Morgunblaðið - 13.02.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 23
LISTIR
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Berlín
Stríðsminningar ber
hæst í heimildamyndum
Berlín. Morgunblaðið.
HLUTI Árnesingakórsins í Reykjavík, sem heldur upp á 30 ára
afmæli sitt með tónleikum I Langholtskirkju á laugardag.
Amesingakórinn
með tónleika
í Langholtskirkju
SAUTJANDAI alþjóðlega kvik-
myndahátíðin „Berlinale" í Berlín
hefst í dag. Meira en helmingur
myndanna sem keppa til verðlauna
kemur að þessu sinni frá Evrópu
eða er leikstýrt af Evrópumönnum.
Flestar þeirra verða heimsfrum-
sýndar núna í Berlín og spanna
verk óþekktra leikstjóra sem og ný
verk gamalkunnugra meistara.
Vert er að nefna mynd breska
leikstjórans Richard Attenboroughs
um Ernest Hemmirtgway „In Love
and War“. Handritið er unnið eftir
bók Hemmingways, Vopnin kvödd,
og aðalhluverkin eru í höndum
Söndru Bullock og Chris O’Donnel.
Frá Bretlandi koma tvær aðrar
myndir; „The Engilsh Patient" í
leikstjórn Anthony Minghella og
„Twin Town“ eftir Kevin Allen.
Fimm af tuttugu og fimm þeirra
mynda sem valdar voru til sam-
keppni koma frá Frakklandi. Sigur-
stranglegar teljast nýjasta mynd
Raoul Ruiz „Généalogies d’un
crime“ með stórstjörnunni Cathar-
ine Deneuve og mynd óþekkts leik-
stjóra að nafni Bernard-Henry Levy
„Le jour de la nuit“ þar sem Alain
Delon fer með stærsta hlutverkið.
Bandarískar myndir með
mest aðdráttarafl
Aðeins tvær myndir koma að
þessu sinni frá Austur-Evrópu og
koma báðar frá Póllandi, en voru
þær styrktar af þýskum kvik-
myndaverum á einn eða annan hátt.
Vægi bandarískra mynda er að
venju mikið, alls sex myndir keppa
að þessu sinni um gullna bjöminn
og munu þær án efa verða mesta
aðdráttarafl bíóhúsanna næstu vikur
sem misseri. „Rooswood" í leikstjórn
John Singletown með Jon Voight
og Ving Rahmes í aðalhlutverkum
flallar um blóðbað vegna kynþátta-
haturs er átti sér stað í samnefndum
smábæ í Flórída árið 1922. Þema
nýjustu myndar Spike Lee, „Get on
the Bus“ er kynþáttahatur og kúgun
minnihlutahópa í Bandaríkjum dags-
ins í dag. Bakgrunnurinn er rútuferð
þvert í gegnum Norður-Ameríku þar
sem ferðalangarnir eru á leið til
mótmælafundar í Washington. Enn
ein myndin fjallar um óumburðar-
lyndi og hatur; „The Crucible" í leik-
stjóm Nicholas Hytner sem gerð var
eftir hinu þekkta leikriti Arthurs
Miller Nomaveiðar, sem einnig vann
handritið að myndinni. Jack Nich-
olson leikur forseta Bandaríkjanna
í vísindaskáldsögumynd Tim Burt-
ons „Mars Attacks", sem segir frá
lendingu fjandsamlegra Marsbúa á
jörðinni. Unga stjaman Leonard
DiCaprio fer með hlutverk Rómeós
í nútímauppfærslu Baz Luhrmann á
verki Shakespeares um Rómeó og
Júlíu..
