Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 31

Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1997 31 Eyðimörkin er hið innra BOKMENNTIR Ljód BLÁVINDUR OG FLEIRI LJÓÐ eftir Daud Kamal. Hallberg Hall- mundsson sneri úr ensku. Ljóðakver 1,32 bls. Brú - Reykjavík, New York 1997. PAKISTANSKA skáldið Daud Kamal fæddist árið 1935 í Abb- ottabad sem þá laut indversk- breskri stjórn, en komst undir pak- istönsk yfirráð þegar Indlandi var skipt 12 árum síðar. Hann stundaði nám í ensku, fyrst í heimalandinu, en síðar á Bretlandi, og fékkst lengst af við enskukennslu við há- skólann í Peshawar í Pakistan. Kamal orti nær eingöngu á ensku, en vann jafnframt ág- ætt starf við þýðingar á skáldskap úr móður- máli sínu, úrdú. Hann lést árið 1987. Ljóðin í Blávindi eru tekin úr þremur bókum sem út komu á árunum 1979-85, og yfir þeim er samstæður heildar- svipur. Náttúran, svip- myndir úr smáþorpi, hugleiðingar um tím- ann og hverfulleikann, hið liðna og forgengileiki hlutanna, eru meðal helstu yrkisefna skáldsins í ljóðum kversins — allt algild við- fangsefni í ljóðlist. Andrúmsloft ljóðanna var því hreint ekki eins framandlegt og ég átti von á fyrirfram; vera kann að þar hafi hjálpað til vestræn áhrif tungumálsins sem skáldið yrkir á, en eftir lestur Ijóðanna þótti mér hafa sannast enn og aftur að hvar- vetna séu mennirnir menn, hver sem tunga þeirra er, umhverfi, trú- arbrögð eða menning. Helsta tákn bókarinnar er líka nokkuð sem allir menn þarfnast: vatnið sem streymir í eilífri hringrás — rétt einsog tíminn. Innviðir mannskepnunnar eru áleitið viðfangsefni hjá skáldinu, ytra umhverfi á sér samsvörun í innra lífí. „Eyðimörkin er hið innra,/ einnig særinn./ Bæði bíða þess að yfir sé farið“, segir í ljóðinu Sam- streymi. Þvínæst er greint frá göml- um manni og sonarsyni hans á ströndinni. Síðan segir: Við deyjum öll, einnig þeir sem enn hafa ekki lifað. Tvö fljót sem tortryggja hvort annað renna saman. Nóttin opnar ginið að taka bitanum. í öðru ljóði segir frá uppgreftri fornminja („Hversu mikið hafa þeir grafið/ upp úr þöglum barka sögunnar?“), en fljótt er gröftur eftir minjum fortíðar orðinn innri upplifun ljóð- mælandans: „Þetta er ekkert nema hviksögur .../ uppgröfturinn er enn óhafínn. “ Og síðan: Svo margt skrælnar með eftir- væntinp ... svo margt er ónýtt með iðrun. Ein aupagota tendraði draum. Ég fékk aldrei komið því í verk að skipuleggja ævi mína. Ur Það glaðnar seint tilídag Ljóð af þessu tæi eru kveðskapur án landamæra, og ein- kenna á sinn hátt þetta kver. Annað einkenni margra ljóð- anna, er myndmál sem líkja mætti við myndir sem lent hafa saman í albúmi, meira einsog fyrir tilviljun en vegna þess að þær eigi efnislega svo margf sameiginlegt, raunar sjaldnast annað en að fara vel sam- an. Þetta eru rökfræðilega snúin, en tilfínningalega heillandi ljóð. Þýðing Hallbergs er liðug og óþvinguð, og miðlar andblæ sem er trúverðugur fyrir þessi ljóð. Blávindur er fyrsta kver í flokki sem hefur nafnið Ljóðakver. Útgáf- an er einföld og tildurslaus, en veig- ur er í inntaki þessa fyrsta kvers. Kjartan Árnason Hallberg Hallmundsson LISTIR í SAMKÓR Mýramanna eru nokkrir bændur og íbúar í landnámi Skallagríms Kveldúlfssonar á Borg og Egils sonar hans. Samkór Mýramanna fer til Þýskalands SAMKOR Mýramanna lagði í dag af stað í söng- og skemmti- ferð til Þýskalands og Austur- ríkis. Þar með líkur þróttmiklu vetrarstarfi kórsins. Þrjátíu kórfélagar fara í ferðina. Á efnisskrá er gömul og ný ís- lensk tónlist. Kórinn flýgur til Frankfurt og ekur þaðan suður til Chi- emsee sem er stöðuvatn skammt norðan landamæra