Morgunblaðið - 13.02.1997, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Golli
ÞRJÁR framleiðslustöðvar verða starfræktar hjá Granda hf. á
meðan á loðnufrystingu stendur og eru þær allar tilbúnar til
móttöku. I gær fór fram prufukeyrsla og er þess vænst að
vinnslan geti hafist af krafti fyrir helgi.
Hrognafylling í
loðnunni í 16%
Loðnufrysting á Japan hófst í frysti-
húsum og skipum fyrir austan í nótt
LOÐNUSKIPIN voru eitt af öðru að
fylla sig í gær skammt undan landi,
rétt við Ingólfshöfða og var hrogna-
innihald loðnunnar þá komið í 16%.
Byijað var að vinna við loðnufryst-
ingu fyrir Japansmarkað fyrir austan
í nótt þegar fyrstu skipin komu að
landi með afla gærdagsins, en eins
og fram hefur komið, krefiast Japan-
ir 15% hrognainnihalds loðnunnar.
Fá ioðnuna við
Ingólfshöfða
„Við ætluðum að vera löngu byrj-
aðir að frysta á Japan, en svo kom
bakslag í þetta og hrognaprósentan
var ekki nógu há í loðnunni, sem
skipin voru að fá við Papey og
Stokksnesið. Við frystum að vísu 150
tonn á Japan um síðustu helgi af
Jóni Kjartanssyni og Guðmundi Ól-
afi, sem þeir fengu við Hornafjörð,
en nú þurfa skipin að fara alveg
suður að Ingólfshöfða til að ná í 15%
hrogna loðnu," sagði Benedikt Jó-
hannsson, verkstjóri hjá Hraðfrysti-
húsi Eskifjarðar hf.
Að sögn Benedikts landaði Hólma-
borgin SU loðnu til bræðslu af eystra
svæðinu í gærmorgun. Hinsvegar var
von á Siglu SI til Eskifjarðar milli
klukkasn 3 og 4 í nótt með loðnu
af svæðinu við Ingólfshöfða. „Eg á
fastlega von á því að frystingin geti
hafíst af krafti í nótt þegar Sigla
kemur. Við eigum svo von á því að
veiðamar geti gengið þokkalega hjá
Jóni Kjartanssyni og Guðmundi 01-
afi, sem báðir eru komnir á miðin
undir Ingólfshöfða. Þeir gætu þá
landað hjá okkur í dag eða kvöld.“
Mikil og átulaus
loðna á ferðinni
„Við vorum að fiska loðnu og það
mikið af henni. Við byijuðum á því
að dæla beint úr nótinni hjá okkur
yfir í frystiskipið Sigli SI, sem fryst-
ir loðnu um borð. Svo fylltum við
okkur í fjórum köstum upp við Ing-
ólfshöfðann og emm á leið í land.
Um það bil tíu skip voru að veiðum
þarna og voru þau öll að fá góðan
afla. Margir eru á leið í land og hin-
ir fara á eftir. Það er mokveiði
þarna,“ sagði Hörður Magnússon,
stýrimaður á Siglu SI, í samtali við
Verið í gær.
Að sögn Harðar, hefur loðnuflot-
inn að undanförnu haldið sig út af
Hvalsnesinu, sunnan við Papey. „En
loðnan þar er bæði smærri og ekki
hæf á Japan. Sú loðna, sem við erum
með núna, er orðin alveg átulaus og
lítur mjög vel út. Mér kæmi það
ekki á óvart ef loðnufrysting á Japan
færi af stað strax í nótt. Það verður
allavega á allra næstu klukkutímun-
um. Svo mikið er ljóst. Við munum
að minnsta kosti landa þessum farmi
í frystingu á Eskifirði. Það er mikil
loðna þarna á ferðinni. Veiðamar
lofa góðu enda eru menn alltaf að
finna meira og meira."
Bræðslurnar liggja
á tómum tönkum
Hörður bjóst við að Sigla yrði fjórt-
án tíma frá loðnumiðunum til hafnar
á Eskifirði. „Það munar um hvern
daginn sem líður úr þessu. f fyrradag
var loðnan út af Homafirði og nú
er hún suður af Ingólfshöfða þannig
að það er mikil ferð á henni. Hún
er að komast í sitt hefðbundna
gönguhorf. Það eina, sem skyggir
á, er að vandræði eru með að losna
við loðnu í bræðslu. þar sem fiski-
mjölsverksmiðjumar væm að geyma
pláss fyrir hænginn þegar verður
farið að frysta. Bræðslurnar liggja á
tómum tönkum og tíma ekki að setja
í þá því þær vilja hafa tankana til-
búna fyrir „karlinn" þegar farið verð-
ur að frysta á Japan.“
Ekkert verður stoppað
fyrr en yfir lýkur
„Ég held að það fari að styttast
í frystinguna og væri reyndar ekki
hissa þótt hún byijaði af krafti hjá
okkur þegar líða tekur nær helginni.
