Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Stöðugt er unnið að endurbótum á vegakerfinu á Vestfjörðum og slitlag lengist um 20 km á ári ' ■ ■■■■ . ! ■fleykjanes 1 i .^GjUfurá;.. ' ' / fXiHirr‘,'1 > vs Hiuie, I I ■ ■Svarisvík ■ ,VL' BJarnastaölr ■pap:® j i *, i II I I | ÍJTTT ’ i T s»p: ■'x'T Eyrarfjáll g — Nugtidahdl vegpúmer VsgnUmeSðcv. tHlögu = ■>«. . . :....■... / ■ * Símar 551-9540 & 551-9191 - fax 551-8585 * EIGNASALAN INGÓLFSSTRÆTI 12-101 REYKJAVÍK. Yfir 35 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar. Magnús Einarsson, löggiltur fasteignasali. Sölum. Svavar Jónss., hs. 553-3363, og Eggert Elíass., hs. 557-7789. Bakkaflöt Gb. Einbýli á einni hæð - laust „MARKMIÐ yfirvalda í vegamálum er að allir stofnvegir verði lagðir bundnu slitlagi og að því er einnig stefnt hér á Vestfjörðum. Nú eru um það bil 47% af stofnvegunum hér lögð bundnu slitlagi,“ segir Gísli Eiríksson umdæmisverkfræðingur Vegagerðar ríkisins á ísafirði í sam- tali við Morgunblaðið. Alls er stofnvegakerfið á Vest- fjörðum 776 km langt og eru 363 km lagðir bundnu slitlagi. Miðað við hraðann síðustu ár lengist bundna slitlagið um 20 km árlega þannig að tvo áratugi tekur að ná þessu markmiði. Nú er unnið samkvæmt vegaáætlun til tveggja ára og er Gísli beðinn að nefna helstu fram- kvæmdir á þessum tíma. „Stærsta verkefnið er við Gils- fjörðinn og verður unnið þar fyrir 175 milljónir króna í ár. Brúin var smíðuð í fyrra en í sumar verður áfram unnið við fyllinguna yfir fjörð- inn og ráðgert að opna leiðina til bráðabirgða í desember en ljúka verkinu á næsta ári en þá fæst 350 milljóna króna fjárveiting. Mun verktakinn lána nokkurt fé fram á næsta ár. Af öðrum verkefnum má nefna að á Djúpvegi verður haldið áfram að byggja upp veginn og lengja slit- lag. Verður haldið áfram við Ögur og tekinn 7,8 km kafli inn að Laug- ardalsá. Ráðist verður í endurbygg- inguna í haust og slitlagið lagt næsta sumar, unnið fyrir 60 milljónir króna í ár og 90 milljónir næsta ár. Þá verður á Barðaströnd lagt slitlag á 3,3 km langan kafla frá Rauðsdal að Hvammi og byrjað á framkvæmd- um á næsta kafla, frá Hvammi að Krossi en hann er tæpir fjórir km. Einnig verður 3,4 km kafli frá Örl- ygshafnarvegi að Barðastrandarvegi GÍSLI Eiríksson umdæmisverk- fræðingur Vegagerðar rikisins á ísafirði við kort af svæðinu. lagður slitlagi sem kostar 23 milljón- ir, haldið áfram lagfæringum á Eyr- arfjalli, malbornir og lagaðir 5 km sem kostar um 15 milljónir og 11 milljónir fara til endurbóta á Dynj- andisheiði og koma þessir tveir liðir af viðhaldsfé.“ Ótalin er stærsta fjárveitingin á þessu ári sem eru 274 milljónir til greiðslu skulda vegna Vestfjarða- ganganna og verður skuld vegna ganganna þá um 40 milljónir króna. Segir Gísli að vart verði um önnur stórverkefni að ræða á Vestfjörðum fyrr en þessar skuldir hafa verið greiddar. Aðalleiðin um Djúpið Gísli segir að Djúpvegur, leiðin um Steingrímsfjarðarheiði, framhjá Hólmavík og um Strandir verði aðal- leiðin milli Isafjarðar og hringvegar- ins við Brú. í því sambandi hefur farið fram forathugun á framtíðar vegarstæði um Djúpið sem starfs- menn Vegagerðarinnar á _ Isafirði unnu. Bæta þarf leiðina milli ísafjarð- ar og Mjóafjarðar og stendur valið milli tveggja kosta: Að leggja heils- ársveg um Eyrarfjall eins og aðalleið- in er í dag (nema að vetrarlagi) eða brúa utanverðan Mjóafjörð og aka um Vatnsfjörð og Vatnsfjarðames eða skarðið sunnan Vatnsfjarðarháls. „Það fer að verða brýnt að lag- færa veginn á þessum kafla og stend- ur valið milli þess að gera veginn yfír Eyrarfjall að heilsársvegi eða bæta veginn út fyrir,“ segir Gísli. Hann segir ókostinn við Eyrarfjall að sú leið er tæplega 100 milljónum dýrari og fjallvegur sé alltaf dýrari í rekstri en vegur á láglendi en vegur- inn liggur þar í um 360 m hæð. „Við munum þvý fremur mæla með heilsársvegi út Isafjörð að vestan- verðu, um Vatnsfjörð, yfir skarðið sem er um 140 m á hæð eða út fyr- ir Vatnsfjarðarnes sem er 4 km lengri og síðan yfir í Mjóafjörð sem yrði brúaður við Hrútey utarlega í firðin- um. Ég geri ráð fyrir að uppbygging vegar um ísafjarðardjúp verði á vegaáætlun næstu átta ára. Þessi framkvæmd kostar kringum 659 milljónir króna og geri ég ekki ráð fyrir að fjármagn fáist í hana, verði hún fyrir valinu, fyrr en á síðari helm- ingi þess tíma og erum við þá að tala um kringum 2005.