Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Atvinnuþróun 134 fengu styrki BYGGÐASTOFNUN hefur gengið frá úthlutun styrkja til atvinnuþróunar á landsbyggð- inni. 134 aðilar fengu styrki að fjárhæð samtals liðlega 68 milljónir kr. Yfír 300 sóttu um atvinnu- þróunarstyrkina og þurfti Byggðastofnun því að synja fleiri verkefnum en hún gat styrkt. Guðmundur Malm- quist, forstjóri stofnunarinnar, segir að fram hafí komið mik- ill áhugi á atvinnuþróun og tilraunastarfsemi og fjöldi verkefna verið áhugaverður. Af þeim verkefnum sem Byggðastofnun ákvað að styrkja er afþreying í ferða- þjónustu mest áberandi. Flugfélag íslands og samkeppnisráð Treystum á viðunandi niðurstöðu „AUÐVITAÐ hefur úrskurður sam- keppnisráðs sett strik í okkar undir- búning og það er ákveðinn óvissu- þáttur sem kom í málið en eftir að hafa skoðað þetta efnislega fannst okkur að við hefðum það sterk rök að við höfum haldið áfram og treyst- um því að niðurstaðan verði ásætt- anleg,“ sagði Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri Flugfélags ís- lands, fyrirtækisins sem á að taka við starfsemi innanlandsflugs Flug- leiða og Flugfélags Norðurlands áður en frelsi í innanlandsflugi gengur í gildi þann 1. júlí næstkom- andi. Fyrirtækið hefur ekki tekið til starfa en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins verður starfsemi þess væntanlega kynnt formlega eftir helgina. Páll kveðst bjartsýnn á að áfrýj- unarnefnd samkeppnismála taki til- lit til athugasemda félagsins við skilyrði Samkeppnisráðs, a.m.k. að hluta. „Kjötlaus“ með tugi tonna í geymslum HOFN-ÞRIHYRNINGUR á Suður- landi hefur ekki haft kindakjöt til sölu í þijár vikur þótt félagið eigi tugi tonna af frystu kjöti í geymsl- um en það kjöt er félagið skyldugt að flytja úr landi. Framkvæmda- stjóri félagsins segir að ekki sé hag- kvæmt að kaupa lambakjöt af öðr- um vegna þess að verðið hafi hækk- að og í staðinn verði lögð áhersla á sölu á svína- og nautakjöti í sumar og reynt að ná I lambakjöt með átaki í sumarslátrun. Áhersla á svín og naut Höfn-Þríhyrningur hefur mark- að fyrir um 500 tonn af kindakjöti að sögn Gests Hjaltasonar fram- kvæmdastjóra. Félagið fékk 425 tonn út úr slátrun síðastliðið haust en vegna kvaða um útflutning má félagið ekki selja 19% af birgðun- um innanlands. Sú staða er því kominn upp að þó félagið eigi kjöt má það ekki selja það innanlands. „Okkur stendur til boða að kaupa kjöt af öðrum sláturleyfishöfum en verðið hefur hækkað um 4-6% vegna kjötskortsins og það er ekki fýsilegt fyrir okkur að kaupa það til endur- sölu. Við sjáum okkur ekki fært að standa undir þeim kostnaði og í vöruþróun okkar fyrir sumarið leggjum við því áherslu á svína- og nautakjöt," segir Gestur. Segir hann hugsanlegt að útflutningsskyldan sé nauðsynleg_ en hún komi ein- kennilega út. Á meðan hann sé að reyna að flytja sitt kjöt út sé verið að flytja lambakjöt af Norðurlandi á markaðinn sunnanlands. Aukin sumarslátrun Höfn-Þríhyrningur leggur ofur- kapp á að ná sér í lambakjöt með því að stuðla að aukinni sumarslátr- un. Hefur félagið gert samning við Hagkaup um kaup á að minnsta kosti 200 dilkum