Morgunblaðið - 19.03.1997, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
Skoðanakannanir benda til mikils fylgis breska Verkamannaflokksins
Mesta forskot sögunnar í
upphafi kosning'abaráttu
London. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, varð fyrir áfalli í gær
þegar birt var skoðanakönnun sem
bendir til þess að fwskot Verka-
mannaflokksins á íhaldsflokkinn
sé nú allt að 28 prósentustig og
meira en nokkur flokkur hefur
haft í upphafi kosningabaráttu í
Bretlandi. Stærsta æsifréttablað
landsins, The Sun, lýsti ennfremur
yfir stuðningi við Tony Blair, leið-
toga Verkamannaflokksins, í kosn-
ingunum 1. maí.
The Sun studdi Major í síðustu
kosningum árið 1992 og telur
harðvítuga gagnrýni blaðsins á
Neil Kinnock, þáverandi leiðtoga
Verkamannaflokksins, hafa átt
stóran þátt í óvæntum kosninga-
sigri íhaldsflokksins. Blaðið sagði
í gær að Blair væri rétti maðurinn
til að stjórna Bretlandi þar sem
landið þarfnaðist „leiðtoga með
framtíðarsýn, markmið og þor“.
„Ég hafði áhyggjur af afstöðu
The Sun í forystugreinum,“ sagði
Major en kvaðst vona að frétta-
flutningur blaðsins yrði sanngjarn.
The Sun lýsir
yfir stuðningi
við Tony Blair
Forystumenn Verkamannaflokks-
ins vísuðu á bug vangaveltum um
að hann hefði gert leynilegan
samning við Rupert Murdoch, eig-
anda blaðsins, um að slaka á regl-
um, sem eiga að tryggja sam-
keppni á fjölmiðlamarkaðnum,
gegn stuðningi við flokkinn í kosn-
ingabaráttunni.
Flestir vilja breytingar
Dagblaðið The Daily Telegraph
birti skoðanakönnun, sem bendir
til þess að munurinn á fylgi flokk-
anna sé nú 28 prósentustig og
enginn flokkur hefur verið með svo
mikið forskot í upphafi kosninga-
baráttu í sögu Bretlands. Sérfræð-
ingar í breskum stjómmálum
sögðu að svo mikið forskot myndi
þýða að Verkamannaflokkurinn
fengi 500 þingsæti af 659. Þótt
forskotið myndi minnka um helm-
ing, eða í 14%, fengi hann 150
sæta meirihluta.
Major kvaðst þó efast um að
fylgi Verkamannaflokksins væri
svo mikið. „Ég hef staðið frammi
fyrir slæmum skoðanakönnunum
mestan hluta sex síðustu ára.
Reyndar voru þær hræðilegar fyrir
síðustu kosningar."
Könnun, sem gerð var fyrir Reut-
ers-fréttastofuna, bendir til þess að
forskot Verkamannaflokksins sé 25
prósentustig. Flestir þeirra, sem
sögðust ætla að kjósa flokkinn,
sögðu ástæðuna þá að breytingar
væru orðnar tímabærar eftir 18 ára
valdatíma íhaldsflokksins.
Blair sagður „kameljón"
Major sagði Blair „kameljón“
breskra stjórnmála þar sem viðhorf
hans breyttust frá degi til dags.
Hann lagði áherslu á að atvinnu-
leysið hefði minnkað og verðbólgan
héldist lág. „Bretland er að
blómstra. Við viljum ekki að
Verkamannflokkurinn kasti því á
Reuter
FORSÍÐA breska dagblaðs-
ins The Sun, þar sem lýst er
yfir stuðningi blaðsins við
Tony Blair, leiðtoga Verka-
mannaflokksins.
glæ,“ sagði hann í viðtali við BBC-
sjónvarpið.
Könnun Reuters bendir þó til
þess að 35% Breta treysti Verka-
mannaflokknum betur til að
stjóma efnahagnum en 26%
íhaldsflokknum.
Blair leggur mesta áherslu á að
höfða til miðstéttarmanna og lof-
aði í gær að hækka ekki tekju-
skatta þeirra ef hann færi með
sigur af hólmi í kosningunum.
Landflótta hugmyndafræðingur norður-kóreska kommúnistaflokksins
Fluttur frá
Kína með leynd
Komið fyrir á Filippseyjum
Manila. Reuter.
HWANG Jang-yop, hæst setti
embættismaðurinn sem hefur flúið
Norður-Kóreu, var fluttur frá Pek-
ing til Filippseyja með mikilli leynd
í gær, að sögn embættismanna í
Manila.