Byrjað með mynd Billie August
Opnurtarmynd hátíðarinnar er
„Smillas Sense of Snow“ í leikstjórn
Billie August eftir samnefndri bók
Peter Hoeg. Bille August vann í tvö
ár að gerð myndarinnar og er sýn-
ingin í Berlín jafnframt heimsfrum-
sýning. Fyrir utan ungfrú Smillu
er einungis ein dönsk mynd í úr-
vali samkeppnismynda „0en i fug-
legaden“ eftir Sören Kragh-Jacobs-
en sem fjallar um sögu ungs pilts
er flúði úr Varsjár-gettóinu og finn-
ur seinna föður sinn sem hann taldi
látinn. Einmitt þetta efni er gegn-
umgangandi í flokki heimildar-
mynda. Ungir leikstjórar leggja sitt
af mörkum við að leita uppi fólk
sem lifði af hörmungar síðari heims-
stytjaldar og festa minningar þeirra
á filmu meðan enn gefst tími til.
Gyðingar segja okkur sögu lífs sins
sem í raun er aldrei hægt að segja
til enda.
í flokki bíómynda ungra leik-
stjóra segja tíu myndir frá hlut-
verkaskiptingu kynjanna hjá ungl-
ingum nútímans í Bandaríkjunum
og enn fleiri fjalla um vandamál
ungs fólks í dag, um leit hinnar
svokölluðu X-kynslóðar að hlutverki
sínu í heimi sem fátt hefur upp á
að bjóða.
Friðrik Þór í Berlín
Friðrik Þór Friðriksson er vænt-
anlegur til Berlínar til að vera við-
staddur sýningu Djöflaeyjunnar
komandi föstudag. Myndin var valin
í hóp mynda ungra evrópskra kvik-
myndagerðarmanna sem virðast í
auknum mæli fást við spurningar
fortíðarinnar.fást við spurningar
fortíðarinnar.
ÁRNESINGAKÓRINN í
Reykjavík heldur upp á 30 ára
afmæli sitt með tónleikum í
Langholtskirkju, laugardaginn
15. febrúar kl._16.
Sljórnandi Árnesingakórsins
er Sigurður Bragason, ein-
söngvarar Signý Sæmundsdótt-
ir sópran og Þorgeir Andrésson
tenór og undirleikari Bjarni Þ.
Jónatansson. Auk Árnesinga-
kórsins koma fram; Karlakór-
inn Fóstbræður stjórnandi Árni
Harðarson, Selkórinn undir
sljórn Jóns Karls Einarssonar,
Skólakór Kársness, sem Þórunn
Björnsdóttir stjórnar og Kór
Kvennaskólans i Reykjavík und-
ir sljórn Sigurðar Bragasonar.
Kórarnir munu syngja hver í
sínu lagi og síðan sameiginlega.
Árnesingakórinn í Reykjavík
var stofnaður 14. febrúar 1967
og var fyrsti stjómandi kórsins
Jónas Ingimundarson. Kórinn
hefur farið í nokkrar söngferð-
ir út fyrir landsteinana og gefið
út tvær hljómplötur og einn
geisladisk.
Nokkrir stjórnendur hafa
komið við sögu kórsins, þeir
sem lengst hafa starfað era;
Þuríður Pálsdóttir, Guðmundur
Ómar Óskarsson, Hlín Torfa-
dóttir og Sigurður Bragason
sem er núverandi söngstjóri og
hefur hann stjórnað kóraum frá
1988.
Vegna breytinga á lagerhúsnæði seljum við
þessa vikuna takmarkað magn af ýmsum Siemens
heimilistækjum á sérstöku afsláttarverði.
Hláturtauqakitlandi oq skotsilfursparandi tilboö
á ýmsum eldunartækjum, kæliskápum, frystiskápum,
frystikistum, uppþvottavélum, þvottavélum, þurrkurum,
litlum raftækjum, sjónvarpstækjum, myndbandstækjum,
hljómtækjum, útvarpstækjum og símtækjum.
Nú geturðu gert veruleqa qóð kaup.
Gríptu gæslna meðan hún gefst.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 511 3000
Láttu sjá þig. Við tökum vel á móti þér.
Sprenqhlæqileqt verð á frvstikistum og kaffivél fylgir með í kaupbæti.
Allir þeir sem kaupa fyrir meira en 50.000 kr. lenda í potti.
Mánudaginn 17. febrúar verður dreginn út einn heppinn
vinninashafi og eignast hann alæsileaan Siemens þurrkara
(WT 61000FG) að andvirði 63.500 kr.