Morgunblaðið - 13.02.1997, Side 61
morgunblaðið
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 61*
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
MYMDBOMP
Barist í gaggó
Steinakast
(Sticks and Stones)________
Gamanmynd
★ '/j
Framleiðandi: Goldbar Entertain-
ment. Leikstjóri og handritshöf-
undur: Neil Tolkin. Kvikmynda-
taka: Avi Karpick. Tónlist: Hummie
Mann. Aðalhlutverk: Justin Isfeld,
Gary Busey og Kirstie Alley. 90
mín. Bandarikin. Goldbar Internati-
onal/Bergvík 1997. Útgáfudagur:
11. febrúar.
TILFINNINGAR unglinga og
vandamál í sambandi við einelti
og ofbeldi er efni þessarar mynd-
ar. Eldri strákur
í skólanum eltir
sífellt og lumbrar
á Joey, Mouth og
Book. Þeir vilja
bara spila
hafnarbolta í
friði, því hann
sameinar þessa
þrjá ólíku drengi.
Að lokum er leik-
urinn svo langt genginn að Mouth
nær í byssu móður sinnar, og þeir
vinirnir huga á alvöru hefndir. Það
getur verið erfitt að vaxa úr grasi;
vera alltaf minnstur, hallærisleg-
astur og aumastur. Þessi mynd
býr yfir atriðum sem sýna fram á
það, oft á ansi átakanlegan hátt,
og minnumst þá ekki ógrátandi á
greyið hann Book. Verst er að
vondi strákurinn í myndinni er
alls ekkert ógnandi. Hann er vart
stærri en þeir vinir, og í raun
gætu þeir eflaust ráðið við hann.
Ahorfandinn á því erfitt með að
setja sig inn í ótta þeirra félaga.
Persónusköpunin er mjög raunsæ
og vel unnin í heildina, þótt þeir
virðist fara eitthvað út af laginu
undir lokin. Strákarnir eru smelln-
ir og skila sínu með prýði. Það
verður þó að segjast að Kirstie
Alley er langbesti leikarinn í
myndinni, þótt hlutverk hennar
sé ekki stórt. Þetta er á allan
hátt laglega unnin sjónvarps-
mynd, að tónlistinni undanskilinni
sem er í hallærislegri kantinum.
Það hefði þurft frekar töff tónlist
fyrir unglingana, sem myndu þá
eflaust fíla þessa ágætu mynd enn
betur.
Hildur Loftsdóttir.
MYNDBÖIMD SÍÐUSTU VIKU
Lokadanslnn
(LastDance) ★'A
Nótt hvifllvindanna
(The Night of the Twisters) ★ ★
Auga fyrir auga
(EyeforanEye) -kVi
Innrásardagurinn
(Independence Day) ★ ★ ★
Hr. Hörmung
(Mr. Wrong) ★ ★lA
Enskir
bananar
álslandi
NÆSTA sumar hefjast tökur á
myndinni Sweet Bananas eftir
kvikmyndaleikstjórann og hand-
ritshöfundinn Einar Þór Gunn-
laugsson. Hann hefur fengið til liðs
við sig hina þekktu leikkonu Sadie
Frost sem fer með aðalhlutverið í
myndinni en Sadie þekkja sjálfsagt
margir úr mynd Francis Ford
Coppola, „Bram Stoker’s Dracula“.
Þar átti hún góðan leik sem hin
vergjarna Lucy, besta vinkona
Mínu, sem Winona Rider lék.“
„Við sendum henni handritið af
,,Sweet Bananas" og fengum strax
jáyrði frá henni. Ég fór síðan og
hitti hana í London í fyrravor. Það
verður mjög spennandi fyrir mig
að vinna með henni því hún er ein-
staklega fjölhæf leikkona en
undanfarið hefur hún verið að
vinna með bæði sérlega góðum og
efnilegum leikstjórum."
Einar Þór, sem upphaflega ætl-
aði að gera íslenska mynd, lenti í
þeirri klemmu að illa gekk að afla
fjár til myndarinnar. Hann breytti
því handritinu með tilliti til alþjóð-
legra aðstæðna og hefur gengið
mun betur síðan.
SADIE Frost fer frá Coppola
til Einars Þórs Gunnlaugssonar.
Hann er í samstarfi við Focus
Films í London við gerð myndar-
innar sem verður alþjóðleg fram-
leiðsla. Hin ýmsu fyrirtæki hvað-
anæva að leggja peninga í púkkið
og er íslenska kvikmyndasam-
steypan fulltrúi íslands. „Myndin
gerist ekki endilega á íslandi þótt
hún verði öll tekin upp hér,“ segir
Einar Þór, „leikararnir verða ensk-
ir og myndin er öll á ensku. Fólk
á öllum aldri ætti að hafa gaman
af þessari mynd.“ Myndin er í létt-
um dúr og ijallar um blinda stúlku
sem verður ástfangin af bófa. Sam-
an lenda þau svo í stanslausum
ævintýrum á flótta undan réttví-
sinni.
Amerískar fléttimottur.
OVÍRKA
Mörkinni 3, s. 568 7477.
rv-'.n
AFSAKANIR
Skráðu mögutegar afsakanir
fyrir því að rækta ekki heilsuna.
Ákveddu siðan hvernig þu
ætlar að sigrast á þeim.
Faxafeni • Langarima • Skipholti
Safnaöu 5 hollráðúm og þú fœrö 1000 kr.
afslátt af þriggja mánaöa kortum i Mætti
og Gatorade brusa og duft frá Sól hf.
Fjölskyldumðl
(A Family Thing) ★ ★ ★
Sólarkeppnín
(RacetheSun) ★‘/2
Engln undankomulelð
(No Exit)
Lelðin að gullna drekanum
(The Quest) ★ ★
Lífhvolfið
(Bio-Dome) Vi
Háskalelkur
(The Final Cut) ★
Loforðið
(Keeping the Promise) ★ ★*/2
Ráðgátur: Tunguska
(TheX-fíles: Tunguska) ★★'/2
Vopnahléið
(NothingPersonal) ★★★'/2
Undur í djúpum
(Magic in the Water) ★ ★
Þú vclur
l'onctl
Súpu eða salat
-----mmam—
Léttsteiktan lambavöðva
eða
kjúklingabringu með
villisveppasósu
eöa
fískfang dagsins
eða
grænmetislasagne
-----mmimm—
Hnetumousse
eða
kaffí og sætindi
Ogauðvitað
hallá eftir