Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 16

Morgunblaðið - 23.01.1997, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR ÚRVERINU Lesendur spyrja Skráning íslenskra kaupskipa erlendis Má safna hafra- mjölspökkum í endurvinnslu? LESANDI hringdi og vildi fá vitn- eskju um hvort safna mætti pökkum utan af haframjöli og t.d. graut- arfemum og senda í endurvinnslu með mjólkur- og djúsfemum. Svar: Ragna Halldórsdóttir um- hverfisfræðingur hjá Sorpu segir að hægt sé að safna saman fernum undan mjólkurvörum, ávaxtasafa og grautum. Fernurnar mega vera plasthúðaðar eða með álfilmu og gildir einu frá hvaða fyrirtæki þær eru. Hún segir að ekki sé unnt að hafa með fernunum kornflex- pakka, haframjölskassa, kexkassa eða slikar umbúðir. „Ástæðan er einfald- lega sú að trefjarnar í pappanum sem notað- ur er í þessar um- búðir eru svo lélegar að Sorpa fær ekki nægilegt verð fyrir þær í Svíþjóð til að geta kostað innsöfnun á þeim hér svo og útflutninginn." Allur pappir nema fernur fer til Svíþjóðar í endurvinnslu. Ragna segir að það sem gerist við endur- vinnslu pappírs er að í hvert sinn sem hann er endurunninn minnka gæði pappírstrefjanna. „Fernur verða því ekki að nýjum fernum heldur að umslögum og prentpapp- ír sem verða síðan að dagblaða- pappír sem verða að eggjabakka eða kornflexpakka. Gæðin í pappír lækka um eitt stig við endur- vinnslu.“ Fernur í lokaða plast- poka - blöð og tímarit fara laus ígáma Morgunblaðið/Kristinn SAFAFERNUR af öllum stærðum henta til endur- vinnslu svo og fernur utan af mjólk, ab-mjólk, kókómjólk, grautum og svo framvegis. Þegar Ragna er spurð hvernig eigi að bera sig að við söfnunina segir hún að nauðsynlegt sé að grófskola fernumar með vatni, hrista úr þeim vatnið og fletja þær út. „Þeim er síðan safnað saman í bunka og gott er að hafa ílát til að safna þeim í og setja þungan hlut ofan á til að pressa þær nið- ur. Búntinu má halda saman með sterkri teygju. Þær eru síðan settar í plastpoka og er æskilegt að hafa 60-80 fernur saman. Pokanum er lokað vel og hann settur í sama gám og dagblöð og tímarit. Þá er einnig hægt að fara með fernurnar á endurvinnslustöðvar Sorpu. Morgunblaðið/Þorkell GUNNAR Örn að leggja lokahönd á sjóinn. Islandsmeistara- keppni í kökuskreyt- ingrim um helgina UM helgina verður haldin Islands- meistarakeppni í kökuskreytingum. Keppnin, sem fer fram í Perlunni, verður opnuð föstudaginn 24. jan- úar klukkan 13 og henni lýkur á sunnudagskvöld. Sjö einstaklingar taka þátt í þetta sinn en skilyrði fyrir þátttöku er sveinspróf í brauð-, og kökugerð. Þema keppninnar nú er ísland og Gunnar Orn Gunnarsson sér um að baka auglýsingakökuna sem er ísland. Um er að ræða kransaköku með súkkulaðidýrum. Sjóinn í kringum landið býr Gunnar til úr hlaupi. Súkkulaðidýrin eru margs konar, ísbjörn stendur á Grímsey, fálki trónir í Suður-Þingeyjarsýslu, naut skýtur upp kolli á Suðurlandi og síðan eru sjávardýr á sveimi í kring- um landið. Dómarar í keppninni eru allir íslenskir að þessu sinni. Það kemur síðan í ljós síðdegis á laugardag hver verður valinn ís- landsmeistari í kökuskreytingum þetta árið. Á sunnudag standa kepp- endur við verkin sín, sýna þau gest- um og svara fyrirspumum. Ymis fyrirtæki, sem tengjast bakaríum, verða með kynningar á sýningunni. Ríkíð verður af 220 milljónum ÁÆTLA má að ríkissjóður verði af allt að 220 milljónum króna vegna skráningar íslenskra kaupskipa er- lendis. Skráningargjöld kaupskipa eru reiknuð út frá andvirði þeirra en gera má ráð fyrir því að skráning- argjöld skips sem siglir undir ís- lenskum fána séu að meðaltali í kringum tíu milljónir króna. Af þeim 26 kaupskipum sem nú eru í rekstri íslenskra útgerða eru aðeins fjögur sem sigla undir ís- lenskum fána, þar af eru tvö skip í eigu olíufélaganna. Alls eru 18 skip í eigu útgerðanna en átta eru leigu- skip. Andvirði skipanna er mjög