Morgunblaðið - 13.02.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 25
LISTIR
ímyndanir
MYNPLIST
Nýlistasafnið
GRYFJA OGGANGUR -
HUGMYNDALIST
Joris Rademaker. Opið alla daga frá
14-18. Til 16. febrúar. Aðgangur
ókeypis.
JORIS Jóhannes Rademaker er
Hollendingur sem hefur verið bú-
settur á Akureyri frá árinu 1991.
Myndkennaranám, Tilburg, og nám
við Akademie voor Kunst en Ind-
ustrie, Enschede, málaradeild og
grafík. Starfar sem myndmennta-
kennari við Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar. Var gestakennari við Mynd-
listaskólann í þijá mánuði 1993 og
hefur einnig verið stundakennari
við Verkmenntaskólann 1995-’96.
Rademaker rekur nýlistahúsið
Gallerí + á Akureyri ásamt Pálínu
Guðmundsdóttur. Hefur haldið
ýmsar minni einkasýningar, þar af
tvær í Hollandi 1987 og 1988 og
mun sýningin í Forsal og Gryfju
Nýlistasafnsins vera veigamesta
framlag hans á vettvanginum,
framdi einnig gjörning á staðnum
opnunardaginn, en af honum hef
ég litlar spurnir.
Rýnirinn sá sýnishorn af athöfn-
um Rademakers á listavettvangi í
Glugganum á göngugötunni á Ak-
ureyri sumarið 1995, en þar voru
á ferð þessar undarlegu og bernsku
þrykk og skapalónsfígúrur, sem eru
einnig uppistaða sýningarinnar í
báðum sölunum.
Hér er víst komið dæmi um mann
sem fær einhveija ákveðna og af-
markaða flugu í höfuðið sem hann
heldur fram og fjölfaldar í síbylju
og verður að viðvarandi áráttu,
jafnframt skjalfestu kennimarki.
Þannig hefur hann veggfóðrað allan
endavegg Gryíjunnar með sautján
þúsund tvö hundruð og áttatíu fíg-
úrum. Ferlið leiðir hugann rétt að-
eins að ameríska málaranum Keit
Haring, en er mun einhæfara og
að auki einungis í svarthvítu og
mjög í ætt við iðnaðargrafík. Þá
er meira um hreina hugmyndafræði
að ræða, einhveija tegund hug-
myndafræðilegra endurtekninga og
naktrar rýmishyggju.
Joris bregður út af hinu stranga
ferli í myndaröðinni „Án titils“, sem
samanstendur af 36 myndum
fijálsrar óformlegrar tjáningar. Þar
er svörtu litadufti og vatni blásið á
pappír svo að úr verða ýmis konar
tilbrigði á fletinum. Þetta eru mun
lífmeiri myndir og gefa til kynna
að Joris er gæddur ágætri fagur-
fræðilegri kennd og auðsæ er mark-
viss þjalfun að baki vinnubragð-
anna. Á stundum minna myndirnar
á óravíddir himingeimsins með
stjörnuþyrpingum, sprengingum og
svartholum, en mestu varðar að
formin loða við myndflötinn, lifa
sínu eigin lífi.
Pallur og Súm-salur
ÍMYNDAÐIR VINIR
Guillermo Gelín, Hans Höfer, Leon
Faucher, Lou Salóme, Paul H. Ew-
erlöf, Teodóra Midjörd, Tricia
Mcmillan.
ÞAÐ er skrítinn gjörningur, sem
fram fer á Palli, þótt hann sé mjög
í anda þess sem maður rekst hvar-
vetna á í listhúsum nýlista erlendis,
og er mjög vinsæll í Fjöltæknideild-
um listaskóla. Guillermo Gelín sýnir
litljósmyndir frá Kúbu og spyr gest-
inn: „Finnur þú fimm villur?“ Tekið
er fram, að hann ber sama nafn
og kúbversk byltingarhetja, hvað
svo sem það viðkemur list hans eða
nýlistum yfirhöfuð.
Hans Höfer,1965 í Bandaríkjun-
um, er með blikkkassa og býður skoð-
anda að kíkja ofan í sjóngler á honum
miðjum, en ekkert sá rýnirinn svo
sennilega var útbúnaðurinn óvirkur
eða kannski heldur rýnirinn, nefnist
þetta „málverk" 400x400 sm.
Léon Faucher, 1965 í París, er
með eitt lítið málverk með svörtum
og brúnum punktum, gráum og
fjólubláum línum. Tekið er fram að
hann er litblindur.
Lou Salomé, 1967 í Sviss, sýnir
k XsX'JI
'k %
FÍGÚRUMYNSTUR Joris
Jóhannesar Rademakers.
heilan og hálfan sirkil á vegg sem
frambera heilan og hálfan hring.
Skírð eftir rússneskri aðalskonu
sem Friedrich Nietzche vildi sem
eiginkonu.
Paul H. Ewerlöf, 1965 í Noregi,
hefur formað aflangt kassaform
með skúffu úr pappa. Tekið er fram
að hann afplánar nú 16 ára dóm.
