Morgunblaðið - 29.05.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.05.1997, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Samband menntunar og dánartíðni af völdum kransæðasjúkdóma Mun lægri dánartíðni hjá fólki með meiri menntun RANNSÓKN sem Maríanna Garðarsdóttir læknanemi hefur gert á sambandi menntunar og dánartíðni af völdum kransæðasjúkdóma hefur leitt í ljós að mun lægri dánartíðni er hjá þeim sem hafa meiri menntun. Að sögn Marí- önnu liggur ekki fyrir skýring á þessum mun en ýmsir þættir í því sambandi eru til athugunar. Urtakið sem notað var við rannsóknina er úr hóprannsókn Hjartaverndar sem hefur verið í gangi allt frá árinu 1967. Rannsakaðir voru fjórir ólíkir menntahópar, þ.e. fólk sem var með háskólapróf eða sambærilega menntun, fólk með stúdentspróf eða sambærilega menntun, fólk með gagnfræðapróf eða sambærilega menntun og fólk sem einungis var með barna- skólapróf eða minni menntun. Helstu áhættuþættir höfðu ekki áhrif á niðurstöður Maríanna sagði í samtali við Morgunblaðið að sá hópur sem einungis hafði barnaskólapróf eða minni menntun hefði verið borinn saman við hina hópana og í ljós hefði komið staðfast- lega minni hætta á dauðsfalli af völdum krans- æðasjúkdóma í efri menntahópunum. „Við tókum helstu áhættuþætti kransæða- sjúkdóma, reykingar, blóðfitu, sykurþol og blóð- þrýsting og drógum þá frá, en þessi munur milli menntahópanna minnkaði mjög lítið við það. Það er því eitthvað annað sem er þarna á ferðinni. Það er þó ýmislegt sem við erum að velta fyrir okkur og skoða, en það er ekki neitt ákveðið sem við getum sagt um á þessu stigi málsins. Við notum þarna menntun sem mælikvarða á þjóðfélagsstétt og hefur hún reyndar ekki verið notuð í öllum rannsóknum en er yfirleitt tekin inn í skilgreiningu á þjóðfélagsstétt. Þetta er því eitthvað sem er tengt menntun og lífs- stíl, kannski mataræði og kannski einhveijir sálrænir eða félagslegir þættir,“ sagði Marí- anna. Rannsókn Maríönnu er hluti af rannsóknar- verkefni læknanema á 4. ári og vann hún rann- sóknina undir leiðsögn Þórðar Harðarsonar pró- fessors, Guðmundar Þorgeirssonar læknis, Helga Sigvaldasonar verkfræðings og Nikulásar Sigfússonar, yfirlæknis hjá Hjartavernd. Morgunblaðið/Golli ÍBÚAR Seljahverfis fjölmenntu á borgarafund um skipulagsmál í gær. Fyrsta inntökupróf í Kennaraháskólann Sýnir aðra hlið en einkunn- irnar einar INNTÖKUPRÓF verður haldið næstkomandi laugardag fyrir þá sem sótt hafa um nám í Kennarahá- skóla íslands næsta skólaár. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt próf er haldið þar á bæ og er það að sögn kennslustjóra hugsað sem tilraun. Undanfarin ár hafa umsækjendur verið rúmlega þrefalt fleiri en þeir sem teknir eru inn á fyrsta ár í KHÍ og erfítt þykir að gera upp á milli þeirra á forsendum einkunna eingöngu. Að undanförnu hafa um 130 nemendur verið teknir inn á fyrsta ár og nú verða þeir 125. „Það er alltaf nokkuð stór hópur sem erfítt er að velja úr og við höfum verið að velta því fyrir okkur héma síðustu árin hvað væri til ráða. Við höfum því miður ekki fjár- magn til þess að taka viðtöl við alla umsækjendur, sem auðvitað væri langbest, þannig að við ákváð- um að gera þessa tilraun núna og athuga hvort það myndi hjálpa inn- tökunefndinni," sagði