Morgunblaðið - 13.02.1997, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
GUÐSVEINN
BJÖRGVIN
ÞORBJÖRNSSON
+ Guðsveinn
Björgvin Þor-
björnsson fæddist á
Skrauthólum á
Kjalarnesi 14.
september 1915.
Hann lést í Hafnar-
firði 31. janúar síð-
^ astliðinn. Foreldar
nans voru Þorbjörn
Ásbjörnsson og
Oddrún Bergþórs-
dóttir. Guðsveinn
átti fjögur systkini
Guðrúnu, Bergþór,
Sigurð og Jónu.
Þau eru öll látin.
Guðsveinn kvæntist Ólöfu
Kristjánsdóttur frá Þingeyri í
Dýrafirði 7. nóvember 1942.
Foreldrar hennar voru Kristján
Tómasson og Jóna Bjarnadótt-
ir. Guðsveinn og Ólöf eignuðust
þijú börn: 1) Gunnar Órn, f.
3.8. 1943, sem kvæntur er
Helgu Guðmundsdóttur, f. 20.7.
n» 1942. Gunnar á fjögur börn,
Má, f. 15.2. 1963, Björk, f. 10.4.
1964, Díönu, f. 13.9. 1972, og
Fídel Helga, f. 11.7. 1973. 2)
Oddrún, f. 19.9. 1945, gift Gesti
Guðnasyni, f. 20.4.
1944, og eiga þau
þijú börn, Guðsvein
Ólaf, f. 25.12. 1965,
Helgu, f. 7.4. 1968,
og Lóu Björgu, f.
28.3. 1974. 3) And-
vana fætt barn 24.5.
1964. Guðsveinn
átti fimm barna-
börn.
Guðsveinn starf-
aði í lögreglunni í
Hafnarfirði í mörg
ár en síðan hjá
Pósti og síma í
Reykjavík. Guð-
sveinn vann mikið að íþrótta-
málum í Hafnarfirði. Hann
gekk ungur til liðs við Knatt-
spyrnufélagið Hauka og varð
einn af forvígismönnum þess
og var m.a. formaður þess í
um 20 ár. Hann var gerður
heiðursfélagi 1956. Guðsveinn
og Ólöf bjuggu í Hafnarfirði
til 1966 er þau fluttu til Reykja-
víkur.
Utför Guðsveins fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Það er með söknuði en um leið
kæru þakklæti fyrir ómetanlegt
starf og hollustu sem við Haukafé-
lagar kveðjum gamla foringjann
okkar Guðsvein Þorbjörnsson sem
nú er allur, liðlega áttræður að
aldri. Hann var jafnan nefndur
' Vaðir Hauka“ í hópi eldri félaganna
sem þekktu best til frumheijans og
endurreisnarmannsins Guðsveins.
Það var ekki að ástæðulausu, því í
þau nær 66 ár sem félagið hefur
starfað, var Guðsveinn Þorbjörns-
son í forystu og fylkingarbijósti í
nær fjóra áratugi, þar af formaður
Hauka í samtals tvo áratugi, eða
lengur en nokkur annar.
Guðsveinn kom til liðs við Hauka
aðeins örfáum mánuðum eftir að
félagið var stofnað. Hann var líkt
og stofnfélagarnir þrettán rétt um
fermingaraldur, en þessir strákar
vissu hvað þeir vildu og ætluðu
sér. Þetta var alvörufélag sem var
komið til að vera. Sá draumur hef-
ur sannarlega ræst, því nú þegar
frumheijinn kveður stendur félagið
hans styrkum fótum í hópi fremstu
og stærstu íþróttafélaga landsins.
Þessi staðreynd gladdi gamla for-
ingjann svo sannarlega, og glæstir
sigrar styttu honum stundir. Hann
fylgdist alla tíð vel með gengi fé-
lagsins, las íþróttasíður blaðanna
af miklum áhuga og lét ekkert fram
hjá sér fara sem viðkom gamla
góða félaginu.
