Morgunblaðið - 13.02.1997, Page 1
80 SÍÐUR B/C
36. TBL. 85. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fjárglæfrafyrirtækin í Albaníu
Hirtí mafían
allt spariféð?
Róm. Reuter.
ITALSKA lögreglan og sérfræðing-
ar í starfsemi mafíunnar á Ítalíu
telja, að hún hafi að einhveiju leyti
staðið á bak við ijárglæfrafyrirtækin
í Albaníu, sem hafa rænt stóran
hluta landsmanna öllu sparifé sínu.
Hundruð óeirðalögreglumanna voru
með mikinn viðbúnað í Tirana, höf-
uðborg landsins, í gær til að koma
í veg fyrir mótmæli gegn stjórnvöld-
um.
„Við höfum upplýsingar um, að
ítalskir glæpahringir tengist
fjárglæfrunum í Albaníu," sagði Pier
Luigi Vigna saksóknari í Róm. „Pen-
ingar frá þeim hafa farið inn í píra-
mítafyrirtækin." Undir þetta tók
Alessandro Pansa, yfirmaður sér-
stakra lögreglusveita, sem beijast
gegn skipulögðum glæpasamtökum,
og sagði, að hafin væri rannsókn á
aðild mafíunnar að fjárglæfrunum í
Albaníu.
Albanir auðveld bráð
Sérfræðingar í starfsemi maf-
íunnar segja, að næstum algert eft-
irlitsieysi í Albaníu og náin tengsl
milli glæpamanna þar og á Ítaiíu
hafi gert mafíunni auðvelt að koma
upp píramítafyrirtækjunum en til-
gangurinn hafi fyrst og fremst verið
sá að nota þau til að „þvo“ illa feng-
ið fé.
Talið er, að ailt 140 milljarðar
ísl. kr. hafi verið settir í píramíta-
fyrirtækin í Albaníu en það er næst-
um jafn mikið og verg þjóðarfram-
leiðsla síðasta árs í landinu. Það
þykir hins vegar ekki ganga upp og
Vigna og ítalskar leyniþjónustu-
heimildir segja, að skýringin sé sú,
Reuter
ALBÖNSK kona formælir stjórnvöldum í landinu í mótmæla-
göngu í borginni Vlore en þar var lögreglumaður skotinn til
bana i gær. Næstum allar fjölskyldur í landinu Iögðu fé í píra-
mítafyrirtækin en þau lofuðu allt að 100% vöxtum á mánuði.
að mafían hafi dælt peningum inn
í fjárglæfrafyrirtækin í upphafi til
að „þvo“ þá og græða um leið á því
að stela sparifé albansks almenn-
ings.
Viðbúnaður í Tirana
Hundruð lögreglumanna voru á
götum Tirana í gær til að koma í
veg fyrir, að stjómarandstaðan efndi
til mótmæla og voru leiðtogar í eins
konar stofufangelsi á heimilum sín-
um.
ÖSE, Öryggis- og samvinnustofn-
un Evrópu, lýsti í gær áhyggjum
sínum af ástandinu í Albaníu og
kvaðst óttast, að það ætti eftir að
verða miklu alvarlegra.
Lofar löndum
sínum
sjálfstæði
ASLAN Maskhadov sór embættis-
eið sem forseti Tsjetsjníju í gær
og hét þá að gera draum lands-
manna um sjálfstæði að veruleika.
Kvaðst hann mundu auka áhrif
islamskrar trúar og skera upp
herör gegn glæpaflokkum, sem
lékju lausum hala í landinu. Full-
trúi Moskvusljórnarinnar við at-
höfnina var ívan Rybkín, formað-
ur rússneska öryggisráðsins, og
þar var einnig Alexander Lebed,
fyrrverandi öryggisráðgjafi Borís
Jeltsíns, forseta Rússlands. Hann
átti mestan þátt í að binda enda
á átökin í landinu. Nýtur hann
mikilla vinsælda með Tsjetsjena
og lýsti hann því yfir í gær, að
hann yrði næsti forseti Rússlands.
Maskhadov heilsar hér tsjetsj-
enskum hershöfðingja eftir emb-
ættistökuna.
Reuter
Meira fé
til höfuðs
Rushdie
Teheran, London. Reuter.
ÍRÖNSK hjálparstofnun hefur
hækkað peningaupphæðina,
sem sett er til höfuðs breska
rithöfundinum
Salman Rus-
hdie, og er
hún nú 175
milljónir ísl.
króna. Breska
stjórnin mót-
mælti þessu í
gær en stjórn-
völd í Teheran
segja, að þeim
komi málið
ekki við.
íranska
hjálparstofnunin ákvað fyrst
1989 að verðlauna þann, sem
dræpi Rushdie, en þá hafði
Khomeini heitinn erkiklerkur
kveðið upp yfir honum dauða-
dóm fyrir guðlast. Nú hefur
upphæðin verið hækkuð um 35
millj. króna og hana fær sá,
sem drepur Rushdie. Skiptir þá
ekki máli hvort banamaðurinn
er múslimi eða annarrar trúar
„eða jafnvel lífverðir hans“.