Hwang hafði verið í suður-kór-
eska sendiráðinu í Peking í tæpar
fimm vikur og heimildarmennirnir
sögðu að flugvél hans hefði lent á
flugvelli, sem tilheyrði áður Banda-
ríkjaher, skammt frá Manila. Það-
an hefði hann farið með herþyrlu
til fjallabæjarins Baguio, um 200
km norðan við höfuðborgina.
Mikil leynd hvíldi yfir ferðinni,
sem þótti minna á skáldsögur um
njósnara í kalda stríðinu. Stjórn-
völd vildu ekki staðfesta að Hwang
væri í Baguio og Fidel Ramos,
forseti Filippseyja, kvaðst ekki vita
til þess að hann hefði verið fluttur
þangað.
Nokkrum dögum áður hafði her-
mönnum, sem valdir voru til að
gæta flóttamannsins, verið sagt
að von væri á „erlendum fjár-
festi“. „Okkur var ekki sagt fyrr
en í gær hver þessi fjárfestir er,“
var haft eftir einum þeirra.
„Herinn gæti verið að villa um
fyrir ykkur,“ sagði þó filippeyskur
stjórnarerindreki og bætti við að
herinn þyrfti að halda dvalarstað
Hwangs leyndum til að tryggja
öryggi flóttamannsins vegna
hugsanlegra árása Norður-Kóreu-
manna. Ráðamenn í Peking og
Seoul staðfestu að Hwang væri
farinn frá Kína en neituðu að skýra
frá því hvert hann var fluttur.
Verður í allt að viku
á Filippseyjum
Hwang vildi fara til Seoul en
filippeyskur stjórnarerindreki
sagði að ákveðið hefði verið að
flytja hann fyrst til þriðja ríkisins
til að valda Norður-Kóreumönnum
sem minnstum vandræðum vegna
þessa máls. Heimildarmenn í her
Filippseyja sögðu að Hwang yrði
í a.m.k. þijá daga og allt að viku
í landinu.
Flótti Hwangs til Peking var
vandræðamál fyrir Kínverja sem
neyddust til að velja milli nýrra
kapítalískra vina í Suður-Kóreu og
gamalla bandamanna í Norður-
Köreu.
Þjóðveijar og Frakkar
Staðráðnir í
að uppfylla
skilyrði
Brussel. Morgunblaðið.
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Frakk-
lands og Þýskalands kynntu á
mánudag fjármálaráðherrum ann-
arra aðildarríkja ESB og fulltrúum
framkvæmdastjórnarinnar hvernig
þeir hygðust uppfylla skilyrði Maas-
tricht-sáttmálans fyrir þátttöku í
Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu (EMU), sem stefnt er að að
verði að veruleika þann 1. janúar
1999.
Miklar efasemdir hafa verið uppi
innan Evrópusambandsins um það
hvort ríkjunum tveimur muni takast
að uppfylla þessi skilyrði í tæka
tíð, en myntbandalagið er sem
kunnugt er talið standa og falla
með þátttöku þessara tveggja
stærstu aðildarríkja ESB.
Á fundinum fullvissuðu ráðherr-
amir starfsbræður sína og fulltrúa
framkvæmdastjórnarinnar um að
ríkisstjórnir landanna tveggja væru
staðráðnar að uppfylla þessi skil-
yrði fyrir 1. janúar 1999 og sögð-
EMU
EVRÓPA^
ust reiðubúnir að grípa til enn harð-
ari aðhaldsaðgerða ef núverandi
áætlanir skiluðu ekki tilætluðum
árangri.
Aðhaldsaðgerðir beggja land-
anna felast í verulegum niðurskurði
á ríkisútgjöldum, sér í lagi á sviði
almannatrygginga, auk þess sem
þeim er ætlað að reyna að örva
hagvöxt og atvinnusköpun. í þeim
tilgangi hyggjast Þjóðveijar einnig
lækka skatta á sama tíma.
Gerrit Zalm, fjármálaráðherra
Hollands, sem nú er í forsæti Evr-
ópusambandsins, sagði að fund-
inum loknum að áætlanir beggja
Reuter
THEO Waigel, fjármálaráðherra Þýzkalands (t.h.) sýnir evró-
minnispening, sem Andreas Froehlich, bankastjóri sparisjóðsins
í Waldkirch í Suður-Svartaskógi, færði honum. Sparisjóðurinn
gerði hálfs árs langa tilraun með að nota evróið, hina væntan-
legu sameiginlegu Evrópumynt, í viðskiptum sínum. Waigel lýsti
því yfir í gær, að Þýzkaland myndi uppfylla skilyrðin fyrir stofn-
aðild að EMU, en viðurkenndi að heildarskuldir ríkisins yrðu
yfir settu marki Maastricht-sáttmálans.
ríkjanna væru raunhæfar og þær
hefðu styrkt hann í þeirri staðföstu
trú sinni að EMU yrði að veruleika
á tilsettum tíma.
