Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Land-
skjálftar
í Iran
TVEIR jarðskjálftar urðu í ír-
an í gærmorgun en fregnir
höfðu ekki borist af afleiðing-
um þeirra. í Ardabil í norðvest-
urhluta landsins mældist
skjálfti sem var 4,8 á Richter
og annar við Astara í norðri
sem var 4,6 á Richter. Jarð-
skjálftar eru algengir I íran
og er þetta önnur alvarlega
jarðskjálftahrinan í þessum
mánuði.
Neita að fara
frá N-írak
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Tyrkja sagði á miðvikudag að
Tyrkir myndu ekki kalla her-
sveitir sínar heim frá Norður-
Irak fyrr en markmiði innrás-
arinnar hafi verið náð. Tyrkir
sendu 10.000 manna herlið inn
á verndarsvæði Kúrda fyrir
tveimur vikum í því skyni að
uppræta bækistöðvar aðskiln-
aðarsinnaðra Kúrda.
A Everest í
þriðja sinn
BANDARÍSKI fjallgöngu-
maðurinn Wallace Berg varð
á miðvikudag fjórði Banda-
ríkjamaðurinn til að klífa
Everest í þriðja sinn. Alls hafa
nú 46 manns komist á tind
Everest á þessu ári, þeirra á
meðal er bamabam Tashi
Tenzing, sem fyrstur komst á
tindinn ásamt Edmund Hillary
árið 1953.
Clinton gegn
vændi
„VIÐ HÖFUM orðið sammála
um að leggja aukna áherslu á
baráttuna gegn vændi sem í
raun er ný tegund þrælahalds,"
sagði Bill Clinton Bandaríkja-
forseti eftir fund með Hol-
landsforseta í gær. Háttsettur
bandarískur embættismaður
bætti því við að skipulagðir
glæpahópar í Rússlandi og
Mið-Evrópu starfræktu sterka
vændishringi bæði í Evrópu
og Asíu.
Rússnesk
fangelsi full
RÚSSNESKIR ráðamenn hafa
boðað nýjar aðgerðir til að
bæta aðstöðu fanga í rúss-
neskum fangelsum. Eftir fall
Sovétríkjanna hefur glæpa-
tíðni stóraukist í Rússlandi en
hvorki dómskerfið né fangelsin
verið í stakk búin til að fást
við slíka aukningu. Þannig bíð-
ur rúmur fjórðungur þeirra
milljón fanga, sem nú eru í
haldi, réttarhalda og allt upp
í 140 fangar verða að deila
rými sem upphaflega var
hugsað fyrir 35 manns.
Með alnet í
fangelsinu
í ÍTÖLSKU fangelsi geta
fangar nú komist í beint sam-
band við umheiminn eftir að
opnuð var heimasíða fangelsis-
ins á alnetinu (Interenet).
Fangelsið mun þó fylgjast með
og ritskoða þær upplýsingar
sem fangarnir fá í gegn um
netið.
Áróðursstríð bíður Bills
Clintons við heimkomuna
Ekki er gefið mál að Bandaríkjaþing samþykki stækkun NATO
Samstarfssáttmála Rússa og NATO, sem
undirritaður var í París á þriðjudag, er ætlað
að greiða fyrir stækkun bandalagsins. Fleiri
hindranir eru þó í veginum og er nú talið
að ekki verði auðhlaupið að því að fá stækk-
unina samþykkta á Bandaríkjaþingi.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti var
í gær staddur í Hollandi til að minn-
ast þess að hálf öld er liðin frá því
að Marshall-aðstoðinni var hleypt
af stokkunum og notaði um leið
tækifærið til að líta fram á veg eft-
ir að sögulegt samkomulag um sam-
starf Rússa og Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) var undirritað í Par-
ís. Samningarnir við Rússa, sem
ætlað er að greiða fyrir stækkun
NATO, voru ekki auðveldir, en tók-
ust á endanum, ekki síst vegna þess
stuðnings, sem Bandaríkjamenn
hafa staðfastlega sýnt Borís Jeltsín
Rússlandsforseta. En þótt björninn
sé unninn er stækkun NATO ekki
tryggð. Við heimkomuna bíður Clint-
ons það erfiða verkefni að sannfæra
efasemdarmenn í Bandaríkjunum
um að rétt sé að stækka NATO til
austurs.
