Morgunblaðið - 13.02.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 21
ERLENT
NORÐHVALUR, eða grænlandssléttbakur, getur orðið 70-80 tonn að þyngd og
upp undir 20 metra langur.
Bandaríkjamenn mótmæla hvalveiðum Kanadamanna
Inúítar veiddu hval
í útrýmingarhættu
Stoyanov
boðar til
kosninga
19. apríl
PETAR Stoyanov, forseti
Búlgaríu, tilnefndi í gær ráð-
herra í bráðabirgðastjórn og
boðaði til þingkosninga 19.
apríl. Forsetinn gaf út tilskip-
un um að þingið yrði leyst upp
19. febrúar og skipaði Stefan
Sofianski, borgarstjóra Sofíu,
sem forsætisráðherra. I stjórn-
inni verða einnig nokkrir af
andstæðingum Sósíalista-
flokksins, sem hafði hætt til-
raunum til að mynda nýja
stjórn og fallist á að efnt yrði
til kosninga tæpum tveimur
árum en kjörtímabilinu lyki
eftir 30 daga fjöldamótmæli á
götunum.
Yáhi hyggst
segja af sér
TIIT Váhi, forsætisráðherra
Eistlands, kvaðst í gær ætla
að segja af sér um leið og
samkomulag næðist um mynd-
un meirihlutastjórnar og nýr
forsætisráðherra yrði tilnefnd-
ur. Tillaga um vantraust á
minnihlutastjórn Váhis var
felld naumlega á þinginu á
mánudag og Váhi kvaðst ekki
njóta nægilegs stuðnings til
að geta stjórnað landinu.
Stjórn hans er sú sjötta í Eist-
landi frá því Eystrasaltslandið
endurheimti sjálfstæði sitt árið
1991.
Alarcon
kjörinn for-
seti aftur
FABIAN Alarcon, forseti
þingsins í Ekvador, var kjörinn
forseti landsins í annað sinn á
fimm dögum
í atkvæða-
greiðslu á
þinginu í
gær. Rosalia
Arteaga varð
þá aftur
varaforseti
eftir að hafa
gegnt þjóð-
höfðingja-
embættinu til bráðabirgða
vegna brottvikningar Abdala
Bucarams, sem þingið vék frá
á fimmtudag vegna „andlegr-
ar vanhæfni". Fyrra forseta-
kjörið á þinginu var ógilt og
þingið þurfti að setja ný lög
til að geta kosið Alarcon í
embættið.
Handtaka
vegna óeirða
í Kína
KÍNVERSKA lögreglan hefur
handtekið 29 ára gamlan
mann, sem grunaður er um
að hafa staðið fyrir óeirðum í
borginni Yining í Xinjiang-hér-
aði, sem kostuðu að minnsta
kosti tíu manns lífið í siðustu
viku.
Múslimar eru í meirihluta í
héraðinu og vilja stofna sjálf-
stætt ríki. Kínverska stjórnin
hefur fyrirskipað embættis-
mönnum að berjast gegn að-
skilnaðarsinnunum og hótaði
þeim sem stóðu fyrir uppþot-
unum hörðum refsingum.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti lýsti
því yfír á þriðjudag að sú ákvörðun
kanadísku stjómarinnar að veita
inúítum leyfí til að veiða tvo norð-
hvali á síðasta ári, væri „óviðun-
andi“. Tók hann aftur fyrri ákvörðun
bandarískra stjómvalda að ganga
til viðræðna við Kanadamenn um
að taka upp að nýju viðskipti með
sel og selaafurðir. Hins vegar lýsti
Clinton ekki yfir banni á kanadískar
sjávarafurðir eins og bandarísk
stjómvöld íhuguðu.
