Morgunblaðið - 19.03.1997, Side 23

Morgunblaðið - 19.03.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 23 Morgunblaðið/Aldís SAGA Jónsdóttir, Bryndís Petra Brag-adóttir og Soffía Jakobsdóttir i hlutverkum sínum. Ismeygið raunsæi LEIKOST Lcikfclag Rcykjavík- ur á Lcynibarnum FRÁTEKIÐ BORÐ Höfundur: Jónína Leósdóttir. Leik- stjóri: Ásdis Skúladóttir. Leikarar: Bryndís Petra Bragadóttir, Saga Jónsdóttir og Soffía Jakobsdóttir. Laugardagur 1. mars. ÞANN 15. mars var ár liðið frá því að verk það sem hér er til umij'öllunar var frumsýnt. Sam- tals hefur það verið sýnt a.m.k. fjórtán sinnum vítt og breitt um landið, auk þess sem Soffía Jakobsdóttir leikstýrði þessum ein- þáttungi sem hluta af dagskránni Einskonar ást á Flateyri í desem- ber sl. Höfundurinn, Jón- ína Leósdóttir, fékk nýlega 3. verðlaun í leikritasamkeppni í til- efni af aldarafmæli Leikfélags Reykjavík- ur og er von að verð- launaverkið rati á fjal- imar þar á næsta leik- ári. Ennfremur hefur hún samið leikritið Leyndarmál fyrir Ari- stofanes, leikfélag Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti, sem sýnt var fyr- ir skömmu í Höfðaborginni, og sem leikfélag Framhaldsskóla Vest- fjarða sýndi á Sólrisuhátíð sem lauk í síðustu viku. Vegna alls þessa er ástæða til þess að taka einþáttunginn Frátekið borð til umræðu, þótt eigi hafi verið fjallað um afurðir Höfundasmiðjunnar sérstaklega á sínum tíma, enda er þetta hið eina þeirra verka sem þá sáu dagsins ljós sem enn er til sýningar. Bæði verkin, Leyndarmál og Frátekið borð, byggja upp spennu á hugvitsamlegan hátt. Miklu efni er komið til skila á stuttum tíma. Hrynjandi verksins er hraður og þéttur; í Leyndarmáli taka stutt atriði við hvert af öðru og í Frá- teknu borði er orðræðan rofin og skipt um umræðuefni hvenær sem færi gefst án þess þó að efnisþræð- irnir slitni. Það virðist liggja mjög vel fyrir Jónínu að miðla upplýsing- um til áhorfenda smátt og smátt í gegnum samræður persónanna. Ekkert heldur athygli áhorfenda betur og má minna á tegundir leik- verka sem sjaldan sjást nú orðið, sakamálaleikrit og spennutrylli. Persónusköpun í Fráteknu borði er einnig til fyrirmyndar. Aðalper- sónur leiksins eru andstæður, en þær eiga þó fleira sameiginlegt en liggur í augum uppi. Skemmtileg- ast er samt að höfundi tekst að forðast viðteknar klisjur um fólk frá vissum stöðum á landinu og byggja upp persónur af holdi og bíóði. Sýn höfundar á íslenskt nú- tímaþjóðfélag og viðbrögð ein- stakra kvenna við skörðum hlut sínum er athyglisverð. Kannski er hægt að kenna hana við ísmeygið raunsæi; Jónína segir hlutina hreint út en glottir við tönn í leið- inni. Hún hefur sérstaklega gott lag á því að skrifa leiktexta sem lætur svo eðlilega í eyrum áhorf- enda að þeir láta blekkjást og finnst sem um daglegt talmál sé að ræða. Höfundur nær þannig hámarks- áhrifum út úr orðræð- unni í verkinu. Sami leikstjórinn, Ásdís Skúladóttir, stýrir báðum verkun- um. Þar sem Frátekið borð gerist á veitinga- stað hefur verið notast við Leynibarinn í kjall- ara Borgarleikhússins en einnig gefur auga- leið að auðvelt er að ferðast með þennan einþáttung um landið, sem og hefur orðið raunin. Leikkonurnar þijár eru að sjálf- sögðu orðnar sjóaðar í túlkun sinni á verkinu eftir þennan sýninga- fjölda. Saga Jónsdóttir dregur upp sérstæða mynd af norðankonu sem notar hrokann til að breiða yfir sára kvikuna. Bryndís Petra Bragadóttir leikur þjóninn, sem veitir gestunum enga persónulega athygli og sinnir þeim fagmann- lega en stutt í spuna. Soffía Jak- obsdóttir tekst einstaklega vel upp að lýsa hinni mjög svo mannlegu Fjólu sem reynist harðari í horn að taka en ætla mætti við fyrstu sýn. Leikurinn er allur mjög sterk- ur og sannfærandi, þarna sjást alskapaðar persónur úr íslensku mannlífi sem allir þekkja. Samleik- urinn er fyrsta flokks, stöður eins fjölbreyttar og rýmið býður upp á og leiklausnir athyglisverðar. Ekki má gleyma því að Frátekið borð er einstaklega fyndið verk og þótt áhorfendur hafi ekki verið margir í það skipti sem undirritaður var viðstaddur létu þeir ekki sitt eftir liggja í hlátrasköllum. Varla þarf að taka fram að fáir karlmenn höfðu séð ástæðu til að beija sýn- inguna augum dag þennan. Sveinn Haraldsson Jónína Leósdóttir Töfrandi o g hjartahlý KVIKMYNPIR Háskólabíó KOLYA ★ ★ ★ Vi Leiksljóri: Jan Sverak. Kvikmynda- tökustjóri: Vladimir Smutny. Hand- rit: Zdenek Sverak og Pavel Taussig. Aðalleikaran Zdenek Sverak, Andrej Chalimon, Libusa Safrankova og Stella Zazvorkova. 