Morgunblaðið - 29.05.1997, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 29.05.1997, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR Smásögur MEÐ ÁSTARKVEÐJU, EYMD OG VOLÆÐI eftir J.D. Salinger. Islensk þýðing Ásgeir Ásgeirsson. Mál og menning, Reykjavík 1997.135 bls. SÖGURNAR í þessu smásagna- safni eru í takt við höfund sinn, huldumann bandarískra bókmennta, J.D. Salinger: þær eru, í einu orði, undirfurðulegar. Sumar eru nánast eins og hálfkveðnar vísur, brot úr stærri sögum, sem rétt glittir í und- ir yfirborðinu. Það djarfar fyrir sál- arflækjum, angist og átökum en frá- sögnin verst áleitni lesanda og enga vissu er að hafa um ástæður og aðstæður. Salinger fjallar um fólk „á mörkunum", fólk eins og okkur, og samskipti þess í ólgusjó lífsins. En fáránleiki sagnanna, og mann- legs hlutskiptis, kjarnast í hnitmið- aðri kápumynd Katrínar Sigurðar- dóttur af kjólklæddum karli með pípuhatt sem rennir sér, eins og ekkert sé, á sjóskíðum í hvítfyssandi öldusköflum. Fyrsta sagan sýnir vel tilvistarleg- an línudans yfír hyldýpi tilverunnar. Fáránlegur titillinn, „Nú er veður fyrir bananafisk", býr lesandann á engan hátt undir voveiflegan endi sögunnar (en ætti kannski að gera það!). Sagan er vel skrifuð og sér- kennileg. Hún er líka áhugaverð fyrir þær sakir að í henni kemur persónan Seymour Glass í fyrsta sinn fram í höfundarverki Salingers. En Salinger hélt síðan áfram (og er kannski enn) að skrifa um Glass-fjöl- skylduna kostulegu og brothættu. Undirfurður hversdags- leikans Hinar sögurnar í safninu eru flestar áhugaverðar. Þær eru skrifaðar á árunum rétt eftir síðari heimstytjöld og bera keim af því, í innihaldi og kannski í stíl. Þær halda þó að mestu gildi sínu, einkum áðumefnd saga um „bananafiskinn" og Seymour Glass, og sög- urnar „Til Esmé - með ástarkveðju, eymd og volæði“ og „Bláa skeiðið í lífi de Daumier-Smith“. Þessar sögur eru óvenjulegar og ekki lausar við að vera „óþægilegar": persónur ná ekki saman og það er stutt í óhugnað bakvið þunn leiktj- öld „veruleikans". Þýðingin færir okkur ágætlega (tíðar)anda frumtextans sem hlýtur að teljast nokkuð snúinn. Við sam- anburð á þýðingu og frumtexta koma þó óhjákvæmilega upp ein- staka álitamál. í sögunni um áður- nefndan Seymour Glass kemur barn- ung stúlka til sögunnar og segir: „Sjá meira gler“ og „Sástu meira gler“. Þetta er sam- hengislaust. í frum- texta segir stúlkan „See more glass“ og „Did you see more glass" og er með því að leika sér með nafnið Seymour Glass sem hana langar að hitta. Þarna hefði e.t.v. mátt nota eitthvað í líkingu við, „Sjá meira glas“ og „Má ég sjá meira glas“, eða jafnvel „Símaglas" og „Sástu símaglas", til að líkja eftir fram- burði á „Seymour Glass“. Í titilsögunni, „Til Esmé - með ástarkveðju, eymd og volæði“, kem- ur fyrir athyglisverður „þýðingar- vandi“. Sögusviðið er England í lok seinni heimstyijaldar. Þar hittir sögumaður, bandarískur hermaður á leið í lokaátökin á meginlandinu, munaðarlausa hefðarstúlku sem tek- ur hann tali og lætur móðan mása. J.D. Salinger Hún er kotroskin og velviljuð en barnaleg og eilítið hrokafull. Sögu- maður gerir góðlátlegt grín að kjánaskap hennar, án þess að hún verði þess vör, og frásögnin iðar af' látlausri íróníu. Það er augljóst á mæli stúlkunnar að hún reynir að sýnast fullorðnari og þroskaðri en hún er, hugsanlega til að bæta sér upp munaðarleysið. En það er ljóst á orðavali og -notkun að hún veldur ekki öllum