Deilur um stækkunina hafa farið
vaxandi undanfarið og hafa ýmsir
frammámenn dregið í efa að sú
stefna Clintons að stækka NATO
sé skynsamleg. Til þess hóps teljast
stjórnmálamenn, fræðimenn og
fjölmiðlamenn.
Líkt við Whitewater
David Friedman, dálkahöfundur
bandaríska dagblaðsins The New
York Times, sagði að stuðningur
forsetans við stækkunina væri
„Whitewater utanríkisstefnu Clint-
ons“ og vísaði þar til lóðabrasks
forsetahjónanna í Arkansas þegar
Clinton var þar frammámaður í póli-
tík, en rannsókn þess máls hefur
staðið yfir svo árum skiptir. í því
máli blandast saman lagaflækjur og
siðferðis- og fjármálaspurningar.
David Broder, dálkahöfundur The
Washington Post, hefur einnig sett
sitt lóð á vogarskálarnar: „Spuming-
unni um það hvernig Bandaríkja-
menn ætla að þenja herafla, sem
jafnt og þétt skreppur saman, þann-
ig að veija megi Varsjá, Prag og
Búdapest hefur ekki verið svarað.
Sama á við um spurninguna um það
hvernig þessi lönd, sem beijast í
bökkum, eiga að fjármagna þá end-
urnýjun herafla þeirra, sem þarf til
að þau uppfylli staðla NATO. Spurn-
ingin um það hversu langt þetta
ferli á að ganga er enn óljósari og
það á einnig við um það hvað muni
gerast ef Eystrasaltsríkjunum og
öðrum fyrrverandi lýðveldum Sov-
étríkjanna á borð við Úkraínu yrði
veitt innganga eða hvort þau verði
útilokuð að eilífu."
Jeltsín sagði í viðtali við frétta-
stofuna Itar-Tass daginn fyrir París-
arfundinn að í Moskvu yrði innganga
ríkja, sem áður voru hluti af Sovét-
ríkjunum, í NATO ekki litin velþókn-
unaraugum og átti þar greinilega
við Varsjárbandalagsríkin.
Það virðist reyndar endanlega
orðið ljóst að Eistlandi, Lettlandi og
Litháen verður ekki veitt innganga
í fyrstu umferð stækkunar NATO
og staðfesti Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra það í viðtali við Stöð 2 í
fyrradag, hvað sem síðar verður.
Gagnrýnendur stækkunarinnar í
Bandaríkjunum segja að hún muni
meðal annars leiða til þess að Rúss-
ar standi ekki við skuldbindingar
sínar um að skera niður kjarnorku-
vopn og spyija hvernig slýk býti
auki þjóðaröryggi Bandaríkja-
manna.
Vændur um kosningabrellu
Þeir halda því fram að stefna
Clintons eigi rætur að rekja til bar-
áttu hans fyrir endurkjöri í fyrra.
Loforði um stækkun hafi verið ætlað
að fá bandaríska kjósendur, sem
rætur eiga að rekja til Austur-Evr-
ópu, til að kjósa Clinton.
„Forsetinn ákvað að fara þessa
leið árið 1994 þegar hann færði
þetta fyrst í tal,“ sagði Samuel
Berger, þjóðaröryggisráðgjafi
Clintons, við blaðamenn þegar spurt
var um þessar fullyrðingar. „Við
erum þeirrar hyggju að með því að
taka hinum nýju lýðræðisríkjum í
Mið-Evrópu opnum örmum í stærra
Atlantshafsbandalagi getum við
unnið að því að koma á þeim stöðug-
leika í austri, sem NATO hefur
tryggt í vestri."
