Morgunblaðið - 19.03.1997, Síða 9

Morgunblaðið - 19.03.1997, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 9 FRÉTTIR Hlutafélagavæðing ríkisbankanna Bankaráð áfram pólitísk FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð- herra segir að við skipan bankaráðs- manna ríkisbankanna eftir breyt- ingu þeirra í hlutafélög verði eftir sem áður farið eftir pólitísku lands- lagi á hveijum tíma. Ráðherrann segist stefna að því að fjöldi bankar- áðsmanna verði fímm, en vill ekkert gefa upp um fyrirhugaðan fjölda bankastjóra. Þetta kom fram í um- ræðum á Alþingi nýlega. Helmingaskiptunum viðhaldið Þingmenn Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags gagnrýndu að stjórn- málaflokkarnir héldu ítökum sínum í bönkunum þrátt fyrir hlutafélaga- væðingu. Þeir sögðu greinilegt að tilgangurinn væri sá að viðhalda helmingaskiptum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks á bankakerfinu. Ekki væri séð að hlutafélagavæðing bankanna þjónaði öðrum tilgangi því hún hefði í sjálfu sér ekki í för með sér neina hagræðingu. Ágúst Einarsson, Þingflokki jafn- aðarmanna, sagði að það væri stefna ríkisstjórnarflokkanna að færa yfir- ráð yfir bönkunum síðar til fyrir- tækja sem vinveitt væru þeim. Þar átti þingmaðurinn annars vegar við Eimskip og Sjóvá og fyrirtæki tengd þeim sem bundin væru Sjálfstæðis- flokknum sterkum böndum og hins vegar Vátryggingafélag íslands og Olíufélagið sem tengd væru Fram- sóknarflokki. Jóhanna Sigurðardóttir, Þing- flokki jafnaðarmanna, sagði að ábyrgð ríkisins á bönkunum héldist þrátt fyrir að þeim hefði verið breytt í hlutafélög. Benti hún í því sam- bandi á reynslu Norðurlandaþjóða fyrir nokkrum árum þar sem ríkið neyddist til að bjarga einkabönkun- um með miklum fjárframlögum. Við- skiptaráðherra sagði ekki útiloka að Bílvelta hjá Tung’uflj óti FJÓRIR Bandaríkjamenn voru fluttir á heilsugæslustöðina á Sel- fossi eftir að bifreið þeirra valt við vegamót skammt frá Tungufljóti í Árnessýslu, laust eftir klukkan 17 á laugardag. Svo virðist sem ökumaður bif- reiðarinnar hafi ekki náð beygju sem er skammt frá vegamótum, með fyrrgreindum afleiðingum. Meiðsli þeirra eru ekki talin lífs- hættuleg en ástæða þótti til að flytja hluta hópsins til frekari með- ferðar á Landspítala. ríkið yrði að koma bönkunum til bjargar ef samsvarandi aðstæður kæmu upp hér á landi, en það væri þá gert í þeim tilgangi að bjarga efnahagskerfinu. Ahrif starfsmanna of lítil Stjórnarandstæðingar gagnrýndu einnig að ekki væri tryggt starfs- menn bankanna hefðu áhrif á hluta- félagavæðinguna. Viðskiptaráð- herra sagðist ekki geta lofað því að starfsmennirnir fengju fulltrúa í nefnd sem sinna mun undirbúningn- um en að þeir fengju að fylgjast nákvæmlega með framvindu máls- ins. Hann sagði einnig að starfsmenn hefðu haft mikil áhrif á það að ákveðið hefði verið að selja aðeins 35% af hlutafé bankans eftir fjögur ár, en ekki 49% eins og ætlunin var upphaflega. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lýsti þeirri skoðun sinni að við sölu hlutafjár í bönk- unum ætti að gefa starfsmönnum þeirra kost á því að breyta þeim hluta lífeyrissjóðsréttinda, sem væru umfram það sem almennt gerðist, í hlutafé. Einnig taldi hann að helm- ingi hlutafjár ætti að skipta milli allra landsmanna, þannig að þeir lærðu að fara með hlutabréf. Pétur sagði að ef beðið yrði í fjögur ár eftir því að selja bankana, eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu, yrði ekkert eftir að selja, því hratt íjaraði undan bönkunum vegna breytinga á fjármáiamörkuðum. Hann tók undir með stjórnarandstæðingum varðandi það að nauðsynlegt væri að einn bankastjóri bæri ábyrgð á öllum rekstrinum. ÚTIVISTARBÚÐIN við Umferðarmiðstöðina, símar 5519800 og 5513072. Ný sending Blússur, peysur, síðbuxur. Tískuskemman Bankastræti 14. sími 561 4118 Úrvalfermingargjafa Seðlaveski • Skartgripaskrín Iþróttatöskur • „Beauty Box“ Lítil leðurveski • Bakpokar. Laugavegi 58, sími 551 331 1. GoU verð Fermingarmömmur og -ömmur Úrval af drögtum og fallegum blússum TESS VounCa. | * \sími 562 2230 Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14. MaxMara Vor- og sumarfatnaðurinn frá MaxMara og marjna RINALDI er kominn. Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, s. 562 2862 Framtíðarhúsgögn fvrir ungt fólk Suðurlandsbraut 22, sími 553 601 1 Fataskápur KDMDU MEÐ „RAUÐU“ SPARISKl RTEI NIN DG SKIPTU ÞEIM I MARKFLDKKA Með endurskipulagningu allra flokka spariskírteina og breytingu þeirra í markflokka, hefur lokagjalddaga spariskírteinanna í töflunni verið flýtt. Kannaðu hvort þú eigir þessi skírteini og hafðu þá samband við Lánasýslu ríkisins sem fyrst og fáðu alla aðstoð við að tryggja þér ný spariskírteini í markflokkum í stað þeirra gömlu. Vertu áfram í örygginu! LANASYSLA RIKISINS Hverfisgata 6, 2. hæb, sími 562 6040 endurskipulaGNING spariskÍRTEINA RÍKISSJÓÐS RAUÐIR FLDKKAR S PARIS Kl RTEI N A Uppsagnarflokkar til endurfjármögnunar í markflokka Flokkur Nafnvextir Lokagjalddagi SP1984 II 8.00% 10.03.1997 SP1985 IIA 7,00% 10. 03. 1997 SP1984 III 8,00% 12.05.1997 SP1986 II4A 7,50% 01.07. 1997 SP1985 IA 7,00% 10. 07. 1997 SP1985 IB 6,71% 10. 07. 1997 SP1986 I3A 7,00% 10. 07. 1997 SP1987 I2A 6,50% 10. 07, 1997 SP1987 I4A 6,50% 10. 07. 1997 UTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA • SALA • INNLAUSN • ASKRIFT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.