Morgunblaðið - 19.03.1997, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.03.1997, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Opin kerfi kaupa 40% hlutíAco OPIN kerfi hf. hafa keypt 40% hlutafjár í tölvufyrirtækinu Aco hf. af Bjarna Akasyni, framkvæmda- stjóra. Bjarni keypti nýlega _ öll hlutabréfin af föður sínum Áka Jónssyni, stofnanda Aco. Jafnframt hefur verið ákveðið að bjóða starfs- mönnum hlut í fyrirtækinu og gert er ráð fyrir að það verði síðar skráð á Opna tilboðsmarkaðnum. Aco er einna umsvifamest í þjón- ustu við prentiðnaðaðinn, en selur einnig Leo tölvur, Rioch ljósritunar- vélar og faxtæki ásamt öðrum tölvubúnaði. Nam velta fyrirtækis- ins um 400 milljónum á síðasta ári. „Við teljum að þetta sé mjög vænlegur fjárfestingarkostur," sagði Frosti Bergsson, fram- kvæmdastjóri Opinna kerfa. „Aco hefur verið að ganga í gegnum endurskipulagningu og þar eru ung- ir og mjög áhugasamir menn komn- ir í forystu. Við höfum trú á þeim til góðra verka. Þeir hafa verið í samstarfi við okkur í sölu á prentur- um og rekstrarvörum, en núna munu bætast við einkatölvur. Sam- skiptin við Aco hafa verið mjög góð hingað til og með þessari aðgerð vonumst við til þess að samskiptin eflist enn frekar í næstu framtíð.“ VW fer fram ur Fiat íMið-Evrópu Búdapest. Reuter. VOLKSWAGEN AG skaut Fiat aft- ur fyrir sig 1996 og seldi flesta bíla á ört vaxandi markaði Mið-Evr- ópu samkvæmt könnun Reuters. Svæðinu tilheyra aðildarríki frí- verzlunarsamnings Mið-Evrópu (CEFTA) - Tékkland, Ungverja- land, Pólland, Slóvakía og Slóvenía. Alls jókst sala í CEFTA löndum um 39,5% í 842.565 bíla 1996 úr 603,780 bílum 1995. Heildarsala nam 547.428 bílum 1994 og 529.496 1993. Daewoo í þriðja sæti Fiat hefur selt flesta bíla og VW næstflesta síðan CEFTA var stofn- að 1993, en VW skauzt upp í fyrsta sæti í fyrra og fjöliðnaðarfyrirtækið Daewoo Group í Suður-Kóreu komst í þriðja sæti. VW - það er Audi, SEAT, Skoda og VW tegundir - hélt í við aukna eftirspurn að mestu og jók sölu sína um 38,4% í 197.887 bíla 1996 úr 143.024 bílum 1995. Fiat - það er Alfa Romeo, Fiat, Iveco, Lancia og nokkrar sérhæfðar tegundir - hélt aftur á móti ekki í við eftirspurn. Fyrirtækið jók sölu sína um aðeins 25,9% í 192.318 bíla 1996 úr 152.813 bílum 1995. Af öðrum framleiðendum seldi aðeins Daewoo yfir 100.000 bíla í CEFTA-löndum og juku Kóreu- menn sölu sína um 38,3% í 152.859 1996 úr 110.497 bílum 1995. Skæðasti keppinauturinn var General Motors í Bandaríkjunum, sem jók sölu sína um 64,9% í 67.085 bíla 1996 úr 40.688 bílum 1995. „Fiat hefur haft forystu á mark- aðnum vegna þess að fyrirtækið á bílaverksmiðju í stærsta markaðs- landinu, Póllandi, en VW á næst- stærstu bílaverksmiðjuna, í Tékk- landi,“ sagði Attila Havas við hag- fræðiháskólann í Búdapest. VW hefur keypt meirihluta í Skoda automobilovna a.s. í Tékk- landi á áföngum síðan 1989. VW