mismunandi og eru verðminnstu skipin um 100 milljón króna virði en það verðmesta um 1.500 milljón króna virði. Þegar reiknuð eru gjöld vegna skráningar skipa hér á landi er tekið mið af verðmæti þeirra og samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins væru skráningargjöld af hveiju skipi um tíu milljónir króna. Samkvæmt reglum um nýskrán- ingar skipa ber að greiða 0.26% af andvirði skips við skráningu þess. Ef skipið er í flokkunarfélagi, viður- kenndu af íslenskum stjórnvöldum, greiðir útgerð skipsins 60% af skrán- ingargjaldinu. Árlegt gjald til Sigl- ingamálastofnunnar eru 170 þúsund krónur á skip. Verulegur hluti kostnaðar við skráningu skipa hér á landi felst hinsvegar í stimpilgjöldum. í lögum um skráningu skipa segir að fyrir skip sem kemur til nýskráningar undan erlendum fána skuli greiða stimpilgjald af afsali, 0.4% af heild- arverði skipsins. Sé skipið selt úr landi er útgerð þess einnig skylt að greiða sömu upphæð í stimpilgjald af afsali. Einnig ber að taka tillit til þess að í flestum tilvikum þurfa viðkom- andi aðilar á verulegum lánafyrir- greiðslum að halda til kaupa á eign- um af þessari stærðargráðu. Ef um nýbyggingu er að ræða má áætla að um 80% af verði skipsins séu tekin að láni. Af þeirri upphæð þarf lántakandinn að borga 1.5% i stimp- ilgjöld. 20 milljónir í gjöld Allt byggir þetta á kaupverði skipsins. Sé tekið dæmi af nýju skipi Eimskipa, Brúarfossi, sem kom til landsins í sumar, þá kostaði það um 1.5 milljarð króna og er dýrasta kaupskip í eigu íslendinga. Þá má gera ráð fyrir að skráningarkostnað- ur skipsins hafí numið 2.3 milljónum króna. Ef miðað er við 80% lánsijár- mögnun skipsins þarf útgerðin að greiða um 18 milljónir króna í stimp- ilgjöld. Kostnaðurinn við að hafa skipið á skrá á íslandi væri því rúm- ar 20 milljónir króna miðað við gefn- ar forsendur. Þá er ekki meðtalið stimpilgjald af afsali skipsins verði það selt úr landi sem verður að telj- ast líklegur kostar þar sem eftir- spurn eftir kaupskipum hér á landi er lítil sem engin. Refsað fyrir að eiga skip í nágrannalöndunum eru skrán- ingargjöld af þessu tagi mun lægri og í Noregi greiða útgerðir því sem nemur sex þúsund íslenskum krón- um í gjald fyrir hvert skip, óháð stærð þess eða andvirði. Einar Her- mannsson, hjá Sambandi íslenskra kaupskipaútgerða, segir þessi háu gjöld meðal annars hafa ýtt undir þá þróun að kaupskip hætti að sigla undir íslenskum fána. Hann segir að ef gjöldin væru lægri og væn- legra væri að gera út kaupskip hér á landi, myndu útgerðir nota eigin skip í hærra hlutfalli í stað leigu- skipa. „Það má segja að mönnum sé beinlínis refsað fyrir að vera með skip undir íslenskum fána. Svokall- aður skráningarkostnaður er marg- þættur en það er ekki hægt að segja að siglingamálayfirvöld séu að inn- heimta óeðlilega háar upphæðir. Kostnaðurinn liggur fyrst og fremst í stimpilgjöldunum sem er í raun skattur sem innheimtur er af fjár- málaráðuneytinu. Við höfum ítrek- að leitað til ráðuneytisins um niður- fellingu á þessum gjöldum í sam- ræmi við það sem gerist í nágranna- löndunum. Það hefur hinsvegar ekki fengið mikið hljómgrunn,“ seg- ir Einar. Loðnan mjög þétt o g rífur nætur MJÖG þéttar loðnutorfur fundust suðaustur af Papagrunni í gær. Þó að skip hafi verið að fá upp í 500 tonna köst gekk veiðin brösuglega og um hádegisbilið í gær höfðu fjög- ur skip farið í land með rifnar nætur. „Þetta er alltof þéttar loðningar og stóru næturnar þola ekki álagið,“ sagði Lárus Grímsson, skipstjóri á Júpíter ÞH, í samtali við Morgunblað- ið í gær. „Nótin hjá okkur rifnaði illa og við verið í netavinnu í íjóra tíma hér í morgun. Næturnar hafa farið í hengla hjá mörgum en hjá þeim sem ekki lenda í þessum vand- ræðum gengur veiðin vel. Það er komið að þessum skiptum þegar menn skipta úr sumar- og haustnót- um yfír í hefðbundnar vetrarvertíðar- nætur sem eru grynnri og sterkari,“ sagði Lárus. 