Þegar Guðsveinn gekk til liðs við
Hauka haustið 1931 var ljóst að
þar hafði góður félagi bæst í hóp-
inn. Hann lét fljótt að sér kveða í
forystunni, en var ekki síður liðtæk-
KRISTÍN
JÓNSDÓTTIR
+ Kristín S. Jóns-
dóttir fæddist á
Kletti í Geiradal,
A-Barðastrandar-
sýslu, 11. nóvember
1917. Hún lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
5. febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Jón Einarsson,
bóndi á Kletti, og
Pálína Ólafsdóttir.
’ Bróðir hennar var
Einar Jónsson, bak-
arameistari á Akur-
eyri, f. 14. september 1909, d.
12. desember 1994.
Frá'fimm ára aldri ólst Krist-
ín upp hjá föðursystur sinni,
Þórdísi Einarsdóttur, og manni
hennar Ólafi Ófeigssyni í Kefla-
vík. Uppeldissystkin hennar
voru Bragi, Ásgeir, Halldóra
Látin er á Akureyri kær frænka,
Kristín Jónsdóttir, föðursystir mín.
"^Lát hennar kom ekki á óvart þar
sem hún hafði átt við mikla van-
heilsu að stríða nokkur síðustu ár.
Samt er það nú þannig að alltaf
kemur rót á hugann þegar náinn
ættingi kveður og leita þá fram
minningar um liðna tíð. Fyrstu
minningar mínar um Stínu frænku,
_»eins og ég kallaði hana alltaf, eru
þegar ég fór með foreldrum mínum
í fyrsta sinn til Reykjavíkur, en
og Vilborg Ólafs-
börn, þau eru öll
látin.
Kristín giftist
Sigurði Kristjáns-
syni, fyrrum kaup-
félagssljóra hjá
Kaupfélagi verka-
manna og bókara
hjá vélsmiðjunni
Odda síðari æviár,
f. 1. maí 1900, d. 4.
febrúar 1982. Krist-
ín og Sigurður eign-
uðust eina dóttur,
Helgu, f. 15. des-
ember 1951, starfar
á rannsóknarstofu FSA. Barna-
börn Kristínar eru tvö, Kristín,
f. 17. nóvember 1981, og Hauk-
ur, f. 30. nóvember 1984, Sig-
urðarbörn.
Utför Kristínar verður gerð
frá Akureyrarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
þar bjó hún þá, og fannst mér
mikið til um þessa frænku, sem
þá var nýlega komin frá Ameríku
úr námi í snyrtifræðum. Síðan
höguðu örlög því þannig að hún
flutti með manni sínum til Akur-
eyrar og bjó þar alla tíð síðan. Þar
bjó þá þegar bróðir hennar, faðir
minn. Samskipti þessara tveggja
litlu fjölskyldna urðu mjög mikil.
Byggð voru hús með svipuðu sniði
í Mýrunum, þegar ungamir voru
flognir úr báðum hreiðrum minnk-
MINNINGAR
ur leikmaður bæði í knattspyrnu
og handknattleik. Hann var einn
forvígismanna þess að Haukar tóku
að æfa handknattleik strax á vetr-
ardögum árið 1932, fyrst íþróttafé-
laga hérlendis. Leikinn höfðu þeir
strákarnir lært hjá leikfimikennur-
unum Valdimar Sveinbjörnssyni í
Flensborgarskólanum og síðar Hall-
steini Hinrikssyni.
Handboltinn átti hug strákanna
allan og þeir náðu fljótt góðum tök-
um á leiknum. Þegar fyrsta íslands-
mótið í handknattleik hófst hérlend-
is á vordögum 1940, mættu Haukar
að sjálfsögðu til leiks bæði í karla-
og kvennaflokki, sem var þá tiltölu-
lega nýstofnaður. Guðsveinn var
þá nýtekinn við sem formaður fé-
lagsins og leiddi starfíð af miklum
krafti. Bæði liðin voru í fremstu röð
og áttu eftir að fagna glæstum sigr-
um á næstu árum. Guðsveinn varð
íslandsmeistari ásamt félögum sín-
um árið 1943 og stelpurnar urðu
margfaldir meistarar og nánast
ósigrandi um og uppúr miðjum
fímmta áratugnum. Þetta voru gull-
aldarár Hauka og það mæddi mikið
á formanninum unga sem var alls
staðar í fylkingarbijósti, bæði innan
sem utan vallar.