seldi fleiri bíla en Fiat í öllum löndum á svæðinu nema Póllandi. Sérfræðingar segja að VW hafi verið betur í stakk búið að notfæra sér mikla eftirspurn eftir bílum á CEFTA-svæðinu af því að fyrirtæk- ið hafi náð víðar fótfestu en Fiat. VW á Skoda verksmiðju í Pól- landi og smíðar VW bíla í Slóvakíu. Fyrirtækið hyggst einnig setja sam- an bíla í Ungveijalandi frá og með 1998, en Fiat framleiðir ekki bíla í öðrum CEFTA-Iöndum en Pól- landi. Daewoo hefur skýrt frá fyrirætl- unum um að smíða yfir 500.000 bíla á ári í Mið-Evrópu fyrir árið 2000 með því að komast yfir ríkis- verksmiðjur í Tékklandi og Póllandi. VIÐ j- ■-- . ' - 15 ■' Verðmæti vöruút- og innflutnings janúar 1996 og 1997 1996 1997 (fob virði í milljónum króna) jan, jan. cí \ Breyting á föstu gengi* Útflutningur alls (fob) 8.051,5 11.888,0 +49,0% Sjávarafurðir 6.109,6 6.763,3 +11,7% Landbúnaðarvörur 134,7 167,4 +25,4% Iðnaðarvörur 1.745,1 2.249,3 +30,1% Ál 1.052,1 1.291,9 +23,9% Kísiljárn 128,6 239,6 - Aðrar vörur 62,1 2.708,1 - Skip og flugvélar - 2.641,0 - Innflutningur alls (fob) 8.368,4 10.659,7 +28,5% Matvörur og drykkjarvörur 926,0 782,7 -14,7% Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 2.624,1 2.482,7 -4,5% Óunnar 122,5 96,7 -20,3% Unnar 1.819,9 2.139,7 +18,6% Til stóriðju 681,8 246,3 -63,6' Eldsneyti og smurolíur 736,2 973,5 +33,4% Bensín, þ.m.t. flugvélabensín 194,0 130,6 -32,1 % Annað unnið eldsn. og smurolíur 541,3 842,2 +57,0% Fjárfestingarvörur 1.890,0 3.506,4 - Flutningatæki 780,2 1.358,2 +75,7% Fólksbílar 431,5 621,2 +45,3% Flutn.t. til atv.rek. (ekki skip, flugv.) 109,8 134,7 +23,8% Skip 6,6 270,1 - Flugvélar 75,4 0,1 - Neysluvörur ót.a. 1.394,3 1.521,8 +10,1% Vörur ót.a. (t.d endursendar vörur) 17,5 34,3 - Vöruskiptajöfnuður -316,8 1.228,3 - ' Miðað er við meðalgengi á vöniviðskiptavog; á þann mælikvarða var meðalverð erlends gjaldeyris 0,9% lægra í jartúar 1997 en á sama tima árið áður. Heímlld: HAGSTOfA ÍSLANDS Verðmæti innflutn- ingsins 29% meira í JANÚARMÁNUÐI voru fluttar út vörur fyrir 11,9 milljarða króna og inn fyrir 10,7 milljarða. Vöruskiptin í janúar voru því hagstæð um 1,2 milljarða kr. en í janúar 1996 voru þau óhagstæð um 300 milljónir króna á föstu gengi, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu íslands. í janúarmánuði sl. var verðmæti vöruútflutnings 49% meira á föstu gengi en sama tíma árið áður. Stærstan þátt þeirrar breytingar má rekja til sölu Flugleiða á einni af vélum sínum. Sjávarafurðir voru 57% alls útflutningSins og var verð- mæti þeirra 12% meira en í janúar 1996. Verðmæti útfluttra iðnaðar- vara var 30% meira en í janúar 1996, þar af var verðmæti útflutts áls 24% meira og verðmæti kísiljárns var 88% meira. Heildarverðmæti vöruinnflutnings í janúar 1997 var 29% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mestan þátt í auknum vöruinnflutn- ingi átti innflutningur á