Morgunblaðið - 19.02.1997, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
_______________________________VIÐSKIPTI
Áríð 1996 varð hið besta í sögu Iðnlánasjóðs
Hagnaðurinn nær
þrefaldaðist á árinu
IÐNLÁNASJÓÐUR
skilaði alls um 427
milljóna króna hagnaði
á síðasta ári borið sam-
an við 159 milljóna
hagnað árið 1995.
Þessi stórbætta af-
koma skýrist einkum
af mikilli aukningu á
allri starfsemi án þess
að aukning hafi orðið
á rekstrarkostnaði,
auk þess sem dregið
hefur úr þörf framlags
í afskriftareikning út-
lána.
Bragi Hannesson,
forstjóri Iðnlánasjóðs,
segir að árið 1996 hafi
verið hið besta í sögu sjóðsins,
hvernig sem á það sé litið. „Iðnlána-
sjóður hefur á undanfömum árum
verið að vinna mikið í sínum skipu-
lagsmálum, markaðsmálum,
stefnumótun og gæðastjórnun.
Þennan árangur má að hluta til
rekja til þessara aðgerða, auk þess
sem ég þakka hann mjög góðu og
áhugasömu starfsfólki."
Þá benti Bragi á að
mikil gróska hefði ver-
ið í vöruþróunar- og
markaðsdeildinni, því
fyrirtækin hefðu unnið
af krafti við að hanna
vömr og markaðssetja
þær.
Hreinar rekstrar-
tekjur jukust um 179
milljónir milli ára, eða
um 28%. Rekstrar-
kostnaður að frátöld-
um rekstrarkostnaði
fullnustu eigna var alls
115 milljónir á árinu,
sem er í fullu samræmi
við áætlun frá því í
ársbyijun. Hlutfall
rekstrarkostnaðar af heildarfjár-
magni var 0,66% á árinu, en var
0,7% árið áður. Stöðugildi í sjóðn-
um em 21 talsins.
Framlag í afskriftareikning út-
lána var alls um 114 milljónir á
árinu 1996, en árið áður var það
231 milljón. Stendur afskriftareikn-
ingurinn í 766 milljónum sem er
um 4,6% af útlánum og ábyrgðum.
Eigið fé sjóðsins nam alls um
3.574 milljónum og hefur vaxið um
16% á árinu. Þá var eiginQárhlut-
fall samkvæmt BlS-reglum 26,1%.
Arðsemi eiginQár var 13,7% á ár-
inu, en 5,5% á árinu áður. Nánari
upplýsingar um afkomu og stöðu
sjóðsins er að finna á meðfylgjandi
korti.
Vaxtamunur
lækkar
Vaxtamunur sjóðsins minnkaði
verulega á síðasta ári og er nú
1,88%, en var 2,37% árið 1995.
Er útlit fyrir að vaxtamunurinn
muni enn lækka á þessu ári og
segir Bragi að miðað við núverandi
forsendur bendi allt til þess að
hægt sé að ná 10% ávöxtun á eig-
ið fé með 1,5% vaxtamun.
Iðnlánasjóður tók langtímalán á
árinu 1996 að fjárhæð 2.168 millj-
ónir, en þar af voru lán í erlendum
myntum að fjárhæð 1.741 milljón,
en á innlendum markaði að fjárhæð
427 milljónir. Hafa ekki fengist
hagstæðari kjör í annan tíma.
A árinu voru veitt ný lán að fjár-
Bragi
Hannesson
(Q) IÐNLÁNASJÓÐUR
Rekstrarafkoma 1996
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Breyting
Vaxtatekjur 1.449 4.152 0%
Vaxtaqjöld 950 977 -3%
Hreinar vaxtatekjur 499 475 5%
Aðrar rekstrartekiur 312 157 99%
Hreinar rekstrartekjur 811 632 28%
Önnur rekstrargjöld 227 205 11%
Framlag í afskriftareikning 114 231 -51%
Skattar 43 37 16%
Hagnaður tímabilsins 427 159 169%
Efnahagsreikningur Miiijónir króna 31/12 '96
1 Eianir: \
Sjóður og bankainnstæður 152
Útlán 15.909
Markaðsverðbráf og eingnarhluti í fál. 1.316
Aörar eignir 130
Samtals eignir 17.507
1 Skuldir oq eiqid fé: 1
Lántaka 13.867
Aðrar skuldir 66
Eigið fé 3.574
Skuldir og eigið fé samtals 17.507
hæð 3.184 milljónir. Mikil aukning
varð í veitingu vöruþróunarlána og
voru ný lán veitt að fjárhæð 246
milljónir, en 30 milljónir árið áður.
Samtals námu ný útlán sjóðsins að
meðtöldum vöruþróunarlánum því
3.430 milljónum á árinu.
Iðnlánasjóður veitti alls 66 millj-
ónir í styrki á árinu og fóru þeir
að meginhluta til „Átaks til atvinnu-
sköpunar" og samstarfsverkefni á
borð við „Frumkvæði og fram-
kvæmd“, Vöruþróun ’96 og Snjall-
ræði.
