Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<SCENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Jón Arnar fær 25 millj. fram að ÓL í Sydney JÓN Arnar Magnússon tugþrautar- maður fær rúmar sex milljónir króna á ári í styrk næstu fjögur árin, eða samtals 25,3 milljónir króna, til undirbúnings fyrir Ólymp- íuleikana í Sydney í Ástralíu árið 2000 samkvæmt styrktarsamningi sem undirritaður var á Sauðárkróki í gær. Þetta er stærsti samningur sem gerður hefur verið við íslenskan íþróttamann. „Þetta er stór dagur í mínu íþróttalífi. Samningurinn gerir mér kleift að einbeita mér alfarið að æfingum og keppni næstu fjögur árin án þess að fjölskyldan þurfi að hafa af því fjárhagsáhyggjur," sagði Jón Arnar. Fijálsíþróttadeild Tindastóls beitti sér fyrir því að koma þessum samningi á. Sauðárkróksbær og fyrirtæki á Sauðárkróki greiða stærsta hluta samningsins eða um 40% kostnaðar. Afreksmannasjóður ÍSÍ greiðir ríflega 30% og önnur fyrirtæki og stofnanir á landsvísu sjá um afganginn eða 25-30% kostnaðar. ■ Rúmar 25 millj./Cl ------♦-------- Of mikil loðna MIKIÐ magn loðnu hefur fundist á miðunum suðaustur af Papa- grunni og hafa mörg skip rifið nætur sínar illa og þurft að sigla í land til að sækja nýjar. Lárus Grímsson, skipstjóri á Júpíter ÞH, segir að loðnan hafi komið sjó- mönnum í opna skjöldu því hún þétti sig 10-12 dögum fyrr miðað við síðustu ár. Leiðindaveður var á miðunum í gær og mikill straum- ur sem gerir veiðarnar erfiðari en ella. ■ Loðnan rífur nætur/16 Úrskurður um töku barnsins kærður til Hæstaréttar Móðirin sækir dóttur sína til yfirvalda hér MÓÐIR Zenith Helton, fjögurra ára telpu sem íslensk yfirvöld tóku úr höndum móðurömmu sinnar á þriðjudag að beiðni bandarískra yfir- valda, var væntanleg til íslands snemma í morgun. Með móðurinni, Kelly Helton, eru kvikmyndatöku- menn sjónvarpsþáttarins Unsolved Mysteries. Lögmaður ömmunnar og eiginmanns hennar hyggst kæra til Hæstaréttar úrskurðinn sem heimil- aði aðgerðir íslenskra yfirvalda og segir lögmaðurinn að taka þurfi til athugunar hvort það hafi verið barn- inu fyrir bestu að taka það úr um- sjá hjónanna. Stefán Eiríksson, lögmaður í dómsmálaráðuneytinu, segir sér- fræðinga ráðuneytisins á þeirri skoð- un að hér á landi séu engir aðilar sem hafi lögmæta forsjá barnsins. Barnið sé bandarískur ríkisborgari, sem hafí komið ólöglega til landsins og þar af leiðandi sé líklegast að bandarísk yfirvöld taki við því. Vegabréf Connie Jean Hanes, ömmu telpunnar, og Donald Hanes eiginmanns hennar eru í vörslu bandaríska sendiráðsins. Dvalar- og atvinnuleyfi hjónanna hér á landi runnu út í síðustu viku og hafa ekki verið endurnýjuð, þrátt fyrir umsókn þeirra þar um, að sögn Jóhanns Jó- hannssonar, yfirmanns útlendinga- eftirlitsins. Jóhann segir að ferill hjónanna hafi ekki verið kannaður þegar þau fengu dvalarleyfi, enda slíkt ógjörningur vegna fjölda þeirra dvalarleyfa sem veitt séu á hveiju ári. í þættinum Unsolved Mysteries þar sem íjallað var um málið, kom fram að Donald Hanes hefði hlotið dóm í Bandaríkjunum. „Ég er á sakaskrá af því að ég ók ölvaður og lenti í óhappi árið 1984. Hins vegar er ekki rétt að ég sé á skil- orði því að ég hef tekið út mína refsingu og á ekkert sökótt við lög- in,“ segir Donald í viðtali við Morg- unblaðið í dag. Connie Jean segir í viðtali við Morgunblaðið að hún ætli að fasta þar til litla telpan verði komin til hennar á ný. Taka barnsins/10 Fasta þar til/10 Aðstoða/10 Spyrða þorsk á trönur í