Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 ERLEIMT MORGUNBLAÐIÐ Reuter Föngunum fagnað í Ramallah Aukín spenna og ofbeldis- verk í Mostar Mostar. Reuter. Portúgal Víðtækar breytingar á stjóm- arskránni Málaga. Morgunblaðið. STJÓRN sósíalista í Portúgal og helsta stjórnarandstöðuaflið í landinu, flokkur Sósíaldemókrata (PSD), hafa náð samkomulagi um víðtækar breytingar á stjórnarskrá landsins. Kosningalögum landsins verður breytt, þjóðaratkvæða- greiðslum fjölgað og þingmönnum fækkað. Kjördæmum í Portúgal verður breytt í því skyni að fækka þing- mönnum. Þeir eru nú 230 en verða ekki fleiri en 200 og ekki færri en 180. Ekki er gert ráð fyrir að völd forsetans verði skert. eins og sósíaldemókratar kröfðust í upp- hafí en á hinn bóginn hefur ríkis- stjórnin orðið við þeirri kröfu að brottfluttum Portúgölum verði heimilað að taka þátt í kosningum á landsvísu. Ákvæði um framkvæmd þjöðar- atkvæðagreiðslna verður bætt við stjórnarskrá Portúgal og mun það kveða á um að öll stærri mál sem varða ríkið verði borin beint og milliliðalaust undir fólkið í landinu. Þetta á t.a.m. við endurskoðun á Maastricht-sáttmála aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB). Að öðru leyti munu stjóm og stjórnar- andstaða þurfa að koma sér tíman- lega saman um hvaða málefni skuli bera undir þjóðaratkvæði og við hvaða aðstæður. Þá er gert ráð fyrir að her- skylda verði aflögð í Portúgal að afloknu ákveðnu aðlögunartíma- bili auk þess sem lögum sem varða stjóm herafla landsins verður breytt. Þessi endurskoðun stjómar- skrárinnar er gerð í nafni vald- dreifíngar. Þing Azoreyja og Ma- deira munu fá aukin völd en völd portúgalskra ráðherra munu minnka. Þess er vænst að forsætisráð- herra Portúgal, Antonio Guterres, og leiðtogi PSD, Marcelo Rebelo de Sousa, staðfesti samkomulagið í dag, fímmtudag. ÍSRAELAR slepptu 30 palest- ínskum konum úr ísraelskum fangelsum í fyrrakvöld í sam- ræmi við friðarsamningana við Palestínumenn. Yasser Arafat, leiðtogi palestínsku sjálfstjórn- arsvæðanna, tók á móti flest- um þeirra í Ramaliah en ein þeirra, sem er brasilískur rík- isborgari, var flutt til Brasilíu. Ein til viðbótar var látin laus í gær. Flestum kvennanna var fagnað sem hetjum þegar þær hittu fjölskyldur sínar en nokkrar þeirra kviðu heim- komunni. Þær óttuðust að ihaldssamir ættingjar þeirra myndu líta á fangelsisvist þeirra sem smán fyrir fjöl- skylduna. Á myndinni er einni kvennanna, Rula Abu Dahu, félaga í Þjóðfrelsisfylk- ingu Palestínumanna, fagnað við skrifstofur Arafats í Ra- mallah. SPENNA hefur aukist mjög S Mostar í Bösníu í vikunni og hefur fjölþjóða- her Atlantshafsbandalagsins aukið mjög viðbúnað sinn í borginni. Bryn- vörðum bílum er ekið um götur til að koma í veg fyrir að átök brjótist út og herþyrlur sveima yfír, en of- beldið hefur ekki verið eins mikið frá árinu 1995. Þá hefur símasamband rofnað á milli borgarhluta Króata og múslima. Hatur og tortryggni hefur ríkt á milli Króata og múslima frá því að þjóðirnar börðust í upphafi stríðsins í Bosníu. Þrátt fyrir að þær hafi síð- ar snúið bökum saman, fer því fjarri að gróið hafí um heilt á milli þeirra og það hefur kristallast í Mostar, þar sem Króatar og múslimar búa hveij- ir í sínum borgarhlutanum. Sá hluti sem Króatar byggja er stærri og mun betur farinn en múslimahlutinn og hafa nokkrir múslimar búið í