Erla Kristj- ánsdóttir, kennslustjóri í KHÍ. ----» ♦ ♦--- Hús stór- skemmdist í eldsvoða BORGARAFUNDUR íbúa í Setfa- hverfi sem haldinn var um skipu- lagsmál í gær samþykkti einróma að beina þeirri áskorun til borg- arstjórnar og borgarskipulags Reykjavíkur að tengibraut úr Fífuhvammshverfi í Kópavogi inn á Jaðarsel í Seljahverfi verði felld út af aðalskipulagi Reykja- víkur 1996 til 2016. Jafnframt ítrekaði fundurinn, sem um 300 manns sóttu, mót- mæli gegn staðsetningu Arnar- nesvegar vestan í Vatnsenda- hvarfi á „vinsælu útivistarsvæði" við jaðar Seljahverfis. Skorað á yf- irvöld að breyta aðal- skipulagi Sagði í ályktun fundarins að allt frá árinu 1982 hefði fyrir- hugaðri legu hans verið mót- mælt við ýmis tækifæri. Skorað var á yfírvöld að fella þessa stofnbraut út af aðalskipulagi Reykjavíkur og leita raunhæfra leiða til að leggja hana austan Vatnsendahvarfs þar sem að- stæður væru mun betri. í máli Margrétar Sæmunds- dóttur úr skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar kom fram að ekki yrði af lagningu tengi- brautar milli Fífuhvammsvegar og Jaðarsels nema Arnarnesveg- ur yrði lagður. Þannig að ekki yrði um eins mikla umferðar- aukningu að ræða um Jaðarsel og margir fundarmanna óttuðust. Tíu ára fangelsis- vist fyrir manndráp NÍTJÁN ára maður, Sigurgeir Bergsson, var í gær dæmdur í Hér- aðsdómi Reykjaness til tíu ára fang- elsisvistar fyrir að hafa svipt stjúp- föður sinn lífí að morgni 1. janúar síðastliðins á heimili þeirra í Sand- gerði. Ákærði undi dómnum, sem verður ekki áfrýjað af ákæruvald- inu, og hefur hinn ákærði hafíð afplánun á refsingunni. Dóminn kvað upp Guðmundur L. Jóhannes- son héraðsdómari. í dómnum kemur m.a. fram að hinn ákærði hafí játað að hafa vald- ið dauða stjúpföður síns með því að stinga byssusting á kaf framan í miðjan háls hans þannig að honum blæddi út, en stingurinn gekk 15 sm inn í brjóstholið svo að vinstri slagæð skarst í sundur. Fram kemur að ákærði hafi ekki skýrt ástæðu fyrir verknaði sínum, en fyrir liggi að hann hafi stungið stjúpföður sinn í hálsinn eftir að hafa reiðst honum. Samkvæmt ályktun geðlæknis telst hinn ákærði vera sakhæfur, en í dómnum segir að taka beri tillit til hins unga aldurs ákærða og að hann hafí vegna erfíðra uppeldis- aðstæðna vart komist til fulls þroska sem maður. Einnig beri að líta til þess að eftir að rannsókn málsins hófst hafi ákærði skýrt hreinskilnis- lega frá verknaðinum. Frá refsingu ákærða dregst gæsluvarðhaldsvist frá 2. janúar til 28. maí síðastliðins. Hann var dæmdur til að greiða allan sakar- kostnað, þar með talin saksóknara- laun í ríkissjóð, 115.000 kr. og málsvarnarlaun til skipaðs verj- anda, Arnar Clausen hrl., 130.000 kr. auk virðisaukaskatts, og 116.250 kr. auk virðisaukaskatts í þóknun til Vilhjálms Þórhallssonar hrl., skipaðs verjanda hins ákærða, við frumrannsókn málsins. ------» » ♦ Alþjóðabraut tekin upp í VÍ ALGJÖR uppstokkun mun eiga sér stað á kennsluaðferðum og upp- byggingu náms innan Verslunar- skóla Islands frá og með næsta hausti. Meðal nýrra brauta sem boðið verður upp á er alþjóðabraut. Verður þar lögð áhersla á aukna tungumálakennslu, málefni tengd ESB, samstarf Norðurlanda og að nemendur fái nokkra þjálfun í al- þjóðlegu samstarfí. Gert