Morgunblaðið - 29.05.1997, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
DRÍFA Hjartardóttir, Jafnréttisráði, Ásgerður Jónsdóttir, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, Elín R. Líndal, formaður Jafnréttisráðs, og
Stefanía Traustadóttir, Skrifstofu jafnréttismála á fundinum í gær.
Konur verði ofarlega á lista
SAMSTARFSHOPUR Jafnréttis-
ráðs mun beita sér fyrir því að
konum verði raðað ofarlega á
framboðslista í næstu sveitar-
stjórnarkosningum.
Hópurinn hefur sett sér að efla
umræðu um þátt kvenna í stjórn-
málum, fá fleiri konur til að gefa
kost á sér og hvetja forystumenn
stjórnmálaflokka til að vinna
markvisst að raunverulegri jafn-
stöðu kvenna og karla á framboðs-
listum.
„Það er engin tilviljun að þessi
tími er valinn,“ sagði Stefanía
Traustadóttir á Skrifstofu jafn-
réttismála. „Við ætlum okkur að
hafa áhrif á umræðuna áður en
linur skýrast varðandi niðurröðun
á Iista.“
Þetta kom fram á fundi sem
samstarfshópur Jafnréttisráðs
hélt í gær til að kynna áform sín.
Hópurinn er þverpólitískur og
samanstendur af Jafnréttisráði,
fulltrúum allra stjórnmálaflokka
og kvennahreyfingunni.
Niðurstöður þessarar skýrslu
verða kynntar þegar líður að
landsfundi jafnréttisnefndar sveit-
arfélaga sem haldinn verður 29.
og 30. ágúst. Einnig verða forystu-
mönnum stjórnmálaflokka send
bréf og þeir spurðir hvemig þeir
hyggist stuðla að raunverulegri
jafnstöðu kvenna og karla á fram-
boðslistum. Svörin verða kynnt
opinberlega þegar þau berast.
Loks er í undirbúningi útgáfa
áróðurs- og fræðslubæklings, sem
gefinn verður út í haust, í tengsl-
um við fundaherferð sem hópur-
inn ráðgerir að standa fyrir. Áætl-
að er að hefja hana um mánaða-
mótin ágúst september og er
stefnan að funda með þeim sem
standa að framboðsmálum á hveij-
um stað.
Raungreina-
kennarar íhuga
fj öldauppsagnir
ÁSTA Þorleifsdóttir, formaður Fé-
lags raungreinakennara, segir það
ekki nýtt að margir falli í stærð-
fræði á fyrsta ári í framhaldsskólum
iandsins. Hún segir að fallhlutfallið
hafi undanfarin ár almennt verið um
40% í grunnáföngum. Þeir sem falli
fari síðan i endurtektarpróf og kaupi
sér jafnvel aukatíma, en að því loknu
sé fallhlutfallið þó um 25%. Ásta
segir brýnt að veita fé til endur-
menntunar starfandi kennara og
hækka laun kennara til þess að
hæft fólk fáist til skólanna. Hún
segir mikinn skort á hæfum raun-
greinakennurum og meðal þeirra
sem enn séu við kennslu séu uppi
hugmyndir um fjöldauppsagnir til
þess að vekja athygli á alvöru máls-
ins.
Nú stendur yfir umfangsmikil
undirbúningsvinna að endurskoðun
aðalnámskráa grunn- og framhalds-
skóla en stefnt er að því að henni
verði lokið sumarið 1998. Átta
vinnuhópar tóku til starfa í mars
sl., skipaðir fulltrúum tilnefndum af
kennarasamtökunum og mennta-
málaráðherra. Að sögn Jónmundar
Guðmarssonar verkefnisstjóra er
hópunum ætlað að gera tillögu um
stefnumörkun ráðuneytisins á hverju
fagsviði fyrir sig.
Auk vinnuhópanna hefur verið
starfandi frá því í október sl. stefnu-
mótunarnefnd, skipuð fulltrúum
allra stjórnmálaflokkanna, og hefur
hún nýverið skilað tillögum sínum
til menntamálaráðherra, sem mun
kynna þær fyrir ríkisstjórninni á
föstudag.
Ásta Þorleifsdóttir situr í vinnu-
hóp um náttúrufræði og segir hún
vinnunni miða ágætlega. Hún bendir
þó á að til þess að góð námskrá og
gott námsefni verði virkt þurfi fyrst
og síðast góða kennara.
„Þar með er ég ekki að segja að
við höfum ekki góða kennara, en
menntun þeirra hefur verið röng.
Við erum að gera auknar kröfur til
fagþekkingar kennara sem Kenn-
araháskólinn hefur mismenntað, sér-
staklega á efri stigum grunnskólans.
Það tekur tíma að framleiða nýjan
kennaraflota með nýja fagþekkingu
fyrir öll skólastig. Til þess verður
að veita mikið fjármagn til endur-
menntunar starfandi kennara," segir
Ásta og bætir við að nauðsynlegt
sé að hækka laun kennara til þess
að hæft fólk fáist til skólanna.