Þegar leið fram á sjötta áratug-
inn fór að halla undan fæti hjá fé-
laginu. Eldri félagar fóru að heltast
úr lestinni og fáir nýir félagar komu
til starfa. íþróttastarfið var í lág-
marki. Guðsveinn, sem hafði stofn-
að fjölskyldu og snúið sér að öðrum
störfum, sá að við svo búið mátti
ekki standa. Hann kom aftur til
starfa fyrir félagið sitt, tók við for-
ystunni að nýju ákveðinn í að
byggja starfið upp frá grunni. Hann
hóaði saman fjölda stráka og byij-
aði að þjálfa þá í handknattleik.
Þetta voru strákarnir hans Guð-
sveins, löngum kallaðir, sem lögðu
grunninn að endurreisn félagsins. Á
aðeins örfáum árum tókst Guð-
sveini og aðstoðarmönnum hans að
byggja upp öfluga yngri flokka hjá
félaginu og treysta allar undirstöð-
ur til framtíðar. Strákarnir hans
Guðsveins stofnuðu fyrstu formlegu
deild félagsins, handknattleiks-
deildina, í lok sjötta áratugarins og
skömmu síðar var knattspyrnan
einnig komin aftur á fulla ferð.
Guðsveinn sagði síðar meir að þetta
hefðu verið sín skemmtilegustu ár
hjá Haukum, að endurnýja og end-
urreisa allt íþrótta- og félagsstarfíð.
Að þessu kraftmikla átaki Guð-
sveins býr félagið enn í dag, því
strákarnir hans Guðsveins, sem nú
eru komnir á miðjan aldur, hafa
verið og eru enn í dag, lykilmenn
í forystu og starfsemi félagsins. Það
er ekki hægt að minnast Guðsveins
án þess að hún Lóa hans komi við
sögu, svo samrýnd voru þau hjónin
í öllu starfí og leik. Ekki síst fyrir
félagið sitt. Haukar voru ekki síður
félagið hennar Lóu. Ólöf Kristjáns-
dóttir sá um alla keppnisbúninga
Hauka í áratugi og það var eftir
því tekið hvað leikmenn liðsins voru
ætíð í samstæðum og snyrtilegum
búningum. En það mæddi margt
fleira á þeim hjónum, því um ára-
tugaskeið áttu Haukar sitt höfuð-
vígi á heimili þeirra heiðurshjóna.
Haukar senda eftirlifandi ætt-
ingjum Guðsveins og Lóu samúðar-
kveðjur og þakka þeim hjónum fyr-
ir ómetanlegt starf. Án þeirra fram-
lags og þrautseigju væri alls óvíst
hvort félagið okkar væri til í dag,
hvað þá eitt af öflugustu íþróttafé-
lögum landsins.
Aðalstjórn Knattspyrnufé-
lagsins Hauka.
Það var frekar létt yfír mönnum
á haustmánuðum í fyrra þegar við,
nokkrir af „strákunum hans Guð-
sveins“, heimsóttum hann á heimili
sonar hans til að gleðjast með hon-
um í tilefni áttræðisafmælis hans.
Guðsveinn var þá nokkuð farinn
heilsu en var að öðru leyti hress
og glaður. Hann var með allt á
hreinu hvað varðaði Haukana, hafði
engu gleymt. í huga okkar, sem
vorum 10-12 ára strákar á árunum
1955-60 og tókum þátt i endurreisn
félagsins, var Guðsveinn Ieiðtoginn,
faðir Haukanna. Af óþijótandi elju
og áhuga tókst honum að vekja
félagið af Þyrnirósarsvefni. Hann
fylgdist síðan með vexti þess og
viðgangi af miklum áhuga eftir að
hann dró sig í hlé frá félagsstörfum.
