Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Söguleg stund
á ársfundi FSA
Beint sam-
band við
skurðstofu
Landspít-
alans
AKUREYRINGAR sem sátu ársfund
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
á Hótel KEA í gær fylgdust með
aðgerð sem gerð var á skurðstofu
Landspítalans á sama tíma.
Anna Lilja Gunnarsdóttir hjúkr-
unarfræðingur og rekstarhagfræð-
ingur og forstöðumaður áætlana- og
hagdeildar Ríkisspítala og Jónas
Magnússon prófessor og sviðsstjóri
handlækningasviðs Ríkisspítala
fluttu erindi um framtíðarsýn í heil-
brigðisþjónustu og þróun sjúkrahúsa
á næstu árum. I lok erindisins var
sýnt hvað tæknin býður upp á í sam-
skiptum milli landshluta, en sett var
upp stafræn tenging við skurðstofu
Landspítalans þar sem fram fór að-
gerð, gallablaðra var fjarlægð úr
sjúklingi. Fundarmenn fylgdust með
aðgerðinni í um hálftíma og lýsti
Jónas því sem fram fór, en fram kom
í máli hans að væri hluti af framtíð-
arsýn í heilbrigðisþjónustu. Notað
var svonefnt samnet, eða ISDN-
símalína, miili staðanna og voru 6
línur í notkun. „Þetta er söguleg
stund, þetta er í fyrsta sinn sem við
gerum þetta á íslandi," sagði Ár-
sæll Magnússon hjá Pósti og síma
hf. á Akureyri.
Halldór Jónsson framkvæmda-
stjóri FSA sagði starfsemi lands-
byggðarsjúkrahúsa að breytast,
mjög hefði dregið úr miðlungs- og
stærri aðgerðum og væru þær smám
saman að leggjast af víða um land.
Þróunin væri sú að menntað fólk í
heilbrigðisþjónustu vildi ekki lengur
starfa á landsbyggðarsjúkrahúsum.
Það kallaði í raun á uppstokkun á
öllu heilbrigðiskerfinu. Þá nefndi
hann að örar breytingar væru á
tæknisviðinu og væri nauðsynlegt
að fylgjast vel með þróun á því sviði
og taka þátt í henni.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
TVEGGJA metra koparkross, minnismerki um mannskæðasta flugslys Islandssögunnar í Hestfjalli
við Héðinsfjörð verður afhjúpaður í sumar. Á myndinni eru Kiwanismennirnir Björgvin Björnsson
og Halldór Guðmundsson með sóknarprestinum sr. Sigríði Guðmarsdóttur.
Hálf öld liðin frá flugslysinu í Hestfjalli
Minnismerki sett upp
á slysstað í sumar
Ólafsfjördur. Morgnnblaðið.
FIMMTÍU ár eru nú liðin frá
mannskæðasta flugslysi íslands-
sögunnar. Þann 29. maí 1947 fórst
TF-ÍSÍ sem var af gerðinni Douglas
Dakota í Hestfjalli í Héðinsfirði.
Vélin sem var á leið til Akureyrar,
rakst á Hestfjall, efst í svokölluðum
Vogartorfum, við vestanverðan
Héðinsijörð. Skyggni var slæmt,
dimm þoka og lágskýjað og lenti
vélin á fjallinu í um 50 metra hæð.
Allir sem í vélinni voru, 25 manns,
fórust.
Þegar fréttist af slysinu var í
skyndi safnað saman mönnum frá
Siglufirði og Ólafsfirði. Á Siglufirði
va_r björgunarsveitin kölluð út, en
í Ólafsfirði áhöfnin á bát sem var
í landi, m/b Egill ÓF og allir aðrir
tiltækir menn. Sögðu sjónarvottar
aðkomuna hafa verið hræðilega.
Siglfirðingar og Ólafsfirðingar
unnu við að koma líkunum niður
úr fjallinu við erfiðar aðstæður og
um borð í báta. Siglt var til Ólafs-
fjarðar og þaðan til Akureyrar.
