Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 35 MINNIIMGAR BENEDIKT GRÖNDAL -4- Benedikt H. ' Gröndal var fæddur í Reykjavík 28. maí 1946. Hann lést í Reykjavík 10. janúar 1997. For- eldrar Benedikts voru hjónin Sigríð- ur Hafstein, f. 19. apríl 1920 í Þórs- höfn í Færeyjum, d. 6. maí 1975, og Haukur Gröndal, framkvæmdastjóri, f. 3. febrúar 1912 í Reykjavík, d. 17. september 1979. Benedikt átti tvo albræður, þá Gunnar Magnús og Hauk, og tvö hálfsystkini samfeðra, þau Pál og Guðfinnu Lilju. Fyrri kona Benedikts var Sig- ríður Gísladóttir, f. 5. júlí 1950. Þau eignuðust eina dóttur, Súsönnu Liþ'u, f. 18. september 1979, 25. september 1979. Eftirlifandi eiginkona Bene- dikts er Ólafía Einarsdóttir, f. 8. nóv. 1951. Útför Benedikts fór fram í kyrrþey hinn 16. janúar sl. Hann var hann lagður til hinstu hvíldar í Fossvogs- kirkjugarði við hlið foreldra sinna og dóttur. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn. og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin bjðrt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur telja í dauðans dimmum val. Ur inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (Vald. Briem) Þegar ég sest niður til að skrifa nokkrar línur í minningu mágs míns Benedikts H. Gröndals eða Benna eins og hann var kallaður, dettur mér fyrst í hug hve örlög mannanna eru misjöfn og stundum ótrúlega grimm. Móðir náttúra úthlutar okkur öllum einhveijum gjöfum og hæfileikum þó í mis- jöfnum mæli sé. Þannig hlýtur einn „andans þrek, auð og völd“ en annar fæðist „örkumlaður og snauður“ eins og segir í kvæðinu „Örlög“ eftir afa Benedikts og nafna, Benedikt Þorvaldsson Gröndal (f. 1870). Víst er að Benni hlaut sinn skerf af góðum gáfum og hæfileikum úr skaparans hendi. En það biðu hans þau örlög að auðnast ekki að þroska sínar náðargáfur þannig að þær yrði honum til gæfu. Hann mætti miklu mótlæti í lífinu. Allt frá barnæsku átti hann í baráttu við erfiða geðfötlun, sjúkdóm sem átti eftir að setja mark sitt á allt hans líf uns yflr lauk. Þessi and- lega vanheilsa kom meðal annars fram í því að geð hans sveiflaðist milli þess að vera fullt af óraun- hæfri bjartsýni og svartasta myrkri. Dómgreind hans brenglað- ist, hann ætlaði sér stóra hluti og réðst í framkvæmdir sem hann sá ekki fram úr. í kjölfarið fylgdi svo yfirþyrmandi depurð og örvænting ásamt sektarkennd yfír því að hafa valdið samferðamönnum sín- um erfiðleikum. Þeir voru margir sem vildu hjálpa honum, bæði læknar og aðrir sem báru hag hans fyrir brjósti, og eiga þeir miklar þakkir skildar fyrir. Sjálfur vildi Benni líka hjálpa öðrum þó oft væri það meira af vilja en mætti. Hann mátti aldrei neitt aumt sjá og því sem honum áskotnaðist af þessa heims gæðum deildi hann með öðrum, einkum þeim sem áttu við þjáningar og sjúkdóma að stríða eins og hann sjálfur. En nú er þrautagöngu hans í þessu lífi lokið. Við sem þekktum hann og stóðum honum næst biðj- um þess að hann megi fínna frið hjá algóðum guði. Ég votta öllum aðstandendum innilega samúð mína og bið guð um að styrkja þá og gefa þeim góða heilsu. Nú legg ég augun aftur, ó guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil svo ég sofi rótt. (Sveinbjöm Egilsson) Blessuð sé minning Benna. Oddný H. Björgvinsdóttir. Á unglingsárum okkar Bene- dikts, þegar við kynntumst, stóð