hverfi Króata. Þeim hefur hins vegar vart verið, vært þar, æ fleiri hafa verið reknir frá heimilum sínum og yfír i múslimahlutann. . Ástandið í Mostar versnaði til muna RÚSSNESK stjórnvöld sökuðu Atl- antshafsbandalagið (NATO) og framkvæmdastjóra þess, Javier Sol- ana, um að fylgja fjandsamlegri stefnu gagnvart Rússlandi með því að vingast við stjórnvöld í Moldovu, Georgíu, Armeníu og Azerbajdz- han. Sergej Yastrzjembskí, blaðafull- trúi Borís Jeltsíns Rússlandsforseta, sakaði Solana um „baktjaldamakk“ með för sinni til framangreindra ríkja. Ferðin er farin á sama tíma og Rússar reyna að efla tengsl við þessi fjögur fyrrverandi Sovétlýð- veldi. „Vesturlönd í heild og þó einkum á mánudag, er Króati hóf skothríð á hóp múslima, sem fór í kirkjugarð í hverfí Króata til að votta látnum ást- vinum virðingu sína. Einn maður lét lífíð og um fímmtíu manns særðust í árásinni og stuttu síðar ráku Króat- ar 26 múslima frá heimilum sínum í króatíska borgarhlutanum. Standa ekki við gefin loforð Fulltrúar fjölþjóðaliðsins, sem fylgist með því að friðarsamningnum sé framfylgt, sögðu að fleiri múslim- ar hefðu verið reknir á brott á þriðju- dag og í gær. Króatísk yfirvöld hafa heitið því að múslimamir fái að snúa aftur en hafa ekki sýnt nein merki þess að þeir hyggist standa við það. Engin skýring hefur verið gefín á því hvers vegna símasamband rofn- aði á milli borgarhlutanna en yfír- borgarstjórinn í Mostar, músliminn Safet Orucevic, kennir Króötum um. Króatar hafa neitað þessu og saka lögreglu og almenning í borgarhluta múslima um að hafa gert bifreiðar Króata upptækar, grýtt þær og ráð- ist á bílstjórana. og sér í lagi leiðtogar NATO eru mótfallnir hvers konar stjómmála- eða varnarsamvinnu nýju ríkjanna við Moskvustjómina, ekki síst þegar um það er að ræða að rússnesk stjómvöld eiga fmmkvæðið að auknu samstarfi," sagði Yastrzj- embskí við /nterfax-fréttastofuna. Embættismenn í höfuðstöðvum NATO vísuðu á bug ásökunum Rússa um að Solana hygðist grafa undan samskiptum Moldovu, Ge- orgíu, Armeníu og Azerbajdzhan við Rússland. „Samskipti NATO við ríkin fjögur útiloka ekki Rússa frá samstarfi við þau eða öfugt,“ sagði ónafngreindur embættismaður. Framkvæmdastjóri NATO til Sovétlýðvelda Rússar saka Solana um baktjaldamakk Moskvu. Reuter. ESB bregst við gagnrýni vegna kúariðu Efasemdir um að Þýzkaland uppfylli skilyrði fyrir þátttöku í EMU Bonino yfirmaður matvælaheilbrigðis Brussel. Reuter. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu- sambandsins tilkynnti í gær að hún myndi setja á fót starfshóp fram- kvæmdastjómarmanna, sem hefði það hlutverk að fylgjast með heil- brigði matvæla. Gert er ráð fyrir að Emma Bonino, sem fer m.a. með neytendamá! í framkvæmdastjóm- inni, muni gegna lykilhlutverki við að koma þessum málum í betra horf, en framkvæmdastjómin hefur verið gagnrýnd fyrir að gæta hagsmuna neytenda ekki nægilega í kúariðu- málinu svokallaða. Sjö vísindanefndir ESB, þar á meðal dýralæknanefndin, munu heyra undir starfshóp framkvæmda- stjómarinnar. í honum munu sitja, auk Bonino, Jacques Santer forseti framkvæmdastjómarinnar og fram- kvæmdastjórar landbúnaðar-, iðnað- ar-, heilbrigðis- og vísindamála. Sérstök stofnun, sem á að fylgjast með heilbrigði dýra, verður undir stjóm Bonino. Hún mun einnig hafa yfírumsjón með deild innan fram- kvæmdastjómar, sem á að meta