Morgunblaðið - 13.02.1997, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SHÍ býður menntamálaráðherra að gerast námsmaður í einn dag
Ráðherra þiggur
ekki boð stúdenta
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
hyggst ekki þekkjast boð Stúd-
entaráðs Háskóla íslands um að
gerast námsmaður í einn dag. Tii-
gangur boðsins var sá að ráðherr-
ann gæti upplifað af eigin raun
hversu aðkallandi það er að breyta
núgildandi lögum um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna, eins og segir
í fréttatilkynningu.
Stúdentaráð lagði til að Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
myndi setja sig í spor námsmanna
mánudaginn 17. febrúar nk. en
þó var tekið fram að ef sá dagur
hentaði illa þá væru stúdentar
sveigjanlegir í samningum. Hug-
myndin var sú að ráðherrann
myndi sækja um námslán, falast
eftir yfirdráttarláni hjá banka eða
sparisjóði til þess að framfleyta
sér, útvega sér ábyrgðarmann á
námslánið og yfirdráttinn og tæk-
ist honum það fengi hann grunn-
framfærslu eins dags greidda inn
á reikning.
Gert var ráð fyrir að mennta-
málaráðherra myndi sækja tíma í
hjúkrunarfræði og jafnframt velta
því fyrir sér hvort nýútskrifaður
hjúkrunarfræðingur gæti fjárfest
í húsnæði og greitt námslána-
skuldir á sama tíma.
Fj ölmiðlaleikur
segir ráðherra
Björn Bjarnason kveðst verða
fjarverandi mánudaginn sem um
er rætt og þá þurfi hann ekki sér-
staka dagskrá til að_ kynnast kjör-
um námsmanna. „Ég var sjálfur
námsmaður við Háskóla íslands í
sex ár og held að kjör námsmanna
hafi verið þrengri þá en nú,“ seg-
ir hann. Björn tók námslán en
vann einnig með námi. „Þá var
ég formaður og varaformaður
Stúdentaráðs og fylgdist mjög vel
með því hvernig hagsmunum stúd-
enta var háttað.“
Menntamálaráðherra segist
draga í efa að dæmigerður dagur
í lífi námsmanna sé svipaður þeirri
dagskrá sem Stúdentaráð hafi sett
upp. „Mér finnst eins og þetta sé
einhver fjölmiðlaleikur um alvar-
legt viðfangsefni sem leysist ekki
á einum degi. Þá er ljóst að allir
þurfa að taka sér einhvern tíma
til þess að hugsa um fjármál sín
og hvernig þeir ætla að komast
af, hvort sem þeir eru námsmenn
eða ekki,“ segir Björn.
Morgunblaðið/Golli
GRÉTAR Br. Kristjánsson, forstöðumaður Bílaleigu Flugleiða,
Sigurður Helgason, forsljóri Flugleiða, og Júlíus Vífill Ingvars-
son, framkvæmdastjóri Bílheima.
Kaupa 35 Opel bíla
BÍLALEIGA Flugleiða hefur fest
kaup á 35 Opel Corsa bifreiðum, og
bætir bílaleigan, sem er með umboð
fyrir bílaleiguna Hertz á íslandi, þar
með við sig einum flokki bílaleigu-
bíla með þessum kaupum. Þar er um
að ræða minnsta flokkinn en sam-
kvæmt upplýsingum frá Bílaleigu
Flugleiða hefur talsverð eftirspurn
verið eftir bílum í þeim flokki.
Bílheimar ehf., sem eru umboðsað-
ili fyrir Opel á íslandi, munu afhenda
Bílaleigu Flugleiða nýju bílana í apríl
og maí næstkomandi. I fréttatilkynn-
ingu frá Bílheimum kemur fram að
Opel Corsa hefur verið mjög vinsæll
bíll hjá bílaleigum í Evrópu vegna
lágrar bilanatíðni og vinsælda bílsins
meðal almennings, en Opel eru mest
seldu bílar í Evrópu og leiðir Opel
Corsa söluna í minnsta stærðar-
flokknum.
