Morgunblaðið - 19.02.1997, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 19.02.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 23 LISTIR Tveir bræður og hin eina rétta KVIKMYNPIR Rcgnboginn SÚ EINA RÉTTA „She’s the One“ ★ ★ ★ Leikstjóm og handrit: Edward Bums. Aðalhlutverk: Bums, Mike McGlone, John Mahoney, Cameron Diaz, Jennifer Aniston og Maxine Bahns. 20th Century Fox. 1996. EDWARD Burns vakti óskipta athygli með fyrstu mynd sinni, McMullenbræðrunum, sem fjallaði af einskærri ljúfmennsku um þrjá kaþólska bræður, ástarmál þeirra og innbyrðis tengsl og átök. Næsta mynd hans, Sú eina rétta sem sýnd er í Regnboganum, lítur ekki eins fátæklega út því nú hefur Burns heilt kvikmyndaver á bak við sig en yrkisefnið er það sama, bræður, kærustur, eiginkonur, kaþólskan, fjölskyldan, feður, mæður, uppáferðir og ástarlíf. Maður freistast til að halda að Burns sé einhverskonar arftaki Woody Allens. Hann hefur sannar- lega vald á snaggaralegum og oft skemmtilegum samtölum og hann nær mjög ágætum leik út úr leik- hópnum sínum og fjallar á kíminn hátt um svipuð efni og meistarinn eins og trúmál og samskipti kynj- anna. Það sem vantar þó er hin séralleníska angist og taugaveikl- un sem gerir Allenmyndirnar grát- broslegar. Sú eina rétta gæti sem best heitið McMullenbræður 2. Hún rennur fjarska ljúflega niður sem saga af tveimur einstaklega ólík- um bræðrum er keppt hafa hvor við annan allt sitt líf. Annar er efnishyggjumaður, verðbréfasali á Wall Street, maður sem heldur framhjá eiginkonu sinni og neitar að sofa hjá henni af því hann vill ekki vera ótrúr viðhaldinu. Hinn er meira fyrir heiðarleika og sann- leika í samskiptum við konur og tekur ekki þátt í lífsgæðakapp- hlaupinu sem eini hvíti leigubíl- stjórinn í New York. Uppúr þessu sýður Burns ilm- góða súpu sem kannski er ekki mjög bragðsterk en í það minnsta seðjandi. Burns og mótleikari hans úr McMullenbræðrunum, Mike McGlone, hafa greinilega mikla þjálfun í að leika hvor á móti öðr- um og sýna að þrátt fyrir allt sem gengur á í þeirra lífi og þrátt fyr- ir að þeir eru alls ekki ánægðir hvor með annan, eru bræðrabönd- in sterk. John Maloney („Frasier") leikur föður þeirra og hjónabands- ráðgjafa eða sálusorgara eftir því hvernig liggur í bólið hjá þeim bræðrum og er hinn skemmtileg- asti eins og alltaf. Hin eina rétta er nefnilega fyrst og fremst strákamynd um hvað strákar hugsa og segja og vilja. En Burns hefur líka merkilega gott innsæi í heim kvenna og þankagang og gerir annað og meira úr þeim en litlausar og skaplausar persónur eins og oft vill henda í stráka- myndum af þessu tagi. Cameron Diaz leikur afbragðsvel konu sem tengist þeim bræðrum báðum og Jennifer Aniston (,,Friends“) fer á kostum sem eiginkona verðbréfa- salans sem þráir kynlíf en fær ekki neitt. Fyrst og síðast er Edward Burns raunsær húmanisti og róm- antísku gamanmyndirnar hans tvær sem náð hafa hingað bera ríkulegan vott um það. Hann er ekki sérlega átakamikill kvik- myndahöfundur en gæddur góðri kímnigáfu og er skemmtilega séð- ur á mannlegan breyskleika. Arnaldur Indriðason alla undirstrika tónlistin, lýsingin og prýðilegir búningar sem sníða verk- inu ákveðinn tímaramma. Þarna hefur Viðari leikstjóra tekist mjög vel upp og ásamt þeim sem að sýn- ingunni koma skapað leikræna heild sem myndi sóma sér vel á hvaða leiksviði landsins sem er. En náttúran