Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 11

Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 11 _____________________________FRÉTTIR íslandsflug hættir flugi til Neskaupstaðar Flugn einir en höfðu innan við 50% mark- aðshlutdeild ÍSLANDSFLUG hefur ákveðið að hætta flugi til Norðfjarðar frá og með 1. júní. Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri Íslandsflugs, segir að erfíðar aðstæður og ónógir flutningar valdi þessari ákvörðun, en þrátt fyrir beint flug hafi fyrir- tækið ekki náð helmings markaðs- hlutdeild á staðnum því meirihluti íbúa hafi fremur kosið að aka til Egjlsstaða og fljúga þaðan. í bréfi til bæjaryfirvalda þar sem greint er frá ákvörðuninni segir að til greina komi að íslandsflug end- urskoði ákvörðunina og taki að nýju upp flug í haust. „Tii þess að svo megi verða þarf að leggja bund- ið slitlag á flugvöllinn og markaðs- aðstæður þurfa að breytast. Það er þó ekki því að leyna að langt og erfitt aðflug er einn helsti þránd- ur í götu fyrir flugi til Norðíjarðar, sem er ekki hægt að breyta," segir orðrétt í bréfi íslandsflugs til bæjar- yfirvalda í Neskaupstað. Með tilvísun í bréfinu til breyttra markaðsaðstæðna segir Ómar átt við að þrátt fyrir að bæjaryfirvöld hafi staðið vel við bakið á flugi ís- landsflugs sex sinnum í viku til staðarins hafi fyrirtækinu þótt fyr- irtæki á staðnum leggja litla áherslu á að styðja við flugið eins og lítil markaðshlutdeild beri með sér. Hann segir að kannanir fyrirtækis- ins hafí bent til að flugtími um morguninn myndi litlu breyta. Sam- kvæmt þeim vilji Norðfirðingar helst fá flug að kvöldi en fyrirtæk- ið hefur flogið klukkan 16 frá staðn- um. íslandsflug hefur flogið með Dornier-flugvel til Norðfjarðar en í þeirri vél er hvorki jafnþrýstiklefi né salerni. Ómar segir að Dornier sé hins vegar sú tegund vélar sem henti best og ráði langbest við að- stæður í Norðfirði. 20 mínútna aðflug Alls tekur flug milli Reykjavíkur og Norðíjarðar um 85 mínútur en þar af tekur aðflugið eitt um 20 mínútur eða jafnlangan tíma og flug aðra leið milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja því að fljúga þarf út fyrir Ijörðinn. Ómar segir að þótt beinu flugi verði hætt í sumar muni íslandsflug auka framboð á ferðum til Egils- staða og halda uppi daglegu flugi þangað og sérleyfishafi auki fram- boð á rútuferðum milli Egilsstaða og Neskaupstaðar í tengslum við flug íslandsflugs. Bæjarstjórn harmar ákvörðunina Guðmundur Bjarnason, bæjar- stjóri í Neskaupstað, sagðist í sam- tali við Morgunblaðið harma þá ákvörðun íslandsflugs að hætta áætlunarflugi í sumar. Bæjarstjórn samþykkti á fundi í fyrradag álykt- un þar sem ákvörðunin er hörmuð. „Bæjarstjórn telur mikilvægt að reglubundnu áætlunarflugi verði haldið áfram til Neskaupstaðar og felur bæjarstjóra og bæjarráði að ræða við flugrekstraraðila um það,“ segir í ályktuninni. Guðmundur bæjarstjóri sagði í gær að ekki væri farið að óska viðræðna við flugrekstraraðila en það yrði gert. Hann sagði að _ bæjaryfírvöld hefðu átt fundi með íslandsflugi og hefðu átt ágætissamvinnu við fyrir- tækið. „Við getum ekki þvingað þá til að fljúga hingað ef það gengur ekki hjá þeim.