Nú er allt orðið tilbúið fyrir móttök-
una, en undirbúningur hefur staðið
yfir síðan í haust. Við emm ekkert
byijaðir að frysta ennþá ef undan
er skilin prafukeyrsla, sem fram hef-
ur farið skv. væntingum," segir Sva-
var Svavarsson, framleiðslustjóri hjá
Granda hf. Við loðnufrystingu hjá
Granda verða starfandi um 220
manns sem ráðnir hafa verið á síð-
ustu dögum. „Við emm með síma-
númer hjá öllu þessu fólki og hringj-
um einfaldlega út þegar það má byija
að frysta. Þá verður skellt á vöktum
og vonandi ekkert stoppað fyrr en
yfir lýkur. Það er bara veðrið og
aðrar ytri aðstæður, sem geta komið
í veg fyrir það. „Við eram að vonast
til þess að frysta meira magn en í
fyrra. Við frystum þijú þúsund tonn
í fyrra og vonumst við til að fara í
ijögur þúsund tonn nú.“
Japanir að tínast
til landsins
Svavar sagði að sér virtust samn-
ingaviðræður við Japani vera á loka-
stigi. „Það era ákveðnir aðilar úti í
Japan sem kaupa yfírleitt af okkur
og á þeim nótum er þetta hjá flestum
öðram stöðvum, sem frysta loðnu.
Japönsku kaupendurnir hafa verið
að tínast til landsins í gær og í dag,
en þeir hafa þann háttinn á að vera
við frystinguna á meðan á henni
stendur. Þeir eru að fylgjast með,
taka prufur og smakka. Þetta era
mjög sérstök viðskipti, sem eiga sér
stað við Japanina að því leytinu til
að þeir koma á staðinn til að sjá
hvað þeir era að kaupa.“ Þrír jap-
anskir kaupendur verða hjá Granda
næstu vikurnar sem skipta sér niður
á þær þijár framleiðslustöðvar, sem
verða í gangi á vegum Granda,“ seg-
ir Svavar.
Innanríkisráðherra Suður-Kóreu segir af sér
Mútumál gæti orðið
stjórninni að falli
Seoul. Reuter.
KIM Woo-suk, innanríkisráðherra
Suður-Kóreu, varð í gær fyrsti ráð-
herra landsins til að segja af sér
vegna mútumáls, sem talið er að
nokkrir af samstarfsmönnum Kims
Young-sams forseta séu viðriðnir.
Lee Soo-sung forsætisráðherra gaf
til kynna að hann væri einnig reiðu-
búinn að láta af embætti og ijöl-
miðlar töldu að spillingarmálið yrði
allri stjóminni að falli.
Saksóknarar hafa yfirheyrt inn-
anríkisráðherrann vegna gruns um
að hann hefði þegið mútur til að
greiða fyrir háum lánum til Hanbo-
samsteypunnar áður en hún varð
gjaldþrota 23. janúar. Hann hefur
þó ekki verið ákærður.
Saksóknararnir hafa einnig yfir-
heyrt Hwang Byung-tai, formann
Qárlaga- og efnahagsnefndar
þingsins. Hwang .og innanríkisráð-
herrann era á meðal helstu banda-
manna Kims forseta og áttu stóran
þátt í því að tryggja honum forseta-
embættið árið 1993.
Áhrifamenn handteknir
Einn af helstu samstarfsmönnum
forsetans, Hong In-gil, var hand-
tekinn á þriðjudag vegna málsins
og einnig Chung Jae-chull, áhrifa-
mesti maður stjórnarflokksins á
eftir forsetanum og flokksformann-
inum. Þeir hafa báðir verið ákærðir
fyrir að hafa þegið mútur til að
greiða fyrir lánunum til Hanbo.
Innanríkisráðherrann er þriðji
ráðherrann sem lætur af embætti
vegna spillingarmála á tæpu hálfu
ári. Fréttastofan Yonhap sagði að
öll ríkisstjórnin gæti þurft að segja
af sér áður en rannsókn málsins
lyki.