“ Fimm milljónir vegna Fagraness Um áhrif af þessari vegabót segir Gísli að þau séu lítil hvað varðar búsetu á svæðinu. Aðeins er búið í Heydal, innarlega í Mjóafirði sem verður áfram í ágætu vegasam- bandi, söluskálann Djúpmannabúð megi flytja nær aðalveginum og breytingin skipti ekki máli fyrir eig- endur sumarbústaða í Heydal. Ekki skipti heldur máli fyrir bæi í Vatns- firði hvor leiðin er valin, þeir verði í báðum tilvikum í góðu vegasam- bandi allt árið og Gísli segir ljóst að endurbótin á þessum vegarkafla sé brýn, fyrr verði ekki góður heils- ársvegur um Djúpið. í þessu sambandi er eðlilegt að Bundið slitlag 1 komið á 47% stofnvega | Oft heyrist kvartað yfir vegakerfi Vest- arða. Þar er stöðugt unnið að endurbótum og er markmiðið að allir stofnvegir verði lagðir bundnu slitlagí. Brúin yfir Gilsfjörð er stærsta verkefnið sem nú er unnið að. spyija um djúpbátinn, Fagranesið, sem fer nokkrum sinnum í viku milli Melgrasreyrar og ísafjarðar með bíla og farþega og þjónar auk þess eyjunum tveimur, Vigur og Æðey. Vegagerðin leggur 5 milljónir króna árlega með rekstrinum vegna þjón- ustu við Æðey og Vigur. „Ástæða þess að Vegagerðin tek- ur þátt í rekstri feijanna á nokkrum stöðum á landinu er sú að sé ekki möguleiki á heilsárs vegasambandi ber Vegagerðinni að styrkja slíka feijuflutninga. Þegar varanlegt vegasamband er komið á er forsenda fyrir bílfeiju brostin. Ég geri ráð fyrir að styrkur Vegagerðarinnar til reksturs Fagraness verði ekki auk- inn þegar samningurinn rennur út í árslok. Veginum um Djúp er nú haldið opnum allt árið, þijá daga í viku að vetrinum, og hefur svo verið í nokkur ár,“ segir Gísli. Hann segir aðspurður að Fagra- nesið geti vart þjónað t.d. þunga- flutningum að ráði og létt þannig á vegunum. Ef svo ætti að verða þyrfti fleiri ferðir og breytta áætlun. Hins vegar hefðu flutningabílar stundum verið fluttir með skipinu þegar ástand vega er verst vor og haust. Meðalumferð um þjóðvegina frá 86 bílum uppí 28.774 UMFERÐ um Djúpveg hefur verið talin nokkur síðustu ár eins og reyndar víðar á landinu og hefur hún farið vaxandi. Talið er í Álfta- firði, nokkru innan við Súðavík. Meðalumferð ársins á dag var 58 bílar árið 1991 en var komin í 86 bíla í fyrra. Sumarumferðin var í fyrra 145 bílar en fór niður í 30 yfir vetrarmánuðina. Til samanburðar má nefna að _ meðalfjöldi bíla um þjóðveginn við Grímsstaði á Fjöllum var árið 1995 109 bílar á dag, 18 bílar yfir vetur- inn og 231 bíll að sumarlagi. Með- alumferð um Hellisheiði var það ár 3.474 bílar á dag, 1.778 bílar um þjóðveginn við Borgarnes, 657 bílar um Norðurlandsveg sunnan Varmahlíðar, 156 bílar um Skeið- arársand en 28.774 bílar á Hafnar- fjarðarvegi um Arnarneshæð. KORTIÐ sýnir breytingar á þjóðvegi nr. 61 og hvernig nýja leiðin liggur yfir þveran Mjóafjörð og yfir í Vatnsfjörð. Kortið er úr blaði Vegagerðarinnar, Framkvæmdafréttum. Til sölu og afhendingar strax, 200 ferm. einbýlishús á einni hæð, við eina vinsælustu götu í Garðabæ. Húsið skiptist í rúmgóðar stofur, 5 herbergi og bað. Að auki er rúmgott eldhús, þvottahús, búr og sér snyrting. Húsinu fylgir tvöfaldur 43 ferm. bílskúr. Falleg ræktuð lóð með mikum trjágróðri. Húsið stendur í rólegri lokaðri götu. Húsið er laust til afhendingar. Miðleiti íbúð í sérflokki Vorum að fá í sölu eina glæsilegustu íbúð á fasteignamarkaði í dag. (búðin er á efri hæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi og skiptist í rúmgóðar stofur m/arni, 2 góð svefnherbergi, eldhús og baðker. Yfir hluta íbúðarinnar er innréttaö rúmgóður sjónvarpsskáli og stórt aukaherbergi. (búðin er innréttuð á óvenju glæsilegan og smekklegan hátt og allar innréttingar sérteiknaðar af arkitekt hússins. Stórar suðursvalir, þvottahús á hæðinni. Stæði fylgir í bílskýli. Ibúðin getur losnað strax.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.