fínu orðunum: hún segir t.d. „intransically" í stað „intrinsic- ally“ og „momento" í stað „me- mento“. Orðin „archivist“, „prolific“ og orðasambandið „extenuating circumstances" virðist hún ekki skilja fyllilega. (Af þessu má svo ráða að skilningi hennar á orðinu „squalor", eða „eymd og volæði“, í titli sögunnar, er kannski ábóta- vant.) Þessi „orðaleikur" höfundar og írónían sem hann framkallar fer að vissu leyti forgörðum í þýðingu. En þetta kann að vera réttlætan- legt: það er eflaust ekki létt verk að íslenska þennan leik þannig að vel fari og auk þess má segja að aðalbragð sögunnar skemmist ekki þó eitt kryddið dofni lítillega. Þessar sex sögur eru góð kynning á smásagnagerð Salingers en marg- ir íslenskir lesendur kannast við einu skáldsögu hans, Bjargvættinn í grasinu (AB, 1975). Nú eru ýmis teikn á lofti fyrir því að þessi 78 ára rithöfundur, sem gekk svo að segja í björg fyrir 32 árum, ijúfi brátt þögn sína, hugsanlega með útgáfu óbirtra smásagna sem hann ku eiga tilbúnar í hrönnum. Ef af verður, er vonandi það taki ekki fjóra áratugi fyrir þær að rata á íslenska tungu. Geir Svansson Karla- og kvennakórar og tríó komu fram á vortónleikum kórs Stykkishólmskírkju Gunnlaugur Árnason KÓR Stykkishólmskirkju bauð upp á fjölbreyttan söng á vortón- leikum í Stykkishólmskirkju. Gunnlaugur Amason BRÆÐURNIR Bjarni, Kristján og Eyþór Lárentsínussynir hafa sungið í mörg ár með kirkjukórnum. Umsátur að áströlskum hætti KVIKMYNDIR Iláskólabíó UMSÁTRIÐ „MR. RELIABLE" ★ ★ Leikstjóri: Nadia Tass. Aðalhlut- verk: Colin Friels, Jacqueline McKenzie. Polygram. 1996. ÁSTRALSKAR gamanmyndir minna stundum á þær dönsku eins mildar og sérkennilegar og þær geta orðið og húmanískar. Eyði- merkurdrottningin Priscilla og Brúðkaup Muriel eru tvö skínandi dæmi. Sömu framleiðendur munu gera gamanmyndina Trausta eða „Mr. Reliable“, sem hefur hlotið íslensku þýðinguna Umsátrið. Þeir hafa greinilega gott auga fyrir hinu spaugilega í þjóðarein- kennum Ástrala, dýrkun á sænsku popphljómsveitinni ABBA er eitt, og bregða upp óvæntri sýn á líf þessarar engilsaxnesku þjóð- ar sem berst við hitabylgjur í jan- úar. Umsátrið er síst þessara mynda en hefur samt upp á margt grínið að bjóða. Hún gerist hippaárið mikla 1968 skammt utan við Sydney í Ástralíu og segir af því þegar tukthúslimur nýkominn úr fang- elsi ógnar tveimur lögreglumönn- um með haglabyssu á heimili sínu svo úr verður viðamikið og tíma- frekt umsátur og fjölmiðlasirkus. Inni hjá manninum er nýja kær- astan hans og bam hennar og er það hald lögreglunnar til þess að byija með að þau séu í hættu. Myndin er byggð á sönnum atburðum og lýsir því hvernig maðurinn og konan hans og barn- ið og meira að segja hundurinn þeirra vinna smám saman samúð þjóðarinnar og hvernig lögreglan stendur ráðþrota frammi fyrir byssumanninum, ófær um að ráð- ast til atlögu vegna barnsins inni í húsinu. Tilraun leikstjórans Nadiu Tass til þess að skapa ljúfsára stemmn- ingu með amerískum popplögum tímabilsins fer fyrir ofan garð og neðan en að öðru leyti tekst henni ágætlega að endurskapa tímabil blómabarna og hippahugsjóna. Colin Friels er skemmtilega ráð- þrota sem byssumaðurinn, sauð- meinlaus í rauninni en neyðist til þess að gera það besta úr erfiðri stöðu. Jacqueline McKenzie er kærastan sem stendur honum við hlið og fellur hún vel í hlutverkið. Mesta gamansemin tengist rauð- þrútnum yfirmönnum lögreglunn- ar, sem ýmist vilja fara sáttaleið- ina