Morgunblaðið - 13.02.1997, Side 52
RS TPPr JÍAfHmsrí f.r HTIOéUmWra
52 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Einn kjúklingnr
mettar átta manns
Við gleymum því stundum að við búum á
íslandi, segir Kristín Gestsdóttir, sem var
farin að halda að við fengjum snjólausan
vetur sunnanlands.
NU HEFUR Vetur konungitr
blásið allhressilega um okkur ís-
lendinga. Upp að húsi mínu ligg-
ur um 150 m langur akvegur
með tijágöngum á báða vegu.
Hann er svo fullur af snjó þegar
þetta er skrifað 8. febr, að engum
er fært nema fuglinum fljúg-
andi. Ekki finnst mér snjórinn
leiðinlegur, hvítur og fallegur
eins og hann hefír verið undan-
fama daga, en hann veldur nú-
tíma manni sem háður er bflnum
ómældum erfíðleikum. Þegar ég
dró frá eldhúsglugganum í morg-
un og sólin var nýkomin upp
blöstu við mér hinir fegurstu
skaflar - á þriðja metra að hæð.
Ég dreif mig í samfestinginn og
fór út til að njóta dýrðarinnar
og tímdi varla að stíga niður
fæti til þess að skemma ekki
þennan fallega snjó. Þegar leið
að hádegi mættu bamabömin á
staðinn. Þau vom alveg laus við
tilfínningasemi gagnvart snjósk-
öflunum og þrifu skóflur og grófu
út skaflana af miklum móð. Eitt-
hvað þurfti að gefa þeim í svang-
Sveppakjúklingur
'/«soðinn kjúklingur
1 msk. smjör + 2 msk. matarolía
200 g ferskir sveppir
1 lítill laukur
'h græn paprika
1 dós Campbell’s sveppasúpa
2 dl kjúklingsoð
fersk steinselja
________10 Ritzkexkökur_______
________75grifinnostur,_______
_____sú tegund sem þið eigið__
Hreinsið sveppina og skerið í sneið-
ar. Gott er að skera sveppi með
eggjaskera. Hreinsið papriku og
lauk, og saxið. Setjið mataroliu og
smjör í pott, setjið þetta allt út í
og sjóðið við hægan hita í 3-5 mín-
útur.
Setjið innihald súpudósarinnar
út í ásamt 2 dl af kjúklingsoðinu.
Setjið síðan kjúklingabitana út í.
Klippið steinselju og setjið út í.
Hellið í eldfasta skál.
inn þegar þau komu inn ijóð, þreytt og banhungmð, en amma hafði þá búið til tvo gómsæta ofnrétti úr einum ekki mjög stór- um kjúklingi sem hún átti þídd- an. Þessi eini kjúklingur mettaði 5 börn og 3 fullorðna. Ýmislegt fleira en kjúklingurinn fór í rétt- ina enda oftast eitthvað til í búri Kreistið Ritz-kexið með hnefan- um og stráið yfír ásamt osti. Bakið við 200°C í 10-15 mínútur. Meðlæti: Heitt brauð. Púrrukjúklingur y« soðinn kjúklingur
1 msk. smjör + 2 msk. matarolía
og kæliskáp á mínu heimili. 1 meðalstór púrra (blaðlaukur)
Kjúklingurinn soðinn 'h græn paprika
1 dós Campbeil’s sellerísúpa eða
1 kjúklingur, 1.150 g önnur tegund
’/«lítri vatn 2 dl kjúklingasoð
1 tsk. salt fersk steinselja
6 piparkom 10 Ritzkexkökur
1 iítil gulrót 75 g rifinn ostur,
1 lítill laukur sú tegund sem þið eigið
leggir af ferskri steinselju Kljúfíð púrruna, látið kalda vatnið
Setjið vatn, salt og piparkorn í pott
og látið sjóða.
Hreinsið gulrót og lauk, skerið í
3-4 bita og setjið út í ásamt stein-
seljuleggjum.
Takið kjúklinginn í sundur: Sker-
ið læri og vængi frá, kljúfíð bringu
og skerið bak frá. Setjið bitana og
beinin í pottinn og sjóðið í um 45
mínútur. Takið þá kjúklinginn úr
soðinu, kælið örlítið, fjarlægið bein
og ham, en skerið kjötið í litla
bita. Síið soðið.
