Morgunblaðið - 22.02.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
m
LAUGARDAGUR 22. FEBRUAR 1997 31
MARK Featherstone-Witty, skólastjóri og stofnandi
L P I A. Hver trappa er kost uð af styrktaraðiium
skólans og nafn þeirra er letrað á viðeigandi tröppu.
LEIKLISTARNEMI syngur „Bridge Over Troubled
Water“ í áheymarprufu í leikhúsi skólans.
á framtíð skólans því ég er bjart-
sýnn á framtíð nemendanna sem
hér eru. Það verður spennandi að
sjá hvað gerist þegar þeir fljúga úr
hreiðrinu. Einn þeirra þátta sem
skólinn á eftir að verða dæmdur út
frá er hvernig nemendur úr honum
spjara sig.“
Skólastjórinn er óhræddur við að
fullyrða að skólinn sé einstakur í
sinni röð. „Við höfum skoðað svip-
aða skóla um allan heim og ég held
ég geti fyllyrt að það er enginn skóli
að gera það sama og við, á sama hátt
og við gerum það. Skólinn býður
upp á tvær aðalnámsleiðir, annað í
hljóðupptökutækni (sound technolo-
gy) og hitt í sviðslist (perfoi-ming
arts) og ég held að þetta sé eini skól-
inn sem hefur það að markmiði að
nemendur sem útskrifast séu fjöl-
hæfir.“
Hvert er gildi þessa skóla fyrir
Liverpoolborg?
„Gildi hans er margþætt. Bæði er
skólinn jákvætt afl í borginni, sem
ekki er vanþörf á vegna mikils at-
vinnuleysis og glæpatíðni því fylgj-
andi, og auk þess er vonast til að
hann megi verða atvinnuaukandi í
borginni. Liverpool er eitt fátæk-
asta svæði í Evrópu og því fær skól-
inn líka nokkuð fjármagn frá
svoköljuðum félagsmálasjóði Evr-
ópu. Ég held að skólinn sé góður
sendiherra fyrir borgina líkt og Bítl-
arnir voru á sínum tíma,“ sagði
Witty.
Eamli barnash. álinn
Hugmyndin að stofnun skólans
fæddist árið 1982 og þróaðist áfram
með það að markmiði að fá fagfólk
úr skemmtanaiðnaðinum og tæknil-
iði til að leggja honum lið. „Ég vildi
að skólinn yrði í London og að hann
yrði á menntaskólastiginu. Ég
ræddi við marga í bransanum og
hitti loks upptökustjórann George
Martin, sem tók meðal annars upp
megnið af tónlist Bítlanna. Við hóf-
um að þreifa fyrir okkur með fjár-
magn og sigtuðum út fólk sem átti
einhverja peninga og vildi taka þátt
í svona verkefni. Eftir einhverjum
krókaleiðum komumst við loks í
samband við Paul McCartney árið
1986 sem vildi fá okkur til Liver-
pool. Það varð ekkert úr því í bili og
við stofnuðum skólann í London,
kölluðum hann „The Brit School" ,
The Brítish Record Industry Trust
School.
Þegar sá skóli hafði hafíð starf-
semi mundum við eftir orðum Pauls
og hugsuðum; hvað var hann aftur
um tíma. Síðan er reynt að fylgja
þessari áætlun á markvissan hátt.
Sé grunur um lystarstol hjá ungri
stúlku er sjálfsagt að leita til heimil-
islæknis, sem oftast getur leiðbeint
um framhaldið eða vísað viðkom-
andi til sérfræðinga. Bæði sálfræð-
ingar og geðlæknar fást við með-
höndlun á lystarstoli. Þeir sem vilja
kynna sér lystarstol frekar er bent
á kafla í Sálfræðibókinni eftir Eirík
Örn Ai'narson sálfræðing.
• Lesendur Morgunblaðsins geta spurt sál-
fræðinginn uni þnð seni þeini liggur n bjnr-
ta. Tekið er á móti spurningum á virkum
dögum milli klukknn 10 og 17 ísúnn 569
1100 og bréfum eða símbréfum merkt:
Vikulok, Fax: 569 1222. Ennfremur símbréf
mcrkt: Gylfí Ásmundsson, Fnx: 560 1720.
að segja um Liverpool? Við höfðum
því aftur samband við hann og hann
tjáði okkur að gamli barnaskólinn
hans og George Harrison, stæði
auður. „Þetta er yndisleg bygging
og mig langar að gera eitthvað fyrir
hana,“ sagði hann við okkur og síð-
an slógum við til og hófum undir-
búning að stofnun skólans sem loks
hóf starfsemi árið 1995.“
Var ehhi núgu
hungraður
Skólinn reynir að fá þekkta menn
úr tónlistarheiminum til liðs við sig
með góðum árangri en þó segir
Witty að frekar erfítt sé að fá stóru
nöfnin til að koma. „Það þarf yfir-
leitt einhverja milligöngumenn til að
ná til þessa fræga fólks. George
Martin hafði til dæmis milligöngu
um að hafa samband við Paul
McCartney í upphafi."
Witty segist aðspurður ekki sjálf-
ur hafa mikla reynslu úr bransanum.
„Þegar ég útskrifaðist úr mennta-
skóla langaði mig að verða leikari.
Foreldrar mínir voru ekkert yfir sig
hrifnir enda nutu þeir leikarar sem
þeir þekktu engrar sérstakrar vel-
gengni. Ég fór því út í viðskiptanám
og lék meðfram því, en þegar á
hólminn var komið og ég þurfti að
velja mér braut var ég bara ekki
nógu hungraður til að helga mig list-
inni. Þrátt fyrir það fannst mér
bransinn mjög áhugaverður og ég er
stoltur af að geta lagt iðnaðinum lið
útfrá menntunarhliðinni en LIPA er
fimmta verkefnið af þessu tagi sem
ég hrindi í framkvæmd."
Skólavörðustíg l6a
Sími 561 4090
r
SÝNInG
Gullengi 27
Opið hús um helgina
Vönduð vinnubrögð
Vandaður frágangur
Val um innréttingar
Stutt í skóla ~
Gott leiksvæði
Vistvænar íbúðir ;
Frábært verð á nýjum íbúðum
Hagstæð greiðslukjör
(Nýjar fullbúnar 2ja og 3ja herb. íbúðir)
Sýnum laugardag og sunnudag frá kl 13-16
glæsilegar íbúöir að Gullengi 21-27 Grafarvogi
Innréttingar og húsgögn frá BYKO & HABITAT
Með hverri keyptri íbúð í tengslum við sýninguna
fylgir vöruúttekt í HABITAT fyrir kr 50.000.-
Einnig fylgja umhverfisvænar hreinsivörur
frá Clean Trend öllum íbúðum.
Gullengi 21-27
É
53ENJO
SKEIFAN
FASTEIGNAMIÐLUN
habitat
SlMl: 568 5556 SODURLANDSBRAUT 46
J
-