heimili foreldra hans á Miklubraut 18 okkur skólafélögunum alltaf opið. Þar á bæ var mikill menning- arbragur á öllum hlutum. Þegar inn kom mátti jafnan heyra sígilda tón- list berast innan úr stofu í bland við vindlalykt, en þá var húsbónd- inn, sem var einn af „postulum" Tónlistarfélagsins, ásamt vinum að hlusta á tónlist, sem var sérstök athöfn út af fyrir sig. Við piltamir vomm hinsvegar flestir á línu Fats Dominos á þeim ámm og músíkin frekar bakgmnnur undir skegg- ræðum og áætlunum okkar. Á þessum ámm var herbergi Benna nánast félagsmiðstöð okkar. Þar mátti auk hans ævinlega vænta einhvers af skólabræðrunum. Þannig varð Benni ein'skonar sam- einingartákn okkar félaganna og var það kannski alla tíð. Benedikt var maður með stóran karakter og dró alla tíð dám af góðu uppeldi sínu. Hann var há- vaxinn og stæðilegur. Á góðri stundu hafði hann yfír sér djarft og höfðinglegt fas, eins og hann átti kyn til, en jafnframt afar kurt- eislegt. Hann var greiðvikinn svo af bar. Ég minnist þess að eitt sinn taldi hann ekki eftir sér að aka veglausu en nær ókunnugu fólki upp á Akranes seint um kvöld í vondu veðri. Við gerðum stundum hvor öðrum greiða eftir efnum og ástæðum. Eitt sinn taldi Benedikt að á sinn kvóta hallaði og færði mér þá allt safn bóka Halldórs Laxness, sem hann hafði erft eftir foreldra sína og vissi að ég dáði mikið verk hans. Ég hef alla tíð síðan litið á hallann mín megin, því þetta var svo höfðinglega gert. „Grand“. Samskipti okkar urðu nokkuð kaflaskipt eftir því hvemig örlögin höguðu lífshlaupi okkar hveiju sinni, þannig að á stundum hitt- umst við varla ámm saman, en í annan tíma nær daglega. Oft bar fundum okkar saman þegar eitt- hvað bjátaði á hjá öðmm hvomm. Mér er og verður til dæmis alltaf minnisstætt kvöld eitt þegar mjög syrti í álinn hjá Benedikt fyárhags- lega og morguninn eftir stóðu til erfíðar aðgerðir. Ég sat hjá honum um kvöldið og við ræddum áhyggjufullir gang mála. En allt í einu ljómar Benedikt allur og segir að dregið hafí verið í happdrættinu fyrr um kvöldið og hann sé nú allt í einu viss um að hann fái vinning og málum verði borgið! Síðan varð hann áhyggjulaus með öllu og tók til að púrra mig upp, en ég varð nú hálfu áhyggjufyllri fyrir hans hönd. Ég vissi vel að hann átti til að fyllast óraunhæfri bjartsýni. Um hádegið daginn eftir hringdi Benni. Hann hafði mætt á fundinn með happdrættismiðann og nýprentaða vinningaskrána, þar sem stóð svart á hvítu að hann hefði unnið nægjanlegan vinning til að ljúka málinu. Síðan þá koma mér önnur „kraftaverk" aldrei á óvart. Benedikt átti lengstum við veik- indi að stríða eftir að við kynnt- umst. Lífíð varð honum strangur skóli. Alltaf gat hann rætt af hrein- skilni og ótrúlegu raunsæi um þau viðkvæmu mál, enda var hann vel greindur. Margar voru þó ánægju- stundirnar og oft naut hann lífsins í lengri eða skemmri tíma án þess að skugga bæri á. Þá var hann bæði skemmtilegur, hugmyndarík- ur og áræðinn. Þær góðu minning- ar mun ég geyma meðan ég lifí. Síðustu árin urðu veikindi Bene- dikts meiri og alvarlegri en fyrr. En þrátt fyrir allan þann ólgusjó, sem hann sigldi undir það síðasta, mátti samt greina þetta sanna í fari hans; heiðursmanninn, eitt- hvað sem aldrei týndist en varð- veittist alltaf, þrátt fyrir allt. Megi minning um góðan dreng