þvoið vel. Skerið í sneiðar. Hreinsið
papriku og skerið í litla bita. Setjið
matarolíu og smjör í pott og sjóðið
grænmetið við hægan hita í 3-5
mínútur. Setjið kjúklingasoð, inni-
hald súpudósarinnar út í ásamt
kjúklingabitunum og klipptri stein-
selju. Hellið í eldfasta skál.
Kreistið Ritzkexið með hnefanum
og stráið yfír ásamt osti. Bakið við
200°C, í 10-15 mínútur.
Meðlæti: Heitt brauð.
SKAK
llmsjón Marjjeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á opna
mótinu í Ubeda á Spáni í
janúar. Amador Rodrigu-
ez (2.555) frá Kúbu, hafði
hvítt og átti leik, en
Slobodjan Kovacevic
(2.420), Júgóslaviu, var
með svart. Ef
svartur nær að
leika Rd7—e5
hefur hann
trausta stöðu, en
Kúbumaðurinn
leyfði það ekki:
26. Bh6+!! -
Kxh6 27. Dh4+Í?
(27. He7! var ívið
nákvæmara. Þá
er svartur óveij-
andi mát í fimmta
leik) 27. - Kg7
28. He7+ - Hf7
29. Hxf7+ -
- Ke8 31. Bxg6+ - Kd8
32. Dg8+ - Ke7 33. Df7+
og svartur gafst upp því
hann er mát í næsta leik.
Skákþing Kópavogs hefst
í kvöld kl. 19.30 í félags-
heimili Taflfélags Kópa-
vogs, Hamraborg 5, 3.
hæð. Tefldar verða sjö
umferðir á þriðjudags- og
fímmtudagskvöldum.
Skráning er á mótsstað frá
kl. 19.
Kxf7 30. Dxh7+
HVÍTUR leikur og vinnur.
Með morgunkaffinu
Ást er...
koss&r í bónus.
TM R#0 U-S Pw 0«. — ■! ftflhu ra<«rvsd
(c) 1997 Los Angsies lunes Syndcsis
HEYRÐU! Farðu burt
kvikindið þitt.
MÉR hefur Iiðið alveg
ágætlega síðustu vikur.
Hvað heldurðu að sé
að mér?
HANN eyðir svoiítið
miklu, en ég þarf ekki
lengur að slást við menn
um bílastæði.
VELVAKANDI
Svarar í síma 5691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Tapað/fundið
Göng’uskór
töpuðust
GORITEX-gönguskór,
grænir, töpuðust í Sund-
lauginni í Garðabænum.
Skilvís fínnandi vinsam-
lega hafí samband í
síma 565 7008 eða skili
skónum í sundlaugina.
Leðurbakpoki
tapaðist
SVARTUR lítill leður-
bakpoki tapaðist aðfara-
nótt sunnudags á Dub-
liner. I töskunni voru
skilríki og annað per-
sónulegt. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í símum 551
2675, 533 1850 eða skili
töskunni á Dubliner.
Hálsmen
tapaðist
HÁLSMEN með blóð-
steini og kínastaf úr
gulli í silfurkveðju, tap-
aðist 10. febrúar á leið-
inni Meistaravellir, Há-
skólinn, leið 11, Kringl-
an, Grensásvegur. Skil-
vís finnandi vinsamlega
hafíð samband í síma
552 0151.
Dýrahald
Kvenfinka
óskast
KVENFINKA óskast.
Upplýsingar í síma 587
6413.
Pennavinir
ÞÝSKUR frímerkja-
safnari vill skiptast á
merkjum við íslenska
safnara:
Giinther Petersen,
Legienstr. 13,
D-25348
Gliickstadt,
Germany.
TUTTUGU og fjögurra
ára Ghanastúlka með
áhuga á ferðalögum,
bókmenntum og ljós-
myndun:
Rosemary Dadzie,
P.O. Box 1176,
Oguaa Town,
Ghana.
TUTTUGU og fimm
ára japönsk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Naomi Ishiguro,
A-203, 109, Midor-
igaoka 3 chome,
Tottori-shi,
680 Japan.
FINNSK 24 ára stúlka
með áhuga á listmálun,
siglingum, stangveið-
um, útreiðum og íþrótt-
um:
Nina Rajala,
Muurainpolku 15,
23500 Uusikau-
punki,
Finland.
FRÁ Ghana skrifar 28
ára stúlka með áhuga
á matseld, ferðalögum,
íþróttum, tónlist o.fl.:
Benedita Kingston,
P.O. Box 415,
Oguaa,
Central Region,
Ghana.