Skagafirði STARFSMENN Fiskiðjunnar Skagfirðings hf. voru önnum kafnir við að hengja þorsk- spyrður á trönur þegar ljós- myndari Morgunblaðsins átti leið um Sauðárkrók í gær. Skreiðin á örugglega eftir að kæta einhveija, en reynt er að koma í veg fyrir að það verði fuglar himinsins með því að strengja net yfir trönurnar. Þá voru þorskhausar einnig á kippum á trönunum. Mikil kúnst þykir að rífa herta þorskhausa í sig og geta nefnt hvert stykki réttu nafni og þeim fer sjálfsagt fækkandi sem þá list kunna til hlítar. Morgunblaðið/Golli Smygl fyrir vel unnið starf LÖGREGLAN á Akureyri hefur nú undir höndum^enn eina flöskuna af Jenkins vodka, en upplýst hefur verið um smygl á 24 þúsund flösk- um þessarar tegundar til landsins. Þessi flaska komst í hendur lögreglu eftir að árs- hátíðarnefnd vélsleðamanna fékk hana afhenta fyrir vel unnið starf. Árshátíðin var haldin á Akureyri. Þegar flaskan var afhent lagði einn í árshátíðar- nefnd hald á hana. Sá var Þorsteinn Pétursson, eftirlits- maður veitingahúsa á Akur- eyri. Daníel Snorrason, lög- reglufulltrúi sagði ekki ljóst hvort þessi uppákoma hefði einhvern eftirmála. ■ Árshátíðarnefnd/13 Forseti Alþýðusambandsins segir kjaraviðræðurnar í sjálfheldu YSI og stjómvöld stefna að óbreyttu í átök „EINS og staðan er í dag telja fæst- ir tilefni til bjartsýni. Mér fínnst reyndar með ólíkindum ef Vinnuveit- endasambandið mætir til leiks með óbreytt viðhorf þegar sáttasemjari tekur upp þráðinn á ný. Þá horfir í óefni. Vinnuveitendasambandið held- ur því fram að verkalýðsfélögin innan Alþýðusambandsins stefni í vinnu- deilur. Ég segi þvert á móti að það séu Vinnuveitendasambandið og stjómvöld, ef þau fara ekki að taka til hendinni í málum sem að þeim snúa, sem eru að stefna hér í átök,“ segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, í viðtali um stöðuna í kjaramál- unum, í Morgunblaðinu í dag. Gæti stefnt í farveg sem erfitt yrði að komast úr Grétar segir að kjaraviðræðurnar séu í sjálfheldu en kveðst gera ráð fyrir að ríkissáttasemjari hefji yrði formlegar viðræður í kringum næstu helgi. Þá reyni á hvort viðhorf vinnu- veitenda hafi eitthvað breyst. „Eftir það sem á undan er gengið er ekki mikil þolinmæði hjá okkar fólki,“ segir Grétar. „Það hafa ekki enn fengist neinar efnislegar viðræð- ur við okkar helstu viðsemjendur um kröfugerð. Tíminn styttist óðfluga,“ segir hann ennfremur í viðtalinu. Grétar segist ekkert vilja fullyrða um hvenær hugsanleg verkföll kynnu að skella á. Ef ekki fari að miða verulega á fyrstu tveimur vikunum eftir að viðræður komast í gang hjá sáttasemjara óttist hann um fram- haldið og þá sé verið að stefna mál- um í farveg sem erfitt yrði að kom- ast úr. Fella yfirborganir og viðbótarálög inn í taxtana „Kannski er það óhjákvæmilegt ef það er staðfastur ásetningur við- semjenda að spila engu meiru út og vera ekki til viðræðna um nokkurn skapaðan hlut umfram einhver 2% eða 3% í kauphækkun, þá er auðvit- að verið að stefna þráðbeint í átök, sem viðsemjendur okkar bera fyrst og síðast ábyrgð á.“ Grétar segir að langflestir innan ASI vilji færa umsamda taxta sem næst raunverulega greiddu kaupi. „Það sem við viljum gera með því að færa kauptaxta að greiddu kaupi er að auka verulega vægi umsa- minna kauptaxta í launamyndun- inni með því að fella bæði yfirborg- anir atvinnurekenda og í ýmsum tilfellum umsamin viðbótarálög inn í taxtana," segir hann m.a. í viðtal- inu. ■ Stefnir í/28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.