Gagnrýnendur Clintons segja hins
vegar að til sé betri leið til að vinna
að stöðugleika í Evrópu. Bandaríkja-
menn gætu þrýst á um aukinn sam-
runa í efnahagsmálum á meginland-
inu. Bandarískir embættismenn
benda á að kosningaúrslitin í Frakk-
landi um helgina beri veikleikum
þeirrar stefnu vitni.
í fyrstu umferð kosninganna, sem
komu af stað stjórnarkreppu í
Frakklandi samfara Parísarfundin-
um þar sem samkomulag NATO og
Rússa var undirritað, unnu sósíalist-
ar og kommúnistar sigur. Þeir hafa
gagnrýnt þær aðhaldsaðgerðir, sem
frönsk stjórnvöld hafa gripið til í því
skyni að uppfylla skilyrðin fyrir að-
ild að Efnahags- og myntbandalagi
Evrópu. Þjóðernisflokkurinn Þjóðar-
fylkingin, sem er lengst til hægri,
sótti einnig á, en hann er andvígur
Evrópusamrunanum.
Skiptast ekki eftir flokkslínum
Deilan um stækkun NATO skiptir
mönnum ekki eftir flokkslínum. Bob
Dole, fyrrverandi öldungadeildar-
þingmaður og andstæðingur Clint-
ons í kosningunum á síðasta ári, er
hlynntur stækkuninni. Hins vegar
hefur einangrunarhyggja ávallt ver-
ið rík í Bandaríkjamönnum.
Bandaríkjaþing lýsti yfir tákn-
rænum stuðningi við stækkun í at-
kvæðagreiðslu í fyrra sumar. Nú er
hins vegar búist við að róðurinn
verði þyngri og margir þingmenn
muni vilja kanna allar forsendur
málsins áður en þeir samþykkja að
bandarískir hermenn verði sendir til
Varsjár, Prag og Búdapest, þurfi á
því að halda. Þriðji hluti þingmanna
öldungadeildar Bandaríkjaþings þarf
til að samþykkja stækkunina. Búist
er við að Pólveijum, Tékkum og
Ungvetjum verði boðið til viðræðna
um inngöngu í NATO á leiðtoga-
fundi bandalagsins, sem haldinn
verður í Madrid í júlí.
Clinton hefur ákveðið að sérstök
skrifstofa muni stjórna áróðri til að
sannfæra Bandaríkjamenn um ágæti
stækkunar NATO og er hún undir
stjórn Jeremys Rosners, sérlegs ráð-
gjafa Clintons og Madeleine Albrigts
utanríkisráðherra.
Einn af þeim, sem þarf að sann-
færa, er Jesse Helms, formaður ut-
anríkismálanefndar öldungadeildar-
innar. Helms hefur sagt að hann
vilji skoða smáa letrið áður en hann
ákveður sig.
Kostnaður við stækkun mun verða
lykilatriði í umræðunum um stækk-
un, sérstaklega í Ijósi þess að verið
er að draga úr útgjöldum til hernað-
armála heima fyrir, meðal annars
með því að loka herstöðvum.
Glatað tækifæri?
Evrópuferð Clintons í þessari viku
átti meðal annars að ýta undir stuðn-
ing almennings heima fyrir við
stækkun. Úrskurður hæstaréttar um
að bandarískir dómstólar gætu rétt-
að í kæru Paulu Jones á hendur
forsetanum fyrir kynferðislega
áreitni_ gerðu þær fyrirætlanir að
engu. Á meðan Clinton ávarpið Evr-
ópuleiðtoga í París og minntist Mars-
hall-aðstoðarinnar í Haag var Paula
Jones efst á baugi í Bandaríkjunum
og áróðurstækifærið glataðist.
Leiðtoga-
dýrkun
LEIÐTOGADÝRKUNIN í Norð-
ur-Kóreu hefur síst minnkað við
leiðtogaskipti í hinu lokaða landi.