fjárfesting- arvöru, sérstaklega til stóriðju. Einn- ig varð aukning í innflutningi á flutningatækjum og á eldsneyti og smurolíu. Italirgeta ekki bannað franskt brauð Lúxemborg. Reuter. ITALIR geta ekki bannað franskt brauð, þótt það fullnægi ekki ít- ölskum gæðakröfum, samkvæmt úrskurði Evrópudómstólsins. Þótt brauðið frá Frakklandi kunni að vera gallað telst bann við sölu þess viðskiptaþvingun, sem er bönnuð samkvæmt lögum ESB. Dómstóllinn segir að bann sé heldur ekki hægt að réttlæta af heilbrigðisástæðum. Málið var höfðað á Italíu gegn fyrirtæki, sem flutti inn brauð frá Frakklandi og seldi það stórverzlunum. ------» ♦ ♦----- American ásæl- ist 2 flugfélög Buenos Aires. Reuter. BANDARÍSKA flugfélagið Americ- an Airlines hefur hug á að kaupa argentínsku flugfélögin Aerolineas Argentinas og Austral. Ríkisfréttastofan Telam greinir frá þessu og vitnar í fyrrverandi sendi- herra Bandaríkjanna í Argentínu James Cheekas. Krupp reynir að yfir- taka Thyssen AG Bonn. Reuter. ÞÝZKI iðnrisinn Krupp héfur stað- fest að hann hyggist reyna að yfir- taka keppinautinn Thyssen AG og koma á fót einu stærsta stál- og verkfræðisamsteypu heims. Árleg velta hins sameinaða fyrir- tækis yrði um 63 milljarðir marka og slíkur stálrisi mundi ógna aðal- keppinautunum í Evrópu-Usinor Sacilor í Frakklandi og British Steel- Plc í Bretlandi. Krupp ætlar að bjóða hluthöfum Thyssens 435 mörk á hlutabréf, það er 25% yfirverð miðað við lokaverð á mánudag. Thyssen brást hart við tilkynn- ingunni, sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Stálverkamenn óttast víðtækar uppsagnir og lögðu niður vinnu til að mótmæla í Rínar- héruðunum, aðaliðnaðarsvæði Þýzkalands. Hávaðasöm mótmæli Stálverkamenn gerðu hróp að yfirmanni Fried. Krupp AG Hoesch- Krupp, Gerhard Cromme, þegar hann reyndi að útskýrá fyrirhugað- an samruna. Cromme var upp- nefndur „atvinnubani" þegar hann stjórnaði yfirtöku Hoesch 1991, en þá voru yfír 20.000 störf lögð niður. Cromme vísaði á bug ásökunum Thyssens um að sameiningin mundi kosta þúsundir manna atvinnuna og kvað það þvætting. Hann sagði að hyggilegt væri að koma á fót samsteypu tveggja stærstu stál- fyrirtækja Þýzkalands til að tryggja samkeppnishæfni Rínarhéraðanna. Seinna sagði talsmaður Krupp í Essen að hann væri nokkurn veginn viss um að samruninn yrði að veru- leika. Um 1.000 stálverkamenn Thyss- ens tóku þátt í mótmælum við aðal- stöðvar Krupps. Nokkrir reyndu að gera áhlaup á byginguna, en aðrir köstuðu eggjum og appelsínum í stjórnarformann Krupps og hróp- uðu: „Hvar er morðinginn?“ og „Komdu út, Cromme!" „Hoesch átti þrjár stálverksmiðj- ur,“ sagði þátttakandi í mótmælun- um. „Tveimur hefur verið lokað og hvað á unga fólkið að gera?