Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ 4- JltagtiiiÞIftfrifr STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SÆTTIR TIL FRAMTÍÐAR SÁTTAYFIRLÝSING Tékklands og Þýzkalands, sem undir- rituð var í Prag í fyrradag, mætti verða fleiri Evrópuríkj- um fyrirmynd. Þjóðverjar lýsa hryggð sinni vegna hersetu nazista í Tékkóslóvakíu á fjórða og fimmta áratugnum, en þá voru framin ótrúleg grimmdarverk, ekki sízt gagnvart gyðingum í landinu. Þá lýsa Tékkar eftirsjá vegna þeirrar hörku, sem tvær og hálf milljón þýzkra íbúa Tékkóslóvakíu var beitt í stríðslok, en þá var þetta fólk flæmt frá heimilum sínum og eignir þess gerðar upptækar. Ásamt brottrekstri Þjóðveija frá austurhéruðum Þýzkalands, sem voru innlimuð í Pólland og Sovétríkin, var þessi aðgerð einhver víðtækasta „þjóðernishreinsun“ sögunnar. Margir eru enn beizkir vegna þessara atburða og yfirlýsing- in hefur verið gagnrýnd í báðum löndum af fólki, sem vill fá bætur fyrir eignamissi og fjárhagstjón eða einfaldlega ná fram hefndum. Helmut Kohl, kanzlari Þýzkalands, hitti hins vegar naglann á höfuðið er hann sagði við undirritun yfirlýsingarinn- ar: „Ef við höldum okkur í fortíðinni sigrar fortíðin að lokum.“ Um alla Austur-Evrópu er að finna sögulegar hliðstæður við fornan fjandskap Tékka og Þjóðverja. Innrásir og stríð, fjöldamorð og þjóðernishreinsanir hafa skilið eftir djúp sár í sálarlífi einstaklinga og þjóða. Nýjasta dæmið er gegndarlaus grimmd stríðsins á Balkanskaga. Það stríð brauzt hins vegar út meðal annars vegna þess að menn höfðu augun á fortíð- inni og töldu sig eiga harma að hefna. Sagan er hins vegar til að læra af henni — einkum af mis- tökunum. Það hafa Tékkar og Þjóðveijar gert. Friðmæli þeirra og fyrirheit um gagnkvæman stuðning og samstarf mættu verða mörgum fornum fjendum til fyrirmyndar, til dæmis Slóvakíu og Ungverjalandi, Ungveijalandi og Rúmeníu, að ekki sé talað um Tyrkland og Grikkland og suður-slavnesku þjóðirnar. Það er vænlegra til árangurs að horfa til framtíðar og treysta í verki samstarf og frið í Evrópu en að velta sér um of upp úr misgerðum sögunnar. ÍSLENZKAR VÍSINÐA- RANNSÓKNIR EFLAST VEGUR ÍSLENZKRA vísinda og vísindamanna hefur farið mjög vaxandi undanfarin misseri. Nýjasta dæmið um það er 37 milljón króna styrkur frá Bandaríkjaher til rannsókn- arhóps hjá Krabbameinsfélagi íslands. Styrkurinn er ætlaður til rannsókna á áhættuþáttum bijóstakrabbameins og hugsan- legum tengslum þeirra við stökkbreytingar í erfðaefnum. Fjöldi vísindamanna hjá Krabbameinsfélaginu og utan þess vinnur að þessum rannsóknum. Að þessu sinni voru umsækjendur um styrki úr rannsóknar- sjóði Bandaríkjahers um fjögur þúsund talsins og innan við tíu prósent hlutu styrki. Það er því mikil viðurkenning fyrir íslenzku vísindamennina og Rannsóknarstofu Krabbameinsfé- lagsins að hljóta styrkinn og ekki sízt vegna þess, að sjald- gæft er að styrkirnir séu veittir útlendingum. Féð dugar fyr- ir tækjabúnaði, launum og efniskostnaði í þau fjögur ár, sem rannsóknirnar standa yfir. ísland er talið kjörland fyrir rannsóknir sem þessar, enda eru til góðar faraldsfræðilegar upplýsingar í landinu. Auðvelt er að rekja ættir manna langt aftur í tímann, sjúkraskrár hafa verið færðar hér lengur en víða annars staðar, menntun- arstig er hátt