Stofnandi Hanbo, Chung Tae-
soo, og tveir bankaráðsmenn hafa
einnig verið handteknir vegna máls-
ins. „Hanbo-hneykslið hefur varpað
ljósi á spillt samband stjórnmála-
og fjármálamanna í landinu," sagði
stjórnarerindreki í Seoul.
Akrópólis-
hæð lokuð
FERÐAMENN sem hugðust
skoða fornminjaraar á Akró-
pólis-hæð í Aþenu, komu að lukt-
um hliðum í gær. Starfsmenn
menningarmálaráðuneytisins
gríska hófu í gær verkfall til að
krefjast hærri launa og afleiðing-
ar þess era þær að fjölmargir
merkisstaðir eru Iokaðir, m.a.
Akrópólis-hæð, en hún er fjöl-
sóttasti ferðamannastaður í
Grikklandi.
Kúgunin í
Burma eykst
London. Reuter.
PÓLITÍSK kúgun og mannréttinda-
brot voru meiri í Burma á síðasta
ári en um margra ára skeið eða
síðan herstjórnin bældi niður mót-
mæli almennings seint á síðasta
áratug. Kom þetta fram í yfírlýs-
ingu frá Amnesty International.
I yfirlýsingunni sagði, að 2.000
manns hefðu verið handtekin á síð-
asta ári fyrir að krefjast mannrétt-
inda og stjórnarandstæðingar væru
skipulega ofsóttir.
„Síðasta ár var það versta í
Burma frá 1990 og þar miðar öllu
aftur en ekki fram,“ sagði í yfirlýs-
ingunni. Þar er minnt á að Aung
San Suu Kyi hefur hvað eftir annað
verið neitað um að fá að yfirgefa
heimili sitt, þrátt fyrir að hún hafi
verið látin laus úr stofufangelsi í
júlí 1995.
Reuter
Áhrif ósongatsins yfir Suðurskautslandiuu
Fábrotin dýr
afmyndast
vegna geislunar
Palmer-stöðinni, suðurskautinu. Reuter.
ÁHRIFA útfjólublárrar geislunar
virðist farið að gæta hjá dýralífi
á suðurskautssvæðinu þar sem
geislun er óvenjumikil vegna
ósongatsins í fjóra mánuði á ári
hveiju. Fóstur krossfiska bera
einkenni afmyndunar og drepast
áður en eggin klekjast út. ígulker
hætta hrygningu og dæmi er um
jurtir sem myndað hafa sérstaka
vörn gegn útfjólublárri geislun.
Vísindamenn velta því fyrir sér
hvort afmyndun plantna og fá-
brotinna dýra af völdum óson-
gatsins sé aðeins forsmekkurinn
og síðar komi að sjálfri mann-
skepnunni.
Rannsóknir bandarískra vís-
indamanna í Palmer-stöðinni á
Anvereyju við Suðurskautslandið
hafa leitt í ljós, að einfaldar dýra-
tegundir sýna einkenni af-
myndunar af völdum útfjólublárr-
ar geislunar. Á það við um svif-
dýr og lindýr, sem dýr ofar í
fæðukeðjunni nærast á. Enginn
þorir að segja til um áhrif þessa,
svo sem á hvali sem lifa á svifdýr-
um og sjófugla sem lifa á skel-
fiski.
Líffræðingar hafa komist að
því, að fóstur sæsnigla og ann-
arra hryggleysingja vaxa óeðli-
lega og afmyndast er þau lenda
í „steypibaði“ útfjólublárra geisla
á vorin. Svífa lirfur í yfirborðslagi,
hafsins í milljónatali þar sem þær
eru auðveld bráð dýra - og geisl-
unar. Fullvaxin virðast dýrin ekki
verða fyrir áhrifum útfjólubláa
ljóssins þar sem þau lifa á miklu
meira dýpi.
Búa til eigin vamir
Sumar lífverur á suðurskauts-
svæðinu hafa brugðisl við geislun-
inni af eigin rammleik og jafnvel
myndað varnir gegn henni. Dæmi
þess efnis er svonefnd perlujurt
sem byrjað hefur á því að fram-
leiða sérstakt litarefni til að veija
sig, og komið hefur í ljós, að nokk-
ur lindýr framleiða nú kjarnsýru
sem drekkur í sig útfjólubláa
geisla og virðist veija dýrin með
sama hætti og sólkrem.