Segir stofnunina
óviðkomandi
stjórnvöldum
Breska stjómin skoraði í gær
á stjórnvöld í Teheran að for-
dæma þessa ákvörðun en Ak-
bar Hashemi Rafsanjani, for-
seti írans, segir, að hjálpar-
stofnunin sé ekki á vegum rík-
isins og því komi hún stjórn-
völdum ekki við.
Talsmaður breska utanrík-
isráðuneytisins sagði, að ekkert
mark væri takandi á yfirlýsing-
um stjómvalda í íran um að
þau gætu ekkert aðhafst þar
sem hjálparstofnunin væri ekki
ríkisrekin. Breska blaðið The
Guardian sagði í gær, að ör-
yggisgæsla um Rushdie hefði
verið efld.
Þýska stjórnin ítrekaði
stuðning sinn við Rushdie í gær
og í dag mun Evrópusamband-
ið gera það einnig.
Nýtt merki um að alvarlegur brestur sé kominn í stjórn Norður-Kóreu
Hugmyndafræðingurinn flýr
Seoul, Tókýó. Reuter.
Flugskeyti
innum
gluggana
París. Reuter.
ALSÍRSKIR öryggissveitarmenn
skutu í gær flugskeytum inn um
glugga á fjölbýlishúsi í Algeirsborg
þar sem hópur skæruliða hafði búið
um sig. Höfðu þeir áður skipst á
skotum við skæruliðana í átta
klukkustundir.
„íbúðin gjöreyðilagðist þegar
nokkmm flugskeytum var skotið á
hana,“ var haft eftir íbúa í hverfínu
og aðrir sögðu, að enginn skærulið-
anna hefði komist lífs af. Fylgdust
hundmð manna með átökunum.
Flugskeytunum var skotið á hús-
ið, sem er 14 hæðir, þegar skærulið-
arnir reyndu að ijúfa gat á útvegg
og komast yfir í annað hús.
HWANG Jang-yop, einn af helstu
hugmyndafræðingum norður-kór-
eska kommúnistaflokksins, hefur
leitað til sendiráðs Suður-Kóreu í
Peking og óskað eftir hæli í landinu.
Hann er valdamesti embættismaður-
inn, sem hefur flúið frá Norður-
Kóreu, og einn af helstu ráðgjöfum
Kim Jong-il, leiðtoga landsins. Flótti
Hwangs er því talinn mikið áfall
fyrir norður-kóreska leiðtogann.
Norður-Kóreumenn neituðu frétt-
unum í fyrstu en sögðu síðan að
Hwang hefði verið rænt og honum
væri haldið í sendiráðinu í Peking.
Hwang er 73 ára og einn þeirra sem
áttu stærstan þátt í að móta Juche-
stefnuna, sem er undirstaða hug-
myndafræði valdhafanna í þessu síð-
asta stalínistaríki heims. Stefnan
byggist á því að Norður-Kóreumenn
verði sjálfum sér nógir á öllum svið-
um hvað sem það kostar.
„Flótti Hwangs er sterkasta
merkið til þessa um að brestur sé
kominn í stalínistastjórnina," sagði
Park hun-ok, suður-kóreskur sér-
fræðingur í málefnum Norður-
Kóreu. „Nú þegar efnahagurinn er
í rúst og landið algjörlega einangrað
frá öðrum þjóðum heims hefur
Juche-stefnan verið það eina sem
hefur haldið lífi í stjórninni."
Hwang er einn af ellefu fulltrúum
í forsætisnefnd kommúnistaflokks-
ins og hefur séð um að móta utanrík-
isstefnu miðstjórnarinnar. Suður-
kóreskir embættismann telja hann
24. valdamesta embættismann
landsins.
Varpar skugga á afmæli
leiðtogans
Hwang leitaði í sendiráðið í Pek-
ing eftir hálfs mánaðar ferð til Jap-
ans, þar sem hann stjórnaði alþjóð-
legu málþingi um Juche-stefnuna.
Vangaveltur voru um að hann hefði
ekki viljað snúa aftur til Norður-
Kóreu þar sem honum kynni að
verða refsað fyrir að hafa ekki getað
tryggt aukna aðstoð erlendra ríkja
vegna alvarlegs matvælaskorts í
landinu.
Fréttaskýrendur sögðu að flótti
Hwangs kæmi á sérlega slæmum
tíma fyrir Kim Jong-il, sem heldur
upp á 55 ára afmæli sitt á sunnu-
dag. Litið hefur verið á hátíðahöld-
in í tilefni afmælisins sem mikilvæg-
an lið í aðdraganda þess að Kim
verði formlega gerður að forseta
landsins og aðalritara flokksins síð-
ar á árinu.
Fréttaskýrendur í Tókýó sögðu
að flótti Hwangs kæmi sér illa fyr-
ir valdhafana í Norður-Kóreu en
þyrfti ekki að merkja að kommún-
istaflokkurinn væri að falla, þrátt
fyrir að landið sé á barmi hungurs-
neyðar vegna flóða og efnahags-
óstjórnar.