Uppgangur félagsins nú hin síðustu
misseri gladdi Guðsvein mjög. í dag
á kveðjustundu koma mörg minn-
ingarbrot upp í hugann, t.d. frá
árunum þegar við 12 ára gamlir
tókum handboltaæfingar á sunnu-
dögum fram yfír bíóferð og ekki
nóg með það heldur var ekið í lokuð-
um kassabíl frá Hafnarfírði inn á
Hlíðarenda þar sem stóri bróðir
Haukanna, Valur, átti íþróttahús
með alvöru mörkum. Við borguðum
1 krónu og 75 aura fyrir farið.
Guðsveinn var þá þjálfarinn og við
uppskárum vel síðar.
Já, það var gaman að vera til á
þessum árum. Guðsveinn var þá
potturinn og pannan í nánast öllu
er snerti Haukana. Hann ræktaði
með okkur trú og tryggð við félag-
ið. í dag má sjá þess glögg merki
í félaginu hve samkennd félags-
manna er mikli. En nú er dagur
að kveldi kominn og Guðsveinn far-
inn, saddur lífdaga.
Við stöndum í mikilli þakkar-
skuld við Guðsvein og samheija
hans er stóðu að stofnun og fram-
gangi félagsins á sínum tíma.
Farðu í friði, kæri vinur, og megi
félagið okkar dafna um ókomna tíð.
Bjarni Hafsteinn Geirsson.
Ástkær afí okkar er látinn og í dag
kveðjum við hann í hinsta sinn. Afí
var mikill fjölskyldumaður og bar
alla tíð hag fjölskyldunnar fyrir
brjósti. Hann fylgdist alltaf með
hvað við barnabörnin höfðum fyrir
stafni og hvert leið okkar lá í líf-
inu. Afi var mikill baráttumaður og
benti okkur oftar en einu sinni á
að maður yrði að hafa fyrir hlutun-
um ef manni ætti að miða eitthvað
áfram. Alltaf var gaman að fará í
heimsókn til afa, í hvert skipti sem
við komum inn fundum við alltaf
hlýju og ánægju yfir að við værum
komin til að heimsækja hann. Stutt
var í stríðnina hjá afa og auðvelt
var að koma honum til að hlæja.
Afi fylgdist mikið með íþróttum,
hann var mikill Haukamaður og
vissi nánast allt um Haukana og
þá sérstaklega handboltann. Afí
varð líka alveg himinlifandi þegar
eitt af okkur (Lóa) spilaði knatt-
spymu með Haukum eitt sumar.
Nú á síðustu árum afa fór hann
sjaldan á fætur nema þá er rík
ástæða þótti til og var það þá jafn-
an þegar Haukarnir voru að keppa.
Ef hann komst ekki á fætur urðum
við að hringja til að segja honum
hvernig leikar fóru.
Afí skilur eftir sig stórt skarð í
lífi okkar og munum við sakna hans
mikið en afi var hvíldinni feginn
eftir mikla baráttu við veikindi og
vitum við að amma hefur tekið vel
á móti honum í Guðs ríki.
Guðsveinn (ÓIi), Helga og
Lóa Björg.
MARÍA
JÓNSDÓTTIR
uðu báðar fjölskyldur við sig hús-
næðið og fluttu þá systkinin bæði
með maka sína í Lundahverfið,
þannig að enn var stutt að hlaupa
á milli húsa. Og mikinn stuðning
höfðu þær hver af annarri móðir
mín og hún þegar báðar voru orðn-
ar ekkjur.
Margs er að minnast frá
æskuárunum á Akureyri og sam-
skiptum mínum við Stínu frænku
og fjölskyldu hennar. Alltaf var
gaman að koma í Engimýri 14 og
spennandi að fá að kíkja í kjallar-
ann þar sem Sigurður maður
hennar hafði sína „smíðakompu".