“ Hann sagði að á hinn bóginn hefðu bæjaryfirvöld talið að fyrirtækið gæti náð stærri hlutdeild fiugfarþega með því að fljúga fyrrihluta dags en ekki um miðjan dag því þá nýtist mönnum dagurinn illa syðra. Samkeppni um Egilsstaði lækkar fargjöld Hins vegar sagði Guðmundur að ákvörðunin væri ekki alill því af henni leiddu bættar samgöngur á landi með rútuferð Austurleiða milii Egilsstaða og Neskaupstaðar í tengslum við flug íslandsflugs. Þá kvaðst hann telja að aukin sam- keppni um flug á Egilsstöðum leiði í fyrstu a.m.k. til lægri fargjalda. Það að flug félli niður væri ekki jafnmikið áfall fyrir samgöngur til staðarins nú og áður því nú væri daglegur snjómokstur yfir Odd- skarð á vetrum og vegurinn malbik- aður alla leið en um 45 mínútna akstur er yfir til Egilsstaða. Guðmundur sagði að það væri ekki á flugáætlun að leggja slitlag á flugbrautina. Það kostaði 35 m.kr. og væri augljóslega sveitarfélagi á stærð við Neskaupstað ofviða. „Okkur hefur ekki borist neitt erindi frá bæjarstjórninni á Nes- kaupstað ennþá. Við munum að sjálfsögðu taka vel á móti þeim en það er of snemmt að tala um okkar afstöðu til málsins," sagði Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri innanlandsflugs Flugleiða og Flug- félags íslands í gær, þegar hann var spurður um viðbrögð fyrirtækis- ins við væntanlegu erindi bæjar- stjórnar Neskaupstaðar. Morgunblaðið/Þorkell HJÁLPARTÆKIN sett í gáma sem fluttir verða til Rússlands. Hjálpartæki gefin veik- um börnum í Rússlandi LION SHRE YFIN GIN á ís- landi, í samvinnu við norræna Lionsfélaga, stóð nýverið fyrir söfnun til tækjakaupa fyrir alvarlega veik börn í Rúss- landi. Söfnuðust 8,5 miHjónir og lagði íslenska Lionshreyfingin helminginn af þeirri upphæð af mörkum til söfnunarinnar í samvinnu við þá söluaðila sem útveguðu tækin, þ.e. Stoð hf., Orthos hf., Barnasmiðjuna og Hjálpartækjamiðstöðina, sem gaf notuð tæki sem ekki eru nýtt lengur. Um er að ræða hjálpartæki til endurhæfingar barna með alvarlega heilaskaða og tauga- sjúkdóma. Tækin voru sett um borð í gáma í gær og fara á Friazino-heimilið, 50 km fyrir utan Moskvu, sem hýsir for- eldralaus börn. Einnig mun iðjuþjálfari fara utan og kenna starfssystkinum sínum í Rúss- landi á tækin. „Við viljum þakka öllum þeim sem tekið hafa þátt í þessu átaki með okkur,“ sagði Jón Bjarni Þorsteinsson, lækn- ir, í samtali við Morgunblaðið. Hann nefndi m.a. Jouri A. Rechetov, sendiherra Rúss- lands á íslandi, Gunnar Gunn- arsson, fyrrv. sendiherra Is- lands í Rússlandi, og Ólaf Eg- ilsson, núverandi sendiherra. „Von okkar er að þessi tæki muni nýtast til að þjálfa börn- in og bæta líðan þeirra í þeim veikindum sem þau eiga við að stríða,“ sagði Jón Bjarni að lokum. Hugmyndir um tengingu krónu við evró með gengissamningi við ESB Samningar yrðu flóknir og tímafrekir Gerð gengissamnings við Evrópusambandið hefur verið nefnd sem möguleg viðbrögð íslands við gíldistöku Efnahags- og myntbanda- lags Evrópu. Ólafur Þ. Stephensen segir að slík samningsgerð yrði flókin og tímafrek, væri á annað borð vilji fyrir henni. SÁ MÖGULEIKI hefur verið nefnd- ur sem viðbrögð við gildistöku Efnahags- og myntbandalags Evr- ópu (EMU) og upptöku Evrópu- gjaldmiðilsins evrós, að Island geri samning um gengissamstarf við ríki EMU. Gengið er út frá að í þessum samningi fælist að gengi krónunnar væri tengt við evróið og - sem er grundvallaratriði - að Evrópski seðlabankinn (ECB) myndi skuld- binda sig til að styðja gengi krón- unnar ef hún yrði fyrir áföllum á gjaldeyrismörkuðum. Eins og Ingi- mundur Friðriksson, aðstoðar- bankastjóri Seðlabankans, benti á í erindi sínu á ráðstefnu Landsbank- ans um EMU í fyrradag, myndi trúverðugleiki þessarar tengingar, umfram einhliða tengingu krónunn- ar við evró, felast að hluta til í þessari skuldbindingu ECB, þótt auðvitað skipti stefna íslands í efnahags- og peningamálum höfuð- máli. Ingimundur benti hins vegar jafnframt á að þótt þessi leið virtist aðlaðandi, væri engin von til þess að hægt yrði að efna til viðræðna um möguleika á slíku samkomulagi fyrr en eftir að EMU hefði gengið í gildi, þ.e. eftir 1999, og