er alls staðar söm við sig, og tilfinningar mannskepn- unnar líka, og þær fjarfrænkur viija út og upp á dekk hvað sem það kostar, ekki síst þegar búið er að örva þær með veisluveigum. Við þetta kúvendir verkið og norðan- gúlpur raunveruleikans gustar um sviðið. Hér er öllum sem setja þetta verk á svið nokkur vandi á höndum, og sennilega væri skjótvirkasta leið- in sú að setja vatnsúðara leikhússins í gang til að áhorfendur átti sig strax á umskiptunumn. Sumir leikaranna, t.d. þeir Ólafur Jens Sigurðsson sem brúðguminn og Guðmundur Karl Sigurdórsson sem vinur hans, báðir skopleikarar af guðs náð, eiga í fyrstu erfitt með að fóta sig í um- skiptunum á meðan sjóaðri leikarar eins og Sigurgeir Hilmar Friðþjófs- son sem faðir brúðarinnar og Ester Halldórsdóttir sem móðir brúðgum- ans sigla vel milli sketja. Tania íris Melero stendur sig mjög vel sem brúðurin, og reyndar má það sama segja um alla aðra sem mættu í þetta forkostulega brúðkaup, þau Kolbrúnu Dögg Eggertsdóttur, Kristínu Steinþórsdóttur, Baldvin Árnason og Eyjólf Pálmarsson. Ég hef ekki legið á þeirri skoðun minni undanfarin ár, að á Selfossi starfar einn allra besti áhugaleik- hópur landsins. Þegar þessi hópur fær til liðs við sig leikstjóra sem hefur heildarsýn á verkið og vinnur af þeirri alúð sem þarf til að koma henni til skila mega áhorfendur eiga von á góðu. Sú von rætist hér. Þótt mér hafí fundist brúðkaupið heldur dragast á langinn og loftræsting ekki eins og best verður á kosið, er hér á ferð eftirminnileg sýning sem stendur ekki að baki því sem er í boði í öðrum leikhúsum landsins í dag. Hún er vel þess virði að rennt sé yfir heiðina til fundar við hana. Þeir sem búa á Suðurlandinu ættu skilyrðislaust að fara til að styrkja jafnvægi í öllum hlutum í sinni byggð. Því, eins og stórskáldið sagði: Maðurinn lifir ekki af kjörbúðinni einni saman. Hann þarf líka leikhús. Og að þessari veislu skuli svo fylgja óvænt ábót, er svo annað góðgæti sem menn verða að sækja sjálfir. Guðbrandur Gíslason Afbragð og ábót LEIKPST Leikfélag Scl- foss/Kaíf ilcikhúsið við Sigtún ÞRÍRÉTTUÐ LEIKHÚSVEISLA Leikstjóri: Viðar Eggertsson. Leik- mynd: Geir Óttar Geirsson. Leikhús- ferðin eftir Karl Valentin í þýðingu Bjama Jónssonar. Leikendur: Guð- rún Halla Jónsdóttir, Sölvi Hilmars- son, Guðbjörg Arnardóttir. Smá- borgarabrúðkaup eftir Bertolt Brecht í þýðingu Þorsteins Þorsteins- sonar. Leikendur: Sigurgeir H. Frið- þjófsson, Ester Halldórsdóttir, Tania IrisMelero, Kolbrún D. Eggertsdótt- ir, Ólafur J. Sigurðsson, Guðmundur K. Sigurdórsson, Kristin Steinþórs- dóttir, Eyjólfur Pálmarsson, Baldvin Amason. Píanóleikari: Theodór Kristjánsson. Búningar: Sigríður Guðmundsdóttir. Frumsýning í Leikhúsinu við Sigtún á Selfossi 15. febrúar. ÉG VAR jafnlengi upp Hverfis- götuna í Reykjavík milli fjögur og fimm á föstudaginn og á Selfoss á laugardagskvöldið. Kaupmenn eru farnir að tala um Reykjavíkursvæðið og Suðurland sem sama markaðs- svæðið og hafa nokkuð til síns máls. Sunnlenskir bændur eru enga stund að skreppa til Reykjavíkur til að fá þar gefins rófur og þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu eiga nú um stundir þann ágæta valkost í menn- ingarflórunni að hlusta á kvöldfrétt- irnar yfir Hellisheiðina og setjast svo við veisluborð í Kaffileikhúsinu við Sigtún. Þar fást drykkjarföng. Þar fæst auganu gleði og þegar ljósin