8-9 gráðu heitur sjór „Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu og menn voru yfírleitt ekki tilbúnir með nætur fyrir svona þéttar torfur því janúarveiðin hefur gengið rólega. Það er þekkt að torfurnar verði mjög öflugar um þetta leiti þó segja megi að það gerist óvenju snemma miðað við síðustu sex ár. Það er hinsvegar eftirtektarvert er að loðnan liggur í mjög heitum poll- um. Það er óvenjulega heitur sjór héma, allt að 8-9 gráður á litlu svæði en dettur ofan í tvær gráður hér rétt norðan við okkur,“ sagði Lárus. Eðlileg hrognafylling Lárus telur þó ekki að hrognafyll- ing loðnunnar nái tilsettum mörkum fyrr en venjulega, þó að þessar að- stæður séu fyrr á ferðinni miðað við síðustu ár. „Það var tekið hrognasýni hjá okkur í síðasta túr og þá var hrognafyllingin 7-8% sem er eðlilegt miðað við árstíma." Leiðindaveður var á miðunum í gær og spáin slæm og segir Lárus því erfítt að eiga við veiðarnar í augnablikinu. „Það eru um sex vind- stig hér núna og mikill straumur. Það má því segja að það sé ailt á móti okkur í augnablikinu nema hvað það er gott að vita af allri þessari loðnu,“ sagði Lárus. Engey RE komin til Falklandseyja Töf vegna viðgerða NOKKURRA daga töf hefur orðið á því að Engey RE geti hafíð veiðar við Falklandseyjar þar sem gera þurfti við gat á loftröri frá olíutanki sem uppgötvaðist á siglingunni frá íslandi til Falklandseyja. Engeyjan kom til Falklandseyja þann 16. janúar sl. og er gert ráð fyrir því að skipið fari í sína fyrstu veiðiferð frá Falklandseyj- um síðari hluta þessarar viku, að sögn Stefáns Þórarinssonar, framkvæmda- stjóra Sæblóms ehf., sem tekið hefur að sér alla stjómun á Island Fisheries Holdings Ltd, sem er útgerðarfélag á Falklandseyjum. „Þegar skipið var í breytingum úti í Póllandi í fyrra, hefur óviljandi ver- ið gert gat á loftrör í einum olíutank- inum sem leiddi til þess að smávegis af olíu lak út um þetta gat og inn í lestina þegar hann var fylltur. Þetta var bara smámál og búið er að gera við þetta," sagði Stefán, sem staddur er á Falklandseyjum, í samtali við Verið. Meirihluti áhafnar er íslendingar Tjaldurinn, sem nú heitir Island Queen og er einnig gerður út frá Falklandseyjum, er nú í sinni þriðju veiðiferð. „Veiðamar ganga mjög vel hjá honum og landaði hann rúmlega 20 milljóna króna túr um miðjan jan- úar. Skipstjóri í þeim túr var Krist- geir Ólafsson. Tuttugu manna áhöfn er á Island Queen og er skipstjóri nú Hafsteinn Aðalsteinsson. Hver veiði- ferð hefur staðið yfír í tæpan mánuð. Skipstjóri á Engey verður Guðmundur Bjömsson. i áhöfn beggja skipanna eru íslendingar í meirihluta. Við erum bara nokkuð sáttir svona í byijun enda hefur gengið vel það sem af er,“ sagði Stefán. Athugasemd MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd: „Vegna viðtals við Hauk Þorvalds- son hjá Netagerðinni Ingólfí í Verinu í gær, þar sem fram kemur að Neta- gerðin Ingólfur hafi séð um uppsetn- ingu á flottrollinu sem Beitir NK og Þorsteinn EA hafa notað við loðnu- veiðar, vil ég taka fram eftirfarandi: Beitir NK hefur á yfírstandandi ver- tíð notað flottroll frá Brödrene Sel- stad A/F í Noregi. Trollið er keypt í gegnum Netagerð Friðriks Vil- hjálmssonar hf. á Neskaupstað, sem er í samstarfi við og selur flottroll frá Brödrene Selsatad A/F. Flottroll- ið var keypt síðastliðið sumar og hefur Beitir NK notað það við síld- og loðnuveiðar með góðum árangri. í ljósi góðs árangurs Beitis NK á yfirstandandi loðnuvertíð, pantaði Samheiji hf. í desember sl. flottroll frá Brödrene Selstad A/F fyrir Þor- stein EA og var trollið tekið um borð 12. janúar sl. Á síðustu vertíð notaði Beitir NK troll sem keypt var í gegn- um Netagerðina Ingólf. F.h. Brödrene Selstad A/S og Netagerðar Friðriks Ingólfssonar hf., Jón Einar Marteinsson."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.