Þessi atburður er þeim sem að hon-
um komu enn í fersku minni.
Minnismerki á slysstað
Kiwanisklúbburinn Súlur í Ólafs-
firði hefur ákveðið að minnast þess-
ara atburða með því að reisa minn-
ismerki í Héðinsfirði. Minnismerkið
er tveggja metra hár koparkross í
keltneskum stíl sem reistur verður
nálægt slysstaðnum. Hefur klúbb-
urinn notið velvildar félagasam-
taka, fyrirtækja og opinberra aðila
sem lagt hafa fé í verkið. Klúbbur-
inn hefur notið góðrar aðstoðar
sóknarprestanna í Ólafsfirði og
Siglufirði, sr. Sigríðar Guðmars-
dóttur og sr. Braga J. Ingibergsson-
ar.
Helgistund
Krossinn verður vígður við hátíð-
lega athöfn í Héðinsfirði 19. júlí
næstkomandi. Vígslan fer að líkind-
um fram um borð í bát, því illkleift
er í fjallið. Eftir athöfnina verður
farið til Ólafsfjarðar og þar drukkið
kaffi í Félagsheimilinu Tjarnarborg.
í kvöld, fimmtudagskvöldjð 29. maí
verður stutt helgistund í Ólafsfjarð-
arkirkju og eru allir velkomnir.
Verkmenntaskólinn
á Akureyri
SKÓLASLIT
verða í fþróttahöllinni á Akureyri
laugardaginn 31. maíkl. 10.00.
Skólameistari.
Tískuverslunin
IMlFjlL d-m.
opnar í dag fimmtudaginn
29. maí í Hafnarstræti 97,2. hæð
í Krónunni, verslunarmiðstöð.
Opnunartilboð
staðgreiðsluafsláttur
fimmtudag, föstudag
og laugardag.
15%
Um 40 hjólbörðum stolið frá
Gúmmívinnslunni
Þjófar sættu lagi
milli eftirlitsferða
UM 40 hjólbörðum var stolið frá
Gúmmívinnslunni við Réttar-
hvamm á Akureyri aðfaranótt
þriðjudags eða 8 jeppadekkjum og
um 30 fólksbíladekkjum og nemur
verðmæti þeirra um hálfri milljón
króna.
Brotist var inn í gám sem er
áfastur lager Gúmmívinnslunnar,
þar sem geymd eru fólksbíladekk
og höfðu þjófarnir á brott með sér
um 30 ný dekk, svokölluð „low-
profile" dekk fyrir 15 tommu felg-
ur af Brigdestone gerð. Ganga þau
7UJ30Ð
Æjóiwyiidastofa
Éjunnars úugiwarssonar
Suðurveri, sími 553 4852
undir flestar gerðir japanskra
fólksbíla séu keyptar undir þá
stærri felgur. Þessi dekk eru ekki
seld víða og hafi starfsmenn
dekkjaverkstæða augun hjá sér er
ekki ólíklegt að hægt verði að kom-
ast á sporið.
Kunnugir
á svæðinu
Einnig var brotist inn í gám
annars staðar á lóð Gúmmívinnsl-
unnar, þar sem geymd eru notuð
jeppadekk og höfðu þjófar á brott
með sér 8 dekk á felgum. Þykir
ljóst að þeir sem þarna voru að
verki hafi ekki með öllu verið
ókunnugir á svæðinu og einnig að
þeir hafa þurft nokkuð stóran bíl
til að flytja dekkin á brott með sér.
Þórarinn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar,
segir innbrotið mikið áfall fyrir
fyrirtækið, þótt tjónið fáist að lík-
indum bætt að hluta. Aldrei hafi
verið brotist inn hjá félaginu eftir
að það flutti í Réttarhvamm. Svæð-
ið er vaktað en þjófarnir hafa sætt
lagi milli eftirlitsferða. Sagði Þór-
arinn að í framtíðinni yrði enn
betur hugað að öryggismálum fyr-
irtækisins.
