Morgunblaðið - 19.03.1997, Síða 35

Morgunblaðið - 19.03.1997, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 35 FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís FRÁ vinstri Guðbjartur Sigurðsson prentari, Hjörtur Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar, Ingvar Ásmunds- son skólameistari og Sigurður Kristjánsson kennslustjóri við afhendingu styrksins. Iðnskólinn kaupir prentvél BÓKIÐNADEILD Iðnskólans í Reykjavík hefur keypt tveggja lita MO prentvél. Prentvélin er notuð en samt er hún í góðu lagi. Fagmenn telja að hún muni koma að góðum notum við að kenna alla þætti offsetprentunar. Prenttæknistofnun veitir Iðn- skólanum styrk til kaupanna upp á 1,5 milljónir og var hann afhent- ur á skrifstofu Iðnskólans í gær. Heimahlynning Krabba- meinsfélagsins 10 ára HEIMAHLYNNING Krabba- meinsfélagsms er 10 ára um þess- ar mundir. í tilefni þessara tíma- móta býður starfsfólk Heima- hlynningar og Krabbameinsfélag íslands velunnurum svo og al- menningi öðrum að kynnast starf- seminni nánar og koma í hús Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 19. mars á tímabilinu frá kl. 12-17. Starfsfólk Heimahlynningar svar- ar þar fyrirspumum um starfsem- ina og verður til skrafs og ráða- gerða. Léttar veitingar verða á boðstólum. í fréttatilkynningu segir: „í mars á þessu ári eru liðin tíu ár frá því að vísir að hospice-hreyf- ingu á íslandi varð til í sarnvinnu við Krabbameinsfélag íslands. Hugsjón Heimahlynningar byggir á „hospice“ hugmyndafræðinni, hugmyndafræði sem byggir á fomri hugsun um rétt einstaklings- ins til meginákvarðana um eigið líf og þar með til þess að lifa og deyja þar sem hann sjálfur kýs. Hospice-hreyfingin er sú hreyfing á Vesturlöndum sem á undanförn- um áratugum hefur mest látið til sín taka hvað varðar meðferð erf- iðra einkenna, ekki síst verkja. Frá árinu 1987 hefur verið fast form á starfsemi Heimahlynningar og frá 1989 hefur verið rekin þjón- usta allan sólarhringinn. í Heima- hlynningunni hafa hjúkmnarfræð- ingar og læknar myndað þverfag- legan kjarna og farið í vitjanir heim til krabbameinssjúklinga og alnæmissjúklinga með sjúkdóm á lokastigi og með einkennameðferð gert þeim kleift að dveljast lengur heima en ella. Að Heimahlynningu starfa nú sex hjúkrunarfræðingar og að jafnaði þrír læknar auk félagsráð- gjafa og ritara. Fyrstu árin var starfið mjög unnið í sjálfboðavinnu en nú er það að mestu kostað af Krabbameinsfélagi íslands og Tryggingastofnun ríkisins. Til ráð- gjafar og stuðnings hefur Heima- hlynning haft aðgang að sérfróð- um mönnum og konum sem hjálpa til við að leysa einstök mál ef með þarf. Þessi hópur hefur einnig stað- ið fyrir námskeiðum og ráðstefnum um einkennameðferð og aðra þætti líknar. Nú sinnir Heimahlynning um það bil 125-150 nýjum sjúklingum á ári hveiju. Fyrst og fremst er þarna um að ræða sjúklinga með illkynja sjúkdóma á lokastigi en einnig einstaklinga sem hafa mikil einkenni um hríð af völdum sjúk- dóms eða meðferðar. Um það bil helmingur skjólstæðinga Heima- hlynningar deyr heima í faðmi fjöl- skyldunnar.