Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.01.1997, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Falskur höfuðstóll- SJÁÐU bara kvótaamraa, Yestfjarðartrölli er að blása á spilaborgina okkar . . Eftirlit með EES-borgurum á Keflavíkurflugvelli Spumingar stangast á við úrskurð Evrópudómstóls ÚTLENDINGAR frá aðildarlöndum EES-samningsins eru spurðir um erindi sitt og áætlaðan dvalartíma við vegabréfaskoðun á Keflavíkur- flugvelli. Samkvæmt dómi Evrópu- dómstólsins er slíkt eftirlit á landa- mærum óleyfilegt. Námsmenn og launþegar frá Þýskalandi, Bretlandi, Ítalíu og Spáni, sem Morgunblaðið hefur haft samband við og dveljast hér á landi og komið hafa til landsins undan- fama mánuði, segjast allir hafa ver- ið spurðir um áætlaðan dvalartíma og erindi við komuna til landsins. Gildir þá einu hvort þeir voru með vegabréf eða annars konar skilríki. Þurftu að fylla út skráningarkort Nokkrir þeirra voru einnig látnir fylla út svonefnt skráningarkort fyr- ir útlendinga. Á því eru upplýsingar um nafn, vegabréfsnúmer og fæðing- ardag. Kortið er einungis ætlað út- lendingum utan Evrópska efnahags- svæðisins og þá aðeins ef þeir dvelja lengur en þrjá mánuði. Því er skilað aftur til vegabréfsskoðunar við brott- för frá landinu. Einn útlendinganna var einnig beðinn um að framvísa dvalarleyfi við komuna. „Sú vegabréfaskoðun sem fer fram gagnvart EES-borgurum í dag er fyrst og fremst skilríkjaskoðun," seg- ir Jóhann Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Útlendingaeftirlitsins. „Ef upp koma grunsemdir um að skilríki við- komandi séu ekki eins og þau eiga að vera, kallar það á frekari könnun, en að öðru leyti á það ekki að eiga sér stað. Um þetta er til fordæmisgef- andi dómur Evrópudómstólsins, svo- nefndur Umberto-dómur. Grunnrök- semdin er fijáls för innan svæðisins og dómurinn er orðinn að minnsta kosti tveggja ára gamall, og reyndar held ég að í huga flestra hafi þetta verið orðið ljóst strax eftir að EES- samningurinn gekk í gildi. Þetta á vegabréfaskoðunin á Keflavíkurflug- velli að vita, en fyrir hana svara ég ekki, enda eru starfsmenn hennar ekki starfsmenn okkar. “ Gottskálk Ólafsson, aðaldeildar- stjóri tollgæslunnar á Keflavíkurflug- velli, segist ekki kannast við að bann- að sé að spyija EES-borgara spum- inga við landamærin. „Það er ákveðinn réttur sem hver og einn farþegi á þegar hann er bú- inn að sýna og sanna að hann sé EES-borgari. Hitt er annað mál að það geta komið upp aðstæður sem gefa okkur leyfi til að spyija spum- inga. Sem dæmi get ég nefnt að ferða- maður sem ætlar að dvelja hér iengur en í þijá mánuði á ekki að ferðast á ferðaskilríkjum Evrópusambandsins heldur vegabréfi. í slíkum tilvikum teljum við ekki óeðlilegt að spyija farþegann að einhveiju, hann hefur kannski misskilið eitthvað, eða ekki fengið réttar upplýsingar í heimaiandi sínu. Þá er ekkert athugavert við að uppfræða hann um hvað hann eigi að gera. Eg kannast ekki við að maður á fullgildu vegabréfi sé spurður að því hvað hann ætli að dvelja lengi eða þar fram eftir götunum. Um hvort það sé bannað, vil ég ekki tjá mig, en við gerum það að jafnaði ekki,“ segir Gottskálk. Menntamálaráðherra og borgarstjóri skipa bráðabirgðasljórn Listaháskóla Verði miðstöð