Norðhvalur er skíðishvalur af
sléttbaksætt, verður allt að 70-80
tonn að þyngd og getur náð 19
metra lengd. Að sögn Gísla Víkings-
sonar, dýrafræðings á Hafrann-
sóknastofnun, eru tveir stofnar norð-
hvals; í Norður-Kyrrahafí og Norð-
vestur-Atlantshafí. Er fyrmefndi
stofninn þokkalega á sig kominn en
aðeins em nokkur hundruð dýr í
þeim síðamefnda og er hann því
flokkaður sem stofn í útrýmingar-
hættu. Norðhvalur hefur ekki sést
við ísland á þessari öld en_ hann
heldur sig aðallega í Norður-íshafí.
Bandarískir inúítar
veiða úr stofninum
Bandarísk stjórnvöld hafa veitt
inúítum í Alaska leyfí til að veiða
úr Kyrrahafsstofninum, t.d. veiddu
þeir 52 dýr árið 1993. David John-
son, talsmaður Bandaríkjaforseta,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að mótmæli Bandaríkjamanna
væm vegna þess að annað dýranna
sem Kanadamenn veiddu, hefði ver-
ið úr Atlantshafsstofninum, og því
óleyfílegt að veiða það samkvæmt
reglum Alþjóða hvalveiðiráðsins.
Það væri ástæða þess að Banda-
ríkjastjórn hefði ákveðið að grípa
til aðgerða gegn Kanadamönnum.
Hann vildi ekki tjá sig um það hvort
til greina kæmi að beita þá við-
skiptaþvingunum en neitaði því að
ástæða þess að það hefði ekki verið
gert væri sú að það bryti í bága
við alþjóðlega viðskiptasamninga.
Johnson sagði stefnu Bandaríkja-
stjómar í hvalveiðimálum vera þá
að fmmbyggjar mættu veiða úr
stofnum sem væru ekki í útrýming-
arhættu, eins og kvæði á um í regl-
um Alþjóða hvalveiðiráðsins. Ein-
hliða ákvörðun Kánadamanna væri
brot á þessu.
Kafbáta-
vélar til
orkufram-
leiðslu
RÚSSAR kanna nú möguleika á
því að nota kjarnakljúfa úr kafbát-
um til raforkuframleiðslu í landi,
að því er segir í frétt í norska blað-
inu Nordlys.
Rússar telja sig með þessu slá
þijár flugur í einu höggi. Skipa-
smíðastöð flotans í Njerpa gæti ein-
beitt sér að skipasmíði en í þeim
efnum hefði hún ekki undan, ekki
þurfi að útbúa ömgga geymslustaði
fyrir kjarnakljúfana og raforku-
framleiðsla verði jafnari og örugg-
ari.
Samkvæmt afvopnunarsamning-
um era Rússar skuldbundnir til að
taka kafbáta úr notkun og höggva
kjamakljúfa þeirra niður. Sérfræð-
ingar kjarnorkumálaráðuneytisins í
Moskvu telja að komast megi hjá
því að útbúa þeim varanlegan og
geislaheldan legstað með því að
taka þá í notkun í kjamorkuveram.
Muni það koma sér vel því raforku-
framleiðsla sé það ótrygg í norður-
héraðum landsins og rafmagnsleysi
algengt.
Telur sérfræðingur kjarnorku-
ráðuneytisins, að hver kljúfur dugi
til að framleiða rafmagn er svari
þörf 100 þúsund manna byggðar.
Talsmaður norsku umhverfissam-
takanna Bellona segir engan vist-
fræðilegan ávinning af þessum
áformum Rússa. Yrðu þau orkuver,
sem ætlunin væri að reisa, mun
ótryggari en þau sem fyrir eru.
Miklu betra væri ef þeir byggðu
vindmyllur til raforkuframleiðslu.
. Mjög vindasamt væri í norðvestur-
hlutum Rússlands og smíði vind-
mylla, viðhald og eftirlit myndi veita
Qölda manns atvinnu.
IBALENO WAGON 4WD
1
x,
SUZUKI
AFL OG
ÖRYGGl
Prufukeyrðu Suzuki í dag.
Taktu nokkrar beygjur, finndu þcegilegan gír.
Mjúkur og léttur - eins og akstur á ao vera.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf. Laufásqötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf.
Miðási 19, sími 471 20 11. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50.
Fabian
Alarcon