Morgunblaðið - 29.05.1997, Page 13

Morgunblaðið - 29.05.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 13 FRÉTTIR Gjaldþrot eftir bíla- innflutning' FYRIRTÆKIÐ ítalska verslunarfé- lagið hf., sem var um hríð með umboð fyrir Fiat-bíla, var tekið til gjaldþrotaskipta árið 1992. Skiptum er nýlega lokið. Tæpur helmingur forgangskrafna, sem námu rúmum 4 milljónum, greiddist en upp í al- mennar kröfur, sem námu rúmum 78,4 milljónum, greiddist ekkert. Eignir búsins fólust aðallega í skrifstofubúnaði og varahlutum í Fiat-bíla, en annað fyrirtæki hafði tekið við innflutningi og sölu bíl- anna. Samkvæmt upplýsingum Magnúsar Hauks Magnússonar hdl., skiptastjóra þrotabúsins, voru eigendur ítalska verslunarfélagsins hf. sjálfir í miklum ábyrgðum. Magnús Haukur sagði skiptalok hafa dregist þar sem allnokkur mál voru höfðuð fyrir dómstólum vegna skiptanna. --------------- Hjólað til styrktar krabbameins- sjúkum FERÐASKRIFSTOFAN Safarí- ferðir leggur á sunnudag af stað í fimm daga hjólreiðaferð með 88 farþega frá Bretlandi í samvinnu við bresku líknarsamtökin Macmill- an Cancer Relief. Ferðin er farin í fjáröflunarskyni fyrir krabbameins- sjúklinga. Lagt verður af stað frá tjaldstæð- inu í Mosfellsbæ kl. 9 á sunnudags- morgun og næstu fimm daga verða hjólaðir tæplega 400 km. Gist verð- ur í tjöldum eða svefnpokaplássum á Laugarvatni, í Árnesi, á Hellu og í Hlíðardalsskóla. Með í för verða tólf starfsmenn Safaríferða og fjórir íslenskir hjól- reiða- og viðgerðarmenn. Hópnum fylgja tveir eldhúsbílar, ein rúta og tveir jeppar, ásamt kerrum undir varahjól. Ferðinni lýkur í Reykjavík fimmtudaginn 5. júnl, þar sem sleg- ið verður upp tjöldum á tjaldstæðinu í Laugardal. Morgunblaðið/Ásdís FÓLK úr verkalýðshreyfingunni, innan ASÍ og frá öðrum samtökum, var á meðal fundargesta í gær. Ríkissljórnir ESB beiti sér gegn atvinnuleysi „VIÐ ERUM að beijast fyrir því að ríkisstjórnir Evrópu beiti sér gegn atvinnuleysi," sagði Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASÍ, vegna ráðstefnu, _sem haldin var í gær, um starf ASÍ að alþjóðamálum í tilefni af evrópskum baráttudegi gegn atvinnuleysi. Baráttan miðar m.a. að því, að sögn Ara, að fá markmið sett inn í stofnsáttmála Evrópusambandsins um hátt atvinnustig, en hingað til hafi það verið afgangsstærð í samn- ingaviðræðum aðildarríkjanna. „Árangur í glímunni við atvinnu- leysi næst einungis með samhæfð- um aðgerðum á mörgum sviðum, t.d. breyttum áherslum í mennta- málum sem miðuðu að því að auka samkeppnisstöðu fyrirtækja, aukn- um verulegum fram- kvæmdum í sam- göngubótum og með því að skoða þá kosti sem upplýsingaþjóð- félagið býður upp á.“ Á réttri leið á íslandi „Ef markmið um hátt atvinnustig verð- ur tekið inn í sáttmál- ann af fullri alvöru tækju almennar efna- hagsaðgerðir ESB mið af því, sem yrði að telj- ast mikilvægur áfangasigur." Ari sagði að fyrir mörg Evrópuríki væri ARI Skúlason, framkvæmdastjóri ASÍ. atvinnuleysi mál mál- anna, t.d. væri það um 13% í Svíþjóð, 20% á Spáni og 16% í Finn- landi. Hér á íslandi væri það ekki nema 4%, en fyrir 2-3 árum hefði það verið 6-7% sem hefði skapað veru- leg vandamál. „Atvinnuleysi skap- ar félagsleg vandamál og er dýrt fyrir þjóðfé- lagið bæði til lengri og skemmri tíma. Sem betur fer er þetta allt á réttri leið hér á landi, enda er gott atvinnulíf besta leiðin til að halda niðri atvinnuleysi." Slysið við Ljósheima Festing- um áfátt áþaki RANNSÓKN á orsökum slyss- ins við Ljósheima á mánudag hefur leitt í ljós að festingum og búnaði á þaki hússins var áfátt í nokkrum atriðum miðað við gildandi reglur. Öryggisbúnaður pallsins sem féll nokkra metra við hús í Ljósheimum í Reykjavík í