105 mín. Tékknesk. Space Film. 1996. LEIKSTJÓRI „Kolya“ Jan Sverak er gríðarlega vinsæll í heimalandi sínu, Tékklandi, og hefur jafnframt hlotið verðskuldaða athygli fyrir myndir sínar erlendis. „Kolya“ hlaut Golden Globe verðlaunin fyrir bestu erlendu kvikmyndina í ár og er einn- ig útnefnd til Óskarsverðlauna í sama flokki. Fyrsta leikna mynd Sveraks, Elementary SchooLfrá ár- inu 1991, hlaut sömu útnefningu. Það er faðir Sveraks, leikstjórinn og leikarinn Zdenek Sverak, sem fer með aðalhlutverkið í „Kolya" en hann er að auki annar höfundur handrits. Hann átti einnig heiðurinn að handriti Elementary School. Aðalpersónan í „Kolya“ er mið- aldra tónlistarmaður að nafni Frantisek Louka (Zdenek Sverak) sem hefur komið sér ágætlega fyrir þrátt fyrir ákveðið mótlæti í Tékkó- slóvakíu kommúnismans. Árið er 1968, rússneskir skriðdrekar eru alls staðar en á næsta leiti eru sögu- legir viðburðir. Fókusinn er þó ekki á þá, heldur á persónulega byltingu í lífi Louka. Inn í líf þessa eigingjarna og kvensama karlskröggs kemur óvænt lítill rússneskur drengur, Kolya (Andrej Chalimon), og neyðist Louka til þess að ala önn fyrir snáð- anum þó að það sé honum þvert um geð. í gegnum samband sitt við Kolya lærir Louka hvað óeigingjörn og skilyrðislaus ást er. „Kolya“ er hógvær kvikmynd sem leiðir áhorfandann hægt og sígandi inn í heim Louka. Þetta er mynd Nýjar bækur • Bók í bókaflokknum Ævintýra- heimurinn nefnist Snar ogSnögg- urflytja. Hún var bók mánaðarins í febrúar í Bókaklúbbi barnanna - Disneyklúbbnum. Ikornarnir Snar og Snöggur búa í skúr í garðinum hjá Andrési Önd en aðstæður þeirra breytast hressilega þegar Ripp, Rapp og Rupp ákveða að breyta sem setur traust sitt á sterkan sögu- þráð og afbragðsleik. Sérstaklega er frammistaða Andrej Chalimon áhrifamikil. Myndin er einnig falleg fyrir augáð í mjúkum tónum og bregður jafnframt á leik með því að sína heiminn frá sjónarhóli barns. Húmorinn er aldrei langt undan, þá sérstaklega þegar dregin er upp mynd af sérkennilegri hegðun okkar mannanna. í „Kolya“ tekst að fjalla á næman og einlægan hátt um mannlegar til- fínningar án allrar væmni eða til- gerðar. Þetta er hlý og töfrandi kvikmynd sem er tilvalin til þess að yija bíógestum um hjartaræturn- ar í vetrarkuldanum. Anna Sveinbjarnardóttir skúrnum í seglskútu og bjóða Andr- ési og Andrésínu með sér í siglingu. Þau vita hins vegar ekki af laumuf- arþegunum um borð! Útgefandi er Vaka-Helgafell. Sigrún Ámadóttirþýddi. Snarog Snöggurfæst aðeins íBókaklúbbi barnanna - Disneyklúbbnum og kostar kr. 895 með sendingargjaldi. Gáski, blað klúbbsins fylgir bók mánaðarins til félaga. Rafiðnaðarmenn Rafiðnaðarsamband ísiands boðar til félagsfunda um nýgerða kjara- samninga. Á fundunum verður einnig fjallað um stöðu viðræðna vegna endurnýjunar annarra kjarasamninga RSÍ. Reykjavík: Miðvikudaginn 19. mars Kíwanishúsinu Engjategi 11 kl. 18:00 Egilsstaðir: Fimmtudaginn 20. mars Hótel Valaskjálf kl. 20:00 Akureyri: Föstudaginn 21. mars Verkalýðshúsinu Skipagötu 14 kl. 20:00 Sauðárkrókur: Laugardaginn 22. mars Verkalýðshúsinu kl. 11:00 Biönduós: Laugardaginn 22. mars Hótelinu kl. 15:00 Kjörgögn vegna þeirra kjarasamninga RSÍ sem verða afgreiddir út í síðasta lagi 21. mars og þurfa að berast kjörstjórn í síðasta í póstafgreiðslu verða sendir lagi fimmtudaginn 3. apríl 1997. c 1 Þegar hafa verið haldnir fundir hjá Reykjavíkurborg, Stöð 2, starfsmönnum fyrirtækja innan Félags íslenskra stórkaupmanna og á Selfossi, Akranesi og í Keflavík. T RAFIÐNAÐARSAMBAND ISLANDS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.