Þingholtin - glæsileg
Glæsileg hæð og ris á skemmtilegum stað í fallegu
tvíbýlishúsi smekklega staðsett á baklóð. Eignin er öll að
mestu leiti endurnýjuð m.a. er rishæðin 2ja ára. Stórar
skemmtilegar stofur. 12 fm suðursvalir. Lútuð furugólfborð
á gólfum. Sérinngangur. Hátt til lofts. Verð 9,9 millj. 2756.
Vættaborgir - parhús
á frábæru verði
Glæsileg 155 fm parhús á fallegum stað m. innb. bílskúr.
Skilast frágengin að utan og fokheld að innan. Verð aðeins
7,9 millj. Teikningar á skrifstofu. 502.
Valhöll fasteignasala, sími 588 4477.
Pétur Sigurðsson formaður ASV
Ekki bjartsýnn —
engin teikn um lausn
„ÉG ER alls ekki bjartsýnn því
það eru engin teikn á lofti um
að einhver lausn sé í nánd og
enginn veit um innihald miðlun-
artillögu fyrr en hún kemur
fram,“ sagði Pétur Sþgurðsson
formaður ASV, í samtali við
Morgunblaðið í gær og segir
ómögulegt að velta nokkuð íyrir
sér hvernig slíkri tillögu yrði tekið.
„Félagar mínir hér eru sjálf-
stæðir stjórnendur hver fyrir sig,
ég er aðallega talsmaður, en
minni stjórnandi sem betur fer
enda réði maður ekkert við það,“
sagði Pétur aðspurður um hvern-
ig honum gengi að hafa tök á
sínu fólki sem forystumaður
ASV. „En það sem við höfum
ekki síst uppúr þessari baráttu
er það að félagslega eru menn
sér margfalt betur meðvitandi
um að þeir eru félagar í verka-
lýðsfélagi, menn geta ýmislegt
en hins vegar er þetta auðvitað
alltaf spurning um aðferðir.
Menn hljóta að standa við það
að ýmislegt sé hægt að gera ef
menn beita sér sameiginlega.“
Eru aðferðirnar eða baráttan
öðruvísi nú en í fyrri deilum?
„Baráttan nú er kannski ekki
mjög ólík en ytri aðstæður þó á
ýmsan hátt öðruvísi. Utgerðar-
mynstrið hefur breyst og fisk-
vinnslan sömuleiðis og mér finnst
dæmigert nú að það er engin
samstaða eða samkennd lengur
hjá verkalýðsfélögum. Þeir sem
eru þegar búnir að semja líta á
önnur félög sem andstæðinga og
finnst mér til dæmis sorglegt á
Drangsnesi þegar félagar í sama
fjórðungssambandi ganga til liðs
við fyrirtækið og láta verkstjóra
þess stjórna sér í átökum við
félaga sína úr næsta bæ. Þetta
er breyttur tíðarandi.“
Framlög berast ennþá
Nokkur stéttarfélög hafa síð-
ustu daga sent framlög í verk-
fallssjóði félaga innan ASV. „Það
er gríðarlegur stuðningur í þess-
um framlögum stéttarfélaga í
verkfallssjóði okkar og ekki er
síður gott að fá stuðningsyfirlýs-
ingarnar,“ segir Pétur. Framlög-
in koma m.a. frá Félagi opin-
berra starfsmanna á Austurlandi
sem sendir í annað sinn 100 þús-
und kr. og lýsir fyllsta stuðn-
ingi; frá Hlíf í Hafnarfirði bárust
200 þúsund kr. og mun „á hvern
þann hátt sem henni er mögulegt
styðja við bakið á vestfirsku
verkafólki í viðleitni þess til að
ná bættum kjörum," segir í bréfi;
BSRB sendir 2,5 milljónir króna
og baráttukveðjur og segir Ög-
mundur Jónasson í bréfi að með
ólíkindum sé hve íslenskir at-
vinnurekendur hafi staðið gegn
réttmætum kröfum láglauna-
fólks; frá Sjúkraliðafélagi Islands
bárust 120 þúsund krónur og frá
Starfsmannafélagi ríkisstofnana
500 þúsund kr.
Arnar Kristinsson framkvæmdastjóri Básafelis
Sáttasemjari eða ríkis-
valdið leysi deiluna
„MÁLIÐ er einfaldlega komið í
þá stöðu að við leysum það ekki
okkar á milli hér. Pétur Sigurðs-
son sagði að hnúturinn væri svo
fastur að það yrði að skera á
hann og það gera hvorki þeir né
við,“ sagði Arnar Kristinsson
framkvæmdastjóri Básafells á
ísafirði í samtali við Morgunblað-
ið í gær.