Teodóra Midjörd, 1968 í Færeyj-
um, býr í Danmörku, á verk sem
hún nefnir „Vinir“ og er gert úr
tveimur handsápum, tilraunaglasi,
vatni, byijun á keltneskum út-
skurði. Er fjarskyld William Heine-
sen.
Tricie McMillan, 1960-1994 á
Englandi bjó í New York. Hún er
með nokkur spakleg skilaboð til
gesta á uppfestum hvítum blöðum.
Things are rough. People are
worried...
Ekki getið hvort hún sé skyld
Harold McMillan. í SÚM-sal er svo
sértækur gjörningur. Upp við súl-
una á palli er ónýt baðvog á gólfi
og hér geta menn fengið upplýsta
ranga þyngd á sér, til hliðar á súl-
unni er svo hæðarmælir og þar
geta menn mælt sína réttu hæð
fari þeir úr skónum og sokkunum.
Hvorum megin ganga svo fimm
ferhyrnd borð út úr veggjunum þijú
fyrir miðjum endavegg. Undir gleri
á þeim eru svo númeruð fingraför
í yfirstærð.
Engar nánari útskýringar eru á
gjörningunum en í sýningarskrá eru
hugleiðingar á ensku enda munu
menn tvítyngdir þar í bæ og út-
lenskir vindar kveina þar í kring.
Bragi Ásgeirsson
Köttur
á heitu
blikkþaki
NÆSTA frumsýning í Þjóðleik-
húsinu verður á Stóra sviðinu og
er það leikrit Tennesse Williams
Köttur á heitu blikkþaki. Leik-
myndin er nú komin í hús og
æfingar vel á veg komnar. Frum-
sýning er fyrirhuguð um mánaða-
mótin.
Leikendur í Ketti á heitu blikk-
þaki eru Baltasar Kormákur,
Margrét Vilhjálmsdóttir, Erling-
ur Gíslason, Helga Bachmann.
Halldóra Björnsdóttir, Valdimar
Örn Flygenring, Sigurður Skúla-
son og Randver Þorláksson.
Nokkur börn koma fram í sýn-
ingunni og skiptast átta börn á
um þau hlutverk. Einnig leikur
Deborah Dagbjört Blyden.
Ljósahönnuður er Björn B.
Guðmundsson, höfundur leik-
myndar og búninga er Axel Hall-
kell. Guðlaug María Bjarnadóttir
er aðstoðarmaður leikstjóra en
sýningarstjóri er Jóhanna Norð-
fjörð. Birgir Sigurðsson þýddi
verkið, Guðmundur Pétursson
semur tónlist. Leikstjóri er
Hallmar Sigurðsson.
AÐSTANDENDUR leikritsins Köttur á heitu blikkþaki.
Gamanleikur
eða dramatík?
LEIKLIST
Leyndir draumar
GLÆPUR OG GLÆPUR
eftir August Strindberg. Islensk þýð-
ing: Einar Bragi. Leiksljóri: Inga
Bjarnason. Leikarar: Alfreð Hall-
dórsson, Gísli Heimisson, Guðjón
Oskarsson, Guðrún Ágústsdóttir,
Ingibjörg Helga Amþórsdóttir, Júlia
Hannam, Kristján E. Engilbertsson,
Lise Tarkiainen, Reynir Sigurðsson,
Sighvatur Sigfússon, Sigrún
Tryggvadóttir, Þóra Sigurðardóttir
og Orn Ágúst Guðmundsson. Sviðs-
mynd og búningar: Áslaug Leifsdótt-
ir. Ljósahönnun: Geir Magnússon.
Ljósamaður: Gústav Hannesson.
Tæknimaðm-: Þórarinn Leifsson.
Smiður: Sigurður Gunnarsson. Leik-
munir: Lisa Tarkiainen. Aðstoð:
Hrafnhildur Hafberg og Ingibjörg
Sigurðardóttir. Hvislari: Margrét
Guðbergsdóttir. Höfðaborgin
8. febrúar.
LEYNDIR DRAUMAR er nafn
á leikfélagi áhugamanna sem á
rætur sínar að rekja til ársins 1992
en hefur starfað undir þessu nafni
síðastliðin tvö ár og sett upp tvær
ágætar leiksýningar. Sérstaklega
var eftirminnileg fyrsta uppfærsla
leikfélagsins á leiksmiðjuverkinu
Magdalenu sem hópurinn setti upp
vorið 1994. Um vorið og á haust-
mánuðum 1995 sýndi hópurinn
leikritið „Mitt bælda líf“ sem leik-
ararnir skrifuðu sjálfir ásamt Hlín
Agnarsdóttur og tókst þeim einnig
ágætlega upp þar.
Segja má að hópurinn færist
núna meira í fang en áður þegar
þau setja upp leikverk Augusts
Strindbergs, Glæpur og glæpur.