FROSTI Bergsson, framkvæmdastjóri Opinna kerfa, og Þorgeir B.
Hlöðversson, kaupfélagsstjóri KÞ, undirrituðu samninginn. Með þeim
á myndinni eru Hans Pétur Jónsson, OP, Jóhann G. Ásgrímsson,
ráðgjafi, og Jón Arnar Baldurs, KÞ.
Velta Vaka - fískeldiskerfa hf. jókst um 13% í fyrra
Hagnaðurinn 11 milljónir
VAKI - fiskeldiskerfi hf. skilaði
rúmlega 11 milljóna króna hagnaði
á síðasta ári og jókst hagnaðurinn
um 23% á milli ára. Velta fyrirtæk-
isins jókst um 13%, úr 77,5 milljónum
1995 í 87,8 á síðastliðnu ári. Hagnað-
ur af reglulegri starfsemi fyrir fjár-
magnsliði og skatta var rúmlega 18
milljónir króna eða 20,6% af rekstr-
artekjum miðað við 13 milljónir árið
1996. Tekjur vegna útflutnings á
framleiðsluvörum fyrirtækisins voru
um 94% af heildartekjum þess.
Vaki - fiskeldiskerfi hf. sérhæfir
sig í framleiðslu og sölu á hátækni-
búnaði fyrir fiskeldi og umhverfís-
markað, m.a. til að telja og stærðar-
mæla lifandi fiska fyrir fískeldis-
stöðvar. Helstu framleiðsluvörur fyr-
irtækisins hafa fram til þessa verið
fiskiteljarinn Bioscanner og lífmassa-
mælirinn Biomass Counter. Með
Bioscanner er fiskurinn talinn þegar
honum er sleppt í kvíar en Biomass
Counter gerir mönnum kleift að telja
fískinn í kvíunum. Þá er sala hafín
á nýrri framleiðslu, tæki sem telur
fískinn þegar honum er dælt upp úr
kvíunum. Loks framleiðir Vaki og
selur hugbúnað, sem heldur utan um
þær upplýsingar er fást með notkun
fyrrgreindra tækja. Fyrirtækið hefur
þannig náð þeim árangri að það býð-
ur fiskeldisfyrirtækjunum heild-
arlausn á þessu sviði rekstrarins.
Sölustarfsemi Vaka erlendis geng-
ur vel að sögn Snorra Þorkelssonar,
fjármálastjóra fyrirtækisins. Fyrir-
tækið stefnir markvisst að því að
færa söluna nær markaðnum og mun
m.a. á næstunni opna markaðsskrif-
stofu í Noregi í því skyni. Þá hefur
fyrirtækið ráðið sérstakan mann í
Chile, sem mun sjá um uppsetningu
búnaðar og aðra tæknivinnu á þeim
slóðum.
Eigið fé Vaka hf. nam í lok ársins
1996 um 46 milljónum króna og var
eiginfjárhlutfall 60,9%. Hlutabréf í
fyrirtækinu hafa verið skráð á Opna
tilboðsmarkaðnum frá því um mitt
síðasta ár og hafa á því tímabili
hækkað í verði um 165%, úr 2,30 í
6,10.
KÞ endur-
skipulegg-
ur upplýs-
ingakerfí
KAUPFÉLAG Þingeyinga undir-
ritaði fyrir skemmstu samning við
Opin kerfi hf. um netvæðingu fé-
lagsins. Um er að ræða umfangs-
mikla fjárfestingu í HP-Vectra
einkatölvum ásamt viðamiklum
samskipta- og nethugbúnaði. Net-
væðing KÞ er fyrri áfangi í end-
umýjun og útvíkkun á upplýsinga-
kerfum kaupfélagsins, en í síðari
áfanganum verður lögð áhersla á
uppfærslu viðskiptahugbúnaðar.
Vinna við þann hluta er þegar
hafin, segir í frétt.
Þar kemur einnig fram að unn-
ið er að því að nettengja allar
starfstöðvar fyrirtækisins og upp-
færa vélbúnaðinn. Innan vébanda
félagsins er mjólkursamlag, slát-
urhús, brauðgerð, byggingarvöm-
verslun og fimm matvöruverslan-
ir, þar af tvær á Húsavík og þijár
í sveitunum í kring. Allar upplýs-
ingar sem halda þarf utan um í
rekstrinum verða nú á samtengdu
netkerfi sem allar starfsstöðvar
hafa aðgang að. Tengingar munu
verða við veraldarvefinn og
áhersla lögð á að nýta tölvupóst
bæði innan og utan kaupfélagsins.