og færni íslenzkra vísindamanna viðurkennd. Styrkurinn til rannsóknarhóps Krabbameinsfélagsins nú er nýjasta dæmið um stöðu íslenzkra vísinda, en í ágústlok var skýrt frá því, að Bandaríska heilbrigðisstofnunin hefði veitt 150 milljónir króna til rannsókna á flogaveiki á Islandi í sam- starfi íslenzkra lækna og lækna við Columbia-háskólann í New York. í september hófust rannsóknir á augndeild Sjúkra- húss Reykjavíkur á Landakoti, í samstarfi við japanska vís- indamenn, á áhrifum útfjólublárrar geislunar á augu. Um 1.100 íslendingar yfir fimmtugu voru skoðaðir. Kostnaður var að mestum hluta greiddur af Japönum. Síðast en ekki sízt má minna á, að rannsóknarfyrirtækið „íslenzk erfðagreining" tók til starfa í Reykjavík nokkru fyr- ir jól. Tugir íslenzkra vísindamanna munu fá störf þar við erfðarannsóknir, en tilgangur þeirra er að finna stökkbreyting- ar í erfðavísum, sem geti leitt til þróunar lyfja til að koma í veg fyrir og lækna sjúkdóma eins og t.d. sykursýki, gigt og asma. Bandarískir fjárfestar hafa lagt 800 milljónir króna í fyrirtækið. Þetta er að sjálfsögðu gleðileg þróun, sem vonandi mun halda áfram í vaxandi mæli í næstu framtíð, íslenzkum vísind- um og þjóðfélaginu í heild til framdráttar. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambanc KJARAVIÐRÆÐUR aðila vinnumarkaðarins eru í sjálfheldu þessa dagana, að mati Grétars Þorsteins- sonar, forseta Alþýðusambands ís- lands, en kjarasamningar hafa nú verið lausir í þijár vikur. Grétar segir að þó haldnir hafi verið örfáir samningafundir að und- anfömu séu kjaraviðræðumar í raun- inni ekki ennþá komnar í gang eftir að gert var hlé á viðræðunum í des- ember og hann gerir ráð fyrir að um næstu helgi hafi nær öll verkalýðsfé- lög vísað deilum sínum til ríkissátta- semjara. „Mér skilst að sáttasemjari geri ráð fyrir því að þessi vika verði not- uð til viðræðna við aðila og hann ætli síðan að hefja formlegar viðræð- ur í kringum næstu helgi. Þá reynir á hvort viðhorf Vinnuveitendasam- bandsins hefur eitthvað breyst. Ef svo er ekki þá horfir mjög illa varð- andi framhaldið," segir Grétar. Eftir það sem er undan gengið er ekki mikil þolinmæði hjá okkar fólki. Menn ætla ekki að hanga yfir samn- ingum vikum og mánuðum saman heldur ýta duglega á,“ segir hann. - Stefnir í uppgjör á milli launa- fólks, vinnuveitenda og rikisvaidsins? „Ef viðhorf viðsemjendanna breyt- ast ekki þá erum við að stefna í átök á vinnumarkaðnum," svarar Grétar. Viljum færa kauptaxta sem næst greiddu kaupi Grétar segir að allar helstu áhersl- ur í kröfugerð verkalýðsfélaga og landssambanda séu svipaðar. Megin- krafa verkalýðshreyfingarinnar sé hækkun kauptaxta og veruleg aukn- ing kaupmáttar á næstu árum og fyrir því standi full rök. „Hver heldur því fram að efnahagsástandið og af- koma fyrirtækja sé ekki betri í dag en árið 1995 og nýlega heyrði ég í fréttum að við værum að setja enn eitt heimsmetið, að þessu sinni í gengi hlutabréfa í fyrirtækjum. Vinnuveit- endasambandið hefur hins vegar mætt þessum kröfum allar götur síð- an í haust með því að tala um kaup- hækkun upp á tvö til þrjú prósent,“ segir Grétar. - VSÍ hefur haldið því fram að kröfur verkalýðsfélaganna hljóði upp á 30-150% hækkun launataxta. Hvetju svararðu þessu og hversu langt er hægt að ganga í hækkun