styrkja og blessa eftirlifandi. Kjartan Jónsson. t Elskuleg tengdamóðir mín, amma okkar og langamma, MAGNHILDUR VILBORG JÓNSDÓTTIR, áður til heimilis á Vesturgötu 93, Akranesi, sem lést miðvikudaginn 15. janúar, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 24. janúar kl. 14.00. Elfsabet Karlsdóttir. Hulda Björk Ragnarsdóttir, Magnús Ólafur Kristjánsson, Sigurður Karl Ragnarsson, Magni Ragnarsson, Vignir Ragnarsson, Ragnheiður, Ólöf Lilja, Jóhann Bjarki og Hildur Sólveig. t Jarðarför elskulegrar móður okkar og tengdamóður, VILBORGAR SIGURÐARDÓTTUR, Blöndubakka 1, Reykjavík, áðurtil heimilis á Gilsbakkavegi 5, Akureyri, fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. janúar kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hinn- ar látnu, láti líknarstofnanir njóta þess. Rósa Pálsdóttir, Eirikur Eiríksson, Margrét Pálsdóttir, Helgi Þórðarson, Sigríður G. Pálsdóttir, Svanur Karlsson, Álfhildur Pálsdóttir, Bárður Halldórsson. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓREY SIGURÐARDÓTTIR, áður til heimilis i Njörvasundi 11, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli mánu- daginn 20. janúar. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 28. janúar kl. 13.30. Örn Ingólfsson, Guðmundur Ingólfsson, Sigþór Ingólfsson, Jósef G. Ingólfsson, Ingibjörg Þ. Ingólfsdóttir, Gerður Baldursdóttir, Kristfn Júliusdóttir, Sólveig Kristjánsdóttir, Snorri Steindórsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkaer eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÞÓRARINSDÓTTIR fyrrum Ijósmóðir frá Krossdal, er lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri 19. janúar síðastliðinn, verður jarð- sungin frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 25. janúar kl. 15.00. Gunnar Valdimarsson, Gunnþórunn Guðný Sigurðardóttir, Viðar Eiríksson, Koibrún Kúld Pétursdóttir, Guðmundur Valdimarsson, Aðalsteinn Rúnar Gunnarsson, Rannveig Jónsdóttir, Þórhildur Gunnarsdóttir, Jón Ingi Björnsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Haukur Þór Hallsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN SIGURÐSSON húsasmiður, sem lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 18. janúar sl., verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfiröi föstudaginn 24. janúar kl. 15.00. Karólfna Kristinsdóttir, Þórður Ben Sveinsson, Sigrfður Kristinsdóttir, Sæmundur Gunnarsson, Kolbrún Kristinsdóttir, Engilbert Ó.H. Snorrason, Birgir Kristinsson, Katrfn Gunnarsdóttir, barnabörn og barnbarnabörn. + Innilegar þakkir til ykkar sem sýnduð okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁLFHILDAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Borgarsíðu 33, Akureyri. Einnig eru kærar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar á Akureyri og lyfjadeildar FSA fyrir góða umönnun. Margrét Jóhannsdóttir, Gunnar Guðbrandsson, Guðmundur Guðmundsson, Kristín Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýndan hlýhug og vináttu við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Kópavogsbraut 1a. Valgerður Björnsdóttir, Ágúst Þorgeirsson, Kristbjörg Ágústsdóttir, Hafsteinn Þór Pétursson, Björn Ágústsson, Guðrún Þorgerður Ágústsdóttir, Laufey Lilja Hafsteinsdóttir, Finnbogi Guðmundsson. *e
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.