listamenntunar MENNTAMÁLARÁÐHERRA og borgarstjóri hafa ákveðið að skipa bráðabirgðastjórn Listaháskóla Is- lands og var yfirlýsing þess efnis kynnt borgarráði á þriðjudag. Skipar hvor aðili um sig einn fulltrúa til setu í bráðabirgðastjóminni og Félag um stofnun Listaháskóla Islands hinn þriðja. Fulltrúi menntamála- ráðuneytisins verður formaður bráðabirgðastjórnarinnar. Bráðabirgðastjóminni er ætlað að vinna að stofnun Listaháskóla ís- lands, sem verða á miðstöð listrænn- ar menntunar á háskólastigi, þ.m.t. leiklistar, myndlistar, tónlistar og annarra listgreina. Yfirlýsinguna undirrita Björn Bjarnason mennta- málaráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri en þar segir einnig að Reykjavíkurborg árétti þá grundvallarafstöðu sína að þátttaka í kostnaði vegna kennslu á háskóla- stigi sé ekki á verksviði sveitarfélaga. „Jafnframt áréttar Reykjavíkur- borg að af borgarinnar hálfu hafí hvorki verið tekin afstaða til draga að skipulagsskrá Listaháskóla Is- lands né til þess hvort Reykjavíkur- borg tæki þátt í rekstrarkostnaði vegna Listaháskóla íslands, enda ræðst hvort tveggja af niðurstöðum af starfi bráðabirgðastjórnarinnar." Menntamálaráðuneytið ber kostn- að af starfí bráðabirgðastjómarinnar að öðru leyti en því að Reykjavíkur- borg greiðir launakostnað síns full- trúa. Em ráðuneyti og borgaryfír- völd ásátt um að fram fari viðræður milli ráðuneytisins og Sambands ís- lenskra sveitarfélaga um fram- kvæmd tónlistarfræðslu og listnám á öllum skólastigum. Samdrykkja um mannréttindi Efling grund- vallarumræðu Ágúst Hjörtur Ingþórsson Félag áhugamanna um heimspeki stendur í kvöld fyrir málfundi, svokallaðri samdrykkju, um mannréttindi._ Formaður fé- lagsins er Ágúst Hjörtur Ingþórsson og var hann fenginn til að skýra frá því hvað þama væri á seyði. „Félag áhugamanna um heimspeki var stofnað haustið 1976, í kjölfar þess að kennsla hófst í heimspeki á háskólastigi hér á landi og farið var að „skapa“ heimspekilega umræðu á íslandi. Þegar við ákváðum í tengslum við 20 ára afmæl- ið að halda þessa sam- drykkju leituðum við til áhugamanna í félaginu til að hafa framsögu. I félag- inu eru um 200 félagsmenn, bæði áhugamenn og „at- vinnuheimspekingar". Þeir sem verða með framsögu í kvöld em báðir áhugamenn, annars vegar Hjördís Hákonardóttir, sem er kunn fyrir lögfræði- og dómara- störf en er eirinig menntuð í heim- speki, og Ágúst Þór Árnason, framkvæmdastjóri Mannréttinda- skrifstofu íslands." - Hvað gerir félagið armars? „Félagið gerir fyrst og fremst þrennt. I fyrsta lagi er það vett- vangur fyrir faglega fyrirlestra. Menn koma gjarnan og kynna rannsóknarverkefni sem þeir hafa verið að sinna, s.s. masters- eða doktorsverkefni. í öðru lagi stend- ur félagið fyrir ráðstefnum eða samdrykkjum eins og þeirri sem verður á Kornhlöðuloftinu í kvöld. Við höfum reynt að halda tvær slíkar á hveiju ári. í þriðja lagi er það útgáfustarfsemi. Félagið hefur gefið út tímaritið Hug frá því 1988. Það er eina tímaritið sem gefíð er út á íslenzku, sem fjallar einvörðungu um heimspeki." - Hver var aðdragandi þessarar samdrykkju um mannréttindi? „Val okkar á umræðuefni sam- diykkjunnar að þessu sinni má rekja til umræðu um mannréttindi sem var i gangi fyrir nokkru og