Verkið kallast gamanleikur en
fjallar engu að síður um háalvarleg
og dramatísk málefni. Þau málefni
sem liggja verkinu til grundvallar
snerta siðferðislega ábyrgð manns-
ins gagnvart náunga sínum, tog-
streita skyldu og langana er í
brennidepli svo og spurningar um
eðli ástarinnar. Verkið er að mörgu
leyti sjálfsævisögulegt og hefur
mikla dramatíska spennuvídd.
Það verður að segjast eins og
er að hópurinn á bak við Leynda
drauma réð illa við þetta verk.
Sérstaklega vantaði heilstæðan stíl
á sýninguna. Ef áherslan átti að
vera á hið gamansama mistókst
sú ætlun, að undanskildum fáein-
um atriðum, og ef dramatíkin átti
að vera í fyrirrúmi tókst leikurum
ekki heldur að ná þeim þunga sem
slík áhersla krefst. Nú verður að
sjálfsögðu að taka tillit til þess að
hér er um áhugafólk að ræða og
því ekki hægt að gera sömu kröfur
til leiks og hjá atvinnumönnum.
Engu að síður verður ekki hjá því
komist að benda á ýmsar misfellur
sem ekki er hægt að skrifa alfarið
á áhugamennskuna. Til að mynda
var langt í frá að leikarar kynnu
textann sinn og hafði hvíslarinn
nóg að gera stóran hluta sýningar-
innar. Þetta á að sjálfsögðu ekki
við alla leikarana, sumir kunnu
sína rullu vel. Þar má nefna Reyni
Sigurðsson, sem leikur aðalhlut-
verkið, Maurice leikritaskáld.
Hann hikstaði ekki á textanum og
skemmtilegt var hvernig gervi
hans minnti á Strindberg ungan.
Reynir átti hins vegar í nokkrum
vandræðum með það sem ég tiltók
hér að ofan; sjaldnast var ljóst
hvort túlkun hans miðaði að hinu
dramatíska eða hinu gamansama.
Júlía Hannam var í hlutverki
Henriette, ástkonu hans, og stóð
hún sig yfirleitt með ágætum. Þóra
Sigurðardóttir var afslöppuð í hlut-
verki frú Cathérine og virtist hag-
vön á sviðinu. Hún var sannfær-
andi í hlutverkinu þótt hún ætti í
nokkrum vandræðum með textann
þegar líða tók á sýninguna. Örn
Ágúst Guðmundsson leikur Ad-
olphe listmálara, vin Maurice, og
þrátt fyrir sterka nærveru á sviði
var hann langt í frá tilbúinn á
frumsýningu. Hlutverk Adolphes
er nokkuð stórt og mikilvægt og
Örn Ágúst hafði ekki nema brot
af texta hans á hreinu.
Guðrún Ágústsdóttir lék lítið
hlutverk barnsmóður Maurice og
gerði hún vel í byijun en náði
kannski ekki vel að túlka harm
móðurinnar eftir lát barnsins. Ingi-
björg Helga, sem lék litlu stúlk-
una, dóttur Maurice, stóð sig með
prýði.
Guðjón Óskarsson, í hlutverki
prests, Gísli Heimisson, í hlutverki
verkamanns, Kristján Engilberts-
son, í hlutverki yfirþjóns, og Alfreð
Halldórsson, í hlutverki lögreglu-
manns lögðu allir kómíska áherslu
í leik sínum og tókst þeim ágæt-
lega upp hveijum og einum, en þó
var túlkun þeirra stundum eins og
á skjön við þá dramatísku fram-
vindu sem átti sér stað á sviðinu.
Enn og aftur er hér um óvissan
stíl sýningarinnar að sakast, sem
hlýtur að skrifast annars vegar á
hlut leikstjórans og hins vegar á
reynsluleysi leikaranna í heild.
Sviðsrými Höfðaborgarinnar var
ágætlega nýtt og búningar Áslaug-
ar Leifsdóttur voru fallegir. Lýsing
Geirs Magnússonar og Gústavs
Hannessonar var einnig vel unnin.
Að mörgu leyti er hér metnaðar-
full sýning á ferðinni en kannski
hefur hópurinn tekist of mikið í
fang með þessu verkefnavali. Eða
þurft a.m.k. dálítið lengri æfinga-
tíma.
Soffía Auður Birgisdóttir
Barnaskóútsala
Inniskór frá 490 c m o V A r* ' biéu hÚSi
kuldaskór frá 1990 P*UCtOJS.UL v/Fákaten
)
HUGFÉIAO AKUREYRAR
1937 1997
FLUGLEIDIR Sl
Traustur íslenskur ferðafélagi
í tilefni 60 ára flugafmælis bjóða Flugleiðir
6.000 kr. afslátt af verði allra pakkaferða* ÚT í HEIM'97
í 6 daga til laugardagsins 15. febrúar.
Söluskrifstofur Flugleiða eru opnar
laugardaginn 15. febrúar tilkl. 16.
‘Afslátturinn bætist cklti við afsláttartilboð í ferðabæklingum Fluglciða.