Starfsfólki Foldu
hefur fjölgað um 20
Fjöldafram-
leiðsla á
útilífs-
fatnaði
FOLDA HF. á Akureyri er að hefja
fjöldaframleiðslu á alhliða útilífs-
fatnaði. Sérstök sportvörudeild hef-
ur verið stofnuð innan fyrirtækisins
og hefur starfsfólki verið fjölgað
um 20 að undanförnu, úr 50 í 70.
Að sögn Hermanns Sigursteinsson-
ar, framkvæmdastjóra Foldu, er
stefnt að því að setja fatnaðinn á
markað næsta haust, bæði hérlend-
is og erlendis.
Félagarnir þrír sem klifu Mount
Everest, hæsta fjall heims, á dögun-
um og fylgdarmenn þeirra klædd-
ust Cintamani útilífsfatnaði frá
Foldu í ferð sinni á ijallið. Hermann
segir að fatnaðurinn hafi reynst
mjög vel í þeirri ferð.
Útilífsfatnaðurinn er samvinnu-
verkefni Foldu og Jan Davidssonar
og unninn í samvinnu við fjall-
göngugarpana þijá. Fötin eru búin
til úr iceguard-efni sem er nýjasta
tækni í öndunarefnum.
í tengslum við landsfund Lands-
bjargar á Akureyri verður fatnaður-
inn til sýnis á morgun, föstudag, í
Lundi, þar sem Akureyrarbær býð-
ur landsfundargestum til hádegis-
verðar.
-----»--»-4----
Öldurót
komið út
ÖLDURÓT, blað Sjómannadags-
ráðs Eyjaijarðar, gefið út í tilefni
sjómannadagsins er komið út.
Þetta er í sjöunda sinn sem blað-
ið er gefið út og líkt og áður er
blaðið helgað efni sem varðar sjó-
menn og sjómannadaginn og ekki
síst er í efnisvali blaðsins horft til
öryggsmála sjómanna en yfirskrift
sjómannadagsins á Akureyri í ár
er „Öryggi framar öllu“.
Meðal efnis í blaðinu er viðtal
við Þorstein Vilhelmsson, einn eig-
enda Samheija, rætt er við Maron
Ólafsson skipstjóra í Ólafsfirði,
fjallað um fjarnám til sjós og spjall-
að við sjómenn sem verða heiðrað-
ir á sjómannadaginn. Þá er viðtal
í blaðinu við Akureyringinn Valdi-
mar Sigþórsson sem komst lífs af
í sjóslysinu þegar Dísarfell sökk í
vetur.
Með útgáfu blaðsins aflar sjó-
mannadagsráð sér tekna til að
standa undir fjölbreyttri dagskrá í
tilefni sjómannadagsins.
MESSUR
LAUFÁSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta verður við höfn-
ina á Grenivík að morgni sjó-
mannadags, 1. júní. Eftir
messu verður gengið til kirkju
og blóm lögð að minnismerki
um látna sjómenn. Hátíðar-
guðsþjónusta er í Svalbarðs-
kirkju á sunnudag kl. 14 í til-
efni 40 ára afmælis kirkjunn-
ar. Sr. Bolli Gústavsson vígslu-
biskup prédikar en altarisþjón-
ustu annast sr. Sigurður Guð-
mundsson vígslubiskup, sr.
Örn Friðriksson prófastur, sr.
Jón Bjarman sjúkrahúsprestur
og sóknarpresturinn, sr. Pétur
Þórarinsson. Kór Svalbarðs-
og Laufáskirkju syngur undir
stjórn Hjartar Steinbergsson-
ar. Eftir messu er öllum
kirkjugestum boðið til kaffi-
samsætis í íþróttasal skólans
á Svalbarðseyri.
i
i
>
1
i
I
,
I
í
k
1
I
U