launa án þess að raska stöðugleikan- um? „Auðvitað er ekki svo. Stefna okk- ar er að viðhalda stöðugleika í verð- lagi og fjölga atvinnutækifærum. Langflestir innan Alþýðusambandsins vilja nálgast lausn á viðfangsefninu með því að færa umsamda kauptaxta sem næst raunverulega greiddu kaupi. Nú er það svo, að raunverulega greitt kaup á hinum almenna vinnu- markaði samanstendur af þremur meginþáttum, það er umsömdum kauptöxtum stéttarfélaganna, ýmsum umsömdum ‘viðbótarálögum vegna kaupaukakerfa eða vinnutímafyrir- komulags og að síðustu beinum yfir- borgunum atvinnurekenda. Það sem við viljum gera með því að færa kaup- taxta að greiddu kaupi er að auka verulega vægi umsaminna kauptaxta í launamynduninni með því að fella bæði yfirborganir atvinnurekenda og í ýmsum tilfellum umsamin viðbótar- álög inn í taxtana. Þetta er mjög mikilvæg aðgerð því með henni vinnst þrennt; við hækkum það öryggisnet sem kjarasamningar eru launafólki, laun hinna lægst launuðu hækka meira en annarra og jafnframt drög- um við úr launamun kynjanna, því þessi launamunur er ekki sjst til kom- inn vegna yfirborgana. Ég fullyrði að öll landssamböndin innan ASÍ hafa lýst sig reiðubúin til þess að nálgast viðfangsefnið með þessum hætti. Það er því fráleitt að halda því fram að hækkun kauptaxta með þessum hætti, til dæmis krafa VMSÍ um hækkun lágmarkslauna úr 50 þúsund krónum á mánuði í 70 þús- und leiði til þess að launakostnaður atvinnurekenda hækki um tugi pró- senta.“ Grétar segir ljóst að þessi krafa muni hafa einhvern kostnaðar- auka í för með sér hjá fyrirtækjun- um, en hann sé óverulegur. Hann gagnrýnir hins vegar harðlega við- brögð atvinnurekenda og ummæli þeirra um miklar prósentuhækkanir verði orðið við kröfum verkalýðs- hreyfingarinnar. Umræðan þessa dagana er dæmi um hvað Þórbergur hafði mikið til síns máls forðum þegar hann sagði að prósentureikningur væri uppfínn- ing andskotans. En það er fleira sem samböndin hafa lagt áherslu á. Ég nefni sem dæmi styttingu vinnutím- ans. Menn gera sér grein fyrir því að það gerist ekki í einu vetfangi en náist árangur vilja menn sjá að minnsta kosti samsvarandi hækkun á dagvinnulaunum. Auðvitað mun standa eftir eitthvað bil sem þarf að brúa og ég ætla ekki á þessari stundu að kveða upp úr um hvað það er stórt en það verður að sjálfsögðu að brúa það með hækkun launa, sém leiðir til aukins kaupmáttar," segir Grétar. „Fjöldi fyrirtækja í flestum at- vinnugreinum greiðir starfsmönnum mun hærri laun en taxtalaun. Vinnu- veitei^asambandið hefur hins vegar ekki léð máls á að skoða þetta. í okkar herbúðum orðaði einhver það svo að Vinnuveitendasambandið væri að slá skjaldborg um skussana í at- vinnurekstri. Það þarf virkilega að skoða stöðu þess atvinnurekstrar sem ekki getur staðið undir meiri launagreiðslum en í kringum 50 þús- und krónur á mánuði fyrir dagvinnu." Tiltölulega lítill kostnaðarauki fyrir atvinnulífið í heild Mikil umræða hefur orðið um kröf- ur pagsbrúnar og Framsóknar sem VSÍ staðhæfir í nýlegri greinargerð að feli í sér 41,3% hækkun launa. Grétar gagnrýnir þessa framsetningu VSÍ og segir að þar sé gengið út frá því að slík hækkun kæmi ekki aðeins á lægstu kauptaxta heldur á laun upp eftir öllu launakerfinu. „Það hefur enginn innan Alþýðusam- bandsins sett fram slíka