Morgunblaðið - 13.02.1997, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÓLAFUR Ragnar Grímsson að lokinni skíðagöngunni, við minnismerki um Ólaf V. Noregskonung á
Holmenkollen. Með forsetanum er Rolf Nyhus, framkvæmdastjóri norska skíðasambandsins.
FORSETI íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, hóf
annan dag opinberrar
heimsóknar sinnar til
Noregs með því að fara á göngu-
skíði á Holmenkollen, hinu fræga
skíðasvæði Óslóarbúa.
Ólafur Ragnar fetaði í fótspor
nafna síns, Olafs V. Noregskon-
ungs, sem oft skrapp á gönguskíði
og tók þá sporvagninn frá brautar-
stöðinni við Stórþingið. Þangað kom
Ólafur Ragnar skömmu fyrir kl. 7
í gærmorgun, með skíðin á öxlinni.
Með í för voru Magne Haugen kon-
ungsritari og Eiður Guðnason,
sendiherra Islands í Noregi.
Mjög milt veður hefur verið í
Ósló undanfarna daga og ailar göt-
ur auðar. Ólafur Ragnar var spurð-
ur hvort hann óttaðist ekki snjó-
leysi, en hann sagði slíkan ótta
ástæðulausan enda hefðu Norð-
menn lofað sér snjó á Holmenkollen
fyrir mánuði og hann efaðist ekki
um að þeir stæðu við það.
Á Holmenkollen var vissulega
snjór en mikið harðfenni. Nokkrir
forystumenn norska skíðasam-
bandsins tóku á móti forsetanum
og báru réttan áburð á gönguskíð-
in, í samræmi við færðina. Og svo
lögðu forsetinn, sendiherrann og
konungsritarinn af stað.
Næst sást til hópsins tæpri
klukkustund síðar þar sem hann
lauk göngunni við undirstöður
skíðastökkpallsins, en þar stendur
stytta af Ölafi V. konungi, föður
Haraldar Noregskonungs. Forset-
inn þáði kaffisopa og lét vel af
göngunni. „Útsýnið yfír Ósló og
fjörðinn var stórkostlegt," sagði
Ólafur Ragnar. „Mér var bent á
staðinn þar sem jólatréð, árleg gjöf
frá Óslóarbúum til Reykvíkinga,
verður höggvið næsta desember,
en það var ákveðið að láta það bíða
betri tíma að velja tré.“
Ólafur kvaðst vera nokkuð móður
eftir gönguna og Rolf Nyhus, fram-
kvæmdastjóri norska skíðasam-
Aldagömul
tengsl enn
mikilvægari
Ólafur Ragnar Grímsson forseti íslands
hvatti til náinnar samvinnu íslendinga og
Norðmanna á öðrum degi heimsóknar sinnar
til Noregs og sagði hana gera aldagömul
tengsl þjóðanna enn mikilvægari. Ragnhlld-
ur Sverrisdóttir fylgdist með heimsókninni,
en forsetinn byrjaði daginn á skíðagöngu.
bandsins benti honum á að hann
hefði verið tveimur mínútum fljót-
ari að Ijúka göngunni en áætlað
hefði verið. „Ég tek þig trúanlegan,
enda vil ég ekki líta svo á að þú
segir þetta eingöngu í kurteisis-
skyni,“ svaraði Ólafur Ragnar og
hló við.
Islenskir fjörusteinar
Dagskrá opinberrar heimsóknar
tók við að nýju kl. 10.15, þegar
forsetahjónin og norsku konungs-
hjónin skoðuðu Nútímalistasafnið.
Á 2. hæð safnsins var þeim vísað
í sal þar sem helsta listaverkið var
fjöldi steina á gólfinu. „Þetta gætu
verið íslenskir steinar, það er á
þeim sami grái liturinn og í fjörun-
um heima,“ sagði Ólafur Ragnar
þegar gengið var í salinn. Þar
reyndist hann hafa rétt fyrir sér,
því verkið Atlantic Lava Line er
eftir enska listamanninn Richard
Long og efniviðurinn, 178 steinar,
var sóttur til Islands á síðasta ári.