“ Thyssen hyggst snúast til varnar gegn ásælni Krupps. „Við munum reyna að hrinda þessari fjandsam- legu yfírtöku ásamt samheijum í ríkisstjórninni og iðnaðinum," sagði Thyssen í yfirlýsingu. Auk þess að auka atvinnuleysi, sem hefur ekki verið meira í Þýzka- landi síðan í heimskreppunni, mun samruninn valda miklum félagsleg- um breytingum og efnahagslegum skipulagsbreytingum í Ruhrhéruð- unum, en sérfræðingar telja samrunann hyggilegan. Sérfræðingarnir fagna tilraun Krupps til að auka samþjöppun í þýzkum stáliðnaði, sem framleiðir umfram getu, en velta því fyrir sér hvernig Krupp muni fjármagna við- skiptin. Samruninn getur valdið pólitísk- um erfiðleikum, því að stjórnin ótt- ast nýja mótmælaöldu eftir fjöl- menn mótmæli þýzkra námamanna í Bonn að undanförnu. Minni neyzla öls Amsterdam. Reuter. FRAMTÍÐARHORFUR hol- lenzkra ölgerðarhúsa virðast slæmar vegna minnkandi neyzlu og harðrar verðsam- keppni í allri Evrópu, en út- flutningur til ört vaxandi markaða getur bætt úr skák að sögn sérfræðinga. Erfið markaðsskilyrði sjást á afkomu þriðju stærstu öl- gerðar Hollands, Grolsch, sem hefur greint frá því að hagnað- ur fyrirtækisins hafi aukizt mjög lítið 1996. Auk þess hefur Heineken NV, stærsta ölgerð Evrópu, skýrt frá því að nettóhagnaður hennar hafi minnkað um 1,4% 1996, en fyrirtækið býst við auknum hagnaði á þessu ári. Nettóhagnaður minnkaði í 655 milljönir gyllina eða 341 milljón dollara úr 664 milljón- um og arður á hlutabréf lækk- ar í 13,06 gyllini úr 13,24 gyllinum. Tóbaksfé til rannsókna London. Reuter. ALGENGT er að tóbaksfyrir- tæki íjármagni rannsóknir í læknisfræði í Bretlandi, að sögn starfsmanna læknis- fræðilegrar góðgerðarstofnun- ar. Dr. Grant Lewison og sam- starfsmenn hjá Wellcome Trust segja að í skjölum í gagnabönkum megi víða sjá vísað til rannsókna með fjár- hagslegum stuðningi tóbaks- fyrirtækja, að minns.ta k'osti, að einhvetju leyti. „Sá siður að taka við tób- akspeningum er greinilega al- gengur og af iæknisfræðiskól- um í Bretlandi er skólinn í Glasgow sá eini sem kemur ekki við sögu,“ sögðu Lewjson og samstarfsmenn hans í bréfi til læknisfræðitímaritsins-’ Lancet. Pearson heitir betri afkomu London. Reuter. NÝR aðalframkvæmdastjóri Peárson Plc, Maijorie Scard- ino, segir að forgangsverkefni hennar verði að bæta fjárhags- afkomu fjölmiðlafyrirtækisins. Pearson segir að rekstrar- hagnaður fyrirtækisins 1996 hafi numið 281 milljón punda fyrir greiðslu 100 milljóna punda vegna rangra reikn- ingsskila dótturfyrirtækisins og bókaforlagsins Penguin USA. Scardino sagði að varið yrði 100 milljónum punda á næstu fimm árum til að stækka við- skiptablaðið Financial Times og auka útbreiðslu þess í heim- inum. IBM greiðir mesta kaup- auka sinn New York. Ecutcr. IBM hefur ákveðið að greiða 241.000 starfsmönnum sínum kaupauka að upphæð 1,2 millj- arða dollara. Kaupaukinn er greiddur vegna þess að fjárhagsafkoma fyrirtækisins hefur batnað og hefur fyrirtækið ekki greitt jafnháan bónus síðan það var stofnað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.