Framkvæmdastjórí Sameinaða lífeyríssjóðsins um málsmeðferð fjármálaráðuneytisins
Ber að fara að lögum
JÓHANNES Siggeirsson, fram-
kvæmdastjóri Sameinaða lífeyris-
sjóðsins, segir að fjármálaráðu-
neytinu beri í stjómsýslu sinni að
fara eftir gildandi lögum, en ekki
eftir hugmyndum einstakra starfs-
manna um það hvernig lög ættu
að vera. Meðferð ráðuneytisins á
umsókn lífeyrissjóðsins um stofn-
un séreignadeildar sé ekkert ann-
að en valdníðsla, en sjóðurinn hef-
ur kært málsmeðferðina til um-
boðsmanns Alþingis. Rætt var við
Steingrím Ara Arason, aðstoðar-
mann fjármálaráðherra, af því til-
efni í Morgunblaðinu í gær.
Jóhannes sagði að ráðuneytinu
bæri að afgreiða erindi sem því
bærist í þessum efnum, hvort sem
um væri að ræða stofnun lífeyris-
sjóða eða breytingu á reglugerðum
þeirra, á grundvelli laga nr.
55/1980 um starfskjör launafólks
og skyldutryggingu lífeyrisrétt-
inda. „Ráðuneytinu ber ekki að
afgreiða erindi á grundvelli laga-
frumvarpa sem eru samin eða
ósamin og það hvemig ráðuneytið
afgreiðir erindi á ekki að fara eft-
ir því hver rekstraraðilinn er. Það
skiptir engu máli hvort rekstrarað-
Við stofnun lífeyrissjóða ber að gæta
almennra hagsmuna sjóðsfélaga
ilinn er lífeyrissjóðurinn sjálfur,
löggiltur endurskoðandi eða banki.
Ráðuneytinu ber fyrst og fremst
að huga að því við stofnun lífeyris-
sjóða eða við breytingar á reglu-
gerðum þeirra að gætt sé al-
mennra hagsmuna sjóðsfélaganna
mg að reglugerðin brjóti ekki í
bága við lög eða reglugerðir ann-
arra lífeyrissjóða," sagði Jóhann-
es.
Séreignalífeyrissjóðir reknir
um áratugaskeið
Hann sagði að það væri einnig
rangt sem kæmi fram í frétt
Morgunblaðsins að verðbréfafyr-
irtæki hafi um árabil rekið sér-
eignalífeyrissjóði. Fijálsi lífeyris-
sjóðurinn sem Fjárfestingarfélag
íslands hefði rekið hefði lengi
verið eini séreignalífeyrissjóður-
inn á vegum verðbréfafyrirtækis.
Það hefði síðan verið árið 1990
sem VÍB hefði hafið rekstur sér-
eignalífeyrissjóðs með samþykki
ráðuneytisins og eftir það hefði
einnig verið samþykktur lífeyris-
sjóður hjá Landsbréfum. Eftir að
Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefði
sett inn umsókn sína um séreigna-
deild hefðu bæði Kaupþing og
Búnaðarbankinn fengið staðfest-
ingu ráðuneytisins á stofnun sér-
eignarlífeyrissjóða.
Jóhannes bætti því við að verð-
bréfafyrirtæki hefðu ekki fundið
upp séreignalífeyrissjóði. Þeir
hefðu verið reknir um áratuga-
skeið hér á landi með fullu sam-
þykki fjármálaráðuneytisins og
löngu áður en verðbréfafyrirtæki
hefðu hafið starfsemi.
Framkoma ráðuneytisins
er valdníðsla
„Það er því raunar ekkert hægt
að segja annað en að framkoma
ráðuneytisins sé valdníðsla og
byggist ekki á lögum. Ráðuneyti
eins og fjármálaráðuneytið er
framkvæmdavald. Ráðuneyti fer
ekki með löggjafarvald og það er
algjör valdníðsla af þess hendi að
vísa til þess að það ætli að af-
greiða einhver erindi á grundvelli
ósettra laga, hvað þá hugmynda
um lög sem eru í kollinum á
starfsmönnum ráðuneytisins.
Fjármálaráðuneytið fer ekki að
gildandi reglum og við efumst um
hæfi starfsmanna ráðuneytisins
til þess að gegna sínum störfum.
Þeim ber sem starfsmönnum
ráðuneytisins að fara eftir gild-
andi lögum á hveijum tíma en
ekki eftir þeim hugmyndum sem
einstakir starfsmenn ráðuneytis-
ins hafa um það hvernig lög ættu
að líta út,“ sagði Jóhannes enn-
fremur.
Hann benti á að til viðbótar
væru starfsmenn ráðuneytisins
ekki einu sinni sjálfum sér sam-
kvæmir í þessari hugmyndafræði
sinni. Til vitnis um það væri að
þeir hefðu staðfest reglugerðir
séreignalífeyrissjóða tveggja verð-
bréfafyrirtækja eftir að umsókn
Sameinaða lífeyrissjóðsins hefði
verið lögð inn og einnig hefðu
þeir staðfest breytingu á reglu-
gerðum séreignalífeyrissjóða
tæknifræðinga og tannlækna síð-
astliðið sumar.
I
I
I
[
>
í
l
!
I
i
1
I