eða sprengja upp heila gallerí- ið. Umsátrið er lítil, snotur, ástr- ölsk gamanmynd sem aldrei nær að vera mikið meira en neðan- málsgrein og þannig virkar einnig atburðurinn sem hún lýsir á ókunnugan. Arnaldur Indriðason Æftfyrir Noregsferð Stykkishólmi. Morgunblaðið. KÓR Stykkishólmskírkju hélt tónleika í kirkjunni laugar- daginn 24. maí sl. Þarna söng 35 manna kór bæði innlend og erlend lög og á tónleikun- um komu fram karla- og kvennakór og tríó. Stjórnandi kirkjukórsins er Sigrún Jónsdóttir og undir- leikari var maður hennar, Hólmgeir Þórsteinsson. Þau hjón komu til starfa í Stykkis- hólmi í haust og hafa skilað góðu starfi í vetur. í vetur fékk kórinn boð um að taka þátt í kóramóti í Drammen, vinabæ Stykkis- hólms í Noregi, sem haldið verður í september nk. Kórinn hefur sett stefnuna til Noregs og ákveðið að taka þátt í mót- inu. Kirkjukórinn í Stykkis- hólmi er eini íslenski kórinn sem tekur þátt í kóramótinu í Drammen, en auk hans syngja kórar frá Noregi, Sví- þjóð og Eystrasaltsríkjunum. Tónleikar í Borgar- neskirkju HJÓNIN Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona og Kjartan Ól- afsson söngvari og tónlistar- maður halda tónleika í Borgar- neskirkju laugardaginn 31. maí kl. 17, ásamt kórum sínum, Rangæingakórnum í Reykjavík og Kór Rafmagnsveitu Reykja- víkur. Undirleikari á píanó er Hólmfríður Sigurðardóttir. Gestakór verður Karlakórinn Söngbræður úr Borgarfirði undir stjórn Jerzy Tosik Warszawiak. Efnisskráin er í léttum dúr. Djasskvöld hjá Puceini DJASSKVÖLD verður haldið á Kaffi Puccini, Vitastíg lOa, í kvöld, fimmtudag. Sem fyrr er það tríó Björns Thoroddsen sem spilar en _auk Björns skipa tríóið Ásgeir Ósk- arsson á trommur og Gunnar Hrafnsson á bassa. Tríó Björns Thoroddsen leikur frá kl. 21.30-23.30 og hefur verið ákveðið að djasskvöld af þessu tagi verði haldin á Puccini síð- asta fimmtudagskvöld í hveij- um mánuði, segir í kynningu. Skækjan há- punktur leik- listarhátíðar Á LEIKLISTARHÁTÍÐINNI í Hallunda, sem stóð yfir 21.-25. maí, var sýnd uppfærsla Þjóð- leikhússins á Leitt hún skyldi vera skækja eftir John Ford, í leikstjórn Baltasasr Kormáks. Á hátíðinni voru að mestu vald- ar sænskar leiksýningar en einnig sýningar frá Þýskalandi, írlandi, Noregi og Italíu, alls 35 talsins. Þrjár sýningar voru á Skækj- unni og komust færri að en vildu. Sýningin fékk góðar við- tökur. Var það álit forstöðu- manna hátíðarinnar að sýning Þjóðleikhússins væri hápunktur hátíðarinnar og í alla staði framúrskarandi. Leikhópnum var í framhaldi boðið að koma næsta vor til Moskvu og sýna gestaleik í Leikhúsi þjóðanna þar í borg. Við slaghörp- una í Stykkis- hólmi AÐRIR tónleikar í tónleikaröð sem Efling í Stykkishólmi stendur fyrir verða í Stykkis- hólmskirkju á mánudaginn kl. 21. Þar koma fram Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzosópran og Jónas Ingimundarson píanóleik- ari. Yflrskrift tónleikanna er „Við slaghörpuna“ en þeir eru úr tónleikaröð Gerðarsafns í Kópavogi. Vortónleikar Skólakórs Garðabæjar SKÓLAKÓR Garðabæjar held- ur vortónleika í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í kvöld kl. 21. Á tónleikunum syngja allar þijár deildir kórsins. Kórinn fer svo í ferð um Suðurland og heldur tónleika í Vík í Mýrdal 3. júní og í Skálholti 4. júní. Stjórn- endur kórsins eru Áslaug Ól- afsdóttir og Guðfinna Dóra Ólafsdóttir. Undirleikari er Linda Margrét Sigfúsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.