Auk þess að skoða verk þekktra
listamanna heimsóttu forsetahjónin
lítið vinnuherbergi í safninu, þar
sem bekkur 8 ára barna !«iar að
skapa sína eigin list. Bömin höfðu
gengið um safnið og nú grúfðu þau
sig einbeitt yfir eigin listaverk. Þau
gáfu sér þó tíma til að fagna gest-
unum. Ólafi Ragnari og Guðrúnu
Katrínu var færð innbundin mappa
frá bekknum en í henni voru mynd-
ir úr skólalífinu, auk þess sem hvert
barn hafði teiknað einá mynd. Ólaf-
ur Ragnar lýsti sérstakri ánægju
sinni með skrautlega mynd af eld-
gosi sem einn pilturinn í bekknum
hafði teiknað.
Snjóflóð og Hvalfjarðargöng
Norges Geotekniske Institutt
var næst á dagskránni. Þar voru
gestirnir upplýstir um fjölbreytt
starf stofnunarinnar, sem m.a.
veitir ráðgjöf við byggingu bor-
palla, hefur umsjón með stíflugerð
og öðrum stórmannvirkjum og sér-
hæfir sig í flóðavörnum, hvort sem
um er að ræða snjóflóð eða aur-
skriður. Um 30% verkefna stofnun-
arinnar eru í þágu erlendra aðila.
Stofnunin hefur komið við sögu á
íslandi, til dæmis vegna áhættu-
mats og snjóflóðavarna eftir hamf-
arirnar á Súðavík og Flateyri. Þá
veitir stofnunin einnig ráðgjöf
vegna jarðganganna undir Hval-
fjörð. Forstjóri stofnunarinnar,
Suzanne Lacasse, sagði reynslu
Norðmanna af samstarfi við ís-
lendinga mjög ánægjulega og að
hún vonaðist til að það góða sam-
band héldist áfram.
Auðlindir nái að endurnýjast
Ríkisstjórnin bauð forsetahjón-
unum og konungshjónunum til há-
degisverðar á Bristol hóteli í mið-
borg Óslóar. Thorbjörn Jagland for-
sætisráðherra bauð gestina vel-
komna. Hann rakti margvíslegt
samstarf íslands og Noregs, til
dæmis innan EFTA og EES. Þá
sagði hann að bæði löndin nýttu
auðlindir hafsins. Sjávarútvegurinn
væri veigamikill þáttur í efnahag
Íslands og hið sama mætti segja
um byggðir á strönd Noregs.
Forsætisráðherrann lagði áherslu
á að nýta ætti auðlindir hafsins á
þann hátt að þær næðu að end-
urnýjast. Þessum auðlindum væri
ógnað af þeim sem veiddu meira
en endurnýjaðist. En þeim væri
einnig ógnað vegna þeirra sjónar-
miða vemdunarsinna að hafna eðli-
legri nýtingu.
Fjögur svið samvinnu
Ólafur Ragnar Grímsson nefndi í
ræðu sinni fjögur svið, þar sem hann
sagðist telja að samvinna Noregs
og íslands væri í senn „eðlilegt fram-
hald fýrri tengsla, brýnt framlag til
lausnar á fjölþjóðlegum vandamál-
um og tenging okkar við þá gerjun
sem einkennir mannkyn allt.“
í fyrsta lagi nefndi forseti þróun
lýðræðis og mannréttinda. „Margar
þjóðir munu leita liðsinnis í þeim
efnum hjá ríkjum sem ógna engum
og hafa ekki annarlega hagsmuni,"
sagði hann.
I öðru lagi tiltók Ólafur Ragnar
nauðsyn víðtækrar alþjóðlegrar
samvinnu um vemdun umhverfís
og lífríkis jarðarinnar og gat sér-
staklega forystuhlutverks Gro Harl-
em Brundtland, forvera Jaglands, á
þeim vettvangi.
í þriðja lagi sagði forseti að staða
Noregs og íslands skapaði þeim
möguleika umfram aðra til að
leggja fram hugmyndir og greiða
úr ágreiningi á sviði umræðna um
þróun öryggismála í Evrópu og
nýskipan friðargæslu og friðar-
starfs innan Sameinuðu þjóðanna.
í fjórða lagi nefndi Ólaftir Ragnar
vaxandi mikilvægi hins norræna
samstarfsforms og samfélagsgerðar
fyrir fjölda þjóða í Asíu, Suður-.
Ámeríku og Áfríku. Hann sagðist
sannfærður um að álit forystumanna
frá þessum heimshlutum á norrænni
samvinnu gæfí henni nýtt gildi.