á viku frá byijun júní og fram undir miðjan desem- ber. Fyrirkomulag er um margt svipað og hjá Félagi ferskra fjár- bænda í Vestur-Húnavatnssýslu og víðar og er fyrirhugað að stofna sérstakt félag sunnlenskra fjár- bænda til að skipuleggja slátrunina. Greitt er yfirverð fyrir ferska kjötið, allt frá 58% yfír grundvallar- verði í byijun júní en álagið fer stig- lækkandi fram að sláturtíð. Gestur segir að það taki ákveðinn tíma að fá bændur til að auka sum- arslátrun. Hann bendir hins vegar á að aðstæður séu hvergi betri en á Suðurlandi til að gera þetta og hvetur bændur til taka þátt. „Þetta kjöt vantar á markaðinn. Það eru ekki mörg ár síðan allt nautakjöt var selt frosið en núna dettur engum í hug að bjóða það öðruvísi en ferskt,“ segir Gestur. Hann segir að ferskt lambakjöt nýtist betur í vinnslu og gæði þess séu meiri en eftir frystingu. Morgunblaðið/Jón Svavarson ÞORGEIR Ólafsson, fram- kvæmdastjóri „Reylq'avík - menningarborg Evrópu árið 2000“ og Illugi Eysteinsson. List í tösku í TILEFNI af fundi menningar- borga Evrópu árið 2000, sem haldinn verður í Reykjvík í dag, fimmtudag, og á föstudaginn, hefur Illugi Eysteinsson myndlist- armaður útbúið tösku með sýnis- hornum af íslenskri listsköpun. 1 henni eru hljómdiskar, kvikmynd- ir, dans á myndbandi, bækur um myndlist og byggingarlist, úrval Ijóða í enskri þýðingu og fleira. Menningarborgir Evrópu árið 2000 eru Avignon í Frakklandi, Bergen í Noregi, Bologna á Italíu, Brussel í Belgiu, Helsingfors í Finnlandi, Kraká í Póllandi, Prag í Tékklandi, Reykjavík og Sant- iago de Compostela á Spáni. Þetta er í fyrsta sinn sem fulltrúar borganna hittast til fundar í Reykjavík. Morgunblaðið/Jón Svavarsson JÓN Haraldsson hefur á skömmum tíma flogið tvisvar til megin- lands Evrópu á þessari flugvél. 19 ára flugmaður flaug á eins hreyfils vél til meginlandsins Gaman að sjá olíubor- pallana í Norðursjó „ÞAÐ var mjög gaman að fljúga yfir Norðursjóinn og sjá alla ol- íuborpallana. Þeir eru ótrúlega margir og það leggur frá þeim mikla elda,“ sagði Jón M. Har- aldsson flugmaður, sem nýlega flaug eins hreyfils flugvél frá íslandi til Skotlands, Danmerkur og Þýskalands. Jón er aðeins 19 ára gamall, en hefur á stuttum flugmanns- ferli aflað sér meiri reynslu af flugi en margir eldri flugmenn. í september í fyrra flaug hann til Korsíku. Þá var gamalreynd- ur flugmaður með í för, honum til halds og trausts, en núna flaug kunningi hans með honum sem er að byija að læra flug. Vélin sem hann flaug er af gerð- inni Aerospatiale Socata TB20 Trinidad. Fátítt er að íslendingar fljúgi á eins hreyfils flugvélum frá ís- landi til meginlands Evrópu. Ástæðan er sú að margir telja að áhætta fylgi því að fljúga á einum hreyfli yfir hafið og eins óttast margir þá miklu flugum- ferð sem er yfir meginlandinu. Jón gerir hins vegar ekki mikið úr þessu. Flugið gekk mjög vel „Það var talsverð umferð við Hamborg, en maður tók því bara rólega og fór eftir fyrir- mælum flugstjórnar sem raðaði vélunum inn til lendingar. Þetta gekk því mjög vel. Það er búið að hræða mann mikið með þess- ari umferð yfir Evrópu, en þetta er ekki svo mikið mál. Það