Morgunblaðið - 13.02.1997, Síða 64
<Q>
*
AS/400 er...
...með PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
<Q> NÝHERJi
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 669 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTl 1
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sameiginlegar kröfur
ASI kynntar á morgun
SAMKOMULAG hefur náðst í öll-
um meginatriðum á milli landssam-
banda innan Alþýðusambandsins
um sameiginlega launastefnu í við-
ræðunum við atvinnurekendur og
um kröfur á hendur stjómvöldum
í tengslum við gerð kjarasamninga.
„Við ljúkum þessari vinnu á
föstudaginn og munum þá koma
niðurstöðunni á framfæri. Um er
að ræða mál, sem snúa að stjórn-
völdum, og væntanlega samræmda
.*js>ýn á kröfugerðina að öðm leyti,“
segir Grétar Þorsteinsson, forseti
Alþýðusambandsins.
Forystumenn landssamband-
anna komu saman með sérfræðing-
um ASÍ síðdegis í gær til að ræða
sameiginlegar áherslur í kjaramál-
um. Landssambönd iðnaðarmanna
féllust á fundum í gær og fyrra-
kvöld á að taka upp sambærilegar
áherslur í launamálum og Verka-
mannasambandið og iðnverkafólk
hafa lagt til, þar sem krafist verði
hækkunar lægstu launa í 70
"þús. kr. og að færa taxta að veru-
legu leyti að greiddu kaupi, sam-
kvæmt heimildum blaðsins.
í kröfugerð á hendur ríkinu er
megináhersla m.a. lögð á þriggja
þrepa tekjuskatt, lækkun tekju-
tenginga ýmissa bótagreiðslna og
jöfnun lífeyrisréttinda. Einnig verð-
ur farið fram á að skattur af ið-
*
VMSI vill færa þriðjung bónus-
greiðslna inn í taxtana
Morgunblaðið/Kristinn
FORYSTUMENN landssambanda ASÍ komu saman síðdegis í
gær til að fara yfir sameiginlegar áherslur í kjaramálum. Björn
Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, Guðmundur Þ. Jónsson, for-
maður Landssambands iðnverkafólks, og Gylfi Arnbjörnsson,
hagfræðingur ASÍ, bera saman bækur sinar.
gjöldum til stéttarfélaga verði af-
numinn, átak verði gert í starfs-
og endurmenntunarmálum, lækkun
gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu og
lækkun lyfjakostnaðar.
60 kr. af bónus verði
færðar inn í taxta
Fulltrúar VMSÍ kynntu vinnu-
veitendum í gær útfærðar hug-
myndir um launabreytingar í fisk-
vinnslunni, þar sem lagt er til að
um þriðjungur bónusgreiðslna, eða
um 60 krónur á tímann, verði færð-
ur yfir í dagvinnutaxta en það
myndi jafnframt leiða til umtals-
verðrar hækkunar á yfirvinnukaupi
og hugsanlega á öðrum álags-
greiðslum fiskvinnslufólks, sem
reiknaðar eru út frá dagvinnukaupi.
Atvinnurekendur hafa þessar til-
lögur nú til skoðunar en leggja
áherslu á að þessi breyting leiði
ekki til kostnaðarauka fyrir fisk-
vinnsluna, skv. heimildum Morgun-
blaðsins. Reiknað er með að vinnu-
veitendur svari tillögum VMSÍ á
fundi sem haldinn verður í dag en
niðurstaða þessara viðræðna er
talin skipta mjög miklu máli um
hvort tekst að koma kjaraviðræðum
á almenna vinnumarkaðinum í full-
an gang.
■ VMSÍ vill/33
Skriðufall
úr Pétursey
Mann-
hæðarhá
björg 100
metra frá
húsinu
MIKIL skriða féll úr fjallinu
Pétursey í Mýrdal í gær og
stöðvuðust mannhæðarhá
björg aðeins um 100 metra frá
íbúðarhúsinu á bænum Eystri-
Pétursey, sem stendur undir
fjallinu.
„Mér fannst ég heyra þrumu,
leit út um gluggann og sá þá
björgin koma veltandi niður
hlíðina," segir Siguijón Eyjólfs-
son, bóndi á Eystri-Pétursey.