kröfu,“ seg- ir hann. Grétar bendir á að um sé að ræða hækkun kauptaxta sem í dag séu á bilinu frá tæplega 50 þúsund og upp í 64 þúsund. „Það er sjálfstætt við- fangsefni að velta því fyrir sér hvort slík 20 þúsund króna hækkun á allra lægstu launin myndi setja allt á ann- an endann. Krafan er hins vegar ekki sett fram með þessum hætti. Dagsbrún og Framsókn hafa lagt áherslu á að ná árangri í sérkjaravið- ræðum en engin niðurstaða hefur orðið úr viðræðum við vinnuveitendur um sérkröfurnar. Þess vegna setja félögin kröfuna fram með þessum hætti. Það hefur alltaf legið fyrir að ef eitthvað næðist í höfn varðandi sérkröfur þá myndu þau líta á það varðandi meginkröfurnar. Dagsbrún og Framsókn hafa heldur ekki hafn- að því að skoða þá leið að færa taxta að greiddu kaupi. Fjöldi fyrirtækja á sviði þessara félaga er að greiða snöggtum meira heldur en umsamdir kauptaxtar kveða á um. Reyndar greiða mörg fyrirtæki hærri laun en 70 þúsund króna lágmarkskrafan hljóðar upp á. Það er afar sérkenni- legt að vinnuveitendur séu ekki til- búnir að fást við þessa hluti, en þeir verða að gera sér grein fyrir því að almenningur í landinu vill fá þessa lægstu kauptaxta í burtu,“ segir Grétar. - Hvaða kostnaðarauka gæti það að ykkar mati valdið hjá fyrirtækjum ef ykkar leið verður farin? „Það er sýnilegt að þó að menn gangi nokkuð langt í að færa taxta að greiddu kaupi þá hefur það ekki í för með sér nema tiltölu- lega lítinn kostnaðarauka fyrir atvinnulífið í heild. En þetta er eitt af því sem við viljum gjarnan ræða, en spurningin snýr að gagnaðilanum, sem hefur einfaldlega hafnað þessu eins og staðan er í dag.“ - Getur launþegahreyfmgin veitt einhvetja tryggingu fyrir því að þess- ar launabreytingar yrðu ekki um- reiknaðar í prósentuhækkanir og not- aðar til að knýja fram samsvarandi hækkanir upp allan launastigann? „Ég efast ekki um að einhveijir „Eins og staðan er í dag telja með óbr munu grípa á lofti prósentutölumar án tillits til þess hvernig að þessu yrði staðið en við getum auðvitað ekki hætt við að fara út í aðgerðir sem við teljum skynsamlegar vegna þess eins að einhveijir úti í samfélag- inu muni notfæra sér það sem við erum að gera. Niðurstaðan ræðst af því hvort almenn samstaða næst um að hækka þá tekjulægstu umfram aðra. Ef við gefumst upp fyrir þessu verkefni værum við að fallast á að launamunur í landinu sé náttúrulög- mál. Á það mun verkalýðshreyfingin aldrei fallast," svarar Grétar. Stytting vinnutíma með vinnustaðasamningum Grétar segir að verkalýðshreyfing- in sé reiðubúin að ræða gerð vinnu- staðasamninga. Ef samkomulag næst um þátttöku félaganna í slíkum samningum þá megi í mörgum tilvik- um ná umtalsverðum ár- angri í styttingu vinnutíma í fyrirtækjasamningum. Hann bendir á að á sein- asta Alþýðusambandsþingi hafi verið lögð áhersla á að vinnustaðasamningar og samningar í einstökum atvinnugreinum yrðu hluti af næstu samningsgerð. Hins vegar strandi á andstöðu Vinnuveitendasambandsins sem ekki hafi léð máls á að verkalýðs- félögin hefðu aðkomu að slíkum samningum. „Til langs tíma hafa verkalýðsfé- lög gert vinnustaðasamninga í mis- jafnlega ríkum mæli. Ég geri til dæmis ráð fyrir að Dagsbrún sé með Færa taxta að greiddu kaupi og stytta vinnutíma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.