Ófá trémyndaspil og fleiri
skemmtilega hluti með máluðum
myndum, fengum við systur í jóla-
gjafir og við ýmis önnur tæki-
færi. Eða hvað það var skemmti-
legt þegar hún kom í heimsókn í
Kringlumýrina, því hún hafði ein-
stakt lag á að segja skemmtilega
frá mönnum og málefnum. Ekki
gleymast heldur boðin á „gener-
alprufumar“ í samkomuhúsinu
þar sem við systur sátum skjálf-
andi af spennu undir kynngimögn-
uðum krafti Skugga Sveins og
fleiri þjóðkunnra persóna ís-
lenskra leikrita, þar nutum við
skyldleikans við hana. Nú, gaml-
árskvöldin góðu þegar fjölskyld-
urnar gengu upp á klappir til að
sjá nýja ártalið birtast í Vaðlaheið-
inni. Svona mætti lengi telja. Fyr-
ir það allt og þann hlýhug sem
hún sýndi mér og mínu fólki alla
tíð vil ég nú fyrir hönd fjölskyld-
unnar þakka af alhug. Helgu
Kristínu og Hauki vottum við
dýpstu samúð.
Hvíl í friði.
Þórdís Einarsdóttir.
+ María Halla
Jónsdóttir
fæddist á Akureyri
20. ágúst 1941. Hún
lést í Fjórðungs-
sjúkahúsinu á Ak-
ureyri 2. febrúar
1997. Foreldar
Mariu voru Gefn
Geirdal og Jón Ingi-
marsson. Þau eru
bæði látin. Systkini
Maríu eru Hekla,
Hreiðar, Hólmfríð-
ur, Ingimar og Saga.
Eftirlifandi eiginmaður
Maríu er Árni Veigar Stein-
grímsson, bóndi á Ingvörum í
Svarfaðardal. Börn: Edda
Björk Valgeirsdóttir, Jón
Hreinn Svavarsson, Jón Víking-
ur Árnason, Saga Árnadóttir,
Birkir Árnason, Börkur Árna-
son og Sigrún Árnadóttir.
Útförin fór fram frá Dalvík-
urkirkju 11. febrúar síðastlið-
inn.
Sunnudagskvöldið 2. febrúar
barst hingað suður sú fregn að
vinkona okkar, María Jónsdóttir,
væri dáin. Dauðinn er grimmur
þegar hann hrifsar svo til fyrir-
varalaust vini á brott. Ráðleysi og
reiði voru fyrstu viðbrögð. I sorg
okkar töluðum við um Maju, þessa
fallegu, greindu og skemmtilegu
konu sem við þekktum sem margra
barna móður og bóndakonu á Ing-
vörum í Svarfaðardal.
Okkur finnst við
vera staddar í eldhús-
inu á Ingvörum. Árni
snýst í kringum okkur
og býður stöðugt mat
og drykk — ekkert er
of gott fyrir gesti.
Maja stendur við kaffi-
könnuna, kát og glöð.
Þvotturinn og brauð-
baksturinn mega bíða,
nóg er nóttin. Umræð-
urnar eru fjörugar; frá
pólitík og verkalýðsbaráttu yfir í
bókmenntir. Inn á milli sögur og
skrítlur af sjálfum okkur og öðrum
sveitungum. Maja veit mest. Ein-
hvern veginn er hún búin að lesa
flestar jólabækurnar, fylgjast með
öllum markverðum útvarpserind-
um og engar fréttir úr dagblöðun-
um hafa farið fram hjá henni.
Húmor og innilegur hlátur ein-
kenna samræðurnar. Úti lemur
febrúarhríðin bæina í Svarfaðardal
en við erum heimspekingar, lista-
menn og bóhemar á frönsku veit-
ingahúsi. Á Ingvörum er alltaf
veisla.
Allar minningar okkar um Maju
eru fullar af ljósi og það ljós mun
þegar lengra frá líður verða
skugga dauðans yfírsterkara.
Elsku Árni og börn. Við sendum
ykkur innilegar samúðarkveðjur.
Júlíana Lárusdóttir,
Ingibjörg Hjartardóttir.