SEXTÁN ára finnsk
stúlka með áhuga á
bókmenntum, bréfa-
skriftum, frímerkjum
og tónlist:
Suui Uutela,
Heusantie 4,
85340 Jyrinki,
Finland.
Víkveiji skrifar...
EGAR mjög slæmt veður gekk
yfír höfuðborgarsvæðið í síð-
ustu viku gerðist það í skóla einum,
að ákveðið var að þau börn sem
ættu að mæta í skólann eftir há-
degi gætu verið heima. Víkveiji á
frændsystkin, 7 og 9 ára, sem
ganga í sama skóla. Hún er yngri
og mætir í skólann fyrir hádegi, en
stóri bróðir eftir hádegi.
Þennan óveðursdag fór litla syst-
ir í skólann eins og venjulega. Hins
vegar varð ljóst, þegar líða tók á
morguninn, að skólastarfið eftir
hádegi var í upplausn. Stóri bróðir
var því kominn í „óveðursfrí“. Nú
er það svo, að systkinin búa í næstu
götu við skólann og fundu lítið fyr-
ir veðrinu. Stóri bróðir ákvað samt
að fara á móti litlu systur um há-
degið og slóst vinur hans í för með
honum.
xxx
VIÐ skólann svipuðust félagam-
ir um eftir litlu systur, en
skyndilega kom kennari að þeim,
kippti þeim inn fyrir dymar og hóf
langa ræðu um að þeir ættu ekkert
að vera að þvælast út úr skólanum
í þessu veðri. Kennarinn ávarpaði
vin stóra bróður röngu nafni og
furðaði sig á þvi hvernig hann hefði
„sloppið út“ úr skólanum.
Frændi Víkveija tautaði sífellt í
barm sér: „Þetta er á misskilningi
byggt. Þetta er á misskilningi
byggt," en ekkert dugði. Brátt höfðu
safnast saman nokkrir kennarar,
sem allir töldu hina mestu fásinnu
að piltamir fæm aftur út í óveðrið.
Endaði með því að þeim var vísað
til kennslustofu.
XXX
LEIÐ nú og beið, en ioks náðu
þeir félagarnir eyrum kennara
og útskýrðu, að þeir hefðu nú bara
rölt úr næstu götu til að fylgja litlu
systur heim. Kennarinn sagði, að
það væri víst best að þeir færu á
skrifstofuna og fengju að hringja
heim, svo ekki væri óttast um þá.
Þessu hlýddu þeir fegnir.
Á skrifstofunni tók vingjarnlegur
ritari á móti þeim og vísaði þeim á
síma. Þeir stóðu við símann og
ætluðu að hringja þegar skólastjór-
inn kom að þeim og spurði þá að
erindi. Yfirkomnir af feimni gátu
þeir ekki stunið upp orði og þá sagði
skólastjórinn að réttast væri að
þeir snem aftur til skólastofunnar.
Þeir hlýddu.
Kennarinn í skólastofunni furðaði
sig á því hve fljótt þeir hefðu lokið
erindi sínu. Frændi Víkveija sagði
þá söguna af skólastjóranum. Kenn-
arinn brosti og sagði að það hlyti
að vera erfitt að vera svona feim-
inn. „Já,“ svaraði frændinn af innlif-
un, „og ekki nóg með það, heldur
er ég líka rosalega myrkfælinn."
Eftir að kennarinn hafði tryggt
að þeir fengju að hringja heim sátu
þeir félagarnir áfram í kennslustof-
unni. Dvöl þeirra varð alls fjórar
stundir, en þá kom rúta að skólan-
um til að aka börnum heim í þessu
vitlausa veðri. Þrátt fyrir að frænd-
inn og félagi hans ættu heima í
næstu götu þurftu þeir að sitja í
rútunni á meðan ekið var um allt
hverfið og vom það heldur niðurlút-
ir piltar sem voru síðustu menn út
úr bílnum.
xxx
AÐ er hins vegar af litlu systur
að segja, að hún hafði ekki
hugmynd um hremmingar þær, sem
stóri bróðir og félagi hans lentu í
þegar þeir ætluðu að vera svo herra-
legir að fylgja henni heim. Hún
skoppaði sjálf þessa örfáu metra
heim. Þegar hún var við tröppurnar
heima hjá sér mætti hún mömmu
vinkonu sinnar, en sú ætlaði að
ganga út í skóla að ná í afkvæmið
í ofsaveðrinu. Frænka Víkveija
gerði sér lítið fyrir og skoppaði aft-
ur út í skóla að ná í vinkonuna og
heim á ný.