Morgunblaðið - 19.03.1997, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ársskýrsla Stígamóta 1996
Flestir beittir kynferðis-
ofbeldi á unglingsárum
DR. FRANZ Josef Rumler, Ingimundur Sigfússon sendiherra
og Valgerður Valsdóttir kona hans.
Ingimundur Sigfús-
son sendiherra heiðr-
aður í Þýzkalandi
SENDIHERRA íslands í Bonn,
Ingimundur Sigfússon, var á
miðvikudag heiðraður af sam-
tökum frammámanna i viðskipt-
um og stjórnmálum í Bonn og
Berlín, Wirtschaftspolitischer
Club, en þessi samtök hafa
starfað frá árinu 1952 og urðu
fljótt eftir stofnun vettvangur
samskipta forystumanna í við-
skiptalífi og stjórnmálamanna.
Innan samtakanna eru flokks-
pólitískar umræður bannaðar.
Frá árinu 1965 hafa samtökin
staðið fyrir árlegri veizlu, þar
sem aðeins eru á borðum þjóð-
legir réttir búnir til úr græn-
káli, sem er mikils metið meðal
Þjóðverja frá fornu fari, svína-
kjöti og pylsum. I þessum veizl-
um er þá jafnan heiðraður sér-
staklega einhver sérstakur og
varð Ingimundur Sigfússon
sendiherra Islands fyrir valinu
í þetta sinn. Samtökin hafa ár-
lega frá 1991 veitt þeim, sem
skarað hafa fram úr í markaðs-
setningu og viðskiptum í fyrr-
verandi A-Evrópuríkjum sér-
stök verðlaun, sem eru mjög
eftirsótt.
Ingimundur Sigfússon flutti
þakkarávarp, er hann hafði ver-
ið heiðraður og kvaðst undrandi
og glaður yfir að sér og þjóð
sinni hefði hlotnazt þessi veg-
semd. Hann notaði tækifærið
og kynnti land og þjóð á víðum
grundvelli, og ræddi viðskipta-
tengsl íslands og Þýzkalands,
sem eru eitt helzta áhugamál
hans og er sá heiður, sem honum
hlotnaðist hjá samtökunum í
raun staðfesting á farsælu starfi
hans á þessu sviði, segir í frétt
frá fréttaritara Morgunblaðsins
í Þýzkalandi, Þórarni Stefáns-
syni.
Margir hafa áður notið þess
heiðurs, sem fellur í skaut Ingi-
mundar nú. Þar má t.d. nefna
Johannes Rau, forsætisráðherra
Nordrhein-Westfalen, Jiirgen
W. Möllemann fyrrverandi við-
skiptaráðherra Þýzkalands,
Walter Scheel fyrrverandi utan-
ríkisráðherra og Dieter Weirich
útvarpsstjóra þýzka útvarpsins,
„Deutsche Welle“, en hann var
heiðraður í fyrra. Ingimundur
er fjórði sendiherra erlends rík-
is, sem heiðraður er með þessum
hætti, en áður hafa sendiherrar
Ítalíu, Austurríkis og Ungverja-
lands verið heiðraðir.
Veizlan fór fram í hátíðarsal
hins sögufræga hótels „Rhein-
hotel Dreesen“, skammt frá
sendiherrabústaðnum í Kron
prinzenstrasse.
Ingimundur Sigfússon hefur
verið sendiherra í rúm tvö ár.
Hefð hefur skapast um það inn-
an samtakanna að fara árlega
í ferðalag og var stungið upp á
því að loknu borðhaldi að kom-
inn væri tími til þess að heim-
sækja ísland.
ALLS leituðu 449 einstaklingar til
Stígamóta á árinu 1996 en þar af
voru 256 þeirra að leita sér aðstoð-
ar í fyrsta sinn. Frá upphafi Stíga-
móta hafa 2.205 einstaklingar leit-
að þar hjálpar.
Þolendur kynferðisofbeldis eru
úr öllum starfsstéttum og menntun-
arlegur bakgrunnur þeirra er marg-
breytilegur. Tæplega 79% þeirra
sem leituðu aðstoðar á árinu höfðu
verið beittir kynferðislegu ofbeldi
innan sextán ára aldurs og 93%
voru nítján ára eða yngri þegar
ofbeldið átti sér stað. Þetta kemur
fram í nýútkominni ársskýrslu
Stígamóta fyrir árið 1996.
Sifjaspell og afleiðingar þeirra
eru langalgengustu ástæður þess
að fólk leitar liðsinnis Stígamóta.
219 manns, eða tæp 58% þeirra sem
þangað leituðu, gáfu upp þá
ástæðu. Næstalgengustu ástæðurn-
ar eru nauðganir og afleiðingar
þeirra, þá kynferðisleg áreitni og
grunur um sifjaspell.
Flestir þeirra sem leituðu til
Ný flugyél
Flugmálastj órnar
Aflmeiri
vél til nýrra
verkefna
TF-FMS, ný flugvél Flugmála-
stjórnar, er komin til landsins en
hún er stærri, langfleygari, afl-
meiri og hefur meiri burðargetu
en eldri vélin sem nú er til sölu.
Nýja vélin er af gerðinni Beech-
craft Super King Air B200 en
gamla vélin heitir Beechcraft King
Air E90. Kaupverðið var 95 millj-
ónir króna og munu sértekjur
standa undir afborgunum á 10 ára
láni sem tekið var vegna kaup-
anna, auk söluverðs gömlu vélar-
innar.