Evrópski seðlabankinn starfað um hríð. Heimild í Maastricht en fjöldi varnagla í þeim kafla Maastricht-sáttmál- ans, sem fjallar um Efnahags- og myntbandalagið, nánar tiltekið 1. lið 109. grein, er kveðið á um heim- ild ráðherraráðsins til að gera geng- issamninga af þessu tagi við ríki utan Evrópusambandsins. í grein- inni eru hins vegar slegnir alls kon- ar varnaglar. í fyrsta lagi verða öll aðildarríkin að samþykkja gengis- samning. í öðru lagi verður ECB eða framkvæmdastjórn sambands- ins að leggja fram tillöguna, sem ráðherraráðið síðan samþykkir. í þriðja lagi verður ráðið að hafa samráð við Evrópuþingið. í fjórða lagi er ráðið skyldugt að hafa sam- ráð við seðlabankann, í því skyni að ná samkomulagi í samræmi við markmið bankans um verðstöðug- leika. Það er því hægara um að tala en í að komast að gera slíkt samkomulag við Evrópusambandið. „Grein 109 er svo flókin að það mun áreiðanlega taka mjög langan tíma að ná fram slíkum samningi, sé á annað borð vilji fyrir að gera hann,“ segir hátt settur embættis- maður framkvæmdastjórnar ESB, sem Morgunblaðið ræddi við um þetta mál. Hann segir skiljanlegt að EFTA- ríkin kunni að sækjast eftir trúverð- ugri tengingu við evróið, enda séu þau hluti af innri markaði ESB samkvæmt samningnum um Evr- ópskt efnahagssvæði. Honum þykir þó ótrúlegt að ECB vilji takast á hendur þá skyldu að styðja gjald- miðla EFTA-ríkja og telur að teng- ingin yrði fremur einhliða af hálfu EFTA-ríkjanna. „Óskrifuð grein Maastricht" Hagfræðingur hjá Evrópuþing- inu og sérfræðingur í EMU, sem Morgunblaðið ræddi við, segir að á meðan á ríkjaráðstefnunni stóð, sem leiddi tii undirritunar Maastric- ht-sáttmálans, hafi Evrópuþing- menn viðrað þá hugmynd að kveða sérstaklega á um það í sáttmálanum að gera mætti samninga um gengis- samstarf við EFTA-ríkin og styðja gjaldmiðla þeirra ef sótt væri að þeim. Hagfræðingurinn kallar þetta „hina óskrifuðu grein Maastricht" og bætir við að það hefði ekki átt að verða mjög erfitt að styðja hina hlutfallslega smáu gjaldmiðla EFTA-ríkjanna. Samstarf hefði getað komið Evrópusambandinu til góða, þar sem koma hefði mátt í veg fyrir að seðlabankar EFTA- ríkjanna gripu til aðgerða í peninga- málum, sem hefðu áhrif á stöðug- leikann innan EMU, til dæmis með sölu dollara. Það mál horfi hins vegar öðruvísi við eftir að fækkaði í EFTA og þijú aðildarríki gengu í ESB. Aukaaðild að ERMII hugsanlega skoðuð þegar um hægist Annar embættismaður Evrópu- þingsins segir að innan Evrópusam- bandsins sé enginn sérstaklega áfjáður sem stendur í að hefja samningaviðræður við ríki utan sambandsins um gengissamstarf. Það sé nægt verkefni að koma sem flestum ríkjum sambandsins inn í Efnahags- og myntbandalagið. Hugsanlegt sé þó að eftir að EMU hefur verið komið á laggirnar, sér- staklega ef mörg ESB-ríki verða með strax í upphafi, muni menn skoða möguleikann á að veita utan- aðkomandi ríkjum einhvers konar aðild að hinu endurnýjaða Evrópska myntsamstarfi (EMS) og nýju Gengissamstarfi Evrópu (ERM II). Þetta samstarf er fyrst um sinn eingöngu ætlað þeim ríkjum ESB, sem munu standa utan EMU, og á að tryggja að gjaldmiðlar þeirra sveiflist ekki um of miðað við evró- ið, þótt eflaust verði sveiflumörk í kerfinu nokkuð víð. Meðal þeirra skuldbindinga, sem þátttakendur í gengissamstarfinu munu verða að taka á sig, er að fylgja mjög svip- aðri efnahags- og peningamála- stefnu og EMU-ríkin og stefna að sem mestri efnahagslegri samleitni. í því skyni yrðu aðildarríkin að leggja fram áætlanir um aðgerðir í efnahagsmálum, sem fram- kvæmdastjórn ESB yrði að sam- þykkja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.