slokkna eru kitlaðar hláturtaugar. Og ekki spillir fyrir að Geir Óttarr Geirsson hefur skapað umgjörð í Sigtúnsleikhúsinu sem er kaffihús- leg og leikhúsleg í senn. Fjarlægðar- bláminn blikar í gluggum sem engir eru og fyrir þeim rykktar gardínur. Og sviðið sjálft er afmarkað gulum flötum, köldum og nöktum, sem magna upp tilfinningalegan berang- ur Smáborgarabrúðkaupsins. Og stólarnir á sviðinu eru svo hráir að maður er feginn að þeir skuli ekki notaðir frammí sal. Forrétturinn í þessari veislu er EKKI fær hann Gvendur gott... Gestirnir í Smáborgarabrúðkaup- inu koma hveijir öðrum á óvart. Leikhúsferðin, þýskur fíflahúmor með Chaplin bragði, borinn fram að hætti Marxbræðra. Þetta er spreng- hlægilegur einþáttungur þar sem fát og fum hafa tekið ráðin í lífi hjóna sem fengið hafa gefíns aðgöngumiða í leikhús. Þau Guðrún Halla Jóns- dóttir og Sölvi Hilmarsson fara hér prýðilega með lipra þýðingu Bjarna Jónssonar og halda sér vel í smelli- priksstílnum („slapstick") sem Viðar Eggertsson leikstjóri hefur valið verkinu og hentar því vel. Aðalrétturinn í þessari veislu er Smáborgarabrúðkaupið eftir Brecht, langur einþáttungur sem lýsir því sem heiti hans vísar tii. Strax í upp- hafi verða höfundareinkenni Brechts ljós: Að gera hið kunnuglega fram- andi. Viðar beitir sömu skoptækni og í Leikhúsferðinni á þennan efni- við og dregur með því dár að laun- háðinu i texta Brechts og afhjúpar um leið með hljómfalli, förðun og hreyfingum netið sem allir viðstadd- ir eru flæktir í: herpinót samfélags- legra siða. Úr þessu verður hin besta skopskemmtan þar sem allir leikar- arnir halda meistaralega taktinn en ná um leið að skila til áhorfandans því andrúmi nöturleikans sem svífur hér yfír vötnunum. Enginn slær feil- nótu í leik sínum, tímasetningar og leikræn tjáning eru eins og best verður á kosið. Og stemmninguna STUNDUM er erfitt að koma sér af stað: Guðrún Halla Jónsdóttir og Sölvi Hilmars- son búast til leikhúsferðar. Framtíðarhúsgögn fyrir ungt fólk Síonev skPiíOorðSBtt: fl kr 38 100 Skrifborð, hliðarborð, kálfur, hilla á skrifborð t'BWEUiiLiIÍl stcr. Suðurlandsbraut 22, sími 553 601 1 Astar- sagna- höfundar í kreppu London. The Daily Telegraph. SAMTÖK breskra ástar- sagnahöfunda íhuga nú að breyta nafni samtakanna þar sem ímynd orðsins ást- arsaga hafi breyst, það hljómi nú gamaldags, skammarlegt og væmið. Um 600 höfundar eru í samtökunum, margir hverjir aðdáendum ástar- sagna að góðu kunnir, og munu þeir greiða atkvæði um nafnabreytingu. „Nafnið er sem myllu- steinn um háls okkar,“ sagði June Wyndham Davi- es, varaformaður samtak- anna. „Rómantík hafði aðra merkingu en nú ... Nú tengist hún Barböru Cartland og bleikum hlut- um.“ Samtökin voru stofnuð fyrir þrjátíu árum og á meðal meðlima er Joanna Trollope, Elizabeth Buch- an og Charlotte Bingham. Sögur þeirra flokkast lík- lega fremur sem afþrey- ingarbókmenntir en ástar- sögur. Afar fáir karlmenn eru á meðal meðlima og svo virðist sem þeir forðist að ganga í samtökin þó verk þeirra eigi þar vel heima. Svo illa er komið fyrir samtökunum að árleg verðlaun þeirra fyrir bestu ástarsöguna eru almennt aðhlátursefni og fæst ekk- ert fyrirtæki til að fjár- magna þau. Ekki hefur verið ákveðið hvað samtök- in eiga að heita, verði nafnabreyting samþykkt en atkvæði verða greidd um það í apríl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.