Kim II Sung hafði þúsundir við-
urnefna, hvert öðru hástemmd-
ara, og Kim Jong II, sem tók við
forustu þjóðarinnar af honum,
er ekki síður skjallaður opinber-
lega. Þessi dýrkun kemur ekki
oft fram á Vesturlöndum, en
nýverið birtist auglýsing í viku-
legu bókablaði The New York
Times þar sem verið var að óska
honum til hamingju með 55 ára
afmælið um leið og fyrsta bindi
ævisögu hans, sem ber nafnið
„Kim Jong II, leiðarstjarna 21.
aldarinnar".
í auglýsingunni er sagt að „fé-
lagi Kim Jong 11“ sé „gæddur
fágætum hæfileikum á sviði hug-
myndafræði og kenningasmíðar,
framúrskarandi leiðtogahæfi-
leikum og hástemmdum dyggð-
um“. Þvi er bætt við að hann sé
„hin mikla sól 21. aldarinnar“.
Haft er eftir frönskum pró-
fessor við Parísarháskóla,
Edmond Jouve, að í Evrópu njóti
Kim Jong II virðingar og viður-
kenningar sem „mikill hugsuður
og kenningasmiður fyrir sín víð-
kunnu verk“.
Our warmest greetings to Leader
Kim Jong n on his 55th birthday!
The Greatest Hero Juche Korea Has Ever Produced
The rcspected Comrade Kim Jong II,
wfto is erulowed with unarmmon
idcological-theoretical abiíity,
outstandingleadership and
lofty virtues, is the great sun of
the 2Istcentury.
KiBotig Mytvtg Sa A’tt.Muvnct 'J cfceim'. autfnutnt lut, rotyn Jt*%an
Tv’. «ív-O.VK»>}0«» .ai.icí &A}<í/tx:
>r ihv. Vmítvrutr vt Ihuit 3, tliUt th
Thi*'voil.ut HK lUwlk IM.V K«m lonR íl\ .ulu>ir.,'dt wvIMiuiím.
Nn«ndIrM dMO^uvon uuKtmlinji rtnuw’L. Iwuil tln. »»it ruui
iIWiwwiI i< witk M!»>• •’»Uo||ue. I bev Jw utiiml viili nw nul
llirU ilr»|> jJmmciou. I:r.utly >t i* »m>
| .IklWail foe j ibuwKlu. fcmirvm rwvflotT ij. mav hr. .ml tnc u\
j julltiwilv.' in hr «uipii«il by Oiwfji' si'lf.irijicuknii Fjnupuii
J wJtutaiT. Ilnwcvu. Iliv Eudlwu f KUh Jrtup, II )».. mw i» hr
| ji.tfHrti hr ! ur•••'•■*-iv ruJ i.lnpkU' rvvpx trtl ,i (H'.it llimkrr
I llHwntruin tor lld. kimnii nwfc.*
Samsteypu-
stjórnin í Tyrklandi
Erbakan lætur
undan þrýstingi
hersins
Ankara. Reuters.
NECMETTIN Erbakan, forsætisráð-
herra Tyrklands, hefur látið undan
þrýstingi hersins og samþykkt að
161 maður verði leystur undan her-
þjónustu.
Flestir eru mennirnir látnir víkja
vegna stuðnings við málstað íslam-
skra heittrúarmanna eða róttækra
vinstri manna. Tyrkneska dagblaðið
Milliyet sagði Erbakan hafa freistað
þess að fresta ákvörðun um brott-
vikninguna fram í ágúst en þrýsting-
ur hersins verið of mikill.
Fjórir ráðherrar segja af sér
Deilur Erbakans við herinn, sem
krefst þess að Tyrkland haldi fast
við þá veraldlegu stefnu sem ríkt
hefur frá árinu 1922, hafa skapað
vandamál innan samsteypustjórnar-
innar. Þannig hafa fjórir ráðherrar
samstarfsflokks Erbakans sagt af
sér vegna ágreinings um þessi mál.
Til stóð að ríkisstjórnin héldi sinn
fyrsta fund í átta vikur á þriðjudag
en vegna ágreinings hefur vikuieg-
um fundum hennar verið frestað
hvað eftir annað.