Þýskalands og Austurríkis. Þar á eyju í vatninu er nunnu- klaustur sem verður heimili kórfélaga á meðan á ferðinni stendur. Auk þess að syngja á ýmsum viðkomustöðum mun kórinn halda tvenna tónleika. Fyrri tónleikarnir verða í Dómkirkjunni í Salzburg en hinir síðari í Thorhalle sem er fornt virki í nagrenm klaust- ursins. í ferðinni verður lögð áhersla á að kynna íslenska tónlist, gamla og nýja. Á efnis- skrá verða m.a. útsetningar Jóns Ásgeirssonar á íslenskum þjóðlögum, lög eftir Jón, Fyrir- látið mér, sem er lag við vers úr Lilju Eysteins Ásgrímssonar og Lokakór úr Þrymskviðu. Einnig syngur kórinn lög eftir Karl O. Runólfsson, Árna Thor- steinsson, Sigvalda Kaldalóns, Gunnstein Ólafsson, Björgvin Guðmundsson, Guðrúnu Böð- varsdóttur, Oddgeir Kristjáns- son og Valgeir Guðjónsson. Stjórnandi kórsins og farar- sljóri er Dagrún Hjartardóttir og undirleikari Jónína Arnar- dóttir. Tímarit • ÞRÍTUGASTI og fimmti árgangur Sögu, tímaríts Sögufé lags, er komið út. Saga flytur að þessu sinni fimm ritgerðir og fjalla þær allar um sögu síðari alda. Tvær greinar eru birtar undir hatt- inum Andmæli og athugasemdir og að venju eru fjölmargir ritdóm- ar. Fyrsta ritgerðin er eftir Friðrik G. Olgeirsson og nefnist „Breyt- ingar á atvinnulífi og búsetu við Eyjafjörð 1850-1910“. Vaxandi gengi félagssögu og þá sérstaklega kvennasögu endur- speglast í þessu bindi Sögu með ritgerðum Erlu Huldu Halldórs- dóttur þg Sigurðar Gylfa Magnús- sonar. í ritgerð Erlu Huldu, „Að vera sjálfstæð. ímyndir, veruleiki og frelsishugmyndir kvenna á 19. öld“ er skyggnst inn í hugarheim 19. aldar kvenna með hjálp sendi- bréfa og æviminninga. í ritgerðinni „Kynjasögur á 19. og 20. öld? Hlutverkaskipan í ís- lensku samfélagi“ fjallar Sigurður Gylfi Magnússon um sögulega þróun kynhlutverka. Hann telur tímabært að fjallað sé um sameig- inlega sögu kynjanna í stað þess að skoða kynin hvort fyrir sig, slíkt varpi betra ljósi á þjóðfélags- þróunina. Sigfús Haukur Andrésson greinir frá lítt þekktum þætti í verslunarsögu 19. aldar í ritgerð sinni „Tilskipim um aukið verslun- arfrelsi fyrir ísland árið 1816 og tildrög hennar.“ Lýður Björnsson skrifar ritgerð- ina „Við vefstól og rokk“, þar sem fjallað er um viðleitni danskra stjórnvalda til að bæta verkkunn- áttu íslendinga á ofanverðri 18. ökL í Andmælum og athugasemdum halda áfram skoðanaskipti um plágur 15. aldar og mannfelli í þeim. Gunnar Karlsson skrifar greinina „Um fræðilegan hernað og pláguna miklu“ þar sem svarað er ritgerð Jóns Ólafs ísbergs í Sögu 1996 um plágurnar. Að þessu sinni eru birtir 18 rit- dómar eftir 17 höfunda um rit sögulegs efnis, en auk þeirra eru birtar nokkrar stuttar ritfregnir. Utvarpsdagar Howards Sterns KVIKMYNPIR Kringlubíó, Sam- bíóin Álfabakka, Nýja Bíó, Kcflavík „PRIVATE PARTS“ ★ ★ V2 Leikstjóri: Betty Thomas. Handrit: Len Blum. Framleiðandi: Ivan Reit- man. Aðalhlutverk: Howard Stem, Mary MacCormack, Robin Quivers, Fred Norris, Jackie Martling. Para- mount og Rhyser Entertainment. 1997. EINHVER umtalaðasti út- varpsmaður Bandaríkjanna, Howard Stern, hefur hneykslað margan sómakæran Bandaríkja- manninn upp úr skónum undan- farna áratugi með dónalegu út- varpi. Hann hefur nú gert um það gamanmynd, líklega eina þá fyrstu sem byggð er á spjall- þætti í útvarpi (önnur er „Talk Radio“ eftir Oliver Stone). í mynd Sterns, sem heitir „Private Parts“, er rakin ævisaga hans frá því hann langaði ungan til þess að gerast útvarpsmaður og sagt er frá hetjulegri baráttu hans við yfirmenn NBC-stöðvar- innar, sem gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að draga úr ósómanum er uppúr