Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 33 Við Óskar urðum fyrst skipsfé- lagar árið 1991 á Helgafellinu, hinu ágæta skipi Samskipa. Þar var fyrir úrvals áhöfn reyndra sjó- manna, starfs- og félagsandi var sérlega góður eins og jafnan fylgdi Jörundi skipstjóra þar sem hann stýrði skipi. Með Óskari var kom- inn enn einn félaginn sem var fyrr- nefndum kostum ríkulega búinn, enda einn af elstu og virtustu starfsmönnum félagsins. Fljótlega eftir að við urðum skipsfélagar varð að venju að ég kæmi við í eldhúsinu hjá Óskari á leið til morgunverðar og ef vinnan leyfði spjölluðum við saman fáeinar mín- útur. Við reyndum líka að drekka saman kaffisopa að loknum hádeg- isverði eða Óskar kom í heimsókn í brúna á kvöldvaktina. Á þessum stundum reyndum við að leysa lífs- gátuna og önnur mál sem upp komu og næst okkur voru á hveij- um tíma. Óskar var ekki mjög opinn um sín persónulegu mál en við aukin kynni sá ég glöggt hversu góður og einlægur persónuleiki hann var. Með sinni góðu grund, ljúfmennsku og góðri framkomu auðgaði hann líf mitt og örugglega margra fleiri skipsfélaga sinna á áralöngum sjómennskuferli. Lífs- gildin voru ákveðin og markmiðin skýr. Ávallt var þar fjölskyldan, Anna og börnin, í fyrirrúmi, ekk- ert var of gott fyrir þau. Anna og Óskar höfðu búið sér yndislegt heimili. Komið bömum sínum til þroska og barnaböm voru komin til aukinnar gleði, en draumurinn um að fara í land og eiga meiri tíma með ástvinunum rættist því miður ekki. Bræðurnir í Oddfellow áttu sinn sess og mat Óskar samfélag sitt í félagsskapnum mjög mikils. Starf sitt rækti hann af stakri um- hyggju, hann fór sjálfur yfir og gekk frá þeim aðföngum skipsins sem honum tilheyrðu. Þó öllum væri ljóst að þar færi ljúfmenni, var hann fastur fyrir og enginn valtaði yfir hann. Sölumönnum þjónustunnar var eins gott að reyna enga pretti. „Skipshöndlur- um“ leiðst ekki að koma með svikna eða gallaða vöru, grannt var fylgst með magni, ástandi og dagsmerkingum. Verðskynið var gott, saman skyldi fara verð og gæði vörunnar og hiklaust sent til baka ef þurfa þótti. Heiðursmaður- inn Ólafur heitinn Tómasson segir í bók sinni „Farmaður í friði og stríði“ þar sem hann fjallar um mikilvægi matsveinsins í andlegu ástandi áhafnarinnar: „Vondir matsveinar draga fram það versta í mönnum gera vonda menn verri. Góði matsveinninn hins vegar dregur fram það besta í áhöfninni og gerir góða_ menn betri.“ Þeir sem þekktu Óskar vita hvorum hópnum hann tilheyrði. Önnu, börnunum og bamabörn- unum sendum ég og drengirnir okkar innilegustu samúðarkveðjur. Huggun harmi gegn eru þó minn- ingarnar góðu og dýrmætu sem aldrei verða frá ykkur teknar. Guð blessi ykkur. Pétur Sigurðsson. Hafið hefur tekið sinn toll, enn erum við áminnt um legu lands og öryggi sjómanna. Þrír sjómenn á besta aldri hafa týnt lífinu í baráttunni við hin stóru öfl á að- eins tveimur vikum. Ægir kon- ungur áréttar enn mikilvægi þess að hafa árvökula skipstjómar- menn, úrvals áhafnir, valinn mann í hveiju rúmi. Áður fyrr gátu menn ráðið nokkru um smíði fleyj- anna og fengið á tilfinninguna hvað mátti bjóða þeim. Nú er öld- in önnur, skipin stækka og ljar- lægir menn hafa smiðshöggið á þá smíð, sérhæfnin altæk. Oft munar ekki nema hársbreidd hvort menn eru lífs eða liðnir. Skjót björgun er mikilvæg og þar hafa landsfeðurnir og þjálfað björgun- arlið lagt hönd á plóginn. En ör- yggi sjómanna er enn í hættu. Þegar minnast skal góðs sjó- manns, er efst í huga að þakka þá þjónustu og það starf sem hann hefur af skyldurækni innt af hendi við okkur sem heima sitjum. Fá hafsvæði eru með krappari öldu en hafið við íslandsstrendur. Skip- in þurfa því að vera fullkomnari en ella og sjómenn okkar vaskari. Undirstaða landkrabba byggist hér á starfi þeirra sem sigla og sækja sjóinn. Þessa alls er gott að minnast þegar kveðja skal Óskar Guðjóns- son, matsvein, sem fórst með Dísarfellinu hinn 9. þessa mánað- ar. Undirritaður