segja líka margir að það sé varasamt að fljúga svona langt á einum hreyfli, en ég spyr af hverju ætti mótorinn frekar að þagna þessa fjóra tíma sem þú ert að fljúga yfir hafið en í veiy'ulegu flugi yfir íslandi," sagði Jón. Jón flaug frá íslandi tilBkot- lands og þaðan til Hróarskeldu í Danmörku og áfram til Ham- borgar. Frá Hamborg sneri Jón við og flaug til íslands með við- komu í Skotlandi. Heildarflug- tíminn var 18 klukkutímar, en ferðin var farin á tveimur dög- um. Jón sagði að ferðin hefði gengið n\jög vel og alveg sam- kvæmt áætlun. Jón sagði að þessi ferð hefði verið farin bæði sem skemmti- ferð og eins til að afla reynslu af flugi við nýjar aðstæður. Hann sagðist vera farinn að huga að næstu ferð, en vildi ekki upplýsa hvert hún yrði far- in. Það yrði hins vegar stórt og mikið ferðalag. Jón hefur lokið einkaflug- mannsprófi og blindflugsprófi. í haust fer hann til Englands til að taka próf sem veitir hon- um full atvinnuflugmannsrétt- indi. Hestur aflífaður eftir að hafa skaddast við leit að heyi Leigjandi hesthúss kærður fyrir vanhirðu EIGANDI hesthúss í Mosfellsbæ hefur kært leigjanda hússins til lögreglu fyrir vanhirðu. Hákon Hákonarson, eigandi hússins, segir að allt sé meira og minna ónýtt í húsinu eftir veturinn og hafí hestar sem voru í húsinu verið illa hirtir. Aflífa þurfti hest, ótamda hryssu, sem fannst í húsinu í fyrra- dag eftir að fóðureftirlitsmaður fór þar inn ásamt eiganda hestsins, dýralækni og fleiri aðilum. Hreinn Ólafsson fóðureftirlitsmaður segir að aðkoman hafi verið hryllileg. Gjöf hafi verið óregluleg en hins vegar hafi dýrin ekki soltið. Mjög slæm umgengni „Hryssa sem þarna var hafði brotist út og farið inn í hlöðu í leit að heyi. Hún hafði skaðað sig svo mikið við þetta að það varð að aflífa hana, og sennilega hefur mænan skemmst. Hún lá fyrir þeg- ar við komum að, en hefur varla legið meira en í sex eða sjö stund- ir,“ segir Hreinn. Hann segir að dýraeftirlitsmað- ur í Mosfellsbæ hafí farið nær daglega að undanförnu til að fylgj- ast með líðan skepnanna, enda hafi hestamenn í nágrenninu haft veður af því um skeið að ekki væri allt með felldu. „Dýrin voru ekki vannærð en gjöf var óregluleg og umgengnin slæm,“ segir Hreinn. Hákon kveðst þeirrar skoðunar að ástand húss og dýra hafi einkum drabbast niður seinustu vikur. „Meðferðin á húsi og skepnum var ill. Hann hugsaði lítið um að gefa og húsið var orðið eitt drullusvað. Mér skilst að heylaust hafi verið þegar menn fóru þarna inn. Fimm hross voru í húsinu sem hann var með í tamningu og eitt þurfti að aflífa, en hin voru flutt í hesthús föður þessa manns, þar sem ekki á að væsa um þau. Lögregla í Mosfellsbæ var búin að fylgjast með húsinu um skeið því ég hafði grun um að lítið væri hirt um hús og dýr. Hestarnir voru lausir í húsinu og búið að eyðileggja milli- gerði og jötur, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Hákon. Hann kveðst búast við að hann geri skaðabótakröfu á hendur leigj- andanum vegna umgengninnar og sé ljóst að dýr verði ekki geymd í húsinu í bráð. Hreinsað var út úr hesthúsinu í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.