„Við leysum ekki þetta mál
og ef sáttasemjara tekst það ekki
þá verðum við að gera það upp
við okkur hvort hér á að vera
byggð áfram eða ekki. Þeir vita
það jafnvel og við og hafa vitað
það frá upphafi að við semjum
ekki upp á neitt mikið meira en
aðrir hafa samið um. Það hefur
legið fyrir frá upphafi," sagði
Arnar ennfremur og sagði að-
spurður að ríkisvaldið yrði að
koma til skjalanna ef sáttasemj-
ari lyki ekki málinu.
„Við vonum náttúrlega að
þessu fari að ljúka og ég veit
ekki hvort við erum einir um það
- það er svo gaman hinum meg-
in,“ sagði Amar Kristinsson enn-
fremur. Hann sagði að ástandið
væri að verða skelfilegt í rækj-
unni og að Básafell væri sífellt
að senda samninga frá sér og var
jafnvel svartsýnn á að bolfisk-
vinnsla hæfist á ný, vildi þó ekki
gefa upp alla von um það. Amar
sagði þó ljóst að meiri áhersla
yrði lögð á saltfisk miðað við
markaðshorfur í augnablikinu.
„Hingað er væntanlegur 4.
júní stór smásölukaupandi frá
Bretlandi og ef starfsemin verður
þá ekki komin í gang kemur
hann ekki meira til okkar á þessu
ári sem þýðir að hann kaupir
ekki af okkur fyrir næstu jóla-
sölu. Þeir skipuleggja ferðir sínar
í ársbyrjun og þeim verður ekki
breytt," sagði Arnar og sagði
ljóst að nokkurn tíma tæki að
koma starfseminni í gang eftir
verkfall.
Salan færð frá SH
Básafell hefur selt bolfiskaf-
urðir gegnum SH og rækjuna hjá
ÍS og hefur verið ákveðið að
PÁLL Halldórsson, skipstjóri á
Páli Pálssyni ÍS, segir það raka-
lausan þvætting sem haft var eftir
Pétri Sigurðssyni, forseta ASV, í
Morgunblaðinu að skipið hefði
læðst inn á Grundarfjörð til löndun-
ar og farið eins og þjófar á nóttu.
„Það var vigtað upp úr skipinu
og ég var búinn að fá vigtarnótur
og ganga frá öllu þegar skipið
fór. Svo ásakar hann mig um það
færa alla sölustarfsemina til ÍS
en Arnar segist telja það hag-
kvæmara að vera með afurðasöl-
una á sama staðnum. Saltfiskur
verður þó áfram seldur gegnum
útflutningsfyrirtæki í Reykjavík
og er Básafell innan Vinnumála-
sambands íslands.
Arnar lét þess getið vegna
orða Péturs Sigurðssonar í Morg-
unblaðinu í gær þess efnis að
vinnuveitendur hefðu dregið til
baka atriði sem þegar hefði náðst
samkomulag um, að vinnuveit-
endur hefðu nefnt tvö til þrjú
atriði sem ræða mætti ef þau
gætu orðið til þess að deilan
leystist. Þau væru hins vegar
ekki uppi á borðinu ef ekki væri
vilji til að halda viðræðum áfram
og leysa deiluna.
að bijóta lög og gefa Tilkynn-
ingarskyldunni rangar staðsetn-
ingar. Þetta er rakin lygi og hægt
er að fá það vottað.“
Hann sagði að sjómönnum
fyndist mjög að sér vegið í kjara-
deilunni á Vestfjörðum. „Við erum
í okkar vinnu og við erum ekki í
verkfalli. Þegar við vorum í verk-
falli síðast fengum við enga samúð
frá verkafólki hér á Vestfjörðum."
Rakalaus þvættingur
Komið í veg fyrir löndun
á Sauðárkróki
MILLI 20 og 30 verkfallsverðir
frá Vestfjörðum voru á Sauðár-
króki árla í gærmorgun þegar
togarinn Andey frá Súðavík kom
til hafnar þar sem ætlunin var
að landa. Var ekki reynt að landa
úr skipinu.
Jón Karlsson formaður verka-
lýðsfélagsins á Sauðárkróki
ræddi við skipshöfnina og varð
úr að ekki var gerð tilraun til
löndunar enda verkfallsverðir til-
búnir að reyna sitt til að hindra
hana. Landa átti 55 tonnum af
frystri rækju og þegar séð var
að ekki yrði úr því lét skipið úr
höfn.
Ekki höfðu fleiri vestfirsk skip
gert tilraunir til löndunar síð-
degis í gær og sagði Pétur Sig-
urðsson formaður ASV að reynt
væri að fylgjast með ferðum
skipanna og reynt yrði að halda
áfram að stöðva löndun vestfir-
skra fiskiskipa eins og mögulegt
væri og sagði menn tilbúná til
að leggja mikið á sig við það
þrátt fyrir að ljóst mætti vera
að ekki næðist að gera það alls
staðar.