tengdist breytingum á stjóm- arskránni. Hún var á býsna póli- tískum nótum. Þegar fengin hafði verið niðurstaða í því hvemig gengið skyldi frá þessum breyting- um á mannréttindakafla stjómar- skrárinnar var eins og umræðan lognaðist út af. Það lagðist yfír einhver doði. Það vantar að okkar mati umræðu' um forsendur, um grundvöll mannréttinda hér á landi. Umræðan sem fram fór snerist meira um útfærslu. Það vant- aði alveg umræðu um forsendurnar. Hvað eru mannréttindi? Þegar slíka grundvallarumræðu vantar lendir hin praktíska umræða á villigötum. Þess vegna fannst okk- ur ástæða til að ýta við þessu umræðuefni og fá fólk sem hefur verið að velta þessu fyrir sér til að deila því með okkur. Framsögumennimir tveir munu tala um þetta hvor frá sínu sjónar- hominu. Það skýrist af því að til eru þijár grundvallarskoðanir á því hvað mannréttindi séu. Sú fyrsta er sú að þau séu hreinlega ekki til. Það eru fáir sem eru til- búnir að veija þessa skoðun opin- berlega að minnsta kosti. Síðan eru tvær meginkenningamar. Önnur er sú að til sé nokkurs kon- ar náttúmréttur. Samkvæmt þess- ari túlkun byggjast mannréttindi á því að menn njóti sérstaks réttar ► Ágúst Hjörtur Ingþórsson er fæddur í Reykjavík 22. ágúst 1961. Hann varð stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breið- holti árið 1983 og lagði síðan stund á heimspekinám í Há- skóla Islands. Þaðan lauk hann B.A.-prófi í því fagi 1986, siðan M.A.-prófi frá háskólanum í Ottawa í Kanada tveimur árum síðar. Til ársins 1990 lagði hann stund á framhaldsnám í heim- speki í Ottawa. Frá árinu 1991 hefur Ágúst starfað hjá Rann- sóknaþjónustu HI, nú síðast sem aðstoðarframkvæmdastjóri, en tekur við stöðu framkvæmda- stjóra um komandi mánaðamót. Ágúst er kvæntur Guðrúnu Hjartardóttur fjölmiðlafræð- ingi og eiga þau tvö börn. í krafti þess að vera menn. Segja má að Hjördís sé málsvari þessar- ar línu. Hin túlkunin er sú sem hægt er að kalla sáttmála- eða sam- félagskenningu, þ.e.a.s. að mann- réttindi séu eitthvað sem þróist í samfélagi mannanna; eitthvað sem menn gera með sér sáttmála um, þau séu ekki frá guði komin eða á einhvern slíkan máta. Þess vegna þróist þau samhliða þróun samfé- lagsins, og séu þannig mismunandi eftir þróunarstigi þess. Þannig getur samfélagskenningin verið notuð til að skýra, og um leið að afsaka mismunandi stöðu mann- réttinda í heiminum." - Hvaða ávinningur telur þú að geti orðið af þessari samdrykkju? „Markmiðið með öllu starfi félagsins er að efla heimspekilega umræðu um málefni sem varða okkur og mann- réttindi varða okkur mjög. Við vonumst því til að okkur takist að ýta við grundvallarumræðu um þau, sem er mjög þarft, því við teljum okkur Islendinga ekki enn hafa komið mannréttindamálum okkar í þann stjórnarfarslega far- veg sem æskilegt væri. Þær breyt- ingar sem hafa orðið á mannrétt- indastöðu einstaklinga á íslandi hafa fyrst og fremst orðið fyrir ytri þrýsting með því að við höfum þurft að tileinka okkur alþjóðlegar samþykktir og tilskipanir, frekar en að við hefðum verið tilbúnir að setjast niður og ræða til hlítar hvemig við viljum haga þessari skipan á grundvelli eigin ígrund- uðu hugmynda." 3 grunntúlk- anir á mann- réttindum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.