Morgunblaðið - 29.05.1997, Page 22

Morgunblaðið - 29.05.1997, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Reuter EINN skýstrókanna sex, sem gengu yfir í Texas, fer hjá hraðbraut nærri bænum Jarrell. MIKIL EYÐILEGGING EFTIR SKYSTROKK Að minnsta kosti 32 létu lífið er sex skýstrókar gengu yfir Texas á þriðjudag. Flestir fórust í bænum Jarrell í Williamson-sýslu en þar eru um fimmtíu hús nú rústir einar. Þá létust tveir í Austin. REUTERS Sourœ: Planet Earth Storm, Time Ule Books Skýstrókar þyrlast upp vegna þrumuveðurs, i fyrstu hvítirog trektlaga, en verða síðan gráir vegna ryks sem sogast upp íþá. Fæstirendast nema í um 15 mínútur, eru frá 10-400 m íþvermál og vindhraðinn getur faríð upp í 418 kmá klukkustund. Mótmæli stöðv- uð í Kinshasa Mandela ver Kabiia og segist full- viss um lýðræðisást hans Kinshasa, Höfðaborg. Reuter. A fjórða tug ferst í skýstrók Jarrell. Reuter. AÐ minnsta kosti 30 létu lífið í smábæ í Texas er skýstrókur gekk þar yfir í fyrrakvöld. Þá er fjölmargra saknað og leituðu björgunarmenn í gær í rústum húsa og hjólhýsa með tækjum sem nema hita. Þeir sögðu aðkomuna skelfilega, alger eyðilegging blasti við þar sem hvirfilbylurinn hefði farið um. Sex hvirfilbyljir hafa gengið yfir Texas í vikunni. í lgölfarið hefur fylgt gifurlegt úrhelli og haglél, og eru stærstu höglin á stærð við tennisbolta. Tveir fórust í borginni Austin í óveðrinu, annar þegar eldingu laust niður í hús hans en hinn drukknaði. En í Jarrel, þar sem búa um 650 manns, létust þrjátíu. „Hljóðið í þessum var eins og urr í birni. Lágt og grimmdarlegt,“ sagði einn íbúanna. Fyrir átta árum gekk öflugur skýstrókur yfir bæinn og lagði hluta hans í rúst en einn maður lést. Um fimmtíu hús og hjólhýsi eyðilögðust í Jarrell en alls eru yfir 200 hús skemmd eða eyðilögð í Texas. Gekk björgunarmönnum, sem margir hveijir voru úr hópi bæjarbúa, erfiðlega að bera kennsl á líkin, en þau voru mörg klæðlaus og húðin illa brunnin eftir að hafa komist í snertingu við skýstrókinn, sem þyrlar upp ryki er hann gengur yfir. HERMENN í Lýðveldinu Kongó, áður Zaire, leystu í gær upp mót- mælagöngu nokkurra þúsunda manna í höfuðborginni Kinshasa. Flestir göngumanna voru stuðnings- menn Etienne Tshisekedi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar og fyrrverandi forsætisráðherra, og kröfðust þess að Rúandamenn í her og stjóm landsins yrðu látnir víkja. Stjórnarandstaðan og vestræn stjórnvöld hafa lýst áhyggjum vegna einræðistilhneiginga hins nýja leið- toga landsins, Laurent Kabila, og banns við starfsemi stjórnmála- flokka. í gær reyndi Nelson Mand- ela, forseti Suður-Afríku, hins vegar að draga úr ótta manna vegna þessa og kvaðst þess fullviss að lýðræðið yrði virt í landinu. SAKSOKNARINN í Nordland í Nor- egi hefur gefið upp alla von um að kanadíski náttúruverndarsinninn Paul Watson verði framseldur frá Hoilandi. Norskur dómstóll dæmdi Watson í 120 daga fangelsisvist að honum ijarverandi fyrir að sökkva norsku hvalveiði- skipi og var hann eftirlýstur vegna dómsins. Hollend- ingar handtóku Watson í byrjun apríl og hefur hann setið í gæsluvarðhaldi þar í 58 daga. Samkvæmt