“ Svölurnar gefa peninga til kaupa á lífgunarborði fyrir nýbura FELAGIÐ Svölurnar, sem lega lífgunarborð fyrir nýbura. þegar stjórn félagsins afhenti er félag fyrrverandi og Svölurnar afla fjár til líknar- starfsfólki kvennadeildarinnar starfandi flugfreyja, færði og hjálparstarfsemi með sölu gjöfina. kvennadeild Landspítalans ný- jólakorta o.fl. Myndin var tekin Málþing í Skálholts- skóla í SKÁLHOLTSSKÓLA fer fram málþing fimmtudaginn 20. mars um efnið „Framtíðarsýn íslensku kirkjunnar?“ Fyrirlesarar verða dr. Hjalti Hugason prófessor, sem mun fjalla um efnið út frá sjónarhorni „sögulegrar framtíðarsýnar", dr. Gísli Gunnarsson, dósent í sagn- fræði, fjallar um „siðferðisgildi íslendinga á tímum vaxandi kenningarlegrar og trúarlegrar margbreytni", sr. Helga Soffía Konráðsdóttur fjallar um „fram- tíðarstöðu og hlutverk prestsins“, Jón Kalmansson, heimspekingur mun spyija hvort „kirkjan eigi einhvern rétt á sér og þá í hvaða mynd?“ og fyrirlestur dr. Sigurð- ar Árna Þórðarsonar verkefnis- stjóra mun fjalla um spurninguna „er íslenska þjóðkirkjan fjar- kirkja?" Að fyrirlestrunum lokn- um fara fram umræður. Málþing þetta er það fjórða í röð málþinga um guðfræðileg efni sem Skálholtsskóli hefur staðið fyrir í vetur. Markmið þeirra er í fyrsta lagi að vera vettvangur guðfræðilegrar um- ræðu og í öðru lagi að hún skili sér út í þjóðfélagið. Þess vegna verða fyrirlestramir sem fluttir verða, sem og samantekt megin- efnis umræðnanna, gefin út og munu birtast sem sérstakt hefti tengt Kirkjuritinu. Þátttökugjald er 1.100 kr. og er matur og kaffi innifalið í því. „Kona varð til“ DR. DAGNÝ Kristjándóttir flytur opinberan fyrirlestur á vegum Rannsóknastofu í kvennafræðum við Háskóla íslands fimmtudag- inn 20. mars í stofu 101 í Odda kl. 17.15 sem hún nefnir: Kona varð til. Fyrirlesturinn er öllum opinn. í fyrirlestrinum fjallar Dagný um fyrstu doktorsritgerðina um íslenskar kvennabókmenntir sem lögð hefur verið fram við Háskóla íslands. Dagný mun segja frá til- urð ritgerðarinnar, fræðilegum vandamálum og úrlausnarefnum. Meðal annars verður fjallað um feminista og eðlishyggju, „póst- feminisma“, menningarfræði og stöðuna í feminískum bók- menntafræðum í dag. Dr. Dagný Kristjánsdóttir er dósent í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands. Hún lauk cand. mag. prófí í íslenskum bók- menntum frá HÍ árið 1979. Hún var íslenskur sendikennari í Ósló á árunum 1982-1900 og hefur kennt við Háskóla íslands síðan. Dagný hefur skrifað fjölmargar greinar um bókmenntir og femin- isma og hún er höfundur bókar- innar Kona verður til, um skáld- sögur Ragnheiðar Jónsdóttur fyr- ir fullorðna sem hún lagði fram sem doktorsritgerð og varði við Háskóla íslands 15. febrúar 1997. Barnfóstru- námskeið Rauða krossins RAUÐI kross íslands heldur námskeið fyrir verðandi barn- fóstrur á næstunni. Markmið námskeiðanna er að þátttakendur öðlist öryggi við barnagæslu og fái aukna þekkingu á börnum og umhverfi þeirra, segir í fréttatil- kynningu. Námskeiðin eru fjögur kvöld, 3 klst. í senn og ætluð bæði strák- um og stelpum sem fædd eru 1983, 1984 og 1985. Hjúkrunar- fræðingar og leikskólakennarar hafa umsjón með námskeiðunum sem haldin eru í