Flugmálastjórn annast flug-
prófanir á flugleiðsögukerfum um
landið allt og annað sérhæft mæl-
ingarflug, leitar- og björgunar-
flug, flug með tæknimenn Flug-
málastjórnar til að sinna marg-
háttuðu viðhaldi á tæknibúnaði og
flug með æðstu embættismenn
ríkisins. Nýja vélin getur auk
þessa annast mælingar á GPS leið-
sögukerfinu sem fer m.a. fram í
Stígamóta á árinu 1996, eða 74,6%,
ólust upp hjá báðum kynforeldrum.
Aðeins 8,6% ólust upp hjá einstæðu
foreldri og 12,5% hjá móður og
stjúpa. Hlutfall karla og kvenna
hefur verið svipað allt frá upphafi.
Hlutfall kvenna af þeim sem leitað
hafa aðstoðar Stígamóta var á síð-
asta ári 91,4% og karla 8,6%. Körl-
um hefur þó hægt og bítandi verið
að fjölga, sem væntanlega gefur til
kynna að það sé orðið auðveldara
nú en áður fyrir karlmenn að leita
aðstoðar vegna kynferðisofbeldis
sem þeir hafa orðið fyrir í æsku.
Reynst erfitt
að leita aðstoðar
Stígamót eiga sjö ára afmæli um
þessar mundir en starfsemi þar var
hafin 8. mars 1990, á alþjóðlegum
baráttudegi kvenna. í ársskýrslunni
kemur fram að þrátt fyrir tilvist
Stígamóta síðastliðin sjö ár sé enn
mikið um það að fólk sé að leita
sér aðstoðar vegna kynferðisofbeld-
is sem átti sér stað fýrir 10-20
árum. Þessi staðreynd sýni vel
hversu mörgum reynist erfitt að
leita aðstoðar vegna þessara mála
og geri það ógjarnan fyrr en afleið-
ingar ofbeldisins séu orðnar afar
þungbærar.
Morgunblaðið/Halldór
NÝJA flugvélin ber einkennisstafina TF-FMS og hefur henni
aðeins verið flogið í 2.800 tíma. Hún er þegar byrjuð í verkefnum.
samvinnu við Flugmálastjóm
Bandaríkjanna, FAA. Einnig
greiðir hún aðflugsmælingar á
Keflavíkurflugvelli en aðrar sér-
tekjur vélarinnar eru m.a. mæling-
ar á ratsjármerkjum fyrir alþjóð-
aumferð á íslenska flugstjórnar-
svæðinu sem greiddar eru af al-
þjóðaflugþjónustunni. Þorgeir
Pálsson flugmálastjóri sagði að
nýja vélin gerði Flugmálastjóm
mögulegt að taka þessi nýju verk-
efni að sér fyrir Flugmálastjóm
Bandaríkjanna en þau væm m.a.
fólgin í mælingum langt norður í
heimskautssvæðin. Sagði hann
ráðgert að fljúga vélinni ekki færri
en 500 tíma árlega.
Snæbjörn Guðbjörnsson yfir-
flugstjóri flaug vélinni heim ásamt
Kára Guðbjörnssyni flugmanni.
Vélin er búin tveimur 850 hestafla
hreyflum af gerðinni Pratt og
Whitney. Hámarksflughraði er
rúmlega 500 km á klst. og há-
marksflugdrægi 1.850 sjómílur.
Hún tekur 10 farþega en gamla
vélin tók aðeins 6 farþega. Henni
hafði verið flogið nærri 10 þúsund
tíma.
P€DROULO*
Aflmiklar dælur í ýmsum stærðum!
Rafknúnar dælur
0,37 til 15 kw
Hringrásardælur, brunndælur, sjódælur úr
kopar, neysluvatnsdælur með jöfnunarkút,
olíudælur, smúldælur o.fl.
Dæmi um verð á dælum - 1 eða 3 lasa (verð m/vsk.):
PK alhliða dælur 40 lítra/mín. 40 m.v.s. kr. 7.180,-
CK olíu- eða vatnsdælur 50 lítra/mín. 47 m.v.s. kr. 19.340,-
JSW neysluvatnsdælur 160 lítra/mín. 60 m.v.s. kr.33.850,-
SVbrunndælur 600 lítra/mín. 12 m.v.s. kr. 55.500,-
F bruna- og smúldælur 700 lítra/mín. 55 m.v.s. kr. 83.780,-
Úrvalsdælur á ótrúlega góðu verði.
Sendum um land allt.
VÉLASALAN HF.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 552 6122.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Gæslan heiðrað
STÝRIM ANN ASKÓLINN í
Reykjavík heiðraði þyrlusveit
og starfsmenn Landhelgisgæsl-
unnar fyrir unnin björgunaraf-
rek á kynningardegi Stýri-
mannaskólans síðastliðinn laug-
ardag. Við þetta tilefni afhenti
Hafsteinn Hafsteinsson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar,
skólanum fyrsta myndbandið
um það hvernig eigi að standa
að björgunaraðgerðum úr sjó
með þyrlu sem Landhelgisgæsl-
an og Slysavarnafélag Islands
hafa látið gera. Á myndinni sést
Guðjón Ármann Eyjólfsson,
skólameistari Stýrimannaskól-
ans, ávarpa samkomuna.