Waigel ljær máls á frestun
Theo Waigel, fjármálaráðherra
Þýskalands, lét hins vegar hafa eft-
ir sér í Brussel í fyrradag að það
kynni að vera betra fyrir Evrópu-
sambandið að fresta gildistöku
myntbandalagsins, fremur en að slá
eitthvað af inntökuskilyrðunum.
Sagði hann það mikilvægara fyrir
traust myntbandalagsins að inn-
tökuskilyrðunum yrði fylgt út í ystu
æsar, heldur en að myntbandalagið
yrði að veruleika á tilsettum tíma.
Aðspurður um þessa yfirlýsingu
sagði fulltrúi framkvæmdastjórnar-
innar að slíkt væri hins vegar að-
eins hægt með því að breyta Maas-
tricht-sáttmálanum og enginn hefði
enn léð máls á því.
Hungur í
N-Kóreu
HUNGUR sverfur nú að íbú-
um Norður-Kóreu og að sögn
starfsmanna Matvælaaðstoðar
Sameinuðu þjóðanna (WFP)
eru þar horuð börn fýrirboðar
hungursneyðar í hinu fátæka,
einangraða landi, sem skollið
gæti á jafnvel í þessum mán-
uði. Matarskammtar, sem þeg-
ar eru mjög litlir, gætu minnk-
að í ekki neitt í kjölfar flóða,
uppskerubrests og slæms
efnahagsástands. Tafarlaus
matvælaaðstoð frá aflögufær-
um ríkjum heims er nauðsyn-
leg til að koma megi í veg
fyrir vannæringu og hungur-
dauða, sagði talsmaður WTP
í gær.
Vatnsskortur
í S-Englandi
ÍBÚUM á SA- og A-Englandi
hefur nú verið bannað að
vökva garða sína og yfirvöld
segja að þau kunni að sjá sig
knúin til að grípa til annarra
vatnssparandi aðgerða þegar
líður á árið vegna ískyggilega
lágrar grunnvatnsstöðu. Um-
hverfisstofnun Bretlands
greindi frá því í gær, að grunn-
vatnsstaða væri nú svo lág
vegna óvenju lítillar úrkomu á
næstum tveggja ára tímabili,
eða frá aprílmánuði 1995 til
janúar 1997.
Flugslys í
Rússlandi
RÚSSNESK flugvél af gerð-
inni AN-24, sem var á leið frá
Stavropol til Trabzon í Tyrk-
landi með 41 farþega og níu
manna áhöfn innanborðs,
hrapaði í gær, 37 mínútum
eftir flugtak. Allir fórust, sem
í vélinni voru.
Hungur
í Laos
MATVÆLAAÐSTOÐ Sam-
einuðu þjóðanna (WFP) lýsti
því yfir í gær, að fjárveitingar
að upphæð fimmtán milljóna
bandaríkjadala væri bráðnauð-
synlega þörf til að koma í veg
fyrir að 420.000 manns í Laos
verði hungursneyð að bráð.
Þar legði fólk sér nú eðlur og
rottur til munns, til að seðja
sárasta hungrið. Landssvæðið
þar sem svona er ástatt er
hrísgijónaræktarhérað, sem
hefur orðið fyrir endurteknum
uppskerubresti.
Gegn mann-
úðarsjóði
CHRISTOPH Blocher, for-
maður hægriflokks í Sviss,
lýsti því yfir í gær að hann
hygðist fara fyrir hreyfingu
svissneskra kjósenda, sem
vildu koma í veg fyrir áætlan-
ir ríkisstjórnarinnar um að
stofna stóran sjóð til styrktar
mannúðarmálefnum með því
að selja hluta gullbirgða alpa-
lýðveldisins. Blocher sakar rík-
isstjórnina um að láta undan
óréttmætum þrýstingi frá
hörðustu gagnrýnendum Sviss
erlendis og sagði samþing-
mönnum sínum í Bern að hann
myndi gera sitt bezta til að
tryggja að svissneskir kjósend-
ur felldu áætlunina þegar hún
verður borin undir þjóðarat-
kvæði á næsta ári.