man það enn í dag hve vel það var brýnt fyrir mér hjá sama skipafélagi að fara var- lega. Ungur sjómaður skyldi fara að öllu með gát er hann fetaði sig afturskips í þungum hafsjó. Þá sigldum við Óskar saman, ungir, gáskafullir og áhyggjulausir sjó- menn. Tæpum 40 árum síðar ferst Óskar við skyldustörf á skipi hjá sama skipafélagi og hann hóf störf hjá. Slys hafa á sama tíma verið fátíð hjá farskipaútgerð hér á landi en því fleiri á fiskiskipum. Fáir hafa sótt eins fast sjóinn og státað af eins miklu starfs- þreki og dugnaði sem Skagamað- urinn Öskar. Á tímabili, þegar börnin voru ung, starfaði hann sem yfirmaður á Hótel Loftleiðum og á Laugarvatni stjórnaði hann matseld við stóran skóla. í Hafn- arfirði rak hann verslun en fannst kaupmennskan lítt spennandi kostur. Á löngum siglingum lífgaði Ósk- ar upp á tilveruna með harmon- ikkuspili. Þegar Hamrafellið kom til Sikileyjar í eitt skiptið, keypti hann forláta nikku og aldrei gleymi ég því hve ólmir ítalirnir voru að láta Óskar reyna hin ýmsu hljóð- færi og jafnvel taka um borð. Þar fundu þeir fyrir þéttan mann á velli, traustan í lund og með gam- ansemina í lagi. Óskar hafði með fjölskyldu sinni byggt glæsilegt sumarhús í Gríms- nesi þar sem gott var að vera fjarri skarkala lífsins. Þar var að öllu myndarlega staðið og innviðir traustir. Það er því kaldhæðni ör- laganna nú að hann skuli ekki fá notið þar ávaxta sinna í faðmi fjöl- skyldu. Óskar átti því láni að fagna að eiga góðan lífsförunaut, Önnu Þor- steinsdóttur, ljósmóður. Samheldni þeirra og ást var frá upphafi sönn og virk og saman unnu þau hvort að sínu nauðsynjamálinu. Þegar góður drengur og sjómað- ur er kvaddur í dag eru Önnu og uppkomnum börnum sendar dýpstu samúðarkveðjur. Megi minningin um hann verða til þess að treysta enn öryggi og forvarnir sjómanna á hafínu við Island. Sigurður Rafn Antonsson. ÓSKAR SVAVAR GUÐJÓNSSON - PÁLL ANDRÉSSON Það var fyrir rúmu ári, nánar tiltekið 11. janúar 1996, að hópur samstilltra félaga kom saman í skipasmíðastöð í Bremerhaven til að taka við nýju Dísarfelli. Stóru dg glæsilegu skipi, sem Samskip höfðu þá nýlega fest kaup á. Þetta var þó ekki öll áhöfnin því nokkrir félaga okkar höfðu fengið það hlut- verk að sigla okkar fyrra skipi, ms. Helgafelli, um hálfan hnöttinn til Singapore og afhenda það þar nýjum eigendum. Að lokinni þeirri ferð komu þeir yfir á Dísarfell og mynduðu ásamt þeim, sem fyrir voru, áhöfn sem hver útgerð gat verið stolt af. Samhent áhöfn ásamt útgerð skipsins vann ötul- lega að því markmiði að gera gott skip betra. í lok febrúar urðu vatnaskil hjá okkur í áhöfninni, þar sem Dísarfellið með fullri áhöfn hafði verið leigt Eimskipafélagi íslands til Ameríkusiglinga. Það var því í tvennum tilgangi sem skip og áhöfn lagði frá Reykjavík föstudaginn 7. mars síðastliðinn. Til að ljúka þeirri ferð. sem hafin var 11. janúar fyrir rösku ári og síðan undirbúa skipið fyrir nýja ferð á aðrar slóðir. Engan okkar, sem skipuðu áhöfn ms. Dísarfells, gat órað fyrir þeim ósköpum sem mættu skipi og áhöfn aðfaranótt 9. mars og ollu því að skipið lauk aldrei ferðinni og tveir af félögum okkar náðu ekki að komast heilir úr þeim hiidarleik. Enn einu sinni fengum við vanmáttugir mennirnir að sjá vald Ægis konungs þegar hann lagði þetta stóra og mikla skip að velli. Við fengum líka að sjá tækni og kraft TF-Lífar og áræði og dug áhafnar hennar þeg- ar hún hreif 10 af skipshöfninni úr greipum dauðans. Nokkuð sem fyrir fáum árum hefði ekki verið mögulegt. Áhöfn TF-Lífar verða seint þökkuð þau afrek sem hún hefur unnið með sínu óeigingjarna starfi, sem oftar en ekki er unnið við_ hinar verstu aðstæður. í Spámanninum eftir Kahlil Gibran segir: „Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin, sem er upp- spretta gleðinnar, var oft full af tárurn." Ennfremur segir þar: „Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sjá, að aðeins það sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ Það er með sorg í hjarta sem ég kveð þá skipsfélaga mína Óskar Guðjónsson matsvein og Pál Andr- ésson stýrimann. Ég gleðst yfir því að hafa fengið tækifæri til starfa með þeim. Páll Andrésson var maður sem óx með verkum sínum. Hvað sem hann tók sér fyrir hendur vann hann af alúð og samviskusemi. Það fór því ekki hjá því að hann ynni sér hylli og traust okkar sam- starfsmanna sinna jafnt á sjó sem í landi. Mest af þeim tíma sem hann starfaði hjá Samskipum sigldi hann sem yfirstýrimaður og hafði tvívegis leyst af sem skip- stjóri bæði á Helgafelli og Dísar- felli. Hann var góður fagmaður og vel að sér í öllu sem laut að siglingu og hleðslu skipa. Palli var góður sjómaður í þess orðs besta skilningi og góður félagi og vinur. Hann hafði lunkinn húmor og næmt auga fyrir skoplegum hlið- um mannlífsins, græskulaust þó, þótt alvaran væri aldrei langt undan. Palli fór ekki um með háv- aða en var fastur fyrir og fylginn sér þegar honum þótti það við eiga. Það er varla ofsögum sagt að hjarta hvers skips sé eldhúsið og næsta umhverfi þess. í eldhúsi Disarfells réð ríkjum Óskar Guð- jónsson matsveinn. Óskar var eng- inn viðvaningur í matargerðarlist. Hann hafði lengi staðið í eldlín- unni og kunni lagið á sérvisku og kenjum sem einatt eru uppi í matarsmekk manna. Eins hafði hann löngu lært að skip koma og fara úr höfnum undantekningar- lítið á matmálstímum. Þetta umb- ar hann með stóískri ró þótt hann að eðlisfari væri afar nákvæmur og reglusamur. Þrifnaður og reglusemi voru honum í blóð bor- in. Hann lagði metnað sinn í að laga hollan og góðan mat og kunni þar vel til verka. Þegar ákveðið var á síðastliðnu hausti að ger- breyta mataræði skipveija, til að auðvelda okkur sumum að losna við aukakílóin, sem safnast höfðu á okkur, sveiflaði hann sér létti- lega yfir á heilsulínuna og fram- reiddi hina girnilegustu rétti fulla af hollustu. Óskar var glaðbeittur maður með viðkvæma lund og vildi öllum vel. Um leið og ég fyrir hönd áhafnarinnar á Dísarfelli kveð góða félaga með virðingu og sökn- uði sendi ég öllum aðstandendum þeirra mínar dýpstu samúðarkveðj- ur og bið að þeim veitist styrkur í sorg sinni. Kristinn Aadnegard skipstjóri. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN ÞORBERGSDÓTTIR, Deildarási 6, Reykjavfk, lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 17. mars. Útförin verður auglýst síðar. Metúsalem Björnsson, Linda Metúsalemsdóttir, Sigurður Örn Sigurðsson, Birna Metúsalemsdóttir, Guðmundur Erlendsson, Björn Vigfús Metúsalemsson, Helga Emilsdóttir og barnabörn. + Ástkær sambýlismaður minn, ELÍAS ÖRN KRISTJÁNSSON, Vindási 3, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 21. mars kl. 15.00. Fyrir hönd barna og ættingja, Kristín G. Gísladóttir + Ástkær eiginmaður minn, JÓN EYJÓLFUR GUÐMUNDSSON bóndi, Þorfinnsstöðum, Þverárhreppi, Vestur-Húnavatnssýslu, lést á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga sunnu- daginn 16. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Alma Á. Levý og fjölskylda. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, VALTÝR SÆMUNDSSON frá Stóru-Mörk, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju fimmtu- daginn 20. mars kl. 13.30. Marfa Guðnadóttir, Kristbjörg Jónfna Valtýsdóttir, Emil Þór Eyjólfsson, Valdís María og Karen. + Ástkær eiginkona mln, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, Tunguvegi 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 17. marsl. Sigurður A. Álfsson, Jón Friðrik Sigurðsson, Ásrún Matthfasdóttir, Álfrún Sigurðardóttir, Jón Kristinn Cortez barnaböm og barnabamabarn. + VALGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Lindarbrekku, Hvammstanga, sem lést 14. mars síðastliðinn, verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju laugar- daginn 22. mars kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Eggert Levy.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.