Morgiinblaðið/Árni Sæberg
Kirkjusandshúsin að rísa
Samstarf um Eiðs-
vík og Straumsvík
Borgar-
stjóri til-
nefnitvo
fulltrúa
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt, að fela borgarstjóra,
að tilnefna tvo fulltrúa
Reykjavíkurborgar í verkefn-
isstjórn vegna samstarfs um
hafna- og iðnaðarsvæði í
Eiðsvík og Straumsvík.
í umsögn hafnarstjómar til
borgarráðs er mælt með að
sett verði á laggimar verkefn-
isstjóm en ekki sérstakt undir-
búningsfélag vegna samstarfs
um hafna- og iðnaðarsvæði í
Eiðsvík og Straumsvík. Hafn-
arstjórn telur að leggja eigi
skýrslu verkefnisstjórnarinn-
ar fyrir hafnarstjórn áður en
til afstöðu samstarfsaðila
komi. Þá sé eðlilegt að hafnar-
stjórn Reykjavíkur fari með
umsjón málsins fyrir hönd
borgarinnar.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Hauki
Jónassyni:
„Þann 7. þ.m. birtist á forsíðu
DV grein um læknisstörf mín. Frá-
sögnin var vægast sagt villandi og
tel ég því nauðsynlegt að koma á
framfæri eftirgreindum athuga-
semdum.
Frá því að ég lauk sémámi hef
ég starfað sem sérfræðingur í lyf-
og meltingarsjúkdómum. Um ára-
bil starfaði ég í Boston í Bandaríkj-
unum hjá hinni heimsþekktu
læknastofnun Lahey Clinie. Þar
var sérhver sjúklingur, sem leitaði
til læknis vegna einhverra sjúk-
dómseinkenna, vandlega skoðaður
og rannsóknir gerðar til þess að
ganga úr skugga um, hvort ein-
hver sjúkdómseinkenni fyndust.
Fyrst, að slíkri ítarlegri rannsókn
lokinni, var meðferð ákveðin. Þess
má geta, að ýmis stórfyrirtæki
sendu starfsfólk í reglubundna
læknisskoðun og var þá ávallt um
fullkomna rannsókn að ræða, ef
minnsta tilefni gaf ástæðu til þess.
Ef engin sjúkdómseinkenni komu
í ljós þótti nægjanlegt að fá við-
komandi einstakling aftur að
tveimur til þremur árum liðnum.
FRAMKVÆMDUM á vegum
Ármannsfells M. við Kirkju-
sand miðar vel og er lokið við
uppsteypu á kjallara og verið
er að ljúka við fyrstu hæðina í
Eftir að ég kom heim frá námi
starfaði ég á Landspítalanum frá
1964-1978. Þar var ég á öllum
deildum utan bamadeildar. Frá
þeim tíma hef ég rekið einkastofu,
þar sem ég hef getað framkvæmt
m.a. maga- og ristilspeglanir. Alla
þá, sem til mín hafa leitað, og
hafa kennt sér einhvers meins, hef
ég leitast við að skoða af þeirri
nákvæmni, sem að framan er lýst.
Ég hef talið sjálfsagt að senda
sjúklinga eftir þörfum í blóð- og
þvagrannsókn og einnig í röntgen-
rannsóknir, ef einkenni benda til
þess að slíkra rannsókna sé þörf.
í gegnum árin hefur ítrekað
komið í ljós að slíkar rannsóknir
þeim tveimur húsum sem byggð
verða. Húsin verða fimm og sex
hæðir. Gert er ráð fyrir að þau
verði fokheld með vorinu og
að flutt verði inn í lok ársins.
voru nauðsynlegar til þess að finna
sjúkdómseinkenni sem áður hafði
yfirsést. í sumum tilfellum hefur
verið um illkynjaða sjúkdóma að
ræða á byrjunarstigi sem þá hefur
verið unnt að lækna.
Sl. ár hef ég bólusett starfsfólk
hjá ýmsum fyrirtækjum vegna
Asíuinflúensu, eins og fjöldinn all-
ur af læknum gerir. Hefur hér
bæði verið um að ræða fyrirtæki
í ríkiseign og einkaaðila. Látið er
að því liggja í greininni að ég hafi
sent óeðlilega marga af slíkum
starfsmönnum i blóðrannsókn.