Hann segir að hrunið hafi
úr klettabelti ofarlega í fjallinu,
sem er úr móbergi, um 275
metra hátt. „Það er grasi gróin
hlíð alveg upp að hömrunum,
en björgin hafa rifið grasþekj-
una upp á 30-40 metra breiðum
kafla og sums staðar stungizt
djúpt niður í jörðina," segir
Siguijón.
Að hans sögn kom minni
skriða úr fjallinu fyrir tveimur
árum, en hún féll vestar og
gijótið var ekki í líkingu við
björgin, sem nú komu niður.
Skriðan skemmdi ekki tún fyrir
Siguijóni og bæði fólk og fén-
aður sluppu með skrekkinn.
Niðurstaða erlendrar úttektar
fyrir fyrirtæki á smásölumarkaði
- Stofnun korta-
fyrirtækis fýsi-
legur kostur
STOFNUN nýs greiðslukortafyrir-
tækis er mjög fýsilegur kostur,
samkvæmt niðurstöðu erlendrar
úttektar á möguleikanum á þvi, en
úttektin er unnin fyrir nokkur
stærstu fyrirtæki á smásölumarkaði
i_/iér á landi. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var niðurstaðan,
sem unnið hefur verið að undan-
farna mánuði, kynnt fulltrúum fyr-
irtækjanna á fundi í vikunni og kom
fram að þetta er fýsilegur kostur
hvort heldur sem um er að ræða
séríslenskt kort eða alþjóðlegt kort,
sem gefið yrði út í samstarfi við
einhveija erlentjg keðju sem þegar
er starfandi. Á næstu vikum mun
ráðast með hvaða hætti verður stað-
ið að framhaldinu.
Forsaga málsins er sú að á und-
^ráömum misserum hafa nokkur
stærstu fyrirtæki á smásölumarkaði
hér á landi, þar með talin öll olíufé-
lögin, matvörumarkaðir og bygg-
ingavörufyrirtæki, kannað mögu-
leika á því að stofna nýtt greiðslu-
kortafyrirtæki. Ástæðan er
óánægja með þjónustukostnað sem
fyrirtækin þurfa að greiða greiðslu-
jjjkortafyrirtækjunum hér, sem eru
alfarið í eigu bankanna.
Ákveðið var fyrir nokkrum mán-
uðum að fá erlenda ráðgjafa til
þess að yfirfara möguleikana á því
að þessi fyrirtæki stofni og reki
eigið sameiginlegt greiðslukorta-
fyrirtæki. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er niðurstaða út-
tektar erlendu sérfræðinganna sú
að ekkert sé til fyrirstöðu stofnun
slíks greiðslukortafyrirtækis, enda
ætti það að geta náð til verulegs
hluta þeirrar veltu sem er á smá-
sölumarkaði. Ekkert er tæknilega
því til fyrirstöðu og raunar kemur
fram að tækninni í þessum efnum
hefur fleygt fram á undanförnum
mánuðum. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins kom margt á óvart
í þeim efnum í skýrslu erlendu ráð-
gjafanna.
Segja banka ónauðsynlegan
Jafnframt kemur fram að banka-
stofnun er ónauðsynleg til reksturs
slíks fyrirtækis og hægt yrði að
notast við banka erlendis, ef vilji
væri til þess að banki tengdist fyrir-
tækinu.
Þá má benda á að olíufélögin eru
með 20-30 þúsund eigin greiðslu-
kort í gangi hjá viðskiptavinum sín-
um, sem hægt er að nota á stöðvum
þeirra hvers um sig.
Morgunblaðið/RAX
Snjónum sópað af vængjunum
BANDARÍSK herflugvél af
gerðinni C-130 Hercules kom við
á Reykjavíkurflugvelli í fyrra-
dag til að taka eldsneyti á leið
sinni frá Italíu til Bandaríkj-
anna. Áður en hún hélt för sinni
áfram vestur um haf í gærdag
þurfti bandarískur hermaður að
sópa snjó af vængjunum eins og
sést á þessari mynd. Miklum
snjó kyngdi niður á höfuðborg-
arsvæðinu aðfaranótt miðviku-
dags, en það fór ekki framhjá
borgarbúum þegar þeir lögðu
af stað til vinnu sinnar.