„Allir þessir þættir gera alda-
gömul tengsl landa okkar enn mikil-
vægari þegar nýtt árþúsund gengur
í garð,“ sagði Olafur Ragnar. „Þeir
knýja einnig á um að hvergi beri
skugga á tengsl íslands og Noregs:
Til að vera öðrum þjóðum fyrirmynd
og nýta okkur báðum til hagsbóta
þessi tækifæri til áhrifa og ávinn-
ings þurfum við að sýna í verki að
við getum leyst okkar eigin deilu-
mál, deilumál sem ekki eru stór-
vægileg í samanburði við það sem
þorri annarra þjóða glímir við.“
3-400 íslendingar í móttöku
Norska þjóðminjasafnið á
Bygdoy var heimsótt að hádegis-
verði loknum. Þar skoðuðu gestitn-
ir sýningu um landkönnuðinn Fríd-
thjof Nansen, en sýningin var sett
upp í október sl. og stendur allt til
september á þessu ári. Á sýning-
unni er lögð áhersla á að sýna hin-
ar ýmsu hliðar Nansens, s.s. vís-
indamanninn, uppfinningamanninn
og stjórnmálamanninn Nansen.
Forsetahjónin tóku á móti íslend-
ingum búsettum í Ósló og nágrenni
síðdegis í gær og komu um 3-400
manns til móttökunnar á Grand
Hotel.
Tónleikar Fílharmóníuhljóm-
sveitarinnar í Ósló hófust kl. 19.30
og voru forsetahjónin og konungs-
hjónin heiðursgestir þar. Frá tón-
leikunum var haldið í ráðhús Ósló-
ar, þar sem Per Ditlev-Simonsen
borgarstjóri tók á móti gestunum
og bauð til síðbúins kvöldverðar.
Stjórnmálafræði og kvótakerfi
í dag er síðasti dagur hinnar opin-
beru heimsóknar. Árla dags er flog-
ið frá Ósló til Björgvinjar. Þar verð-
ur safn um tónskáldið Grieg heim-
sótt og stofnun um samanburðar-
stjómmálafræði. Þá mun forseti Is-
lands leggja blóm að styttu Snorra
Sturlusonar.
>
\
i
I
i
I
i
I
l
i
I
í
I
»
(
c
í
c
I
t
c
Utanríkisráðherrar íslands og Noregs um tillögur hollensku ríkisslj órnarinnar
Ósló. Morgunblaðið.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Noregs
verði fellt inn í ESB
g ís-
Vantrú á að Schengen
lands segjast ekki hafa mikla trú á að
Schengen-vegabréfasamkomulagið verði
fellt inn í stofnsáttmála Evrópusambands-
ins. Þeir segja þó að ríkin verði að fylgjast
vel með málinu, en bæði ísland og Noregur
hafa gert samstarfssamninga við Schengen-
ríkin og myndu þeir væntanlega breytast í
tvíhliða samninga við ESB ef Schengen-
samstarfið yrði hluti ESB.
Halldór Ásgrímsson og Bjorn Tore Godal
áttu með sér fund í Ósló í gær. Á blaða-
mannafundi voru þeir spurðir hvort þeir
hefðu rætt tillögu Hollands, núverandi for-
ysturíkis ESB, um að ísland og Noregur
fái sæti í ráðherraráði ESB, verði Schengen-
samkomulagið fellt að hluta eða í heild inn
í stofnsáttmála ESB, og hvemig þeim litist
á hugmyndina.
„Á meðan England og írland taka ekki
þátt í samstarfinu teljum við, a.m.k. nú,
að ekki séu miklar líkur á að þetta verði,“
sagði Halldór. „Við munum hins vegar
fylgjast náið með þróuninni.“
„Eg kannast við þessa tillögu Hollend-
inga, en ég er sammála Halldóri um að litl-
ar líkur eru á að Schengen-samkomulagið
verði fellt inn í stofnsáttmálann,“ sagði
Godal. „Það þýðir hins vegar ekki að við
getum látið reka á reiðanum og sleppt því
að fylgjast náið með framvindu mála. Ef
Schengen-samkomulagið yrði fellt inn_ í
stofnsáttmálann, hljóta Norðmenn og Is-
lendingar að ræða sérstaklega hvemig
bregðast ætti við. Tillaga Hollendinga kæmi
þar auðvitað til álita.“
'
1