlantshafsbandalags-
ins, NATO, gætu ekki treyst á að
fá aðild að Evrópusambandinu í
sárabætur.
„Þau geta ekki búizt við því að
við hjálpum NATO með því að við
bætum þeim ríkjum, sem verða
ekki með í fyrstu lotu stækkunar
NATO, það sjálfkrafa upp,“ sagði
van den Broek.
Að sögn van den Broeks, sem
er varaforseti framkvæmdastjórn-
ar ESB, mun framkvæmdastjómin
byggja ráðgjöf sína til aðildarríkj-
anna um stækkun til austurs á
eigin forsendum.
Ráðstefnan í Brussel fjallaði um
stækkunarferli NATO annars veg-
ar og ESB hins vegar. Robert
Hunter, sendiherra Bandaríkjanna
hjá NATO, sagði að jafnvel þótt
ekki yrði öllum ríkjum Austur-Evr-
ópu, sem sótt hafa um aðild að
bandalaginu, veitt aðild þegar í
stað, yrðu dyrnar áfram opnar.
Hann varaði þau ríki, sem yrðu
fyrst til að fá aðild að NATO, við
því að reyna að beita neitunar-
valdi gegn aðild annarra Austur-
Evrópuríkja, sem kynnu að koma
síðar. „Ef þau ætla að beita neit-
unarvaldi gegn einhveijum öðrum
geta þau eins sleppt því að sækja
um aðild,“ sagði Hunter.
Hann sagði að eitt af inntöku-
skilyrðunum væri að viðkomandi
ríki gæti tekið fullan þátt í störfum
bandalagsins og verið „veitandi"
öryggis í Evrópu, ekki síður en
„neytandi".
s
í
I