Stern vellur. Enginn er betri í þeirri list að auglýsa sjálfan sig en Howard Stern og myndin er ein löng og mikil auglýsing fyrir þennan geðþekka fjölskyldu- mann. Hún er skemmileg og fyndin, einkanlega fyrri helm- ingurinn um æsku- og mótunar- ár Howards Sterns, en dettur svolítið niður í seinni hálfleik þegar refurinn er orðinn vinsæl- asti útvarpsmaður þjóðarinnar; þó er þar margt skondið. Það hefur sjálfsagt mörgum manninum vestra, sem þekkir fyrirbærið betur en við hér á landi, brugðið að sjá hversu hug- ulsöm og falleg sál Howard Stern raunverulega er. Málið er að hann er gróflega misskilinn, að eigin sögn í eigin bíómynd. í henni er honum lýst sem manni er hugsar um hagsmuni vina sinna, sem leika sjálfa sig í mynd- inni, og er með eindæmum nær- gætinn eiginmaður svo eitthvað sé nefnt. Orðspor mannsins er á þann veg að slíkar lýsingar virka eins og sjálfsháð. Nema auðvitað hann sé í raun og sann mjúki maðurinn holdi klæddur. „Private Parts“ er byggð upp eins og heimildarmynd og margt af því sem er best heppnað I myndinni er gert í anda Woodys Allens: Litli Stern fylgist með pabba sínum, útvarpstækni- manninum, í vinnunni, ungi maðurinn Stern í háskóla reynir að fá stelpur á ball með sér, nýi útvarpsmaðurinn Stern stýrir glötuðum útvarpsþáttum. Stundum skellihlær maður að einstaklega háðskri og bein- skeyttri gamanseminni og kring- umstæðum og persónum sem boðið er uppá. Erfitt er að sjá að hægt sé að gera betra bíóefni úr útvarpsefni. Myndin er byggð á stuttum gamanatriðum en rauði þráðurinn í sögunni er samband Sterns og eiginkonu hans, sem m.a. fær að hlusta á eiginmann sinn í beinni gera stólpagrín að því þegar hún missti fóstur. Howard Stern er ekkert heilagt nema Howard Stern og það er kannski mesti brandarinn eftir allt. Arnaldur Indriðason Nýjar bækur • EKKI algeríega einn er úrval ljóða eftir finnlands-sænska skáldið Lars Huldén í íslenskri þýðingu Njarðar P. Njarðvík. Huldén yrkir um hverfulleika lífs- ins, um einmanaleika, um dauðann, um náttúruna, um mannleg sam- skipti og samskipti manns og nátt- úru, um móðurmálið, um málfræði, um trú og trúleysi, og hann nálgast þjóðskáld á nýstárlegan hátt, sem sumum kann að sýnast bera svip af j,virðingarleysi“. í kynningu segir: „Myndmál ljóð- anna er mjög nýstárlegt, tónninn oft kumpánlegur með ívafí kímni og jafn- vel kaldhæðni, en að baki býr djúp alvara, þrátt fyrir allt að því skop- legt yfírbragð á stundum. Stíllinn ber oft keim af einföldu hvers- dagsmáli, en það getur verið blekkjandi, því að stundum þéttist ljóðmálið í hnit- miðaðar setningar sem standa líkt og spakmæli.“ / bókinni eru 67 ljóð úr 15 ljóða- bókum skáldsins. Hún er 64 bls. og kostarkr. 1.140. Bókaútgáfan Urta gefur út. Lars Huldén Finnbogi fær nor- ræna viðurkenningn FINNBOGI Pétursson myndlistarmaður hefur fengið norrænan styrk sænsku menningar- stofnunarinnar Ed- strandska að upphæð 230.000 sænskar krón- ur. Styrkurinn er veittur fyrir árið 1997. Einn listamaður frá hverju landanna, íslandi, Dan- mörku, Noregi, Finn- landi og Svíþjóð, hlaut styrk að þessu sinni. Styrkurinn er veittur í því skyni að styðja og örva listsköpun svo að Finnbogi Pétursson listamönnunum gefist kostur á að leggja enn meiri rækt við list sína. Finnbogi hlýtur styrkinn fyrir hljóðmyndir og hljóðinnsetningar sínar og er honum líkt við ljóð- skáld sem með ríkum orðaforða breyti flókn- um hljóðfyrirbrigðum í einfalt sýnilegt form. Finnbogi Pétursson er fæddur í Reykjavík 1959. Hann nam við Myndlista- og handíðaskólann og við Jan Eyck listaakadem- íuna í Hollandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.