reglum norska rétt- arkerfisins hefði Watson verið látinn laus þegar hann hefði verið búinn að afplána 73 hluta fangavistarinn- ar, þ.e. eftir 80 daga vist. Telur Geir Fornebo saksóknari útséð um að Watson verði framseldur héðan af, hann hafí nýtt sér alla áfrýjunar- Setja átti Kabila formlega í embætti í dag en hann hefur lítið sést opinberlega frá valdatökunni fyrir hálfri annarri viku. Hann hefur nú þegar skipað þrettán manns í ríkisstjórn og segja aðstoð- armenn hans að sjö muni bætast í hópinn en enginn forsætisráherra verði settur. Tshisekedi og fylgis- menn fullyrða að tveir ráðherranna séu frá Rúanda, svo og fjöldi her- manna í liði Kabilas. Hafa þeir mótmælt því harðlega og ein aðal- krafan í mótmælagöngunni í gær var að útlendingarnir hyrfu á braut. Þá heldur Tshisekedi enn fram kröfunni um sæti forsætis- ráðherra á þeirri forsendu að lög- lega kjörið þing Zaire hafi kosið hann til þess árið 1992. möguleika í Hollandi og eigi aðeins eftir að afplána tuttugu daga. Sam- kvæmt alþjóðlegum lögum um fram- sal, sem Noregur og Holland hafa undirskrifað, verður dómur um að minnsta kosti 120 daga fangavist að liggja til grundvallar framsali. Hálfur sigur unninn Stuðningsmenn Watsons hafa lagt mikla áherslu á að hann verði ekki framseldur til Noregs, þar sem þeir fullyrða að honum sé ekki óhætt innan veggja norsks fangelsis. Fornebo segir að þrátt fyrir að Watson hafi ekki verið framseldur til Noregs sé hálfur sigur unninn með því að honum hafi verið haldið í Hoiiandi. Þó hafi norska réttarkerf- ið gjarnan viljað hafa hendur í hári náttúruverndarsinnans, þar sem enn hafi ekki verið réttað í máli sem hann hafi átt aðild að; árekstur skips Sea Shepherd-samtakanna, sem Watson fer fyrir, við strandgæslu- skipið Andenes árið 1994. Norðmenn vonlitlir um að fá Watson Ósló. Morgunblaðið. Paul Watson i i i i I f > í f > t. ; i L L I Ahtisaari gegn þjóð aratkvæðagreiðslu um EMU-aðild Helsinki. Morgunblaðið. MARTTI Ahtisaari Finnlandsforseti er algerlega andvígur því að þjóðin fái að skera úr um þátttöku Finna í Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU). Ahtisaari sem er ötull talsmaður Evrópusambands- ins (ESB) og sam- einingar Finna við Vestur-Evrópu sagði á þriðjudag- inn að sér fyndist nóg að þjóðin hefði greitt atkvæði um aðild að ESB. Undanfarið hefur hitnað í kolun- um vegna þeirrar stefnu ríkisstjórn- arinnar að Finnar verði á meðal fyrstu aðildarþjóða EMU. Stjórnar- andstaðan með Miðflokkinn í broddi fylkingar hefur krafist ítarlegra umræðna og þjóðaratkvæðagreiðslu í málinu. Ríkisstjómin hyggst hins vegar aðeins afgreiða málið í formi tilkynningar á þinginu upp úr næstu áramótum. Forsetinn og flestir leiðtogar stjórnarinnar telja að Finnar hafi samþykkt afnám finnska marksins og inngöngu í EMU með því að undirrita Maastricht-samninginn. Meðal stjórnarliða ríkir samt sem áður ekki samstaða í þessu máli. Fulltrúar Vinstra bandalagsins og jafnaðarmanna hafa tekið undir kröfu Miðflokksins um þjóðarat- kvæðagreiðslu. Verkalýðsfélögin styðja EMU Fyrir nokkru lýstu hins vegar ieið- togar helstu stéttarfélaga og vinnu- veitenda