Reykjavík og víðs vegar um landið hjá deildum Rauða kross íslands. Fjallað er um æskilega eiginleika barn- fóstru, þroska barna, val á leik- föngum, mikilvægi fæðutegunda, matarhætti, umönnun ungbarna, pelagjöf, veik börn, slys og slysa- gildrur í umhverfí barna og rétt viðbrögð við slysum. Þátttakend- ur vinna skrifleg verkefni úr vinnubók sem María Haraldsdótt- ir leikskólakennari og Vilborg Guðnadóttir hjúkrunarfræðingur tóku saman fyrir Rauða kross íslands. Hjá Reykjavíkurdeild RKÍ eru námskeiðin þegar hafin. Nám- skeiðin hefjast í byijun apríl og maí úti á landi og eru nánari upplýsingar veittar hjá deildum RKÍ. Skattalækkun- um fagnað „FRAMKVÆMD ASTJ ÓRN Sambands ungra framsóknar- manna fagnar fyrirhuguðum skattalækkunum ríkisstjórnar- innar. Sérstaklega ber að fagna því, að auk lækkunar tekju- skatts, verður dregið úr jaðar- áhrifum barnabóta og vaxtabóta, er skilar sér sem kjarabót til ungs fólks. Með þessum aðgerðum eru ráð- herrar Framsóknarflokksins að efna loforð flokksins um skatta- lækkun á seinni hluta kjörtíma- bilsins. Ungir framsóknarmenn skora á ríkisstjórnina að halda áfram á sömu braut, með því að draga úr ríkisútgjöldum og lækka skatta enn frekar á komandi árum,“ segir í ályktun frá SUF. Alþýðu- bandalagið á faraldsfæti FORYSTUMENN Alþýðubanda- lagsins og óháðra verða á ferð um Norðurlandskjördæmi eystra dagana 20.-22. mars nk. Heimsóttir verða vinnustaðir og haldnir almennir stjómmála- fundir á Húsavík fimmtudags- kvöldið 20., á Ólafsfirði föstu- dagskvöldið 21. og á Dalvík kl. 14 laugardaginn 22. mars. Fyrirlestur um misþroska STEFÁN Hreiðarsson barna- læknir fjallar í fyrirlestri á félags- fundi Foreldrafélags misþroska barna um misþroskavandamál og ýmislegt þeim tengt. Fyrirlesturinn verður miðviku- daginn 19. mars í Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands og hefst kl. 20.30. Fyrirlesturinn er eink- um ætlaður foreldrum þeirra bama sem nýlega hafa fengið greiningu en aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fræðsla á geðdeild Landspítalans FRÆÐSLA fyrir aðstandendur geðklofasjúklinga verður haldin á geðdeild Landspítalans og hefst 2. apríl nk. Nánari upplýsingar og skrán- ing er á göngudeild geðdeildar Landspítalans milli kl. 9 og 16. Síðasta sýning á Skáld-Rósu AÐ UNDANFÖRNU hefur Leik- flokkurinn á Hvammstanga verið að sýna Skáld-Rósu Birgis Sig- urðssonar í leikstjórn Harðar Torfa. Lokasýningin hjá flokknum verður fimmtudaginn 20. mars kl. 21 í félagsheimilinu. LEIÐRÉTT Röng föðurnöfn í FÓLKI í fréttum laugardaginn 8. mars sl. var rangt farið með nafn lítillar stúlku. Hún heitir íris Tania ívarsdóttir. Þá var í frétt Morgunblaðsins í gær um Þjórsá vitnað í Bjarna Pálsson, bónda í Syðri-Gróf. Bjami var sagður Jónsson í frétt- inni. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Kona en ekki karl í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær sagði að maður hefði klemmst á milli tveggja bíla í árekstri á gatnamótum Háaleitisbrautar og Safamýrar, en í ljós hefur komið að um konu var að ræða. Beðist er velvirðingar á misherminu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.