Þetta eru alvarlegar aðdróttanir.
Staðreyndin er að ég hef aðeins
sent í blóðrannsókn þá sem kenndu
Að sögn Ármanns Arnar Ár-
mannssonar framkvæmda-
stjóra eru enn nokkrar íbúðir
óseldar í húsunum.
sér einhvers kvilla. Niðurstöður
þessara rannsókna hafa sýnt að
þess var full þörf. T.d. má nefna
að í október og nóvember sendi
ég 64 einstaklinga í blóðrannsókn.
Af þeim reyndust 42 með ein-
kenni, sem ekki höfðu áður fund-
ist, þrátt fyrir að ýmsir þessara
einstaklinga höfðu áður leitað til
heimilislæknis.
Þetta er í fyrsta sinn á minni
starfsævi sem mér hefur þótt ég
þurfa að gera opinberlega grein
fyrir minni starfsemi og upplýsa
um það hvað ég tel góða læknis-
fræði. í þeim anda hef ég ætíð leit-
ast við að starfa. Ég mun áfram
starfa eins og mín besta samviska
býður mér og leggja mig í líma við
að leysa þau vandamál sem sjúkl-
ingar leita til mín með. Hér eftir
sem hingað til mun ég ekki telja
eftir mérj)ann tíma sem það kanna
að taka. Eg mun einnig halda áfram
að leita til annarra sérfærðinga,
eins og ég tel þörf á hveiju sinni.
Þeim sérfræðingum, sem ég þekki
og hef starfað með, treysti ég full-
komlega. Sem betur fer eigum við
íslendingar fjölmarga sérfræðinga
sem eru meðal þeirra færustu. Það
eigum við að nýta okkur.“
Kjalarnes
Vindhraði
fórí110
hnúta
VINDHRAÐINN fór upp í 110
hnúta í verstu hviðunum á Kjal-
arnesi síðastliðið sunnudags-
kvöld og það er mesti vindhraði
sem mælst hefur á þessum slóð-
um í vetur, að sögn Katrínar
Baldvinsdóttur á Skrauthólum.
En um þetta leyti var lægð að
nálgast landið úr suðri og aust-
læg átt á undan henni.
Einar Sveinbjörnsson, veður-
fræðingur hjá Veðurstofu ís-
lands, segir að 64 hnútar sé það
sama og 12 vindstig en ekki
sé mælt hærra en það í vindstig-
um. Hann segir ennfremur að
ekki sé vitað til að meiri vind-
hraði hafi mælst annars staðar
á landinu aðfaranótt mánudags
en hafa ber í huga að á Kjalar-
nesinu sé afar vindasamt.
Ný skemmti-
dagskrá á
Hótel Sögu
NÝ skemmtidagskrá hefst á
Hótel Sögu í Reykjavík, laugar-
dagskvöldið 15. febrúar, og ber
hún nafnið Allabaddarí. Verður
skemmtunin á dagskrá öll laug-
ardagskvöld í vetur.
í frétt frá Hótel Sögu segir
að um sé að ræða skemmtidag-
skrá með frönsku sniði, tónlist,
dönsum og spaugi auk þriggja
rétta kvöldverðar.
Meðal skemmtikrafta eru
Egill Ólafsson, Sigrún Eva Ár-
mannsdóttir, Rósa Ingólfsdótt-
ir, Karl Ágúst Úlfsson og Örn
Árnason ásamt dansmeyjum
Helenu Jónsdóttur.
Handteknir
með 20
grömm af
amfetamíni
FÍKNIEFNADEILD lögregl-
unnar handtók fjóra pilta í ibúð
í Breiðholti í fyrradag. Þeir
hafa allir komið við sögu lög-
reglunnar áður. Lagt var hald
á 20 grömm af amfetamíni, lítil-
ræði af hassi og marijúana.
Mönnunum hefur verið sleppt
úr haldi og telst málið upplýst.
Yfirlýsing frá
Hanki Jónas-
syni lækni