er ráð fyr- ir að námsefni verði að hluta á er- lendum tungumálum. ■ Stúdentar/33 Sumarlokanir hjá Ríkisspítölum og S.júkrahúsi Reykiavíkur Mestar lokanir á lyflækningasviði EINBÝLISHÚS við Bleiksárhlíð á Eskifírði stórskemmdist í eldsvoða upp úr klukkan 18 í gærkvöldi. Fimm manna fjölskylda er búsett í húsinu en einungis unglingsdrengur var heima þegar eldurinn kom upp. Pilturinn, sem er 15 ára gamall, varð var við eldinn og hljóp yfir til nágranna síns og gerði viðvart. Skömmu síðar kom slökkvilið og lögregla á staðinn og tókst að ráða niðurlögum eldsins. Hrikaleg aðkoma Mikill eldur var í húsinu þegar að var komið og stóðu eldtungur út úr gluggum, samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglu. Eldsupptök eru ókunn. Húsið er mikið skemmt að innan- verðu og einnig eru talsverðar skemmdir að utanverðu, en um timburhús er að ræða. Aðkoman eftir slökkvistarf var „hrikalega slærn" að sögn lögreglu, og bæði varð tjón af völdum elds og reyks. SUMARLOKANIR á vefrænum deildum og geðdeildum Ríkisspít- ala nema u.þ.b. 12.000 legudögum að meðtöldum dagdeildum. Svarar það til tæplega 5% af hámarks- legudagafjölda á spítalanum. Áætlað er að heildarlokanir á árinu nemi um 15.000 legudögum eða um 6% af hámarkslegudagafjölda. Inni í þeim tölum eru einnig lokan- ir sem þegar hafa verið í gangi. Minna verður um beinar lokanir deilda á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Mestar verða sumarlokanimar á vefrænum deildum á lyflækn- ingasviði Ríkisspítalanna. Tauga- lækningadeild 32-A verður lokuð frá 14. júní til 20. júlí, hjúkrunar- deild Vífílsstaðaspítala verður lok- uð 14. júní til 26. júlí, lyflækninga- deild 11-B verður lokuð frá 28. júní til 27. júlí og lyflækningadeild 11-B frá 19. júlí til 16. ágúst. Þá verður handlækningadeild 13-D lokuð frá 30. maí til 1. sept- ember, helmingur af leguplássi á ungbamadeild 13-E verður lokað- ur frá 1. júní til 1. september og dagdeild frá 8. júní til 6. septem- ber. Kvenlækningadeild 21-A verður lokuð frá 15. júní til 2. ágúst og verða 10 rúm síðan opin á deildinni frá 3. ágúst til 30. ágúst. Mismunandi er eftir vikum hve mörg rúm verða lokuð á hinum ýmsu deildum Sjúkrahúss Reykja- víkur. Á lyflækninga- og endurhæf- ingasviði em samtals 154 rúm en nýting í sumar verður 86%. Mestar verða lokanimar 3.-10. ágúst þegar 105 rúm verða í notkun. Grensás- deild E-62 verður lokuð alveg frá 3.-17. ágúst. Minnst verður nýting á rúmum vikuna 3.-10. ágúst, eða 68,2%. Þá verður dregið úr hjarta- þræðingum um mitt sumar. Á skurðsviði eru samtals 114 rúm og verður nýtingin þar 84% í sumar. Frá 15. júní til 14. sept- ember verða 87 rúm opin. Lokanir verða mestar á skurðlækninga- deildum. Skurðstofa á slysa- og bráða- vakt verður lokuð 1. júní til 31. ágúst og gæsludeild lokuð á sama tíma frá kl. 18-08 þá daga sem ekki er bráðavakt. 145 rúm eru á öldrunarsviði og verður nýtingin þar í sumar 86%. Öldrunardeild 2-A verður lokuð frá 25. maí til 29. júní, öldrunardeild 2-B frá 29. júní til 3. ágúst og öldrunardeild 3-B frá 3. ágúst til 7. september. Á geðsviði eru samtals 126 rúm og verður nýting þar í sumar 91%. Lokað verður frá 6. júlí til 3. ág- úst á dagdeild í Hafnarbúðum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.