fyrradag hafði nýlega gengist undir endurbætur í samræmi við reglur sem gilda um slíkan búnað, samkvæmt upplýsing- um frá Vinnueftirliti ríkisins. Búnaðurinn hafði sömuleiðis verið skoðaður og fengið fulln- aðarúttekt. Oryggisbúnaður bjargaði „Ljóst er að þessi öryggis- búnaður kom í veg fyrir að pallinum hvolfdi eða hann félli ti! jarðar með öllum þremur mönnunum sem á honum voru,“ segir í yfirlýsingu frá stofnuninni. Ekki er skylt samkvæmt núgildandi reglum að láta Vinnueftirlitið taka út upp- setningu slíkra palla í hvert skipti sem þeim er komið fyr- ir, en samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafa forsvars- menn fyrirtækisins sem stóðu fyrir verkinu, alltaf óskað eftir slíkum úttektum. En fyrir þetta tiltekna verk hafi komið upp misskilningur varðandi úttekt og hún því ekki farið fram. Hins vegar hafi starfs- mönnum verið gefnar munn- legar ábendingar um strekk- ingu á öryggislínu. Vinnueftirlitið telur hins vegar tryggt að góð samvinna verði á milli stofnunarinnar og verktakans um að festingar pallsins verði traustar áður en notkun hans hefst að nýju. Vonbrigði með framlög af vegaáætlun Fimm milljónir til Vegagerðar ríkisins vegna Gullinbrúar BORGARRÁÐ lýsir yfir vonbrigðum með samþykkt Alþingis á framlög- um á vegaáætlun til höfuðborg- arsvæðisins. Einnig að áætlunin skuli ekki hafa verið afgreidd fyrr en á allra síðustu dögum þingsins og að hún skuli vera afgreidd til tveggja ára en ekki fjögurra eins og lög geri ráð fyrir. Lýst er yfir vonbrigðum með að ekki skuli vera gert ráð fyrir fé til að breikka Gull- inbrú og samþykkt að veita Vega- gerð ríkisins fimm milljóna króna lán til _að kosta hönnun. I bókun borgarráðs kemur fram að það sé óviðunandi að vegaáætlun sé afgreidd svo seint, þar sem áætlun- in nái til verkefna sem framkvæma á á þessu ári. Það valdi jafnframt óvissu og óþægindum að áætlunin sé afgreidd til tveggja ára í stað fjög- urra því uppbygging í borginni sé háð því að umbætur á stofnbrauta- kerfi haldist í takt við þróunina. Bent er á að framlög til höfuð- borgarsvæðisins á þessum tveimur árum séu 190 milljónum lægri en gert var ráð fyrir í þeirri vegaáætl- un, sem samþykkt var fyrir tveimur árum og tæplega 800 milljónum lægri en tillögur sveitarfélaganna gerðu ráð fyrir á síðasta hausti. Það hafi gerst þrátt fyrir að sveitarfélög- in hafi lagt fram gögn er sýni að auka þurfi árlegt framlag til þjóð- vega á svæðinu um 20-30% til að ná fram viðunandi ástandi í um- ferðaröryggi. Þrátt fyrir að ekki sé gert ráð fyrir fé til að breikka Gullinbrú hef- ur borgarráð samþykkt að fela borg- arverkfræðingi að hefja hönnun á þessu ári og skoða sérstaklega áfangaskiptingu hennar með það að markmiði að sem fyrst verði ráðin bót á umferðartöfum. Til að flýta þessum undirbúningi var samþykkt að veita 5 millj. króna lán til Vega- gerðar ríksins til að kosta hönnun- ina. bjóðum við hagstæðustu . verð sumarsins til M Benidorm í eina eða tvær vikur ^20665 1 vika 4 í íbúð, 2 börn og 2 fullorðnir kr. 28 2 í íbúð kr. 38200 Gisting á Gemelos II í hjarta bæjarins - Stutt í alla þjónustu 2 vikur 4 í fbúð, 2 börn og 2 fullorðnir kr. 35^^ 2 í íbúð kr. 48^00 Gisting á Gemelos II eða Maryciel - Báðir gististaðir eru staðsaðsettir í hjarta bæjarins - Stutt í alla þjónustu Innifalið: Flug, gisting, flutningur til og frá flugvelli erlendis - Islensk fararstjórn og allir skattar Viðbótarafsláttur kr. 4000.- þegar þú notar EURO/ATLAS ávísunina þína. Hafðu samband við okkur, því nú er tæki- færið til að komast ___ódýrt í sólina Pantið í síma 552 3200 FERÐASKRIFSTOFA 9 REYKJAVÍKUR Aðalstræti 16 - sími 552-3200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.