hætt- ur, er geta ógnað heilsu almennings. Innan tveggja mánaða verður nán- ari útfærsla umbótanna innan fram- kvæmdastjómarinnar gerð opinber. Evrópuþingið gagnrýnir Evrópuþingið gagnrýndi fram- kvæmdastjómina og Bretland harð- lega í nýlegri skýrslu um kúariðumál- ið. Því er haldið þar fram að brezk stjómvöld hafí gert alvarleg mistök eftir að vísbendingar komu fram um að kúariða gæti borizt í menn og að framkvæmdastjómin hafi ekki sinnt hlutverki sínu sem skyldi. Skýrslan verður rædd á þinginu 19. febrúar næstkomandi og er hugs- anlegt að fram komi tillaga um van- traust á framkvæmdastjómina. Þingið getur vikið framkvæmda- stjóminni frá. Ákvörðun framkvæmdastjórnar- innar þykir áfall fyrir landbúnaðar- deild hennar, en hún hafði það hlut- verk með höndum að gefa út reglur um aðgerðir, sem áttu að hindra útbreiðslu kúariðu, og fylgjast með framkvæmd þeirra. Deildin hefur verið gagnrýnd fyrir að einbeita sér að því að aðstoða kúabændur en horfa framhjá hagsmunum neytenda. Fjárlagahalli sagður stefna í 3,5% af VLF Bonn, Frankfurt, Brussel. Reuter. VANGAVELTUR um að Þýzkaland muni ekki uppfylla skilyrði Ma- astricht-sáttmálans fyrir þátttöku í Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu (EMU) hafa fengið byr undir báða vængi að undanförnu. Þýzka fjármálaráðuneytið vísar þó á bug fréttum brezka ríkisútvarpsins, BBC, um að fjárlagahalli ársins stefni í 3,5% af vergri landsfram- leiðslu. Samkvæmt Maastricht má hallinn ekki vera meiri en 3%. Þýzkt efnahagslíf hefur orðið fyrir áföllum að undanförnu. í jan- úar voru atvinnulausir 4,66 milljón- ir, en ríkisstjórnin hefur gert ráð fyrir 4,2 milljónum atvinnulausra er hún spáir því að fjárlagahallinn verði 2,9% af VLF. Bókhaldsbrellum beitt? * Hagfræðingar segja að fyrir hveija 100.000, sem bætast á at- vinnuleysisskrá, geti fjárlagahallinn aukizt um 0,1 til 0,16% af lands- framleiðslu. Hagfræðingar, sem rætt er við, spá því flestir að fjár- lagahallinn verði á bilinu 3,3% til 3,5%. Sumir bæta því þó við að senni- lega muni þýzk stjórnvöld, líkt og franska ríkisstjórnin, beita bók- haldsbrellum til að halda hallanum innan tilskilinna marka. Dagblaðið Frankfurter Rund- schau greindi frá því í gær að lífeyr- isskuldbindingar vegna fyrrverandi ríkisstarfsmanna, sem störfuðu hjá póst- og símafyrirtækjum sem ákveðið hefur verið að einkavæða, kynnu að auka mjög á fjárlagahall- ann á næstu árum, en stjórnvöld hefðu á pijónunum áætlun um að fela hallann með því að láta lífeyris- sjóð starfsmannanna fá að láni fé, sem ríkissjóður yrði síðar að greiða. Waigel á móti því að vatna út skilyrðin Sérfræðingar benda á að taki ráðherraráð Evrópusambandsins ákvörðun um að leyfa þátttöku Þýzkalands í EMU þrátt fyrir að það uppfylli ekki Maastricht-skil- yrðin, leiði það af sér að ekki sé hægt að leggjast gegn þátttöku Suður-Evrópuríkja, sem ekki hafa verið þekkt fyrir efnahagslegan stöðugleika. Afleiðingin geti orðið sú að hinn sameiginlegi gjaldmiðill ESB, evróið, verði veikur og njóti lítils trausts á fjármálamörkuðum. Theo Waigel, fjármálaráðherra Þýzkalands, ítrekaði í gær að ekki ætti að hnika Maastricht-skilyrðun- um til um þumlung: „Aðeins þau ríki, sem uppfylla skilyrðin, munu taka þátt í evróinu. Ég mun ekki stuðla að því að stöðugleikaskilyrð- in verði vötnuð út.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.