stuðningi við EMU. Fagn- aði jafnaðarmaðurinn og forsætis- ráðherrann Paavo Lipponen þessari yfirlýsingu. Hefði verkalýðshreyf- ingin tekið afstöðu gegn EMU hefði reynst erfítt að knýja fram samstöðu meðal þingmanna jafnaðarmanna- flokksins. Ahtisaari forseti rökstuddi af- stöðu sína gegn þjóðaratkvæða- greiðslu með því að áform um mynt- bandalag hafí verið til staðar haust- ið 1994 þegar Finnar ákváðu að ganga í ESB. Hitt hefur hins vegar komið í ljós í nýlegum skoðanakönn- unum að meirihluti kjósenda hefði hikað við að samþykkja aðild að ESB ef þeir hefðu gert sér grein fyrir því að um leið væru þeir að ganga í myntbandalag. Ahtisaari Áhrif Svía gætu minnk- að ef EMU-aðild seinkar Brussel. Reuter. SVÍAR eiga á hættu að glata áhrif- um innan Evrópusambandsins, fari svo að ríkisstjórnin ákveði að taka ekki þátt í Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu (EMU) strax frá upphafi árið 1999, en flestir búast nú við slíkri ákvörðun. Þetta er mat stjómarerindreka og sérfræð- inga, sem Reufers-fréttastofan ræddi við. Þeir telja að áhrif Svía muni minnka, jafnvel á mál, sem ekki snerta myntbandalagið með beinum hætti, til dæmis stækkun ESB til austurs, sem Svíþjóð hefur lagt mikla áherzlu á. „Það er ljóst að rödd okkar verð- ur léttvægari," segir Carl Hamil- ton, yfirhagfræðingur hjá Hand- elsbanken í Stokkhólmi. „Það verð- ur erfiðara fyrir okkur að gæta eigin hagsmuna og það á við um öll svið.“ Stjórnarerindreki í Brussel tekur í sama streng: „Það er ekki jafn- áhugavert að ræða við þann, sem er ekki í innsta hring.“ Stjórnarfiokkurinn í Svíþjóð, Jafnaðarmannaflokkurinn, er klof- inn í afstöðu sinni til Evrópusam- runans, auk þess sem efasemda gætir hjá kjósendum um ágæti EMU-aðildar. Búizt er við að ríkis- stjórn Görans Persson tilkynni fljótlega að hún muni ekki sækjast eftir þátttöku í EMU árið 1999, jafnvel þótt Svíþjóð uppfylli viðeig- andi skilyrði Maastricht-sáttmál- ans. Talið er mögulegt að flokks- forystan geri upp hug sinn á fundi á morgun. Kann að ergja önnur ESB-ríki Ákvörðun um að fresta aðild kann að ergja stjómvöld í öðrum ríkjum ESB, enda hefur Svíþjóð ekki undanþágu frá EMU, líkt og Bretland og Danmörk. „Það verður litið svo á að Svíar standi ekki við sinn hluta samningsins,“ segir stjórnarerindreki hjá ESB. Embættismenn ESB viðurkenna hins vegar að ekki sé hægt að neyða aðildarríki til að ganga í Efnahags- og myntbandalagið og bæta við í gríni að framkvæmda- stjórnin geti ekki sent skriðdreka á götur Stokkhólms. Sérfræðingar segja að orðalag ákvörðunar ríkisstjórnarinnar muni skipta miklu máli fyrir stöðu Svíþjóðar innan ESB. Hamilton segir að hin neikvæðu áhrif verði minni ef fram komi að aðeins sé um að ræða tímabundna seinkun á aðild. Megi hins vegar ráða af ákvörðuninni að Svíar séu enn í vafa um hvort þeir eigi yfirleitt að ganga í EMU, geti það haft alvarlegar afleiðingar. Talið er að forsendur geti breytzt ef Bretland ákveður að ganga í EMU á næstu árum. „Ef Bretland færist nær EMU-aðild hefur það mikla þýðingu fyrir Sví- þjóð,“ segir Hamilton. IV L I . L i i,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.